Tíminn - 19.10.1983, Page 11
10
MIÐVIKUDAGUR 19. 0KT0BER 1983
íþróttir
Greinargerð Umf. Selfoss um Skallagrímsmálið:
KÆRA DOMSNIÐURSTODUR OG MALSMEÐ-
FERÐ TIL FRAMKVÆMDASTJÓRNAR ÍSÍ
dómsniðurstaða dómstóls ISI aðeins byggð á einu kæruatriði
■ Fimm félagslið sem þátt tóku í íslandsmóti 3. deildar KSÍ s.l. sumar kærðu
Ungmennafélagið Skallagrím undir lok mótsins fyrir það að tefla fram ólöglegum
leikmanni í allmörgum leikjum, en umrxddur leikmaður hafði þverbrotið þau lög
KSÍ, sem gilda um félagaskipti. Það furðulega skeður þegar málið er lagt á borð að
dómstóll ÍSÍ og KSÍ leiðir hjá sér að taka á meginkæruatriðum sem varða félagaskipti
hins ólöglega leikmanns. I lögunt KSÍ segir ótvírætt að líða þurfi cinn mánuður á ntilli
áður en félagsmaður í einu félagi geti leikið með nýju félagi miðað við það að hann
tilkynni formlcga félagaskipti og ef leikmaður hefur leikið með félagi sínu þurfa að
líða tveir mánuðir áður en hann getur leikið með nýju félagi. Þegar allir leikir 3.
deildar höfðu veriö leiknir var staðan sú að Skullagrímur í Borgarnesi hafði 22 stig
en Ungmennafélagið Selfoss hafði 19 stig. Málið snýst því um það hvort Skallagrímur
hefur sigrað á löglegan hátt eða ekki.en niðurstaða í því máli sker úr um það hvort
liö sem hefur fylgt settum reglum nýtur þess, eða hvort lið sem hefur þverbrotið
íslenskar sem alþjóðlegar reglur fær að komast upp með slíka ósvinnu. Umræddur
leikmaður, Garðar Jónsson, tilkynnti um félagaskipti úr Skallagrími í Borgarnesi 2.
febrúar s.l. í Iþróttabandalag Akraness. I stuttu máli keppti Garðar með ÍA í
maimánuði í Litlu bikarkeppninni og í Islandsmóti 1. dcildar. Síðast lék hann með
ÍA 31. maí s.l. Þann 1. júlí tilkynnti hann úrsögn úr IA, en afturkallaði þá úrsögn
sama dag. Þann 6. júlí óskaði Garðar eftir riftun á félagaskiptuin úr Skallagrími í 1A
frá 2. febrúar 1983, en 2. júlí, daginn eftir að hann segir sig úr í A og hættir svo við
það síðar um daginn, hyrjar hann að lcika í 3. dcild íslandsmótsins með Skallagrími.
Með tilliti til alls þessa mun Ungmennafélag Selfoss og fleiri lið sem máliö varðar,
kæra málsmeðferð og dómsniðurstöður til framkvæmdastjórnar íþróttasambands
Islands.með þeirri kröfu að rannsókn vcrði gerð á málsmeðferð og niðurstaða
endurskoðuð í takt við lög þau sem gilda á okkar landi um rétt og skyldur
knattspyrnumanna.
I lok 3. deildarkeppni íslandsmótsins
var Skallagrímur í Borgarnesi kærður af
fimm aðilum öðrum sem þátt tóku í
mótinu, þ.e. Grindavík, ÍK, Snæfelli í
Stykkishólmi, Ármanni og Selfossi. All-
ar kærurnar hárust vegna þess að einn
leikmanna Skallagríms reyndist ólög-
legur að mati þessara aðila, þegar málið
var kannað ofan í kjölinn. Kærurnar
komu fram á misjöfnum tíma á seinni
hjuta deildarkeppninnar, en síðasta kær-
an kom frá Selfossi þegar nokkrir leikir
voru eftir og var hún lögð fram til
héraðsdómstóls heimahcraðs eins og
aðrar kæru í málinu. Dómar í öllunt
héruðum féllu á þá leið að Skallagrími
dæmdust tapaðir leikir í þeim leikjum
sem Garðar Jónsson lék með félaginu.
