Tíminn - 09.11.1983, Side 9
MIÐVIKUDAGUR 9. NÓVEMBER 1983
9
á vettvangi dagsins
Mannafli við fiskveiðar hefur vaxið
1963-1981 úr 523 í 748 ársverk. sem er
43% aukning og nemur 225 ársverkum.
Nókkrar sveiflur hafa orðið á mannafia
í fiskveiðum yfir tímabilið; hæst fór
hann 1977; 791 ársverk og lægst 1963;
523 ársverk. Tilkoma og hvarf síidar og
sveiflur á loðnuafla og ekki síst mikil
togarakaup seinni ára hafa hér sitt að
segja, en frá 1973 hefur mannafli verið
nokkuð stöðugur, um og yfir 700
ársverk. og hreyfist varla mikið frá þeim
fjölda á næstunni þar eð ljóst er að
fiskimiðin gefa ekki meira af sér en nú
er á þeim veitt, að minnsta kosti ekki í
veiðum á þeim fisktegundum sem hingað
til hefur verið sótt í og er að mörgu leyti
óvitlaust að ætla að þessi mannafli geti
farið minnkandi í framtíðinni því endur-
nýjun togaranna feli m.a. í sér vaxandi
tækni og vinnuaflssparnað.
Úrvinnslugreinarnar, fiskiðnaður,
annar iðnaður, bygginga- og
mannvirkjagerð og rafveitur og vatns-
veitur eiga verulegan þátt í aukningu
mannaflans á Norðurlandi eystra síðustu
20 ár'in. Eins og áður sagði hefur
mannaflinn á þessum tíma vaxið um
4297 ársverk og er hlutur úrvinnslu-
greina í því 1788 ársverk eða tæplega
42%.
Fiskiðnaður hefur vaxið úr 775 árs-
verkum í 1393 þ.e. um 618 ársverk sem
er tæplega 80% aukning. Hefur vöxtur-
inn verið jafn og stöðugur því kaup á
fiskiskipum, stórum og smáum, vinda
upp á mannaflanotkun í fiskiðnaði. En
þar sem Ijóst er að flotinn verður vart
stækkaður mikið á næstunni verður þessi
vöxtur varla viðvarandi um ókomin ár
nema til komi frekari þróun á vinnslu
sjávarafurða.
Iðnaður, annar en fiskiðnaður, hefur
vaxið með tilliti til mannafla um 706
ársverk eða rétt um 50% sem er hlutfalls-
lega minni vöxtur en í fiskiðnaði en þó
jafn og stöðugur yfir tímabilið. Hér er
fyrst og fremst um að ræða vöxt og
viðgang iðnaðar á Akureyri, í Sam-
bandsverksmiðjunum, Slippstöðinni,
við lagmetisiðnað o.fl., en á öðrum
svæðum kjördæmisins hefur ekki verið
lögð áhersla á iðnaðaruppbyggingu ef
frá er talin smíði Kísilgúrverksmiðjunn-
ar við Mývatn. Er þetta mjög bagalegt
og rýrir stórkostlega atvinnuöryggi
þeirra svæða sem alfarið byggjast upp
utan um fiskveiðar og fiskiðnað og eru
þannig háð duttlungum náttúrunnar sem
gefur jú af sér aðföngin þeim til handa.
Byggingar og mannvirkjagerð orsaka
miklar sveiflur í mannafla. Hann var
lægstur í þessum atvinnuvegi 1963; 610
ársverk og hæstur 1980; 1266 ársverk.
Helstu niðursveiflurnar koma í kjölfar
hruns síldarstofnsins 1967 og olíuverðs-
hækkunarinnar 1973 enda ræður efna-
hagur almennings og fyrirtækja því
alfarið hversu mikið byggt er af íbúðar-
og verksmiðjuhúsnæði og óbeint hversu
mikið af byggingum á vegum hins opin-
bera því samdráttur í þjóðartekjum
bitnar jafnt á opinberum aðilum sem
öðrum. Þaö má í raun segjaað samdrátt-
ur þjóðartekna komi einna fyrst og
skýrast fram í þessum atvinnuvegi enda
hljóma í dag háværar raddir um að
atvinnuástand í byggingariðnaði sé að
þróast til verri vegar og kemur ekki á
óvart að þaðan skuli fyrst heyrt kvartað
í kjölfar þess samdráttar sem varð í
þjóðartekjum á íslandi á sl. ári og virðist
munu halda áfram á þessu.
Veitur taka til sín hlutfallslega lítinn
mannafla á Norðurlandi eystra, innan
við 1%, og hafa því í sjálfu sér lítið að
segja í sveiflum á heildarmannaflanum.
