Tíminn - 19.10.1983, Blaðsíða 4
4
MIÐVIKUDAGUR 19. OKTÓBER 1983
fréttir
Byggingahappdrætti
Búnaðarsambands Sudurlands:
Fjörkippur í
sölu midanna
■ Peir sem hafa komið í réttir á
Suðurlandi í haust hafa sjálfsagt veitt
hvítri Subarubifreið athygli, en þessi bíll
er aðalvinningur byggingarhappdrættis
Búnaðarsambands Suðurlands. Búnað-
arsambandið verður 75 ára á þessu ári og
er stefnt að því að gera tilraunafjósið á
Stóra Ármóti fokhelt á afmælisárinu og
því var efnt til þessa happdrættis.
Að sögn Stefáns Jasonarsonar, for-
manns sambandins, hafa miðar verið
seldir úr bifreiðinni víða í haust. Nú
síðustu daga hefur komið mikill fjör-
kippur í sölu miðanna ogsagði Stefán að
dæmi væru til þess að keyptir hafi verið
100 miðar á einu bretti. Það er líka hver
síðastur að næla sér í miða því dregið
verður í happdrættinu síðasta sumardag,
21. október, hjá sýslumanni Árnessýslu.
Hver happdrættismiði kostar 100
krónur en heildarverðmæti vinninga er
482.000. Eins og áður sagði er aðalvinn-
ingurinn Subarubifreið frá Ingvari
Helgasyni hf. -GSH
í tengslum við aðalfund Þroskahjálpar var haldin ráðstefna um málefni þroskaheftra. í ræðustól cr Jón Sævar Alfonsson.
NEYÐARASTANDIHÐM-
US- OG MálfUNAR-
MAUIM NtOSKflHEFTRS
■ „Aðalfundur landssamtakanna
Þroskahjálpar lýsir ánægju sinni með
marga merka áfanga sem náðst hafa í
húsnæðismálum þroskaheftra, hins veg-
ar er Ijóst að þessi uppbygging hefur að
mjóg litlu leyti leyst þariír verulega stórs
hóps alvarlega andlega og líkamlega
fatlaðra einstaklinga og fjölskyldna
þeirra og virðist sem neyðarástand sé
ríkjandi i hcimilis og þjálfunarmálum
þessa lióps. Stofnanir virðast og hafa
nokkra tilhneigingu til að vísa þessum
einstaklingum frá vegna þess hve
umönnun þeirra krefst mikils mannafla
og aðstöðu í húsnæði“, segir m.a. í
ályktun aðalfundarins um vistunarmál
þroskahcftra.
Aðalfundurinn var haldinn nýlega og
sóttu hann fulltrúar hvaðanæfa af land-
inu. I tengslum við hann var haldin
ráðstefna þar sem fjallað var um
Mennta- og skólamál, vistunarmál, at-
vinnumál, réttindamál og ráðgjöf og
stuðning við fjölskyldur þroskaheftra.
Niðurstöðum ráðstefnunnar var vísað til
aðalfundarins.
I ályktun um menntamál þroskaheftra
var þess m.a. krafist „að fötluð börn fái
þjálfun og sérkennslu strax og fötlunar'
þeirra verður vart og sú kennsla fari
fram í eða sem næst heimabyggð án
alvarlegrar röskunar á tengslum við
fjölskyldu og nágrenni". Þá skorar aðal-
fundurinn á Alþingi „að samþykkja hið
bráðasta frumvarp um framhaldsskóla
óg frumvarp um fullorðinsfræðslu".
I atvinnumáium var m.a. krafist þess
„að staðið sé við yfirlýsingu S.Þ. um að
fullt tillit sé tekið til sérþarfa fatlaðra á
öllum stigum félagslegrar og fjárhags-
legrar uppbyggingar þ.m.t. atvinnuupp-
byggingar‘7 í sambandi við ráðgjöf og
stuðning við foreldra samþykkti fundur-
inn að verulegra úrbóta væri þörf..
