Tíminn - 19.10.1983, Page 3

Tíminn - 19.10.1983, Page 3
MIÐVIKUDAGUR 19. OKTOBER 1983 fréttir Sameinast Ríkisskipog stærstu skipafélögin um strandflutningana? HÆGT VÆRIAÐ LÆKKA OP- INBERA STYRKIUM 50%! ■ „Nefndin lét gera athugun á vöruflutningum innanlands og í áliti hennar kemur m.a. fram, aö ná megi fram verulegri hagræð- ingu meö því að færa flutninga þeirra skipafélaga, sem tekið hafa þátt í þessum viðræðum, á eina hendi,“ segir m.a. í frétt frá samgönguráöuneytinu í tilefni af því að nefnd sem Steingrímur Hermannsson skipaði í sam- gönguráðherratíð sinni, til þess að gera könnun á, á hvern hátt unnt væri að koma á auknu samstarfi og hagræðingu í strand- flutningaþjónustunni, hefur skil- að núverandi samgönguráð- herra, Matthíasi Bjarnasyni, álit sitt. Var þetta viðræðunefnd hins opinbera og þriggja stærstu verslunarskipafélag- anna, og var hún skipuð þessum mönnum: Formaður var Halldór S. Kristjánsson, skrifstofustjóri í sam- gönguráðuneytinu, Axel Gíslason, framkvæmdastjóri Skipaútgerðar ríkis- ins, Hörður Sigurgestsson, forstjóri Eimskipafélags íslands og Ragnar Kjart- ansson formaður stjórnar Hafskips. „Ég tel þetta nefndarálit mjög athygl- isvert,'- sagði Steingrímur Hermannsson forsætisráðherra í samtali við Tímann í gær, „og það verður tekið til vandlegrar athugunar, hvort ekki er hægt að koma þarna við verulegum sparnaði með ein- hvers konar sameiningu Skipaútgerðar- Viðræðunefnd hins opinbera og þriggja stærstu skipafélaganna, áður en hún lauk störfum. innar og þessara þriggja stærstu skipafé- laga sem annast strandflutninga." í fréttinni frá samgönguráðuneytinu segir jafnframt: „Sýndu athuganir nefndarinnar, að auka má nýtingu skipa og tækja verulega við slíka breytingu og að ekki sé ólíklegt að stofnun sérstaks fyrirtækis þessara aðila gæti haft í för með sér hagræðingu og sparnað, sem svarar til lækkunar á framlagi ríkisins til strandflutninga um allt að 50%“. Gerir nefndin ráð fyrir að slíkt fyrir- tæki veitti sambærilega þjónustu á ströndinni og Skipaútgerð ríkisins býður fram nú, og að verðlagning verði svipuð og verið hefur. Telur nefndin að ef stofnað yrði hlutafélag um þessa flutn- inga, þá gæti slíkt fyrirtæki innan fárra ára starfað sjálfstætt án ríkisstyrks, og verið vel samkeppnishæft. -AB Nær 50 þúsund íslendingar stunda lax-og silungsveidar — Landssamband Stangaveiðifélaga mælist til að ríkisstjórnin taki upp viðræður við Færeyinga um bann við laxveiðum í sjó ■ Á aðalfundi Landssambands Stangveiðifélaga sem haldinn var nýlega kom m.a. fram að nálægt 50.000 íslendingar leggja stund á lax- og silungsveiðar allt frá 2 til 22ja daga á ári hverju. Þetta eru meðal annars niðurstöður úr könnun sem Félagsvísindadeiid Háskólans gerði fyrir L.S. árið 1981. A aðalfundinum urðu miklar umræður um laxveiði Færeyinga í sjó og flutti Gísli Ólafsson rannsóknarmaður hjá Hafrannsóknarstofnun erindi um veiðar þeirra en hann hefur verið eftirlitsmaður um borð í laxveiðibátum þeirra. Gísli skýrði frá tilhögun veiðanna og afla- magni sem að áliti fundarmanna var óhugnanlcga mikið. Svohljóðandi ályktun var samþykkt einróma á þessum 33. aðalfundi L.S.: „Með vísun til samþykktar Alþingis í mars 1983 og 66. greinar Alþjóðahafrétt- arsáttmálans, beinir aðalfundur Lands- sambands Stangveiðifélaga haldinn að Hótel Esju 8. og 9. október 1983, þeim tilmælum til ríkisstjórnar islands, að hefja nú þegar viðræður við færeysku landsstjórnina og aðrar þjóðir, sem hlut eiga að máli, um bann við laxveiðum í sjó utan 12 mílna landhelgi og leita jafnframt samráðs upprunaríkja laxa- stofna um málið.