Voru leikirnir dæmdir tapaðir vegna
þess að Garðar Jónsson var samkvæmt
skilningi héraðsdómara brotlegur við
þær reglur sem KSÍ hefur sett um
félagaskipti. í öðru lagi fullnægir hann
ekki skilyrðum KSÍ um biðtíma á milli
félagaskipta sem á að vera 1 mánuðir í
ölluin tilvikum, en ef leikmaður hefur
tekið þátt í 'kappleik á vegum cins félags
á sama ári þá er biðtíminn 2 mánuðir.
Garðar Jónsson skipti um félag 2.
febrúar 1983, sagði sig þá úr Skallagrími
í Borgarnesi og gekk í ÍA á Akranesi.
KSÍ tók á móti gögnum þar að lútandi
og samþykkti félagaskiptin. Síðan tók
Garöar Jónsson þátt í kappleikjum með
ÍA í Litlu bikarkeppninni í maí 1983 og
er þá einn af leikmönnum á velli og
ennfremur tók hann þátt í fyrstu tveimur
kappleikjum íslandsmótsins í 1. deild,
með ÍA og þá sat hann á varamanna-
bekk, en skráður leikmaður á skýrslum
ÍA. Síðasta leikinn mcð ÍA lék Garðar
31. maí 1983.
Þann 1. júlí 1983 sendi Garðar Jóns-
son tilkynningu til KSÍ um félagaskipti,
þá úr ÍA, en án þess þó að geta um nýtt
félag. Þessi yfirlýsing er undirrituð af
Garðari og Haraldi Sturlaugssyni for-
manni Knattspyrnuráðs Akraness.
„FORKASTANLEGT
ad dæma eftir einu ákæruatriði
en hundsa hin’% segir Gylfi
Gíslason formadur knattspyrnu*
deildar Selfoss
■ „Þetta er ekki „prinsippatriði" okk-
ar Selfyssinga*1, sagði Gylfi Gíslasón
formaður knattspyrnudeildar UMF Sel-
foss í samtali við Tímann í gær, er við
hann var rætt vegna grcinargerðar Sel-
fyssinga. „Þetta er að vísu hagsmunamál
okkar núna, en hverjir lenda í þessu
næsta ár? Þetta á að vera eins og lögin
eru, en það eru einhvcrjir aðilar sem
breyta þessu milli þinga. Félögin verða
að standa saman um sinn rétt“, sagði
Gylfi.
„Mcginatriðin eru þrjú í þessu“, sagði
Gylfi. Spurningin um opinber mót, hver
þau séu, og hver ekki, spurning um
ábyrga afstöðu gagnvart varamönnum,
spurning um lögleg félagaskipti. - Svo er
náttúruiega dómsmcöferðin í þessu máli.
- Það er í raun forkastanlegt að
dómstóll leyfi sér að svara einu kæru-
atriði eingöngu, þegar kæran er lögð
frain í þremur áhersluatriðum. - Það er
kært í þremur atriðum og aðeins dæmt í
einu, það er engan veginn eölilegt að
félögin í landinu uni því. Fyrir öðruni
dómstólum væri ekki unaö við slík
málalok, það er alveg á hreinu.“
- llver er afstaða hinna félaganna sem
kærðu?
„Þau bera ýmsu við. Ármenningar
standa með okkur, enda eiga þeir hags-
muna að gæta, hin setja fyrir sig ýmis
atriði. Sumir vilja ekki eyðileggja sam-
skipti sem þcir hafa átt við Borgnesinga,
þá eru slík atriði ofar á vogaskálunum en
reglur. Málið kemur náttúrulega ekki
pcrsónulcga við þá, og inargir virðast
hugsa sem svo í stjórnum félaganna scm
hlut hafa átt að niáli, að Borgnesingar
skuii ekki gjalda fyrir innanhússmistök
KSÍ. Það virðist vera þannig meö marga,
að meðan það lendir ekki á þeim að
missa sæti í annarri deild cða falla í
fjórðu deild vegna lögbrota, taki þeir
ekki afstöðu“.
