Tíminn - 19.10.1983, Qupperneq 9
MIÐVIKUDAGUR 19. OKTÓBER 1983
Mmhrn
9
á vettvangi dagsins
■ í upphafi stefnuræðu sinnar gerði
Steingrímur Hermannsson forsætisráð-
herra grein fyrir þeim árangri sem þegar
hefur náðst til að draga úr verðbólgu og
koma á stöðugleika í efnahagslífinu.
Jafnframt minnti hann á þau áföll sem
þjóðarbúið hefur orðið fyrir, sem óhjá-
kvæmilega koma niður á lífskjörunum.
Síðan fjallaði hann um markmið ríkis-
stjórnarinnar og framtíðaráform, og fer
hér á eftir meginhluti ræðu hans:
Fjármál ríkisins
Við afgreiðslu fjárlaga fyrir árið 1983
var stefnt að jafnvægi í ríkisfjármálum.
Óhjákvæmilegur samdráttur í innflutn-
ingi og veltu hefur hins vegar skert
tekjur ríkissjóðs á sama tíma og útgjöld
hafa aukist með verðbólgu. Útgjöld
vegna þeirra mildandi aðgerða, sem ég
hef lýst, námu um 450milljónum króna.
Horfur eru á því, að rekstrarhalli
ríkissjóðs í árslok geti numið 800-900
milljónum króna og greiðsluhalli verði
um 1000-1200 milljónir króna. Þessi
vandi verður ekki leystur á annan hátt
en með lántöku.
Pví miður virðist stefna í töluverða
lánsfjárþörf ríkissjóðs á næsta ári. Þetta
stafar m.a. af því, sem þegar hefur verið
þannig að stöðva megi söfnun skulda
erlendis.
Síðustu áætlanir Seðlabankans benda
til þess að erlend lántaka í ár verði um
5.600 milljónir króna. Til þess að skuld-
irnar aukist ekki sem hluti af þjóðar-
framleiðslu á næsta ári má erlend lántaka
þá ekki verða yfir 4.000 milljónir króna,
sé miðað við áætlað meðalgengi ársins
1983. Á áætluðu gengi 1984 vcrður
samsvarandi tala 4.500 milljónir króna.
Þar sem auknu framboði fjármagns á
innlendum lánamarkaði eru takmörk
sett, má af þessu ljóst vera, að svigrúm
ríkissjóðs, opinberra fyrirtækja og at-
vinnuveganna til lántöku verður mjög
takmarkað.
Atvinnuvegirnir
Verðbólga undanfarinna ára hefur
leikið atvinnuvegina grátt. Áætlanir hafa
farið úr skorðum, rekstrarfé hefur skerst
og greiðslubyrði vegna fjármagnskostn-
aðar verið gífurleg. Aflabrestur hefur
haft mikil áhrif á þjóðarhag, en útgerð-
inni og sjómönnum hefur hann að sjálf-
sögðu orðið þyngstur í skauti. Áætlaður
samdráttur afla árin 1982 og 1983 nemur
um 16 af hundraði frá árinu 1981.
Afkoma atvinnuveganna var orðin
auka atvinnutækifæri í dreifbýlinu en
draga jafnframt úr framleiðslu, þar sem
markaðserfiðleikar eru.
Iðnaður. Eftir aðgerðirnar í efnahags-
málum hefur fjárhagsafkoma iðnfyrir-
tækja farið batnandi. í heild er gert ráð
fyrir, að iðnaðarframleiðsla'n standi sem,
næst í stað á þessu ári, en útflutnings-
framleiðsla iðnaðarvöru aukist um 5 af
hundraði.
Þau opinberu framkvæmdaáform,
sem fyrir liggja á sviði iðnaðar, verða
endurskoðuð vandlega og gengið úr
skugga um, að um arðbærar fram-
kvæmdir sé að ræða.
Til þess að tryggja sem best samræmi
milli markaðar fyrir orku og virkjunar-
framkvæmda fer fram endurmat á öllum
áætlunum um orkuöflun.
Framkvæmdir við kísilmálmverk-
smiðju á Reyðarfirði geta hafist á miðju
ári 1984, ef Alþingi samþykkir. Fram-
kvæmdir við byggingu steinullarverk-
smiðju á Sauðárkróki munu væntanlega
hefjast í byrjun næsta árs.
Þótt búast megi við eftirspurnarsam-
drætti í vissum greinum iðnaðar, einkum
þeim er tengjast byggingariðnaði, er
gert ráð fyrir nokkurri aukningu iðnað-
arframleiðslu árið 1984, og sömuleiðis
nokkurri aukningu útflutnings.
kvæma að mestu þau verk, sem lang-
tímaáætlunin gerir ráð fyrir.
