Tíminn - 19.10.1983, Blaðsíða 13
MIÐVIKUDAGUR 19. OKTÓBER 1983
17
á vettvangi dagsins
Á sviði kirkjumála er gert ráð fyrir að
endurflytja frumvarp til laga um kirkju-
sókn, safnaðarfundi o.fl.
Utanríkismál. í utanríkismálum legg-
ur ríkisstjórnin höfuðáherslu á varð-
veislu sjálfstæðis landsins og hvers kyns
gæslu hagsmuna okkar gagnvart öðrum
árinu 1984 og spáð er 1983, eða frá 300
til 320 þúsund lestir af þorski og svipað
af öðrum botnfiski. Gert er ráð fyrir því,
að loðnuafli geti orðið 400 þúsund lestir
1984. Þetta er vitaskuld spá, sem háð er
verulegri óvissu, því að fiskifræðingar
hafa ekki enn getað aflað nauðsynlegra
veitenda og launþega um kaup og kjör.
Ekki er þess að vænta, að gengið verði
fellt til þess að koma til móts við
óraunhæfa samninga, eða samningum
breytt með opinberum aðgerðum.
í þessu sambandi er jafnframt nauð-
synlegt að hafa í huga að svigrúm til þess.
HEILBRIGT EFNAHAGSUF ER
F0RSENDA BÆTTRA LÍFSKJARA
Úr stefnurædu Steingríms Hermannssonar forsætisráðherra
ríkjum. Hún vill m.a. taka þátt í að efla
norræna samvinnu, svo og starf Samein-
uðu þjóðanna til eflingar friði, mannúð
og mannréttindum.
Því miður er ástand alþjóðamála enn
ótryggt. Það er skoðun ríkisstjórnarinn-
ar, að öryggi og sjálfstæði íslands verði
best tryggt með aðild að Atlantshafs-
bandalaginu og samstarfi við Bandaríkin
á grundvelli varnarsamningsins frá 1951
og viðbótarsamkomulags frá 1974. Jafn-
framt vill ríkisstjórnin leggja lið raun-
særri viðleitni til gagnkvæmrar alhliða
afvopnunar undir öruggu eftirliti. Brýnt
er, að árangur náist á því sviði í næstu
framtíð.
Fullgildingu fslands á hafréttarsátt-
málanum verður hraðað og hvatt til
þess, að hann taki gildi sem fyrst. í
samræmi við yfirlýsta stefnu ríkisstjórn-
arinnar og vilja Alþingis, verður einnig
áfram unnið að því að tryggja frekar
hafsbotnsréttindi fslands í suðri og á
Reykjaneshrygg og sporna gegn lax-
veiðum í hafinu sem andstæðar eru
hagsmunum okkar.
Jarðvegsframkvæmdir við byggingu
flugstöðvar á Keflavíkurflugvelli eru
hafnar á grundvelli 10 milljón króna
lántökuheimildar Alþingis, svo og samn-
ings við Bandaríkin frá 5. júlí s.l. Stefnt
er að því, að framkvæmdir við 2. áfanga,
sem er fokheld bygging, hefjist næsta
vor, að fenginni lánsfjárheimild Alþing-
Endurskipulagning
stjórnkerfis og pen-
inga- og lánastofnana
Stjórn landsmála felst ekki eingöngu í
því að beita þeim tækjum, sem stjórn-
völd ráða yfir á líðandi stundu, heldur
einnig á því að bæta sjálft stjórn- og
hagkerfið. Því ákvað ríkisstjórnin að
beita sér fyrir umtalsverðum breytingum
á stjórnkerfinu.
Markmiðið er að einfalda opinbera
stjórnsýslu, bæta hagstjórn og samræma
ákvarðanir í opinberri fjárfestingu,draga
úr ríkisumsvifum og efla eftirlit löggjaf-
arvalds með framkvæmdavaldinu.
Skipulag peninga- og lánastofnana er
mikilvægur þáttur efnahagsmála. Brýnt
er að tryggja aukna arðgjöf fram-
kvæmdafjár.
Ríkisstjórnin hefur skipað nefndir til
þess að vinna að athugunum og tillögu-
gerð um þessi málefni, og er ráðgert, að
þegar á þessu þingi muni koma fram
lagafrumvörp um sum þeirra.
Horfur og
markmið 1984
Ég mun nú gera grein fyrir horfum
1984 og'þeim markmiðum, sem ríkis-
stjórnin telur rétt að setja fyrir næsta ár.
Botnfiskafli er áætlaður sá sami á
gagna. Þó er vitað, að loðnustofninn er
vaxandi.
