Tíminn - 09.10.1983, Qupperneq 9

Tíminn - 09.10.1983, Qupperneq 9
SUNNUDAGUR 9. OKTÓBER 1983 Wimmu 9 menn og málefni „Gæfuna er hvergi að finna nema í vinnu og baráttu” Meginvinnan bíður ykkar ■ í sumar voru liðin 45 ár frá stofnun Sambands ungra Framsóknarmanna og mun þess minnzt á fundi stjómar SUF nú um helgina. Stofnþingið var haldið á Laugarvatni og stóð í fjóra daga. Fyrir þá, sem þarna mættu, er ánægjuleg endurminning að fletta tíð- indum frá stofnþinginu, en þar er m.a. að finna ávarp frá Jónasi Jónssyni, sem þá var formaður flokksins, og ræður, sem þáverandi ráðherrar flokksins, Hermann Jónasson, Eysteinn Jónsson og Skúli Guðmundsson, fluttu á fund- inum. Þótt mikil fjárhagskreppa ríkti í landinu á þessum tíma, ríkti mikil bjartsýni og sóknarhugur í ávörpum og ræðum forustumannanna, en þó ekki minni hjá stofnendunum. í ávarpi Jónasar Jónssonar, sem var staddur erlendis, sagði m.a. á þessa leið: „En þó að ykkur finnist allmikið hafa verið unnið á Laugarvatni, þá er það aðeins byrjun á miklu meira verki sem þar mun verða unnið á komandi árum. Sú kynslóJ, sem vaknaði til mikils starfs á morgni yfirstandandi aldar, hefir sýnt í verki skilning á því hve ísland er gott land, fagurt og auðugt að náttúrugæðum. Á Laugarvatni hefir verið gert átak einnar kynslóðar, mikil vinna í sjálfu sér, en þó aðeins örlítil byrjun á því að fullnota hin miklu náttúrugæði fyrir landsins börn. Hlutverk ykkar, ungu Framsóknar- menn, er að taka fundarstað ykkar Laugarvatn á táknrænan hátt. Þar leggur landið fram mikil náttúrugæði. Þar hefir núverandi kynslóð lagt grundvöll að þjóðnýtu starfi. En meg- invinnan er eftir. Og hún bíður ykkar.“ Landnemar skapa sér sjálfir störf Eysteinn Jónsson talaði fyrstur ráð- herranna. Hann sagði m.a.: „Við búum í lítt numdu landi. Alstaðar blasa verkefnin við. Landið verður hinsvegar aldrei unnið til fulls, ef æskulýðurinn aðhyllist einhliða kenningar kröfumannanna. Verulegt landnám og nýsköpun get- ur ekki átt sér stað nema æska landsins sé þess reiðubúin að leggja að sér nokkurt erfiði og skapa sér þannig starf þeirrar tegundar, sem þjóðar- heildin þarfnast mest. ísland hefði aldrei byggst ef landnámsmennirnir hefðu ekki sjálfir skapað sér starf þótt í byrjun væri örðugt, ef þeir hefðu t.d. ekki byrjað á landnáminu fyrr en þeim voru tryggðar fastar tekjur eftir kaup- gjaldsreglum nútíðarinar. Á sama hátt verður landnámi hér ekki haldið áfram, ef unga fólkið bíður og bíður eftir því að fyrir það opnist starf með taxtakaupi kaupstaðanna, ef unga fólkið er ekki reiðubúið til þess að leggja á sig erfiði til þess að skapa sér rúm og starf í framleiðslunni eins og forfeðurnir hafa gert. Þjóðin þarfnast ungra manna, sem vilja og þora að sækja brauð sitt í skaut íslenzkrar náttúru. Framsóknarflokkurinn lítur á það sem eina sína höfuðskyldu, að styðja slíka æskumenn og starfsemi þeirra. Hann mun framvegis sem hingað til líta á það sem sitt hlutverk, að standa á verði gegn þeim, sem seilast eftir arðinum af starfi þeirra." Eysteinn Jónsson vék síðan að því, að Framsóknarmenn töldu sig ekki ráða yfir neinum töfraráðum, en hins vegar þrautreyndum úrræðum. Hann sagði: „Við Framsóknarmenn höldum því ekki fram, að við eigum neinn töfra- sprota, og að allt sem aflaga fer og erfitt reynist, geti lagast af hans völd- um án fyrirhafnar. Við höldum aftur á móti hinu fram, að meginúrræði þau, sem við bendum á, séu duglegum mönnum samboðin og hafi verið reynd undir erfiðum kringumstæðum með góðum árangri." í vinnu og baráttu Hermann Jónasson ræddi um lífs- Fulltrúar á stofnþingi S.U.F. ■ Myndin var tekin við Geysi. — Á myndina vantar allmargt fulltrúa, en hins vegar eru um 14 gestir með á myndinni. Alls sóttu 104 fulltrúar