Tíminn - 09.10.1983, Side 15

Tíminn - 09.10.1983, Side 15
Þegar Lindbergh flngkappl kom til ■ Flugvél Lindbergh á leið út úr höfninni í Reykjavík, brottfarardaginn. Vélin var 700 hö, og gat farið með 290-35Ö km. hraða á klst. (Ljósmynd Skafti Guðjónsson). Norðurleiðin um Atlantshaf Nokkru áður en Lindberghhjónin komu hafði það frést á íslandi að ameríska flugfélagið „Panamerican Airways" hefði fengið hann til þess að kanna hina svonefndu norðurleið um Atlantshaf, því augljóst þótti að betri mann gat félagið ekki valið til þessa starfs.ÞóttiLindbergh.enda hafa alla þá þekkingu á flugsamgöngum og öðru því sem hér til þurfti, auk þess sem vitað var að á engum manni mundi meira mark tekið en honum. Vikum saman var Lindbergh ásamt konu sinni, Anne Morrow Lindbergh, á flugferð um Grænland. Kynntist hann landinu betur en nokkur maður hefur gert á jafn stuttum tíma. Flaug hann fram og aftur með fram Vestur-Græn- landi og tvisvar yfir Grænlandsjökul. Einnig fram með austurströndinni 'alla leíð frá Scoresbysundi og suður að Hvarfi, enda hafði Grænland löngum ■ Þann 15. ágúst fyrir 50 árum fengu íslendingar heimsókn sem mikla athygii vakti, en þá kom til Reykjavíkur hinn heimsfrægi flugkappi Charles Lindbergh og kona hans. Hvert mannsbarn þekkti hinn fræga mann, eftir að hann hafði unnið það afrek að fljúga einn síns liðs á flugvél sinni „Spirit of St. Louis“ fyrstur manna yfír Atlantshaf og enn hafði athygli heimsins beinst mikið að honum tveimur árum áður en þá höfðu þau hjón misst bam sitt í hendur mannræningja og fannst það síðar myrt. Hér verða rifjuð upp nokkur atriði um þessa heimsókn flugkappans. verið talið mesti þröskuldurinn á flug- leiðinni. Höfðu Danir talið öll tormerki á því að flugleið yrði lögð um landið, þar sem náttúruskilyrði væru of erfið. Frá Angmagsalik Það var klukkan að ganga þrjú þann 15. ágúst að Lindbergh lagði upp frá Angmagsalik í flug sitt til íslands. Frá Angmagsalik flaug hann fyrst til Vatns- fjarðar, skammt norðan við Angmagsa- lik, þar sem Watkinsleiðangurinn hafði bækistöð sína. Þaðan fór hann kl. 3.30 og tók nú stefnuna norðarlega á ísland ogflaugfyrst til Vestfjarða. Sumirsögðu að hann hefði flogið alla leið norður á Strandir. Eftir því hve snemma hann var kom- inn að landinu þótti komu hans seinka all nokkuð, en til hans sást úr Reykjavík laust fyrir kl. 19.30 um kvöldið. Eimskipin þeyttu eimpípurnar Seinni part dagsins var norðvestan stinningskaldi og talsverðar öldur á ytri höfninni. Var honum því símað héðan, að vafasamt þætti fyrir hann að lenda á ytri höfninni, en jafnframt bent á, að í Skerjafirði væri lygnt, og eins væri lygnara inni í Sundum. Múgur og margmenni þusti niður til hafnarinnar, er það fréttist að til hans sæist og var margt fólk þar fyrir er beðið hafði þar alllengi komu flugkappans mikla. Var nú eftir að vita, hvar hann myndi setjast. Hafnarbáturínn var til taks inni á höfninni til þess að fara út jafnskjótt og hann settist. Þar var hafnarstjóri, settur borgarstjóri og forseti bæjarstjórnar bæjarlæknir og Steingrímur Jónsson raf- magnsstjóri, en hann var umboðsmaður hér fyrir Panamerican Airways. Er Lindbergh flaug fyrst yfir höfnina var hann allhátt í lofti. Skip öll er í höfninni voru, en þau ■ Skömmu eftir að Lindbergh var hér á ferð þótti hann vingast full mikið við nýja og umdeilda menn suður í Evrópu. Lindberghhjónin ásamt Hermann Göring, flugmarskálki í Þýskalandi. Lindbergh (í dökkum frakka) og kona hans, Anne Morrow Undbergh, ganga upp verbúðarbryggjurnar gömlu. Eftirvænting ungu kynslóðarinnar leynir sér ekki. Skyldi einhver eldri lesenda okkar þekkja sjálfan sig þarna? (Ljósm. Skafti Guðjónsson) voru allmörg, þeyttu eimpípur með svo miklum gauragangi að fólk fékk lokur fyrir eyrun. En fólkið þusti fram