Tíminn - 19.10.1983, Page 5
' £ .ZÍS&SKKi
l •: • f'V'
■ Frá Stofnfundinum á Hótel Sögu á sunnudaginn.
Tímamynd GE
Fjölmenni á stofnfundi
Samtaka um tónlistarhús
Samtök um
tónlistarhús:
Vilyrði
fyrir
hálfrar
milljón
króna
gjof
■ „Þegar faðir minn, Guðjón Sig-
urðsson, lést árið 1915, þá kom í ljós
að í erfðaskrá sinni hafði hann mælt
svo fyrir um að ákvcðin upphæð skyldi
rcnna í sjóð sem hafði það að mark-
miði að efla tónlistarlíf í Reykjavík og
gefa Reykvíkingum kost á að njóta
góðrar tónlistar," sagði Gunnar Guð-
jónsson skipamiðlari í Reykjavík í
samtali við Tímann í gær, en á
stofnfundi Samtaka um tónlistarhús á
sunnudaginn lýsti hann því yfir að
hann myndi beita sér fyrir að stofnskrá
þessa sjóðs yrði breytt þannig að hin
nýju samtök fengju hann tií ráðstöfun-
ar.
„Já, þetta hefúr verið töluvert fé á
sínum tíma. en við vitum öll hvernig
peningar hafa farið undanfarin ár. Ég
geri ráðk fyrir að sjóðurinn nemi um
hálfri milijón. Ég tel að þetta fé sé best
komið í umsjá þessara samtaka. Ég tel
að það sé f samræmi við vilja föður
míns og að sjóðurinn geri mest gagn
þar miðað við breyttar aðstæður í
þjóðfélaginu,'* sagði Gunnar Guöjóns-
son. -JGK
■ „Það hefur verið afar ánægjulegt að
starfa að þessu málefni, vegna þess
mikla og almenna áhuga sem ríkir á
framgangi þess,“ sagði Ingi R. Helgason
einn af þeim sem unnið hafa að undir-
búningi stofnun Samtaka um tónlistar-
hús í Reykjavík, en á sunnudaginn var
stofnfundur þeirra haldinn á Hótel Sögu.
Húsfyllir var á fundinum og samtökin
hafa því þegar hafið göngu sína. Með-
limatalan nálgast óðfluga 2000 manns.
■ „Staðan hjá loðdýrabændum er al-
mennt góð og manni virðist sem flestir
af þeim sem komnir eru af stað ætli að
auka við sig“ sagði Jón R. Bjarnason
framkvæmdastjóri Sambands íslenskra
loðdýraræktenda í samtali við Tímann
en um helgina var haldinn á Akureyri
aðalfundur samtakanna og þar
samþykkt, m.a. lagabreyting sem gerir
það að verkum að samtökin breytast í
landssamtök frá því að vera samtök
einstakra bænda.
Alls stunda nú 89 aðilar loðdýrarækt-
un og er framleiðslumagn, yfirstandandi
framleiðsluérca. 25 þúsund refahvolpar
og 22-23 þúsund minkahvolpar. Um-
reiknað í væntanlegt skinnaverð gæti
þetta orðið um 25 milljónir fyrir refinn
og upp í 15 milljónir fyrir minkinn en
útflutningsverðmætið er nokkuð lægra
þar sem hluti af þessum hvolpum verður
notaður til undaneldis.
í máli Jóns kom fram að erfitt er fyrir
Ákveðið var á fundinum að árgjald
félaga skyldi vera kr. 200, en að sögn
hafa ýmsir þegar lagt meira til. 36 manna
fulltrúaráð var kosið en auk þess geta
félagasamtök gengið í Samtök um tón-
listarhús í heilu lagi og fá þá einn mann
að auki í fulltrúaráð með fullum réttind-
um. Enn eru ýmsir kostir til athugunar
varðandi það hvar húsið verður byggt en
fullnaðarákvörðun um það bíður betri
tíma.
menn að byggja upp búin vegna verð-
bólgunnar... „þetta er.mikil fjárfesting
sem skilar sér ekki fyrr en I -2 árum eftir
að byrjað er og því þungur róður fyrir
mennað byrjaáþessu. Þarámótikemur
aftur að allir byrja smátt, sem er
skynsamlegt að mínu mati, því þá sjá
menn hvort þetta borgi sig fyrir þá án
þess að hætta miklum fjármunum."