þingið. hamingjuna í ræðu sinni. Hann sagði: „Hið dásamlega við lífið er það, að hagur og gæfa einstaklinganna og þjóð- félagsis fara saman. Þróttmikill og ábyrgur einstaklingur, sem heyir lífs- baráttuna með elju og karlmennsku, er hollur sjálfum sér, því gæfuna er hvergi að finna nema í vinnu og baráttu. Sá, sem hefir allt til alls og þarf ekkert fyrir því að hafa, verður aldrei hamingjusamur. Lífshamingjan er í því fólgin, að erfiða og sigrast á erfiðleikunum og jafnvel bíða annað slagið ósigur; því meiri og hreinni verður gleðin yfir sigrinum; sólskins- dagar eru okkar gleðistundir, vegna þess að við höfum ekki alltaf sólskin, •og birta sumarsins vegna þess að við höfum dimma vetur. Þannig er lífs- hamingjan. Skúrir og skin verða að skiptast á - það er einnig fullvíst, að það nær enginn langt fram né öðlast karlmennsku og þor nema sá, sem leggur mikið á sig, mætir miklum erfiðleikum og jafnvel hættum og heyir harða baráttu til að yfirstíga þær.“ Síðar í ræðunni boðaði Hermann Jónasson setningu í þróttalaganna og stofnun garðyrkjuskólans. Þá gat hann þess, að unnið væri að athugun á saltframleiðslu með aðstoð hverahit- ans, sérstaklega á Reykjanesi. Hann sagði síðan: „Verkefnin eru sannarlega óþrjót- andi í þessu landi, og mun það sannast stöðugt betur með hverju árinu, að „hér er nóg um björg og brauð berirðu töfrasprotann, þetta land á ærinn auð, ef menn kunna að nota ann“. Raunverulega er það því frá mínu sjónarmiði þannig, að þó lífsbaráttan sé hörð í dag, þá eru möguleikarnir svo miklir og óleyst verkefni framundan svo mörg, að það hefir aldrei verið ánægjulegra en nú að vera þróttmikill, ungur maður á íslandi. Það er að vísu alltaf til, að menn bíði ósigur, en það eru meiri möguleikar en nokkurn tíma áður til að vinna stór og nytsöm verk og mikla sigra. En í afkomu okkar á þesu landi, baráttu okkar fyrir brauði og fyrir menningu þjóðarinnr, er þó eitt nauð- synlegt og það er að við finnum töfrasprotann, því hann er það, sem allt veltur á. En hann er hæfni okkar og þrek til átaka, ábyrgðartilfinning okkar hvers gagnvart öðrum, og að við getum lært að vinna saman sem heild.“ Myndasöfn í hugarheimi Skúli Guðmundsson ræddi um at- vinnumálin, en vék að minningu þjóð- arinnar í ræðulokin. Hann sagði: „Það hafa orðið miklar og stórstígar framfarir í verklegum efnum á íslandi á síðustu tímum, því verður ekki neitað, þótt þar sé mikið ónumið. En þrátt fyrir þessar miklu framfarir á því sviði, þá stöndum við ekki jafnfætis öðrum þjóðum í því efni. Það er á öðru sviði, sem íslendingar hafa komizt til jafns við menn annarra þjóða: „Vor myndasöfn, þau gnæfa í hugarheimi, svo hátt sem andi býst í jarðnesk orð, og hirðmál er vór tunga í goðageimi, þar greppar sækja eld við konungsborð," segir Einar Benediktsson. Það eru þessi myndasöfn í hugar- heimi, sem þarf að geyma og auka við. Það er íslenzka tungan, sem við fyrst og fremst eigum að varðveita svo að hún verði áfram „hirðmál í guða- geimi". Við þurfum að varðveita tung- una og hið andlega líf. Eitt lítið ljóð eða lag, ein vel kveðin staka getur hafið okkur upp úr erfiðleikum hvers- dagslífsins. „Það er líkt og ylur í ómi sumra braga. Mér hefir hlýnað mest á því marga kalda daga.“ Kaldir dagar munu vissulega koma yfir þessa þjóð og þetta land í framtíð- inni, eins og áður, og við þurfum að vera menn til þess að taka á móti köldum dögum, því þá - ef við erum menn til að taka á móti köldum dögum, - þá kunnum við að meta sólina þegar hún skín.