Líklegt virðist að viðskiptakjör batni
á þessu ári um 3,5 af hundraði. Vegna
erfiðleika á fiskmörkuðum er ekki gert
ráð fyrir því, að viðskiptakjör batni
frekar á næsta ári. Nauðsynlegur sam-
dráttur þjóðarútgjalda mun valda því,
að þjóðarframleiðsla kann að dragast
saman um 2-2,5 afhundraði. Landsfram-
leiðslan minnkar þó væntanlega minna,
eða um 1,5 af hundraði. Flest bendir til
þess, að þar með verði botni náð í þeim
öldudal, sem þjóðarbúið hefur verið í
um tveggja ára skeið, og grundvöllur
myndist að nýju bataskeiði. Á þessum
megin forsendum byggir ríkisstjórnin
ákvörðun um markmið í efnahagsmálum
á næsta ári. Þau eru þessi:
Ríkisstjórnin telur mikilvægt, að verð-
bólga í lok næsta árs verði orðin sem
næst því, sem er í viðskiptalöndum
okkar. Því hefur verið ákveðið sem
markmið, að verðbólga í lok ársins 1984
verði undir 10 af hundraði á ársgrund-
velli.
Áhersla er jafnframt á það lögð, að
erlendar skuldir þjóðarinnar aukist ekki
í hlutfalli við þjóðarframleiðslu, en lækki
fremur á þann mælikvarða.
Ríkisstjórnin mun áfram leggja
áherslu á aðhald og sparnað í ríkis-
rekstri. Þess verður þó gætt, að ekki
verði skert sú félagslega þjónusta, sem
nauðsynleg er til þess að tryggja jöfnuð
og öryggi þegnanna í landinu.
í peningamálum verður jafnframt gætt
aðhalds, en þó þannig, að ekki leiði til
stöðvunar atvinnuvega og atvinnuleysis.
Vextir verða lækkaðir eins hratt og
hjöðnun verðbólgu leyfir, og ættu því
miðað við ofangreind markmið að verða
komnir niður undir 10 af hundraði í lok
næsta árs. Að því er stefnt, að raunvextir
verði jákvæðir, og þannig verði stuðlað
að auknum sparnaði.
f fyrsta lið um efnahagsmál í stefnuyf-
irlýsingu ríkisstjórnarinnar segir:
„Festa verði sköpuð með raunhæfri
gengisstefnu, sem ásamt aðhaldssamri
fjármála- og peningastefnu myndi um-
gerð ákvarðana í efnahagslífinu".
í samræmi við þetta stefnir ríkisstjórn-
in að sem mestri festu í gengismálum á
næsta ári. Seðlabankinn mun því halda
gengi krónunnarsem stöðugustu á næsta
ári, innan markanna 5 af hundraði til
hvorrar áttar, eftir því sem nánar verður
ákveðið. Slík gengisstefna er að sjálf-
sögðu háð ýmis konar óvissu, sérstaklega
vegna breytinga á gengi gjaldmiðla er-
lendis og annarra breytinga á ytri skilyrð-
um þjóðarbúsins. En frá viðnámi við
innlendri verðbólguþróun verður ekki
hvikað, og verður sú stefna einnig studd
með aðhaldi á öðrum sviðum hagstjórn-
ar.
Innan þessa ramma, sem nú hefur
verið lýst, er gert ráð fyrir, að efnahagslíf
landsins þróist, m.a. samningar vinnu-
að takast á við erfiðleika eða skakkaföll
er mjög lítið vegna mikilla erlendra
skulda. Það einstigi, sem fara verður út
úr efnahagserfiðleikum þjóðarinnar,
verður því að feta með varúð.
Miðað við þann góða árangur, sem
þegar hefur náðst í hjöðnun verðbólgu,
telur ríkisstjórnin ofangreind markmið
raunhæf. Ef forsendur þjóðhagsáætlunar
1984 standast, er hvorki nauðsynlegt né
eðlilegt að skerða kaupmátt frekar en
orðið er á síðustu mánuðum þessa árs.
Nú er viðfangsefnið að leggja grundvöll
að framförum. Launahlutföll hljóta hins
vegar að ráðast í kjarasamningum. Ég
vona að jöfnun kjara verði höfð að
leiðarljósi í væntanlegum samningum.
Ríkisstjórnin mun áfram leggja
áherslu á gott samráð við aðila vinnu-
markaðarins um þróun efnahags- og
þjóðmála. Samráðsfundir hafa verið
haldnir í sumar og haust, og m.a. hefur
verið tekið upp það nýmæli að kveðja
saman til fundar efnahagssérfræðinga
allra aðila, ásamt sérfræðingum ríkis-
stjórnarinnar og Þjóðhagsstofnunar.