Hvað þróun á mörkuðum okkar er-
lendis varðaði, en skinnin eru öll send á
uppboð í Kaupmannahöfn og London,
sagði Jón að á síðasta ári hefði orðið
verðfall á refaskinnum, um 35%, vegna
mikillar framleiðsluaukningar, sérstak-
lega hjá Finnum. Eftirspurn hefði hins-
vegar ekki minnkað en vegna verðlækk-
unarinnar hefði dregið úr framleiðslu
Finna og Norðmanna vegna þess hve
fóðrið er dýrt hjá þeim og þróunin orðið
þannig að framboð á bláref hefði
minnkað, en það er aðalútflutningsvara
okkar á þessu sviði, og Norðurlandabúar
hefðu lagt aukna áherslu á aðrar tegund-
Væntanlega verður cfnt til almennrar
fjársöfnunar á næstunni til að fjármagna
frekari framkvæmdir. lngi minnti á það
að árið 1985 verður ár tónlistarinnar í
Evrópu og stefnt cr að því að það ár
verði undirbúningi lokið og unnt verði
að hefjast handa af fullum krafti við að
hrinda draumnum um fullkomið tónlist-
arhús fyrir allar tegundir tónlistar í
framkvæmd.
JGK
ir refa... ,Við erum að vonast til þess að
verðið á bláref verði betra nú og það eru
viss teikn á lofti um að svo verði. Þannig
voru óseld hjá Finnum 340 þúsund
blárefaskinn, sem er töluvcrt stór hluti
af heimsframleiðslunni eða rúm 10% og
voru menn uggandi um söluna á þeim cn
þau seldust upp í ár á verði sem metið
var á 5-6% hækkun", sagði Jón.
Á aðalfundinum á Akureyri voru, auk
lagabreytingarinnar, rætt um hvað
stefnu loðdýraræktunin þyrfti að taka og
samþykktar ályktanir í þá veru að rækt-
unin byggðist upp þar sem greiður
aðgangur væri í fóður og lögð áhersla á
að byggja upp ræktunarstöðvarnar
samhliða fóðurstöðvunum og dreifa
þeim ekki meir um landið en orðið er.
Ennfremur var samþykkt að nauðsyn
væri á að koma á fót leiðbeiningarþjón-
ustu og væri þjónustan sem næst bænd-
um á vegum sambandsins sjálfs og/eða
búnaðarfélaga á viðkomandi svæðum.
-FRI
Staða loðdýrabænda almennt góð:
Viss teikn á lofti um að
verð á bláref hækki
Sambandi ísl. loðdýraræktenda breytt í landssamtök
Tvö ný dóma-
söfn komin út
■ Arnljótur Björnsson prófessor hefur
tekið saman tvö dómasöfn sem komu
nýlega út á vegum námssjóðs Lög-
mannafélags íslands.
Annað safnanna fjallar um dóma í
vátryggingamálum 1920-1982. þar er í
fyrsta lagi um að ræða ágrip af hæstarétt-
ardómum í vátryggingamálum, kveðn-
um upp eftir að lög um vátryggingasamn-
inga nr. 20/1954 tóku gildi, og í öðru lagi
ágrip af eldri hæstaréttardómum sem
telja má að enn hafi raunhæft gildi.
Hitt dómasafnið er um dóma í sjórétt-
armálum 1965-1982. Fyrir utan dóma í
sjóréttarmálum eru teknir með dómar
um samninga um flutning farms með
flugvélum og bifreiðunt, þannig að í
safninu er að finna tæmandi skrá fyrir
hæstaréttardóma í flutningarétti fyrir
tímabilið 1965-1982.
Dómarnir eru til sölu hjá Bóksölu
stúdenta.
ísland og frið-
arumræðan:
Ráðstefna
Lífsog lands
á laugardag
■ „ísland og friðarumræðan" er yfir-
skrift ráðstefnu sem samtökin Líf og
land gangast fyrir n.k. laugardag. Þar
verða flutt erindi um ýntis efni tengd
vígbúnaðar- og öryggismálum, Geir
Hallgrímsson utanríkisráðhcrra flytur
ávarp og svarar spurningunt, fulltrúar
friðarhópa og stjórnmálaflokka svara
sömuleiðis spurningum sem fjórir
spyrlar beina til þeirra.