“ Hættulegasti óvinurinn Það féll í minn hlut sem fyrsta formanns SUF að segja lokaorðin á þinginu. Orð mín hafa bersýnilega mótazt nokkuð af því, að mikið sund- urlyndi var í landinu, en heimsstyrjöld yfirvofandi, og því bar þjóðinni að þoka sér saman, eins og síðar varð. Ég sagði m.a.: „írski stjórnmálamaðurinn de Val- era, hefir nýlega sagt að íslendingar ættu ekki nema einn hættulegan óvin, sundurlyndið. En sá óvinur gæti líka verið hættulegri sjálfstæði þjóðarinnar en allir aðrir andstæðingar hennar til samans. Þeir, sem fylgjast með hinum harðn- andi átökum milli stéttanna hér á landi, munu hiklaust fella svipaðan Þórarinn Þórarinsson, ritstjóri, skrifar dóm um íslenzkt þjóðlíf um þessar mundir. Af hverju stafar sundurlyndið? Það á rætur sínar í því, að menn kunna ekki að vinna saman. Þeir meta eigin hag svo mikils, að þeir geta ekki tekið réttlátt tillit til annarra og af því rísa deilurnar. Hver stétt hugsar ein- göngu um sig og miðar kröfur sínar við það, en lætur sig afkomu heildarinnar eða annarra stétta engu skipta. Hinar efnameiri, fámennari stéttir hafa byrj- að þessa baráttu en hinir hafa síðan fylgt í fótspor þeirra. Það er þessi eigingirni stéttana og tillitsleysi til annarra, sem skapar sundurlyndið í þjóðfélaginu og er sá „hjartans ís“, sem er mesti voði þjóðarinnar. Það er rétt, að þjóðin býr nú við ýmsa fjárhagslega erfiðleika, markaðs- töp, verðfall, fiskleysi, fjárpest o.s.frv. En þeir eru hverfandi litlir hjá þessu andlega öfugstreymi. Þó að hér léki allt í lyndi, fiskafli væri nægur og markaðir góðir, gæti sundurlyndið og eigingirnin verið jafnmikil plága fyrir þjóðina. Það er eins og skáldið segir, að hvorki „sól né vor“ koma að gagni, þegar „hjartans ís“ hefir náð tökum á þjóðinni. Þennan andlega ís verður því að bræða, ef þjóðin á að halda manndómi sínum, menningu og sjálfstæði.“ Samvinna í stað sundurlyndis í framhaldi af þessu fórust mér þannig orð: „í Englandi stendur nú þingræðið föstustum fótum og enska heimsveldið ber vott um meiri stjórnarhæfileika en nokkurt annað stórveldi, sem sagan greinir frá. Margir skýra þetta á þá leið, að enskir stjórnmálamenn standi öðrum framar sem málamiðlunar- menn. Þeir kjósi að jafnaði samkomu- lagsleiðina meðan nokkrir slíkir mögu- leikar séu fyrir hendi. í fljótu bragði virðist þetta bera vott um veikleika og undanhald, en reynslan sýnir hinsveg- ar, að mesti styrkleiki brezka heims- veldisins hefir iðulega verið fólginn í slíkum vinnubrögðum. Það getur verið sigursælt í bili, að beita ofbeldi og fylgja lögmáli hnefaréttarins. En slíkt hefnir sín jafnan, þegar til lengdar lætur. Það helzt lengur og betur á hinu, sem unnið er með friði. Það er þessi hæfileiki Englendinga, sem veldur því líka að innanlandsdeil- ur hafa aldrei risið þar svo hátt, að þær hafi ógnað heimsveldinu, en það eru einmitt slíkar deilur, sem hafa átt mestan þátt í glötun annarra heims- velda. Englendingar hafa að vísu deilt innbyrðis, en i hvert sinn, sem reynt hefir eitthvað á þjóðina til átaka út á við, hafa sannazt á þeim ummæli Eirars Benediktssonar: Þegar býður þjóðarsómi þá á Bretland eina sál. Við eigum að stefna að því að slíkt hið sama megi segja um þjóð okkar. Við eigum að hafa það markmið, að jafna deilur og ósætti innbyrðis með samkomulagi og friði. Við eigum að vinna gegn hinni gagnlausu og skað- legu stéttabaráttu, stefna að því að bræða hinn andlega ís og láta sam- heldni og samvinnu þjóðarþegnana koma í stað sundurlyndisins." Vegna sérstakra atvika mun ég ekki geta sótt fund ungra Framsóknar- manna nú um helgina, eins og ég hafði ætlað mér. Ef ég hefði sagt þar nokkur orð, myndi ég helzt hafa tekið mér í munn hvatningu Jónasar Jónssonar: Meginvinnan er eftir. Það hafa unnizt margir sigrar og orðið miklar framfarir á þeim tíma, sem liðinn er frá stofnun SUF. Samt er meginvinnan eftir, sem er fólgin í því að gæta arfsins og margfalda hann.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.