-SÖE
■ Forsaga máls þess, sem Sel-
fyssingar senda greinargerð
vegna, og hér er birt í heild sinni,
er sú að í sumar kærðu fimm
félög Ungmennafélagið Skalla-
grím í Borgarnesi fyrir að nota
ólöglegan leikmann, Garðar
Jónsson í leikjum sínum. Voru
rök fyrir málinu færð í þremur
liðum. Dómstóll KSÍ dæmdi stig-
in af Skallagrimi i téðum leikjum
vegna þátttöku Garðars í Litlu
Bikarkeppninni með “ Iþrótta-
bandalagi Akraness. Þeim dómi
var síðan hnekkt hjá dómstóli
ÍSÍ, en til hans áfrýjuðu Skalla-
grímsmenn. Þar var málið dæmt
Skallagrími í hag, en ekki tekin
afstaða í þeim dómi nema til þess
eina atriðis sem dómstóll KSÍ
byggði sinn dóm á. Af þessum
sökum kæra Selfyssingar og Ár-
menningar amk. málsmeðferð-
ina til framkvæmdastjórnar ÍSÍ.
Greinargerð fyrir þeirri kæru er
birt hér, og viðtöl við formenn
knattspyrnudeild Selfoss og
Skallagríms eru neðar.
-SÖE
Samdægurs barst síðan skeyti til KSI þar
sem Garðar kveðst draga til baka beiðni
um félagaskipti úr ÍA í Skallagrím, sem
hann hafði þó ekki tilgreint á fyrrgreindri
beiðni.
Þann 6. júlí kemur enn eitt skeytið til
KSÍ, þar sem Garðar kveðst draga til
baka upphaflegu félagaskiptin sín frá 2.
febrúar úr Skallagrími í ÍA.
Garðar hóf að leika með Skallagrími
þann 2. júlí 1983 í 3. deild, fjórum
dögum áður en hann hyggst ætla, með
skeyti til KSÍ, að ógilda eða rifta upphaf-
legu félagaskiptunum, sem hann til-
kynnti í ársbyrjun og veittu honum rétt
til að leika fyrrgreinda leiki með ÍA í
litlu bikarkeppninni og Islandsmótinu
þar sem hann í öllum tilvikum er skráður
einn af 16 leikmönnum ÍA.
Garðar lék hins vegar alla leiki Skalla-
grínrs í 3. deild eftir 2. júlí, en að lokinni
síðustu umferð var Skallagrímur efsta
lið með 22 stig, en Selfoss í öðru sæti
með 19 stig. Þá hafði Garðar leikið 8
leiki með Skallagrími, eða seinni hluta
3. deildarmótsins.
Tveimur niðurstöðum héraðsdóms í
umræddum fimm kærum var áfrýjað af
Skallagrími til KSI, niðurstöðum frá
Ungmennasambandi Kjalarnesþings og
Ungmennasambandi Borgarfjarðar. í
þessum tveimur málum staðfesti dóm-
stóll KSI niðurstöðu héraðsdóma, en
hinum kærunum þremur áfrýjaði Skalla-
grímur beint til dómstóls íþróttasam-
bands íslands, þ.e. kærunum frá Snæ-
felli, Ármanni og Selfossi. Hins vegar er
það skylt samkvæmt lögum ÍSÍ að dóm-
stóll KSÍ skuli .fjalla um mál fyrst ef
áfrýjað er niðurstöðú héraðsdóms, áður
en komið getur til þriðja og síðasta
dómstigs dómstóls ÍSÍ. Með ólíkindum
komst dómstóll ÍSÍ að niðurstöðu sem
gengur þvert á dómsniðurstöðu KSÍ og
héraðsdóms. Allir dómstólarnir, dóm-
stóll ÍSÍ og héraðsdómstólar dæmdu
Garðar ólöglegan leikmann vegna leikja
í Litlu bikarkeppninni (Akranes-Kefla-
vík-FH-Haukar og Breiðablik), en
niðurstaða dómstóls ÍSÍ komst að þeirri
niðurstöðu að Garðar Jónsson væri lög-
legur leikmaður með Skallagrími.