Vegna erfiðrar fjárhagsstöðu ríkis-
sjóðs og viðleitni til að takmarka lán-
tökur erlendis, hlýtur óhjákvæmilega að
verða nokkur samdráttur á næsta ári í
framkvæmdum á ýmsum sviðum sam-
göngumála.
Félagsmál. Frá því að þessi ríkisstjórn
var mynduð, hefur verið lagt kapp á að
finna leiðir til lausnar á vandamálum
húsbyggjenda. Gert er ráð fyrir því, að
Byggingarsjóður verkamanna og Bygg-
ingarsjóður ríkisins fái á fjárlögum árið
1984 og á lánsfjáráætlun samtals kr.
1.600 milljónir til útlána á næsta ári. í ár
er samsvarandi upphæð kr. 718 milljón-
ir. Hér er því um að ræða nokkru meira
en tvöföldun á framlagi hins opinbera til
húsnæðismála. Með þessu hækka öll lán
frá og með næstu áramótum um 50 af
hundraði. Verða lánin þá nálægt 50 af
hundraði af verði vísitöluíbúðar.
Ýmsar aðrar aðgerðir til hagsbóta
fyrir húsbyggjendur hafa einnig verið
ákveðnar, eins og t.d. að flýta afgreiðslu
lána og lengja þau. Hið sama gildir um
þá, sem kaupa eldri íbúðir.
Auk þess ákvað ríkisstjórnin að afla
fjármagns til þess að aðstoða þá, sem
hafa verið að byggja undanfarin tvö til
HEILBRIGT EFNAHAGSUF ER
F0RSENDA BÆTTRA UFSKJARA
Ur stefnuræðu Steingrfms Hermannssonar forsætisrádherra
rakið, en jafnframt hafa útgjöld ríkisins
á undanförnum árum aukist verulega
vegna nýrra verkefna, m.a. félagslegrar
þjónustu. Stefnt verður að því að leysa
þennan vanda með innlendri fjáröflun,
og verða reyndar ýmsar nýjar leiðir í því
sambandi, m.a. er í undirbúningi ný
útgáfa á gengistengdum skuldabréfum,
sem verða boðin til sölu innanlands
ásamt venjubundnum spariskírteinum.
Auk þess verða gefin út sérstök skulda-
bréf, sem tengjast tilteknum verkefnum,
eins og væntanlegt skuldabréfaútboð
vegna húsnæðislána. Með þessum hætti
og fleiri ráðstöfunum verður stuðlað að
því, að þau markmið náist, sem ríkis-
stjórnin hefur sett sér varðandi erlendar
lántökur á næsta ári. Tilhögun innlendr-
ar fjáröflunar verður skýrð nánar í
fjárfestingar- og lánsfjáráætlun.
í fjárlagafrumvarpi er stefnt að því, að
skattbyrði heimilanna af tekju- og eign-
arskatti verði að tiltölu ekki þyngri en á
árinu 1983.
Vegna hinnar erfiðu stöðu ríkissjóðs
og til þess að draga úr viðskiptahalla,
verður ekki hjá því komist, að umsvif
hins opinbera á árinu 1984 dragist all-
mikið saman. Þannig er ráðgert að draga
um 8-9 af hundraði úr opinberum fram-
kvæmdum. Framlög rtkissjóðs til fjár-
festingarlánasjóða eru ýmist alveg lögð
niður eða þau takmörkuð. Byggingar-
áformum á ýmsum sviðum er slegið á
frest og dregið úr byggingarhraða annars
staðar. Verður ekki undan þessu vikist,
eigi ríkisstjórnin að geta staðið við
loforð í húsnæðismálum, sem njóta
forgangs.
Samneysluútgjöld á vegum ríkisins
eru talin dragast saman 1984 um 3 af
hundraði miðað við áætlun 1983. Þannig
er reynt að gæta ráðdeildar og aðhalds í
ríkisrekstrinum.
Erlend lántaka
Fjárfestingar- og lánsfjáráætlun fyrir
1984 mun fljótlega verða lögð fyrir
Alþingi. í henni verður lögð rík áhersla
á aukna innlenda fjáröflun og bætt
jafnvægi á Iánamarkaði innanlands,
mjög ótrygg á s.l. vori og horfur í
atvinnumálum því ískyggilegar.
Ríkisstjórnin hefur atvinnuöryggi efst
á stefnuskrá sinni samhliða aðgerðum
gegn verðbólgu, og að gerðar verði
ráðstafanir til að treysta rekstrargrund-
völl atvinnuveganna.
Um einstakar atvinnugreinar skal
eftirfarandi tekið fram:
Sjávarúfvegur: Áhersla verður lögð á
að ná hámarksafrakstri fiskistofna með
hagkvæmum hætti. í því skyni verða
hafrannsóknir bættar með markvissri
nýtingu þess fjár, sem til þeirra er varið,
og með endurskoðun á rekstri hafrann-
sóknaskipanna.