Hefur sú nýbreytni mælst vel fyrir. Þessu
mun fram haldið og áhersla á það lögð
að aðilar vinnumarkaðarins geti fylgst
náið með allri þróun mála.
Framtíðin
Við Islendingar verðum að vinna okk-
ur út úr þeim erfiðleikum, sem við eigum
nú við að stríða, með aukinni framleiðslu
og hagvexti, en án þess að til verðbólgu
komi að nýju. í því skyni mun ríkis-
stjórnin leggja áherslu á hagkvæma fjár-
festingu og hagræðingu á öllum sviðum,
bæði hins oþinbera og atvinnuveganna.
Ríkisstjórnin mun kappkosta að styðja
nýjar og álitlegar framleiðslugreinar,
bæði stórar og smáar.
f þessu sambandi verður að sjálfsögðu
fyrst og fremst byggt á framtaki einstakl-
inganna, sem við eðlilegar aðstæður í
efnahagslífi eiga að geta gert öruggari
áætlanir en verið hefur. Lögð verður
áhersla á að virkja rannsókna- og þjón-
ustustofnanir hins opinbera til þess að
veita þá þjónustu, sem þær mega í þessu
sambandi.
Lokaorð
Þegar ríkisstjórnin tók við völdum,
blasti við stöðvun atvinnuvega og at-
vinnuleysi, og reyndar var sjálft efna-
hagslegt sjálfstæði þjóðarinnar í mikilli
hættu vegna hraðvaxandi verðbólgu og
erlendar skuldasöfnunar. Með rót-
tækum og samstilltum aðgerðum hefur
tekist að bjarga þjóðinni frá þessum
voða. Vegna mjög erfiðrar stöðu at-
vinnuveganna eftir verðbólgu undanfar-
inna ára, hafa launþegar orðið að bera
miklar byrðar af þessu átaki. Enda má
segja að þeir hafi ekki síst átt til mikils
að vinna - atvinnuöryggis.
Mikill árangur hefur náðst. Verðbólg-
an mun í lok ársins verða komin niður
fyrir 30 af hundraði, fjármagnskostnaður
fer ört lækkandi, atvinnuvegirnir eru
alltraustir og atvinna næg. Þannig hefur
verið brotið í blað í íslenskuefnahagslífi.
Með staðfestu og aðgæslu á næsta ári
má tryggja þann mikla árangur, sem
hefur náðst, og koma verðbólgunni
niður undir það, sem er í helstu við-
skiptalöndum okkar. Til þess að það
megi takast, hefur ríkisstjórnin mótað
nýja stefnu í efnahagsmálum með því að
ákveða umgjörð, sem aðilum vinnu-
markaðarins og atvinnuvegunum og ein-
staklingunum, er ætlað að starfa innan
án íhlutunar ríkisvaldsins.
Því verður aldrei neitað, að fyrir þjóð,
sem svo mjög er háð óviðráðanlegum
duttlungum náttúrunnar og þróun efna-
hagsmála í umheiminum sem við íslend-
ingar, geta ætíð verið hættur á næsta
leiti. Til þess að geta brugðist við slíku
og tryggt lífskjörin er nauðsynlegt að
efnahagslífið sé heilbrigt, og markvisst
að því unnið að auka framlciðsluna og
hagvöxtinn.
Þannig verða lífskjörin og mannlífið
sjálft bætt, því að auður þessa lands og
hugvit einstaklinganna er næsta óþrjót-
andi og ber ríkulegan ávöxt, ef rétt
skilyrði eru sköpuð.
ESAB
Góö þjónusta er
einkennandi fyrir ESAB.
Um gæöi ESAB suðuvéla,
fylgihluta og efnis efast
enginn.
Þjónustudeild okkar veitir
allarupplýsingarog
ráögjöf um ESAB.
Hafðu samband.
= HÉÐINN =
. SCUAVEGI ? SIMI 21260
BILAPERUR
ÓDÝR CÆÐAVARA FRA
MIKIÐ ÚRVAL
ALLAR STÆRÐIR
HEILDSALA - SMÁSALA
FhIHEKLAHF
M Laugavegi 170-172 Sími 21240
Hefur það
bjargað þér r
------jlujjwROAn 0_____
Snjóruðningstæki:
Framleiðum snjóruðnings-
tennur fyrir vörubíla og
dráttarvélar. Pantanir þurfa að
berast sem fyrst svo hægt
verði að afgreiða
þær fyrri part vetrar.
StalIækni sf.
Síðumúla 27, sími 30662
Við minnum á gíróreikning Hjálparstofnunar kirkjunnar
2Ö005-0
Sparisjóðurinn í Kefiavík