Tíminn - 19.10.1983, Síða 1

Tíminn - 19.10.1983, Síða 1
FJÖLBREYTTARA OG BETRA BLAÐ! Miðvikudagur 19. október 1983 242. tölublað - 67. árgangur Siðumula 15-Pósthólf370Reykjavik-Ritstjorn86300- Augiysingar 18300- Afgreidsia og askrift 86300 - Kvöidsimar 86387 og 86306 Gífurleg birgdaaukning f frystum sjávarafurdum: HEFIIR flUKIST UM 80% MH>- AÐ VIÐ SAMA TÍMA IFYRRA Afurðalán veitt út á sjávarafurðir ad verðmæti sjö milljarða sem engin greiðsla hefur komið fyrir ■ Birgðaaukning í frystum sjá- varafurðum er gífurleg, því birgðir hafa aukist um ca. 80% frá sama tíma í fyrra, en talsverð- ur hluti þessarar birgðaaukning- ar á rætur sínar að rekja til þeirrar staðreyndar að karfi hef- ur verið veiddur mun meira en gert var ráð fyrir, og því hafa safnast upp birgðir af karfa. Samkvæmt heimildum Tímans þá hafa afurðalán verið veitt út á sjávarafurðir sem eru að sölu- verðmæti yfir sjö miiljarða króna, sem þó hefur enn ekki fengist greiðsla fyrir, annað hvort vegna þess að afurðirnar eru í formi óseldra birgða, eða að þær eru í formi saltfisks eða skreiðar sem eru seld út á krít til svo og svo langs tíma. Tímanum hefur ekki tekist að afla upplýsinga um það hversu mikið magn af birgðum S.H. og S.Í.S. sitja uppi með, hér og í Bandaríkjunum, en eins og kunnugt er, hefur því verið hald- ið fram, að þessi geigvænlega birgðasöfnun, stafaði einfaldlega af því að reynt væri að halda verði það háu á frystum sjávar- afurðum í Bandaríkjunum, að þær seldust ekki, og var það Sverrir Hermannsson, iðnaðar- ráðherra sem síðast hélt þessu fram opinberlega. Tíminn hefur heimildir fyrir því að Sigurður Markússon hjá sjávarafurðadeild S.I.S. hafi ritað iðnaðarráðherra bréf, þar sem fram komi að staða sjávarafurða- deildar sé nokkuð góð, því út- flutningur sjávarafurðadeildar- innar hafi aukist um 25% fyrstu níu mánuði þessa árs, miðað við sama tímabil í fyrra og frysting allra frystra afurða hjá sjávar- afurðadeildinni hafi aukist um 13%. Það er því Ijóst að salan hefur aukist meira en frystingin hjá sjávarafurðadeildinni, þannig að ætla mætti að vandinn hjá S.H. varðandi birgðaaukningu væri meiri en vandinn hjá S.f.S. -A.B Lánsfjáráætlun: BIANDA OG KRÖFLU- BORANIR EKKIINNI ■ Nemendur og starfsfólk Flataskóla í Garðabæ héldu upp á 25 ára afmæli skólans í gær. Meðal gesta var Vigdís Finnbogadóttir forseti. Hér heldur hún á útskornu tré- kefli, sem inniheldur bréf, sem nemendur skólans færðu henni í bítið í gærmorgun. Méðal annarra á myndinni er Vilbergur Júlíusson skólastjóri. Á blaðsíðu 2 í dag er meira sagt frá afmæl- inu. BK Tímamynd GE ■ Lánsfjáráætlun hefur verið til umræðu í þingflokkum stjórn- arflokkanna undanfarna daga, og er samkvæmt heimildum Tím- ans ekki gert ráð fyrir neinu fjármagni til Blönduvirkjunar- framkvæmda í áætiuninni, og 'ekki heldur til Kröfluborana. Ekki er heldur gert ráð fyrir neinu fjármagni til vegafram- kvæmda á lánsfjáráætlun, en skýringin á því er sú, að ætlunin er að afla fjár til þeirra með innlendri lántöku, en lánsfjár- áaúlun tekur eingöngu til er- lendra lána. Enn er því stefnt að því, að vegaframkvæmdir verði svipaðar og hafa verið á þessu ári Sömu sögu er að segja af fjáröflun vegna húsnæðismála- lánanna. Ekki verður um erlend- ar lánatökur að ræða í því sambandi, heldur verða gefin út ný spariskírteini, auk þess sem verið er að semja við lífeyr- issjóðakerfið um hin umsömdu 40% af þeirra ráðstöfunarfé. -AB Forsætisráð- herra í stefnuræðu sinni: Vextir lækka um 3% á f östu- daginn ■ 1 stefnuræðu Steingríms Hermannssonar forsætisráð- herra íslands, semltann flutti á Alþingi _í gærkvöldi, kom frarn að vextir verða lækkaðir utn 3% nú á föstudaginn. For- sætisráðherra sagði: „21. október nk. munuvextirlækka enn, og þá um'sem næst 3 af hundraði. Lánskjaravísitala hækkaði I. októbcr sl. um aðeins 1.4af hundraði. Ríkisstjórnin hefur ennfremur ákveðið, að.höfðu samráði við forsvaísmenn út- flutningsatvinnuveganna, að afurðalán vcgna útflutnings verði að nýju bundin við gengi crlends gjaldeyris og með 9.5 af húndraði vöxtum. Með þessum vaxtalækkun- um léttist mjög greiðslubyrði atvinnuvcga og einstaklinga," sagði forsætisráðherra. Sjá nánar bls 3 og 9 _AB

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.