Stefnt verður að aukinni hagkvæmni
við fiskveiðar. Fjárfesting verður tak-
mörkuð en aðgerðir til orkusparnaðar á
fiskiskipum verða auknar.
Sérstök áhersla verður lögð á gæði
sjávarafurða á öllum sviðum veiða og
vinnslu. í nánu samráði við aðila at-
vinnugreinarinnar mun sjávarútvegs-
ráðuneytið áfram beita sér fyrir víðtækri
kynningar- og fræðslustarfsemi um gæði
sjávarafurða. Lög og reglur um Fram-
leiðslueftirlit ríkisins verða endur-
skoðuð, m.a. með það í huga, að ábyrgð
framleiðenda og útflytjenda á fram-
leiðslunni verði aukin. Verðlagning sjáv-
arafurða fari eftir gæðum.
Landbúnaður. Erfitt árferði og mark-
aðsaðstæður hafa haft slæm áhrif á
afkomu í landbúnaði. Því var m.a. veitt
aðstoð úr ríkissjóði vegna harðindanna
á norðanverðu Iandinu s.l. vor. Sölu-
skattur af vélum og tækjum til landbún-
aðar var felldur niður og nokkru af
niðurgreiðslufé varið til lækkunar á
áburðarverði til bænda í ár. Þessar
aðgerðir leiddu jafnframt til þess, að
búvöruverð til neytenda hækkaði minna
en annars hefði orðið.
Aðlögun landbúnaðarframleiðslunnar
að markaðsaðstæðum verður haldið
áfram. í því skyni verður leitast við að
efla greinar, eins og iðnaðarframleiðslu
úr landbúnaðarafurðum, loðdýrarækt og
fiskeldi, sem telja má víst, að geti orðið
mjög arðbærar og öflugar útflutnings-
greinar. Slíkur rekstur getur orðið og á
að verða til þess að styrkja byggð og
Tekist hefur, eins og kunnugt er, að
ná samkomulagi við svissneska álfélagið
um endurskoðun á aðalsamningi þess og
íslenska ríkisins um álbræðsluna, hækk-
un raforkuverðs í 10 mills (tíu þúsund-
ustu úr bandaríkjadollar) á kwst. Að því
er stefnt, að endurskoðun samningsins
ljúki fyrir I. apríl n.k., þannig að unnt
verði að afgreiða á því Alþingi, sem nú
situr, frumvarp til laga um breytingar á
aðalsamningnum.
Verslun og viðskipti. Eins og fram
kemur í bráðabirgðalögum um verð-
lagsmál, er aðeins heimiluð sú hækkun á
vörum og þjónustu til 31. janúar n.k.,
sem nauðsynleg er til að standa undir
óhjákvæmilegum kostnaðarhækkunum.
Eftir það er gert ráð fyrir að draga úr
opinberum afskiptum, þannig að neyt-
endur og atvinnulífið njóti hagkvæmni
frjálsrar verðmyndunar þar sem sam-
keppni er næg. Jafnframt er að því
stefnt, að sveitarfélög ákveði sjálf
gjaldskrár þjónustufyrirtækja sinna.
Áfram verður þó fylgst með verðlagn-
ingu opinberra fyrirtækja, sem og ann-
arra. Einnig verður verðkönnunum beitt
í ríkara mæii og upplýsingastarfsemi
Verðlagsstofnunar um verðlag aukin.
Haldið verður áfram að tryggja sem
hagstæðasta markaði erlendis fyrir ís-
lenskar framleiðsluvörur, m.a. með
virkri þátttöku í samstarfi Evrópuþjóða
um fríverslun og sérstökum samningum
við þær markaðsþjóðir, sem ekki eru
aðilar að því samstarfi. Vegna þýðingar
utanríkisviðskipta fyrir ísland, er áríð-
andi að alþjóðaviðskipti séu frjáls og
staðið sé gegn hvers konar óeðlilegum
hömlum og verndarráðstöfunum, sem
torvelda þau.
Ég mun nú víkja að málefnum annarra
ráðuneyta en ráðuneyta atvinnuveg-
anna.
Samgöngumál. Gert er ráð fyrir því,
að vegaframkvæmdir á næsta ári verði
um það bil 2,2 af hundraði þjóðarfram-
leiðslu. eða svipað og í ár. Þetta er
heldur lægra en ráðgert er í langtímaá-
ætlun um vegamál. Hins vegar er þess
vænst, að með auknum útboðum við
nýbyggingu vega reynist unnt að fram-
þrjú ár. Verða lán til þeirra hækkuð um
50 af hundraði. Er ráðgert að verja í
þessu skyni 250 milljónum króna. Þá
hefur ríkisstjórnin samið við viðskipta-
banka um sameiningu lána og lengingu
í átta ár fyrir þessa sömu aðila, auk
þeirrar frestunar á greiðslu vaxta og
afborgana sem fyrr er getið.