og aftur til þess að finna sér stað, þar sem væri útsýni, svo hægt væri að fylgjast með fluginu. Nú tók Lindbergh að fljúga yfir bæinn inn yfir Sund og suður yfir Skerjafjörð. Var vindur farinn að lægja, svo menn bjuggust jafnvel við að hann myndi nú setjast á ytri höfnina. En er hann hafði sveimað yfir bæinn og nágrennið upp undir það fjóiiðúng ’ stundar renndi hann niður á Viðeyjar- sund austanhalt við eyna í skjóli wið hana. Sté á land í Vatnagörðum Mótorbátur úr Viðey kom brátt nú til hans og bátskekta frá Vatnagörðum en þar sá Grierson flugmaður til ferða Lindbergh og fór til hans. Renndi Lindbergh sér nú upp undir Viðeyjarbryggjur og batt vél sína þar við dufl. Kom nú hafnarbáturinn innanað. Var Lindbergh boðið að koma í honum til bæjarins. En hann óskaði heldur eftir því að fara í land í Vatnagörðum til að athuga hvort þar væri nægilega gott uppsátur fyrir flugvélina og sjá flugvéla- skálann. Fór nú hafnarbáturinn með þau hjónin þangað. En er þangað kom var kominn fjöldi fólks úr Reykjavík í einum 50-60 bílum. Þyrptist fólkið þarna niður í flæðarmál og niður á bryggju. Hrópaði hver húrra sem betur gat til að fagna komu hinna frægu fluggesta. En troðningur var svo mikill að úr athugun á staðháttum gat ekki orðið að því sinni. Fóru Lindberghshjónin í bíl sem þar beið með Steingrími rafmagnsstjóra og Sig. Jónssyni flugmanni. Óku þau upp á Suðurlandsbraut og síðan inn í Sog og fram í Vatnagarða aftur en þá var mannfjöldinn þaðan farinn. Þaðan kvaðst Lindbergh vilja fara aftur út í flugvél sína. Akkeri vantaði hann stærra en hann hafði í upphafi fengið. Og við flugvélina vildu þau ekki skilja meðan hún væri ekki í tryggari höfn. Kváðust þau hjón hafa gist flestar nætur í flugvélinni, síðan þau komu til Grænlands. En um nóttina bjóst Lindbergh við því að fara með flugvélina inn á innri höfn. Óskaði hann ekki eftir neinni aðstoð við það. Var af öllu sýnilegt að þau hjón voru til þess útbúin að fara ferða sinna um óbyggðir og bjargast upp á eigin spýtur. Mannsöfnuður við „Borgina“ Nú víkur sögunni til bæjarins. Fyrst beið fólkið við höfnina uns það var úrkula vonar um að Lindbergh kæmi með hafnarbátnum. Síðan safnaðist múgur og margmenni fyrir framan Hótel Borg, því búist var við, að Lindbergh kæmi þangað. En er koma hans dróst, flugu alskonar getsakir um það hvað af honum hefði orðið uns Steingrímur rafmagnsstjóri kom þar og sagði sem var, að þau hjónin væruekkivæntanlegfyrrien næstadag. í boði forsætisráðherra Lindbergh dvaldi hér á landi í nokkra daga og gerðu fyrirmenn í Reykjavík sér að vonum all títt um hann, m.a. var honum boðið í tedrykkju hjá forsætis- ráðherra og Steingrímur rafmagnsstjóri var sem alsjáandi vendarengill hans hvert sem hann fór. Þessa daga var staddur hér á landi sjálfur ríkiserfinginn, Friðrik prins, og hittust þeir flugkappinn að máli í fyrrgreindu teboði. Meðan á heimsókninni stóð kom hing- að gufuskip Panamerican Airways, „Jelling" sem hafði verið Lindbergh til aðstoðar á Grænlandi og var flugvél hans tekin um borð í skipið til athugun- ar. Von var að mönnum á íslandi árið 1933, þætti fróðlegt hvað garpurinn segði um möguleika á flugi þessa leið. Var Lindbergh sagnafár, en þó hafðist þetta helst upp úr honum: Hægt að fljúga hvar sem er ef flugtækin eru vönduð „í raun og veru er hægt að fljúga hvar sem er ef flugtækin eru vönduð, flug- menn duglegir og kunnir staðháttum. Það er því enginn efi á að hægt er að fljúga þessa leið og það á hvaða árstíma sem er. Það mun að vísu vera eitt tekniskt vandamál, sem óleyst er enn. Hingað til hefir mönnum ekki tekist að setja þre- • faldan undirbúnað á flugvélar. Menn hafa á flugvélum tvenns konar útbúnað samtímis, t.d. hjól og flotholt svo flug- menn geta sest hvort heldur þeir vilja á vatn eða auða