Ráðstefnan hefst kl. 9.30 á laugar-
daginn á Hótcl Borg og verða fluttir 6
fyrirlestrar fyrir hádegi. Dr. Gunnar
Kristjánsson sóknarprestur fjallar urn
friðarhreyfingar almennt, Sigurður
Björnsson læknir fjallarum kjarnorku-
vá og heilbrigði, Ágúst Valfclls fjallar
um sögu vígbúnaðarkapphlaupsins,
Albert Jönsson flytur erindi sem hann
ncfnir Gagnvirk fæling risaveldanna,
(Gagnvirk fæling er þýðing á hugtak-
inu „mutual deterrcnce" á ensku),
Gunnar Gunnarsson talar um afvopn-
un og stjórn vígbúnaðar og Þórður
Ægir Óskarsson um stöðvun vígbúnað-
arkapphlaupsins, hugmyndir sem
komið hafa fram á undanförnum árum
eins og frystingu, kjarnorkuvoþnalaus
svæði og afneitun á fyrstu beitingu
kjarnorkuvopna.
Eftir hádegi flytur utanríkisráðherra
fyrst ræðu og svarar síðan spurning-
um um mótun íslenskrar utanríkis-
stefnu og afstöðu íslands á alþjóðavctt-
vangi til friðar- og öryggismála. Síðan
svara fulitrúar sjö samtaka ogstofnana
spurningum um friðarmál, þ.e.
prestur, fulltrúar Friðarsamtaka
lækna, Friðarsamtaka listamanna,
Friðarsamtaka kvenna, Friðarsamtaka
íramhaldsskólancma, Varðbergs,
Samtaka um vestræna samvinnu og
Samtaka herstöðvaandstæðinga. Loks
svara svo fulltrúar stjórnmálaflokk-
anna spurningum. Ráðstcfnunni lýkur
um kl. 18.00.
Erindin á ráðstefnunni verða gefm
út samdægurs og ráðstefnan cr haldin '
og umræður aö öðru leyti teknar upp
með möguieika á útgáfu fyrir augum.
JGK
Sinfóníutónleikar á
fimmtudagskvöld:
VERK EFTIR MOZART
BEETHOVEN
■ Þekktur franskur píanóleikari, Pasal
Rogé, verður einleikari með Sinfóníu-
hljómsveit íslands á tónleikum hennar
n.k. fimmtudagskvöld. Hannleikurmeð
hljómsveitinni 5. píanókonsert Beet-
hovens, Keisarakonsertinn. Hann er
fæddur í París 1951 og lék fyrst einleik
með sinfóníuhljómsveit 11 ára gamall og
fékk þá inngöngu í tónlistarskóla. Hann
hefur leikið inn á hljómplötur fyrir
Decca, öll píanóverk landa sinna, Ravels
og Debussys og alla píanókonserta Béla
Bartoks, hlotið fjölda verðlauna og leik-
ið með mörgum af þekktustu hljómsveit-
um heims.
OG HAYDN
Auk Keisarakonsertsins verða leikin
tvö verk sem ekki hafa verið flutt áður
af hljómsveitinni, þótt þau séu afar vel
þekkt meðal flestra tónlistaráhuga-
manna, en það eru Divertimento í
D-dúr K 131 eftir Mozart og Kveðjusin-
fónían eða sinfónía nr. 45 eftir Haydn.
Sinfóníur hans urðu alls 107 og hefur
margur orðið að una við minna. Haydn
var líka kennari þeirra beggja, Mozarts
og Beethovens og hafa ekki allir kennar-
ar verið jafn heppnir með nemendur.
Stjórnandi tónleikanna verður Jean
Pierre Jaquillat.
-JGK
■ Nokkrír aðstandendur ráðstefnunnar. F.v. Áslaug Brynjólfsdóttir, Sigríður Ingvarsdóttir og Kristinn Ragnarsson, öll í
stjórn Lífs og lands ásamt Ágúst Valfells og Gunnari Gunnarssyni, en þeir flytja báðir erindi á ráðstefnunni.
Tímamynd Árni Sæberg