Eina afstaðan sem ÍSÍ-dómstóllinn
tók í málinu. var gagnvart þátttöku
Garðars í Litlu bikarkeppninni. Dóm-
stólarnir hafa hins vegar ekki tekið
ennþá á félagaskiptum Garðars, sem eru
vægast sagt mjög torkennileg og standast
engan veginn þær reglur sem skylt er að
fara eftir.
Eina niðurstaðan sem ÍSÍ-dómstóllinn
tók varðandi þátttöku í Litlu bikar-
keppninni, fékkst í fyrsta kærumálinu,
kæru Snæfells gegn Skallagrími, en þeg-
ar málið var dómtekið var sækjandi
fjarverandi vegna þess að hann hafði
aldrei fengið boð um að mæta fyrir
dómi. Verjandi mætti hins vegar og
dómsniðurstaðan var fengin að fengnum
upplýsingum frá verjanda einum, full-
trúa Skallágríms. Upplýsingarnar voru
þess eðlis að fyrir dómi lá staðlað
vottorð, útbúið af ákærða, Skallagrími,
þar sem sagt var að Litla bikarkeppnin
væri að mati þátttakenda lokað æfinga-
mót, sem færi ekki að öllu leyti eftir
reglum KSÍ.
Það er furðulegt að dómstóll ÍSÍ skuli
taka þá afstöðu eftir persónulegt mat
þátttakenda Litlu bikarkeppninnar, að
um sé að ræða óopinbert mót og virða
þannig að vettugi lög ÍSÍ um opinber
mót þar sem segir m.a. að þar sem tvö
félög eða fleiri keppi innbyrðis, teljist
slíkir kappleikir opinberir. Dómurinn
byggist sem sagt á mati kærða en ekki
þcim lögum sem dæma á eftir.
Formaður Dómarasambands Islands
skilgreindi fyrir dómstól ÍSÍ reglur um
skyldur leikmanna og þar með vara-
manna og staðfesti formaðurinn að líta
skuli á varamenn í kappleikjum sem
fullgilda leikmenn.
Meginmálið er það að lög íþrótta-
sambands íslands, lög Knattspyrnu-
sambands íslands og alþjóðalög, eru
þverbrotin í þessu máli og dómstóll ÍSÍ
leyfir sér að líta fram hjá kæruatriðum
sem heyra undir þessi lög, en láta
geðþóttaákvarðanir utanaðkomandi að-
ila ráða niðurstöðunni.
Endanleg niðurstaða þessa máls sker
úr um það hvort réttlætið tryggir rétt-
mætum sigurvegara þátttöku í 2. deild
og jafnframt kemur endanleg niðurstaða
þessa máls til með að skera úr um hvort
réttmætur aðili fellur í 4. deild.
íþróttahreyfingin getur ekki byggt á
geðþóttaákvörðunum í svo mikilvægum
málum sem snertir siðferðis- og réttlætis-
vitund þúsunda manna sem vilja hag
hreyfingarinnar sem mestan og drengi-
legastan. Mistök geta alltaf átt sér stað,
en hafa skal það sem sannara reynist og
fara að lögum.
Með vinsemd og virðingu:
Ungmennafélag Selfoss
MARGT RANGTÚLKAD
í greinargerð Selfyssinga - þeir kærðu t.d. alltof
seint’% segir Þorsteinn Benjamínsson formaður
Knattspyrnudeildar Skallagríms
98
■ „Það er margt rangtúlkað í þess-
ari greinargerð“, sagði Þorsteinn
Benjantínsson formaður knatt-
spyrnudcildar UMF. Skallagríms, er
hann var spurður álits á greinargerð
Selfyssinga hér að ofan.
„I fyrsta lagi var skeytið, þar sem
þeir segja að Garðar hafi dregið til
baka skiptin úr ÍA í Skallagrím 1. júlí
misritað á símstöðinni, þannig að
það sncrist alveg við.
í öðru lagi er það orðin hefð, og
samkvæmt starfsreglum KSÍ, að
inenn sem tilkynna félagaskipti geta
dregið til baka þau félagaskipti og
byrjað um leið að leika með gamla
félaginu sínu, hafi þeir ekki leikið
opinbcran kappleik með því félagi
sem þeir skiptu yfir í.
