Tíminn - 09.10.1983, Page 17

Tíminn - 09.10.1983, Page 17
SUNNUDAGUR 4. OKTOBER 1983 17 leigupennar í útlöndum Allt viðkomandi tíðarfari landsins s.s. myndir og textar: „Hvassviðri um land allt - Einmunatíð! - Verður sól? Gadda- skór, skóhlífar og mannbroddar komnir aftur!“ var í þeirri þriðju. Ég komst ekki hjá því að hrósa Sigrúnu örlítið fyrir hversu vel hún undirbyggi nemendurundir íslandsdvöl. Það þýðir ekkert annað en að undirbúa fólkið undir það sem tekur við sagði Sigrún og hló. Hvernig er með kennslugögn, hafið þið eitthvert samband við Menntamála- ráðuneytið? Það höfum við ekki, sagði Sigrún en hins vegar sér bandaríska sendiráðið um útvegun á orðabókum o.fl. semviðpöntum. Einsfæégákveðna upphæð til kaupa á ýmsum kennslugögn- um og hef ég verslað talsvert í Bóksölu Stúdenta í Reykjavík. F.S.I. er áskrif- andi af tveimur íslenskum dagblöðum og þó ég gjarnan vildi fá þau öll eru ákveðin takmörk sem verður að setja. Eftir 2-3 mánuði læt ég nemendur byrja að lesa dagblöðin . Að vísu er erfitt að finna nógu auðveldar greinar til að byrja með. En jafnhliða náminu hjá mér eru nemendur skyldugir að fara í svæðis- kynningu sem er önnur deild innan skólans. Þarna er sameiginleg svæðis- kynning fyrir öll Norðurlöndin í tvær og hálfa klst. einu sinni í viku. ísland hefur því miður setið á hakanum hjá þeim sem kennir og hef ég því sjálf þurft að hafa mína eigin svæðiskynningu. Þetta er kynning á landi og þjóð frá upphafi og stjórnmál viðkomandi lands í dag. Ég hef útbúið landafræðispil sem er nokkurs konar teningaspil. Það þjálfarbæði mál- ið og er svæðiskynning í leiðinni. Einnig hefur það reynst vel í sambandi við kosningar og kjördæmaskiptinguna. Við ir Sigrún og hlær. Við notum mikið síma í kennslunni. Stundum fá nemendur uppskrifað samtal og stöku sinnum fer ég út fyrir það. Þannig var ég að ræða við einn fyrrverandi nemanda í síma. Hann átti að vera stjórnmálamaður sem ég var að bjóða í kvöldmat og spyr ég hvort hann vilji ekki koma með konuna með sér? Hann svarði: „Konan mín er dáin en má ég koma með vinnukonuna með mér?“ Ja, hm, já stundi ég, viltu koma með vinkonu þína með þér.spurði ég að bragði enda voru mér strax ljós mistökin sem hann hafði gert. Eins skeði nokkuð einu sinni í prófinu hjá okkur. Nemendur taka próf í lok námsins og erum við ákaflega stolt yfir prófkerfinu okkar.enda hafa ýmsir há- skólar sýnt því áhuga. Þetta kerfi er algjörlega hannað af okkur sjálfum og er eingöngu munnlegt, þ.e. gefnar ein- kunnir fyrir talmál og þýðingu. Einn hlutinn af prófinu er þannig að nemandinn velur úr umræðuefnum á ensku og hefur viðtal við mig um efnið á íslensku, sem hann þarf síðan að þýða fyrir prófdómarann yfir á ensku. Þannig vildi það til að einn nemandi valdi sér efnið, „Jól þegar ég var barn.“ Eitt af því sem ég sagði honum var að við krakkarnir fengum alltaf heitt súkk- ulaði með rjóma hjá mömmu á jólum. Nú síðan heyri ég hann þýða þetta þanig að við höfum alltaf fengið heitt súkkulaði með rommi sem börn á jólum. „Guð minn góður, hugsaði ég. Nógu slæmt orð er á okkur þó ég láti mömmu ekki liggja undir þessum svívirðingum." Það er augljóst að Sigrún er ánægð m'eð vinnuna enda getur hún vel verið það miðað við árangur erfiðisins. Hún þarf ■ „Foreign Service Institute" er til húsa í Rosslyn-hverfi fyrir suðvestan