Aukning varð á mannafla við veitur eftir
1974 og ræðst það aðallega af lagningu
hitaveitu í hús á öllum þéttbýlissvæðum
kjördæmisins á seinni hluta 8. áratugar-
ins.
Þjónustugreinarnar; samgöngur,
verslun og viðskipti og önnur þjónusta,
eiga 59% í aukningu mannaflans í
Norðurlandskjördæmi eystra á síðustu
20 árum en í þeim hefur mannafli vaxið
um 2803 ársverk og munar þar mest um
þjónustu almennt. í samgöngum hefur
mannafli vaxið um 245 ársverk, úr 367 í
612 ársverk, á tímabilinu 1963-1981.
Þetta ræðst að sjálfsögðu af því að
kröfur hafa farið vaxandi í garð þeirra
samsksipta manna á millum sem sam-
göngugeirinn annar. Flugið hefur tekið
stórstígum framförum og er orðið all-
verulegt að umfangi, sérstaklega á Akur-
eyri, og einnig eru flutningaferðir bíla og
skipa tíðari nú en áður. Nú orðið þykir
ekki tiltökumál að fljúga milli landshluta
Hafþór Helgason:
Mannfjöldi og mannafli
á Norðurlandi
eða fá vörusendingar samdægurs af hinu
horni landsins og fyrirtækjum fyrir norð-
an kann að koma vel að geta nýtt sér
tíðar ferðir bíla og skipa til að þurfa ekki
að liggja með lager vara sem upphaflega
einstökum árum tímabilsins. í dag, árið
1983, búa skv. spánni hér framar 26.403
á Norðurlandi eystra sem gefur ársverka-
fjöldann:
Y= -9.867 + 0,824(26.403) =11.889
eystra
ársverka er þarna sýnd 231,9 á ári sem
er 13,3 ársverkum lægra en regressionin
fyrir mannaflann í heild hér framar og
stafar það af smá frávikunt í grunnupp-
lýsingum og útreikningum.
framleiðslu þar eða innflutnings. íbúar kjördæmisins verði 31. 472 árið Árleg Hlutfall
Svokölluð önnur þjónusta lýtur í 2000. Þessi mannfjöldi segir, með hlið- fjölgun afibúa-
aðalatriðum að hvers kyns umsvifum sjón af jöfnunni, að um aldamótin verði ársverka fjölgun-%
hins opinbera og jafnframt öllu því sem 16.066 ársverk unnin í kjördæminu þ.e.:
kalla má þjónustu við almenning en Y= -9.867 + 0,824(31.472) = 16.066 Landbúnaður -33.8 -11.6
fellur ekki undir banka- og verslunarrek- Þetta gefur vísbendingu um fjölgun Fiskveiðar 8.9 2.9
stur, tryggingar eða hótelrekstur. Vöx- um 4.177 ársverk. Hér er miðað við
tur hefur orðið gífurlegur á þessu sviði á ákveðna fólksfjölgun til aldamóta en í Fiskiðnaður 36.2 12.6
Norðurlandi eystra síðustu 20 árin sem þeirri ritgerð sem hér er stuðst við er Iðnaður 43.9 14.4
og í öðrunt kjördæmum. Almennum einnig gerð regression fyrir mannafla í Bygginga-
orðum má segja að þetta stafi af breyttu gegnum tíma þar sem fram kemur að frá starfsemi 31.9 10.6
viðhorfi í þjóðfélaginu í kjölfar vaxandi 1963 til 1981 hefur vöxturinn verið 245.2 Veitur 1.0 0.4
velmegunar. Vöxtur í frum- og úrvinnsl- ársverk að meðaltali á ári. Þannig er Samgöngur 11.8 4.0
ugreinum skilar sér í aukinni kaupgetu niðurstaðan örlítið mismunandi eftir því Verslunog
fólks sem snýr sér þá beint að þjónust- hvort þróun mannaflans er skoðuð með viðsk. 30.1 10.2
unni; nú orðið vilja allir láta þjónusta hliðsjón af þróun mannfjölda eða sjálf- Þjónusta 101.9 34.3
sig. Enda skilar vöxtur í frum- og stætt í gegnum tíma. Ef mannfjöldaspáin
úrvinnslsugreinunum sér í stöðugt vax- er lögð til grundvallar má reikna með
andi mannafla í þjónustunni og samsvar- aukningu um 4.177 ársverk til aldamóta Alls 231.9 77.8
ar hann nú 2826 ársverkum en var 832 en ef miðað er við þróunina í gegnum
ársverk 1963. Þetta þýðir að mannafli í
þjónustu er 1981 nærri tvisvar og hálfu
sinni það sem hann var 1963 og eru þessi
1994 ársverk sem vöxturinn nemur um
40% heildaraukningar mannaflans í
kjördæminu. Ekki er mér ljóst hvort
þetta getur haldið svona áfram á næstu
árum, að þjónustan taki þetta stóran
hluta heildarmannaflaaukningarinnar til
sín, en það er ekki eins ósennilegt og í
fljótu bragði virðist því að á höfuðborg-
arsvæðinu er hlutdeild þjónustunnar í
vexti mannaflans enn stærri og ef Norð-
lendingar vilja búa við sama þjónustustig
og höfuðbogarbúar verða þeir enn að
bæta um betur, ef það er þá rétta
orðalagið í þessu sambandi.