Í þriðja lagi kvað dómslúll KSÍ
upp úr með að varamaður í leik sem
ekki kemur inná er ekki hlutgengur í
leik, og taldi Garðar löglegan itieð
okkur miðað við þá kæru. En dóm-
stóllinn dæmdi stigin svo af okkur á
þeim forsendum að Litla bikar-
keppnin væri opinhert mót. Það er
alveg klárt að Selfyssingar hafa ekki
dreift þeim dómum sem dómstóll
KSÍ kvað upp úr með, vegna þess að
það var þeim í óhag.
Í fjórða lagi gat lörmaður KDSÍ,
scm mætti þegar málið var tekið
fvrir, ekki skýrt hve langt svið dóm-
ara náði. Það nær að sjálfsögðu yfir
leikmenn á velli, varamenn og for-
ráðamenn liða, én það getur líka náð
ýfir hvern þann annan sem nálægt
leikvellinum kemur.
Í fimmta lagi kærði Selfoss mánuði
1 , '
eftir að leik okkar við þá á Selfossi
lauk, kærulrestur, sem er 14 dagar,
var löngu útrunninn. Og það mál
virtust þeir hafa í hendi sér, því því
var frestað, dómararnir læstir inni og
svo framvegis.
Að lokum vil ég bara segja, að
markatalan í leikjum okkar viö Sel-
fyssinga, innhyrðis er okkur vel í
hag, þeir gátu ekki sigrað okkur á
leikvelli. - Við niunuin svara þessu
inálefnalega, höfum ekki viljað tjá
okkur um þetta hingað til. En við
munum svara nú, af sönnum íþrótta-
anda, eins og einkcnnir þá Selfyss-
inga og litlu bræður þeirra í Ár-
manni," sagði Þorsteinn Benjamins-
son að lokum.
-SÖE
fðsSal Íi i
MIÐVIKUDAGUR 19. OKTOBER 1983
hingad!
— Tekst FH ad komast í
8 liða úrslit?
umsjón: Samúel Örn Erlingsson
FH og appelsínudrengirnir:
Fa bada
leikina
■ Nú er bara spurningin hvort FH-ingum tekst að færa sér það í nyt að leika báða leikina gegn Maccabi heima. Það mun
áreiðanlega mikið mæða á þeim Kristjáni Arasyni, Atla Hilmarssyni og Þorgils Óttari Mathiesen, ásamt félögum þeirra í
FH-liðinu, því Israelsmenn eru sterkir á svellinu. Skyldu þeir þurfa að líta oft vonsviknir um öxl gegn Maccabi eins og á
myndinni eftir að skot Viggós Sigurðssonar í Víking hafði ratað rétta leið í netið? - Myndln er tekin í leik FH og Víkings
um síðustu helgi, og það er Guðmundur B. Guðmundsson Víkingur sem er lengst til vinstri. Tímamynd Róbert
■ „Við erum mjög ánægðir með þetta
að sjálfsögðu, sagði Egill Bjarnason
formaður handknattleiksdcildar FH í
samtali við Tímann í gær, eftir að
kunnugt var að Israelsmennirnir í liðinu
Maccabi Tel Aviv væru tilbúnir að koma
hingað til lands og leika báða leikina í 16
liða úrslitum IHF Evrópukeppninnar
hér á landi. „Þctta er það sem við
ætluðum okkur, og með það hljótum við
að vera ánægðir“, sagði Egill.
Egill sagði, að væntanlega bærust
upplýsingar um styrkleika ísraelska liðs-
ins næstu daga. Vel má reikna með, að
FH-ingar komist í 8 liða úrslit keppninn-
ar, ef vel tekst til í leikjunum gegn
Maccabi. Þó er þess að gæta, að ísraels-
menn hafa ekki gefið íslcndingum neitt
eftir í leikjum landsliða þjóðanna.
Þessi lið leika í 16 liða úrslitum:
MaccabiTel Aviv(ísrael)-FH íslandi,
Lokomotiva Trnava (Sovét) - UHK
FERBRADY
AFTUR HEIM
TIL ARSENAL?
] Minningarhlaup
um Jóhannes
■ Liam Brady, landsliðsmaðurinn
írski talaði um það eins og sjálfsagð-
an hlut í samtali við fréttainann BBC
um helgina að hann mundi fara heim
til Arsenal frá Sampdoria á Spáni,
þar sem hann leikur á.