„þannig að þeim verði gert kleyft að ala
fötluð börn sín upp án ofurmannlegs
erfiðis andlegs og líkamlegs."
-BK
Adalfundur Þroskahjálpar:
Stórátaks er þörf
■ Eggert Jóhannesson var endurkjör-
inn formaður landssamtakanna Þroska-
hjálpar á aðalfundi sem haldinn var í
Reykjavík nýlega. Sóttu hann fulltrúar
hvaðanæfa af landinu frá 22 aðildarfé-
lögum. Setningarathöfnin var mjög
virðuleg, Alexander Stefánsson félags-
málaráðherra flutti ávarp og Vilhjálmur
Hjálmarsson fyrrverandi ráðherra, sem
starfar innan samtakanna, flutti ræðu.
Á milli dagskrárliða komu listamenn
fram. Á fundinum kom ljóslega fram að
neyðarástand ríkir nú víða í málefnum
þroskaheftra og stórátaks er þörf ekki
síst vegna þess að fjárveitingar ríkisins
til þessa þjóðfélagshóps hafa dregist
saman á undanförnum árum.
Varaformaður samtakanna er Jóhann
Guðmundsson. Aðrir í stjórn eru Snorri
Porsteinsson, Ásta Porsteinsdóttir,
Kristján J. Jónsson, Þórhildur Svan-
bergsdóttir og Sylvía Guðmundsdóttir.
í varastjórn eru Jón Sævar Alfonsson,
Vilhjálmur Hjálmarsson og Baldur
Kristjánsson. BK
Sjá nánar viðtal dagsins bls 6-7
■ Aðalfund og ráðstefnu Þroskahjálpar sóttu menn allsstaðar að af landinu.
Tímamynd Árni Sæberg
■ Helgi Jasonarson, rörlagningarmeistari í Reykjavík og Einar Einarsson ráðsmað-
ur á Laugardælum, kaupa miða úr happdrættisbíl Búnaðarsambands Suðurlands í
Skeiðaréttum í haust. Tímamynd Stjas.
■ Viðskiptavinir Prentsmiðjunnar Odda komu í heimsókn og kynntu sér
starfsemi prentsmiðjunnar í tilefni af 40 ára afmælis Odda. Tímamyndir Árni
Sæberg.
Prentsmiðjan Oddi
átti 40 ára afmaeli
■ Prentsmiðjan Oddi hf. átti 40 ára
afmæli nýlega og var þess minnst með
ýmsum hætti. Opið hús var fyrir við-
skiptavini prentsmiðjunnar og nýttu
margir sér það tækifæri til að heimsækja
staðinn og kynnast starfseminni. Starfs-
menn prentsmiðjunnar gerðu sér síðan
dagamun í tilefni afmælisins.
Prentsmiðjan Oddi flutti í nýtt prent-
smiðjuhús að Höfðabakka 7 fyrir rúmum
tveimur árum. Húsið er 5.170 fermetrar
að stærð og er nú búið mjög fullkomnum
tækjum. Forstjóri Odda er Þorgeir Bald-
ursson en hann er sonur Baldurs Eyþórs-
sonar sem var einn stofnenda Odda og
forstjóri prentsmiðjunnar þar til hann
lést árið 1982.
-GSH
Magnús og Gylfi
skemmta saman
■ Magnús Ólafsson og Gylfi Ægisson
hafa ákveðið að vinna saman í vetur og
skemmta landsmönnum á árshátíðum.
■ Magnús og Gylfi eiga eftir að létta
lund landsmanna í vetur.
þorrablótum og öðrum mannamótum.
Skemmtidagskrá þeirra félaga mun
byggjast upp á því að Magnús bregður
sér í hin ýmsu gerviog einnig sýnir hann
á sér nýja hlið sem eftirherma. Þá verða
þeir með gamanvísur og mun Gylfi
einnig þenja nikkuna.
■ Prentsmiðjuhús Odda hf. við Höfðabakka