Ríkisstjórnin leggur áherslu á at-
vinnuöryggi. Því hefur verið ákveðið að
efla vinnumáladeild félagsmálaráðu-
neytisins. Auk þess sem upplýsingasöfn-
un um skráð atvinnuleysi verður aukin
og bætt, er gert ráð fyrir því, að
stjórnvöld og aðrir sem á slíku þurfa að
halda fái í tíma vísbendingu um framboð
og eftirspurn á vinnumarkaði.
Heilbrigðismál. Unnið verður að því
að heilsugæsla samkvæmt lögum um
heilbrigðisþjónustu komist sem allra
fyrst á um allt land. Vegna fyrirsjáanlegs
samdráttar í fjárveitingum, verður þó
sérstök áhersla lögð á að Ijúka þeim
framkvæmdum, sem þegar hafa verið
hafnar, en nýjum framkvæmdum fremur
frestað um hríð.
Áhersla verður lögð á, að lög um
málefni aldraðra, sem gildi tóku í árs-
byrjun 1983, komi, eftir því sem tök eru
á, til framkvæmda á þessu ári.
í því skyni að auka aðhald í sjúkrahús-
rekstri, mun verða ítarlega kannað fyrir
endanlega gerð fjárlaga ársins 1984,
hvaða sjúkrahús verða tekin beint inn á
fjárlög á næsta ári.
Leitað er leiða til þess að veita sömu
þjónustu í heilbrigðiskerfinu með minni
tilkostnaði. Á næstu mánuðum munu
niðurstöður þessara athugana koma
fram.
í athugun er, hvort draga megi úr
útgjöldum ríkissjóðs vegna lífeyris- og
sjúkratrygginga með skipulagsbreytingu
á Tryggingastofnun ríkisins og sjúkra-
samlögum landsins. Þetta tengist sér-
staklega þeirri viðleitni að færa megin-
hluta sjúkrastofnana beint inn á fjárlög.
Umsvif sjúkratrygginga Tryggingastofn-
unar ríkisins minnka þá að sama skapi
og fyrirkomulag sjúkrasamlaga þarf því
að endurskoðast.
Menntamál. Með hliðsjón af mikil-
vægi fjölskyldunnar sem grunneiningar í
þjóðfélaginu, verður í skólastarfi lögðj
áhersla á að auka tengslin við fjölskyldu-
líf og á samheldni og samveru foreldra
og barna.
Einnig verður lögð áhersla á virkari
tengsl skóla og atvinnulífs. í því sam-
bandi má nefna aukna fræðslu um tölvu-
notkun.
Áformuð er breytt og skýrari verka-
skipting milli ríkis og sveitarfélaga í
skólamálum, m.a. þannig, að ýmis af-
mörkuð verkefni í fræðslumálum verði
færð til sveitarfélaga. Jafnframt er unnið
að frumvarpi um skólakostnað.
í menningarmálum vill ríkisstjórnin
örva frjálsa og sjálfstæða listsköpun og
annað menningarstarf og efla höfuð-
menningastofnanir þjóðarinnar.
í fjölmiðlamálum verður unnið að
auknu frjálsræði á sviði útvarps og
sjónvarps.
Vegna hins þrönga fjárhags ríkissjóðs
er í samstarfi við skóla og aðrar menn-
ingarstofnanir stefnt að aðhaldi í rekstri
og framkvæmdum, en þó þannig, að
ekki skerði fræðslu- og menningarstarf
eða rannsóknir, sem eru nauðsynlegir
þættir fyrir lífvænlega byggð í landinu.
Dóms- og kirkjumál. Að dóms- og
kirkjumálum verður unnið með hefð-
bundnum hætti.
Gert er ráð fyrir breytingu á lögum um
dómvexti, þannig að ákvæðin verði ský-
laus.
Áformað er að lögfesta skýrari reglur
um skyldur, ábyrgð og vinnubrögð fast-
eignasala, enda eru hagsmunir almenn-
ings í viðskiptum á þessu sviði geysimikl-
ir.
Breyting á umferðarlögum varðandi
skráningu bifreiða er ráðgerð, svo og
endurskoðun á reglum um skoðun bif-
reiða til sparnaðar og hagræðis. Endur-
skoðun á umferðarlögunum er jafnframt
í undirbúningi.
Unnið er að heildarendurskoðun á
lögum um meðferð opinberra mála, sem
er orðin mjög tímabær, og tillagna er
einnig að vænta um breyting á lögum um
meðferð einkamála í héraði.
Framh. á síðu 17