Potomac-ána. sýnum kvikmyndir frá íslandi en þær fáum við lánaðar í sendiráðinu. Við höfum mikið samband við sendiráðið og hafa þeir reynst okkur sérstaklega hjálp- legir. Þangað hef ég farið með nemendur í kynnisferðir. Yfirmaður flotastöðvar- innar á Keflavíkur- flugvelli í íslenskum saumaklúbbi í Washing- ton. Ég reyni að fara með nemendur allt sem er tengt íslandi. Undirrituð hefur ekki komist hjá því að verða vör-við það, þar sem varla hefur verið hægt að þverfóta fyrir Sigrúnu með nemendur sína á íslendingasamkomum! íslendingar búsettir hér hafa verið mjög samvinnuþýðir heldur Sigrún áfram. Ég hef meira að segja verið boðin í saumaklúbb með nemendur. Núver- andi yftrmaður flotastöðvarinnar á Keflavíkurflugvelli og kona hans fóru t.d. með mér heim til Laufeyjar eigin- konu Jóns Sigurðssonar forstöðumanns Þjóðhagsstofnunar og fyrrverandi starfs- manns Alþjóða gjaldeyrissjóðsins hér í Washington. Það er náttúrlega mest skrafað og minnst saumað og voru McValden hjónin yfir sig ánægð með þessa heimsókn. Manstu eftir einhverju spaugilegu úr starfinu? Það er alveg nauðsynlegt að hlæja aldrei að mistökum nemendanna. Það er bráðnauðsynlegur einginleiki^eg- engu að kvíða atvinnuleysi því að á milli þess sem beðið ereftir nýjum nemendum vinur hún við þýðingar úr Norðurlanda- málum fyrir bandaríska ríkið og kennir rússneskum innflytjendum ensku. Hún sér auk þess um öflun námsgagna fyrir sýningu sem samtök norrænu félag- anna í Washington gangast fyrir í febrúar á næsta ári og ber yfirskriftina" Teaching English In Scandinavia“. Það er mikill áhugi fyrir Norðurlöndum eftir Scandin- avia Today og búist er við mikilli aðsókn á sýninguna. En nú líður að lokum þessarar sam- norrænu þjóðhátíðar og er vel við hæfi að láta Sydel Maher hafa síðasta orðið þar sem hún les upp bráðskemmtilega grein írska stúdentsins: „fslendingar tala mjög hratt. Þeir eru næstum eins slæmir og Frakkar og allir vita hvernig þeir eru. Fyrir viðvaning getur þetta valdið mesta misskilningi. Þannig var það bara í síðustu viku þegar vinur minn var að lesa matseðil á íslensku veitingahúsi að óvenju aðlað- andi þjónustustúlka kemur til hans og segir brosandi: „Kata“. Þannig hljómaði það a.m.k. í hans eyrum. Auðvitað hefðu flestir sem eitthvað hafa dvalið í landinu getað skilið að stúlkan sagði: „Hvað var það? En vinurinn eins og sönnum sjentil- manni sæmir stóð hikstalaust upp, greip um hönd stúlkunnar og sagði: „Harry". Heimild: Iceland Reviw, No 3-4, Vol. 11, 1973 í Washington 2. okt. 1983. - Sigurborg Ragnarsdóttir / upphafi var jörðin auð og tóm, svo kom Aðal Bílasalan og malbikaði 2000 fermetra, setti niður sín hús og raðaði vörubílum, sendibílum, rútum og allskonár fólksbílum, litlum og stórum, gömlum og nýjum, út um alla jörð. Aðal Bílasalan er flutt að MIKLATORGI Sunnanmegin, par sem sólin gengur aldrei undir. Gjörið svo vel og komið á svæðið. Mikið um að vera við Miklatorg — og jörðin er ekki lengur auð og tóm. í£a*a&a«t við Miklatorg. Símar 19181 og 15014 §VNGAPO«f REKKJAIM 1 FJORUM LITUM Opið í öllum deildum: mánud.-miðvikud. 9—18, Fimmtud. 9—20, föstud. 9—22 og laugard. 9—12, u_ lí siandají 23 kiiuaaadj- Loftsson hf. Hringbraut 121 Sími 10600 Húsgagnadeild Sími 28601 ^ l«IIS*ariSUtl*í*ÆIBIMMÍ s

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.