jörð, eða skíði og flotholt, svo hægt sé að setjast á fönn eða vatn. En á þessari leið má búast við að flugvélar þurfi á vissum tímum árs að hafa allan þrenns konar útbúnað sam- tímis, svo flugmenn geti sest hvort heldur þeir vilja á vatn, fönn eða auða jörð. Um undirbúninginn að reglubundnum í sl. ágúst- mánuði voru liðin 50 ár frá því er Lindbergh flugkappi kom til Islands. Helgar-Tíminn rifjar upp atvik frá þessum minnisstæða viðburði. flugsamgöngum þessa leið sagði Lind- bergh m.a. Á næstu tveim árum, er hægt að koma í verk öllum þeim undirbúningi sem gera þarf áður en flugferðir byrja þessa leið, gera flughafnir, loftskeytastöðvar og þess háttar. Hér á íslandi þurfa flughafnir að vera a.m.k tvær önnur norðanlands og hin : sunnanlands og þá líklega hér í Reykja- vík. Loftskeytastöðvar þarf að reisa nokkr- ar í landinu til þess að flugmenn geti þaðan fengið nauðsynlegar veðurfregn- ir. Lendingarstaðir þurfa að vera nokkrir nálægt sama stað svo flugmenn geti valið um hvar þeir setjast eftir því hvernig veðri hagar í hvert sinn.“ Lindbergh fór héðan þann 22. ágúst. Klukkan 9 um morguninn kom hann inn til veðurfræðinga á Veðurstofu fslands og spurði um útlit. Leit hann ekki á aðrar veðurfregnir en þær sem komu frá íslenskum stöðvum. Um kl. 10 fréttist um bæinn að þau Lindberghshjónin ætluðu að fljúga héðan. Safnaðist þá margt fólk að „Hótel Borg" þar sem þau voru og beið þar fyrir utan til þess að sjá þau. Klukkan 10.30 árd, fóru þau frá „Hótel Borg" og óku þegar niður að gufuskipinu „Jelling" sem lá við hinn nýja austurbakka hafnarinnar. Þar töl- uðu þau litla stund við trúnaðarmenn sína um borð í skipinu fengu sér svo bát og fóru út að flugvélinni sem lá við dufl úti í hafnarbakkanum hjá Örfirisey. Rétt á eftir leysti „Jelling" festar og sigldi út úr höfninni. Meðan skipið var að fara út hélt Lindbergh kyrru fyrir í flugvél sinni, en þegar „Jelling“ var komið út úr höfninni sigldi flugvél Lind- berghs út fyrir garða og rétt á eftir hóf flugvélin sig til flugs og skipti þar engum togum. Þá var klukkan 11.15 er Lind- bergh hófst á loft. Síðan fór hann einn hring yfir bæinn flaug hratt og stefndi síðan út yfir eyjar og sund og inn til Hvalfjarðar. Þar hvarf flugvélin sjónum og vissi nú enginn um hríð hverja leið Lindbergh hefði valið. ■ ■ Komið úr heimsókn til forsætisráðherra. Lengst til vinstri er Steingímur rafmagnsstjóri, umboðsmaður Panamerican Airways á Islandi. (Ljósmynd Skafti Guðjónsson). Til Eskif jarðar Héldu menn nú að hann ætlaði til Hornafjarðar en rétt á eftir kemur skeyti þaðan og hermdi það að Lindbergh hefði farið þar fram hjá og stefnt til hafs. Menn undruðust þetta flug.hraðann og hvernig Lindbergh bar yfir og hvaða leiðir hann hafði valið sér. Af þeim fréttum sem af honum bárust verður ekki annað séð en að hann hafi flogið þvcrt yfir ísland norður úr Borgarfirði til Eyjafjarðar þaðan síðan þvert suður yfir landið milli Hofsjökuls og Vatnajökuls náð suðurströndinni skammt fyrir austan Vík og flogið svo austur með landi. Klukkan að ganga sex kom fregn um það að Lindbergh hefði lent í Eskifirði kl. um 5 og bundið flugvél sína við bryggju þar. Næsta dag lá svo lcið flugkappans til Evrópu. Fimmtíu ár eru liðin frá þessari minnis- stæðu heimsókn, sem margir eldri Reyk- víkingar muna cnn. Norðurleiðin yfir Atlantshaf er ekki vandamál meir og meðan við Ijúkum lcstri þessara lína um heimsókn Lindbergh cru sjálfsagt marg- ar flugvélar á ferð þarna, bæðir austur og vestur. En því má ekki gleyma að Lindbergh var meðal þeirra brautryðj- cnda sem gerðu það mögulegt. „Spirit of St. Louis“ kemur til London eftir flugið fræga yfir Atlantshaf. MBi ' . SUNNUDAGUR 9. OKTOBER 1983 SUNNUDAGUR 9. OKTÓBER 1983 mmm

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.