Brady sagðist ekki komast heim
fyrir jól, en vonandi sem fyrst. Terry
Neal, framkvæmdastjóri Arsenal var
þó ekki eins bjartsýnn, cn sagðist
hafa fullan hug á að ræða við forráða
menn Sampdoria er samningur
Bradvs rennur út í vor.
-SÖE
haldid á sunnudag
■ Næstkomandi sunnudag, 23. októ-
ber gengst Iþróttafélag Menntaskólans í
Reykjavík fyrir boðhlaupi til minningar
um Jóhannes Sæmundsson íþrótta-
kennara skólans, er lést uin aldur frani
s.l. vor. Var hann m.a. frumkvöðull að
því hér á landi að láta skólanemendur
hlaupa úti í leikfimitímum, sem nú er
orðið mjög algengt. Keppt verður í
eftirtöldum ijórum flokkum:
a) Konur 3x2 km. opinn flokkur
b) Karlar 4x2 km opinn flokkurf
c) Konur 3x2 km bekkjadeildir í M.R.
d) Karlar 4x2 km bekkjardeildir í M.R.
<■ Brady sagðist ekki komast heun -SOE m
mgíírTmííastudi
— sökkti HK - Grótta vann Fylki naumt
■ Dagur Jónasson Framari var í aldcil-
is fínu formi í leik Fram og HK í annarri
deild karla í handbolta, er liðin mættust
í fyrrakvöld á fjölum Laugardalshallar-
innar. Dagur skoraði 11 mörk fyrír Fram
í 25-21 sigri.
Staðan í hálfleik var 13-8 Fram í hag,
og því á brattann að sækja hjá HK í
síðari hálfleik. í síðari hálfleik var.
leikurinn jafn. en HK hefði þá þurft að
ná yfirhöndinni til að jafna sem ekki
tókst.
Dagur var markahæstur Framara. svo
sem áður sagði meö 11 mörk,' en Gústaf
Björnsson var honum næstur með 5
mörk. Sigurður Sveinsson var atkvæða-
mestur Kópavogsmanna með 9 mörk, en
Guðni Guðfinnsson skoraði 5.
Grótta komst einu sinni yfir
■ Grótta komst einu sinni yfir í leik
sínum við Fylki í 2. deild karla í
handknattleik um helgina, en leikið var
í Seljaskóla. Fylkir hafði forystuna allan
leikinn. en í lokin komst Grótta yfir
21-20, og það voru lokatölur. Leikurinn
var, samkvæmt heimildum Tímans, lé-
legur og illa leikinn, bæði af leikmönnum
og dómurum. Sverrir Sverrisson skoraði
mest Gróttumanna. 8/5 mörk, en Gunn-
ar Lúðvíksson skoraði 4. Hjörtur Ing-
þórsson var markahæstur Fylkismanna
með 6 mörk, en Einar Einarsson skoraði
5.
-SÖE
Staöan í annarri dcild karla er nú
þessi:
ÞórVe.......... 4 4 0 0 91-58 8
Fram .......... 4400 93-74 8
Grótta ........ 430 1 92-85 6
Breiðablik..... 3 2 0 1 58-47 4
HK ............ 3 1 0 2 59-63 2
Reynir............. 3003 62-83 0
ÍR............. 3 0 0 3 62-83 0
Fylkir......... 4004 75-104 0
HHBHn
Verðlaun veröa veitt fyrir sigursveit í
hverjum flokki og til þess aö einstaklings
er fær bestan tíma í hverjum flokki.
Hlaupið hefst í Tjarnargötu og er
síöan hlaupiö um Vonarstræti, Frí-
kirkjuveg, Sóleyjargötu, Hringbraut,
Bjarkargötu og þaöan um gangstíg út í
Tjarnargötu. Mest allur hluti hlaupsins
fer fram á gangstéttum. Búningsaðstaöa
er í íþróttahúsi Mcnntaskólans og að
hlaupi loknu fer fram vcrðlaunaafliend-
ing í skólanum og boðið veröur upp á
hressingu.