“ -FRI Stúdentar kjósa um 1. des. dagskrána ■ Annað kvöld verður haldinn í Fé- lagsstofnun stúdenta kosningafundur þar sem kjörinn verður hátíðanefnd fyrir 1. desember. Tveir listar eru í kjöri, A-listi Vöku, sem leggur til að yfirskrift hátíðahaldanna verði; Friður, frelsi, mannréttindi og B-listi Félags vinstri manna, sem bíður fram undir kjörorð- inu; „Sjálfstæði" Eitthvað ofan á brauð? Kosningarétt hafa allir sem skráðir eru til náms við Háskóla íslands. Kjörfundur hefst með umræðum og stendur til kl. 24.00. í greinargerð frá Vöku sem send hefur verið fjölmiðlum segir að hugtökin þrjú, friður, frelsi og mannréttindi verði ekki aðskilin. Meirihluti mannkyns búi við einræði og alræði og meðan svo sé í pottinn búið sé tómt mál að tala um frið, þær þjóðir sem búi við frelsi kæri sig enda ekki um að fórna því fyrir friðinn. Til að tryggja frið verði að ráðast á undirrót átaka, í því að tryggja verði frelsi og mannréttindi. Friður geti því ekki eingöngu grundvallast á afvopnun. Félag vinstri manna segir um tillögu sína að umræðuefni á 1. desember, að þannig sé kreppt að alþýðu manna um þessar mundir að sjálfstæði þjóðarinnar og vissu manna um daglegt brauð sé stefnt í voða. Vegið sé að mennta- og heilbrigðiskerfi og stefna ríkisvaldsins miði að því að efla hinn sterka á kostnað hins veika. Þetta sjáist best á gífurlegri eflingu bankavaldsins í landinu og auk- inni greiðvikni til handa erlendu auð- og hervaldi. Lista Vöku skipa Anton Pjetur Þor- steinsson, Bergljót Friðriksdóttir, Gunnar Jóhann Birgisson, Hörður Hauksson, Ólafur Arnarson, Ragnar Pálsson, og Stella Kristín Víðisdóttir. Lista Félags vinstri manna skipa, Birna Gunnlaugsdóttir, Karl Axelsson, Níels Einarsson, Sóley Reynis dóttir, Sólveig Óladóttir, Súsanna Svavarsdóttir og Jón Gunna Grjetarsson. -JGK Vextir / lækka um 3% á föstu daginn- ■ „Flest bendir til þess, að verð- lagsspár það sent eftir er ársins, muni í aðalatriðum rætast, þannig að verð- bólguhraðinn verði á síðustu mánuð- um ársins um cða innan við 30%, miðað við heilt ár.“ segir m.a. í frétt frá Seðlabanka íslands í gær, í tilefni þess að ákveðið var í gær, \if banka- stjórn Seðlabankans, að höfðu samráði við ríkisstjórnina og bankaráð að lækka almenna innláns- og útlánsvexti af óverðtry'ggðum inn- og útlánum um sem næst 3%. -AB Helstu breytingar inn- og útlán- svaxta eru sýndar á eftirfarandi töflu: Vextir á ári % Nú frá21/10 Breyting INNLAN; Ávisanareikn. 21.0 19.0 * 2.0 Alm.sparisj. bækur 35.0 32.0 r 3.0 3jamán.upp- sagnarreikn. 37.0 34.0 t 3.0 Umán.upp- sagnarreikn. 39.0 36.0 T 3.0 ÚTLÁN: Hlaupareikn-' ingslan 33.0 30.5 - 2.5 Vixillán 33.0 30.5 t 2.5 Skuldabréia- lán(2gjaldd.) 40.0 37.0 + 3.0 Auglýsinga stofa Kristínar: Fékk lóð í Skip- holti ■ Borgarráð samþykkti í gær með 4 atkvæðum að Augiýsíngastofa Kristín- ar skyldi hljóta eftirsótta lóö viö Skipholt, gegn Sjómannaskólanum. Magnús L. Sveinsson borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins sat hjá, en hann hafði áður lagt til að Hrafnkatli Guð- jónssyni yrði úthlutað lóðinni. Fékk Hrafnkell I atkvæöi og sömuleiðis fengu ísafoldarprentsmiðja og Köku- húsið, en tiilögur komu einnig fram um þessa aðila. Fjölmargir aðilar höfðu sótt um þcssa lóð. -JGK Sambandsverksmiðjurnar á Akureyri: Stór samningur um sölu sútadra skinna ■ Skinnadeild Iðnaðardeildar Sam- bandsins á Akureyri hefur þegar gert stóran samning um útflutning á gærum af nýslátruðu til Finnlands. Er hér um að ræða 110 þúsund gærur alls, bæði fullsút- aðar og hálfsútaðar. Kaupandi er fyrir- tækið Friitala, sem er stórveldi á sínu sviði og hefur lengi verið einn af helstu viðskiptavinum Skinnadeildarinnar. Samningar standa yfir um frekari sölu til útlanda. „Hér er um góða byrjun að ræða á aðalsölutíma ársins á skinnum," segir í frétt frá Iðnaðardeild Sambandsins. -JGK

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.