Skráning í hlaupiö fer fram í skólanum
frá kl. 9 f.h. að morgni keppnisdags og
er íþróttafélögum, vinnustaðahópum og
hvers kyns trimmhópum boðin þátttaka
í opna flokknum.
Hlaupið hefst kl. 10 fyrir hádegi.
Dómur
„slátrarans“
mildaður
Frá Magnúsi Ólafssyni í Bonn:
■ Um helgina var dómurinn yfir
„Slátraranum frá Bilbao“, Antonio Go-
icechca, mildaður úr 18 leikja banni í 10
leikja bann. Þetta hefur ekki mælst vel
fyrir hér í Þýskalandi, né heldur mun
snillingurinn Maradona vera ánægður
með þetta. Goicoechea verður í sviðs-
Ijósinu í kvöld, er hann kcppir mcð
Atletico de Bilbao gegn Liverpool á
Anfield Road í Liverpool. -MÓ/SÖE
latabanya Banyasz (Ungverjalandi) -
Ystads 1F (Svíþjóð),
Balonmano Granollers (Spáni) - HC
Roverto (ftalíu)
Oppsal IF (Noregi)- BSV Bern (Sviss),
Kronohagcns IF (Finnlandi) - Gladsaxe
Söborg (Danmörku),
Rauða-stjarnan Belgrad (Júgóslavíu) -
Boule D'or Lebbeke (Belgíu).
„Appelsínudrengirnir" Maccabi Tel
Aviv eru hálfgert huldulið, ekkert er
vitað um skipan liðsins eða hve margir
landsliðsmenn leika með. Liðið sló út
grískt lið í undankcppninni, 26-20 í
Grikklandi og 33-18 í ísrael.
-SÖE
Reykjavíkur-
mót í
borötennis
■ Rcykjavíkurmótinu í horðtennis lauk í
Laugardalshöll um helgina, eins og drepið
var á í blaðinu í gær. Urslit urðu þcssi:
Karlar:
Einliðalcikur:
1. Tómas Guðjónsson KR
2. Hjáltýr Hafsteinsson KR
3-4. Jóhanncs Hauksson KR
3-4. Tómas Sölvason KR
Tvíliðaleikur:
1. Tómas Sölvas./Tómas Guðjónss. KR
2. Kristján Jóhanns./Stcfán Konráðss. Vík
3. Gunnar Birkiss./Vignir Kristm. Ern.
Konur:
Einliðaleikur:
1. Ásta Urbancic Ernmum
2. Arna Sif Kjærnested Víkingi
3. Elísabet Olafsdóttir Erninum
Tvfliðaleikur:
I. Ásta Urbancic/Elísabet Ólafsd. Ern.
Tvenndaricikur follorðimia
I. Ásta Urbancic/Tómas Guðjónss.
Einiiðaleikur:
1. Emil Þálsson KR
2 Jóhann Örn Sigurjónsson F.rninum,
3. Ragnar Ragnarsson Erninum
Tvfliðaleikur:
1. Gunnar Hall/Ragnar Ragnarss Ern.
2. Alexander Arnars/Emil Páls. KR
3. ÞórðurÞorvarðars./Jóh.OrnSigurj. E
Sveinar 13-15 ára
Einliðalcikur:
1. Gunnar Valsson Erninum
2. Eyþór Ragnarsson KR
3. Halldór Steinsen Erninum
l'vfliðalcikur:
1. Gunnar Valss./Halldór Reyniss. Em,
2. Magnús ÞorstÆyþór Ragnarss. KR
3. Kjartan Bricm/Stcfán Garðarss. KR
Drcngir 15-17 ára: /
1. Bcrgur Konráðsson Víkingi
2. Trausti Kristjánsson Vikingi
3. Friðrik Bcrndscn Víkingi
Stúlkur:
Einliðalcikur:
Arna Sif Kjærncsted Vikingi
Tvcnndarkcppni unglinga:
I. Arna Sif Kjærnested/Friðrik Bcrndsen
Þiltar, undir 13 ára:
Einliðalcikur:
1. Kjartan Briem KR
2. Þór Hauksson Víkingi
3. Jóhann P. Guðjónsson Víkingi.
-SÖE