í heild má segja að þróun mannafla á
Norðurlandi eystra sé nokkuð í samræmi
við það sem gerst hefur annars staðar á
landinu á síðustu 20 árum. Frumvinnslu-
greinarnar vaxa ekki verulega, enda
auðlindirnar sem þær sækja aðföng sín í
fullnýttar, úrvinnslugreinarnar hafa bætt
nokkrum mannafla við sig en þó að mínu
viti alls ekki nógu stóru hlutfalli heildar-
aukningarinnar og þjónustugreinarnar
hafa bætt verulega við sig mannafla og
eiga hugsanlega eftir að gera enn betur
því svo virðist sem þeim störfum í
þjónustu sem vöxtur í frum- og úrvinnslu
leiðir af sér eigi enn eftir að fjölga
hlutfallslega og hámarkinu sé ekki
ennþá náð í því efni í kjördæminu.
Fjölgun um 4200
heilsársstörf til alda-
móta
Regression-lína fyrir heildarmannafla
á Norðurlandi eystra 1963-1981 er sýnd
í mynd II. Jafnan er þannig:
Y= -9.867 +0,824(X)
Hér stendur Y-ið fyrir mannaflann en
X-ið fyrir mannfjölda í kjördæminu á
tíma nemur fjölgunin 4.168 ársverkum.
Ef tryggja á áframhaldandi fólksfjölgun
á Norðurlandi eystra er Ijóst að skapa
þarf tæplega 4.200 heilsársmönnum
vinnu til aldamóta. Spurningin er síðan
hvaða atvinnugreinar eru í stakk búnar
til að mæta þessum vexti ársverka?
Atvinnuvegirnir
í ritgerðinni, sem hér er stuðst við, eru
gerðar regression-línur fyrir mannafla
einstakra atvinnuvega á Norðurlandi
eystra 1963-1981 og sýnir tafla I niður-
stöður þeirra. í töflunni kemur fram, í
fremri dálki, að að meðaltali hefur
mesta fjölgun ársverka orðið í þjónustu
eða 101,9 á ári en fækkun í landbúnaði
árlega um 33,8 ársverk. Heildafjölgun
Mannafli - Y
TAFLA I:
Mannaflavöxtur atvinnuvega á
Norðurlandi eystra 1963-1981
Seinni dálkur töflu I sýnir að fyrir
hverja 100 sem hefur fjölgað í kjördæm-
inu hefur mannaflinn vaxið um 77.8%
mest í þjónustunni eða um 34.3 en
minnst í landbúnaði þar sem bein fækk-
un hefur átt sér stað um 11.6 fyrir fjölgun
um hverja 100. Það má því gera ráð fyrir
því að fyrir hverja 10 sém fjölgar um á
Norðurlandi eystra vaxi mannaflinn um
8.
Það er auðvitað hvers og eins að meta
hvert framhaldið verður. Langmesti
vöxtur mannaflans hefur verið í þjónust-
unni, 102 ársverk á ári að meðaltali, en
SIÐARI GREIN
það er hverjum manni Ijóst að þjónusta
verður ekki starfrækt nema sköpuð hafi
verið verðmæti til að greiða fyrir hana.
Auðlindir í sjávarútvegi og landbúnaði
eru fullnýttar m.t.t. mannaflanotkunar,
framfarir í fiskvinnslu, fyrir tilstilli raf-
eindatækni, eru vinnuaflssparandi svo
ljóst er að iðnaðurinn er sú atvinnugrein
sem verður að mæta þeim vexti sem
verður á mannafla á Norðurlandi eystra
ef mannfjölgun helst í því horfi sem hún
hefur verið í síðan 1963. Hvernig svo
haldið verður á þeim málum er á annarra
færi en mínu og nægilegt umfjöllunarefni
í þúsundir blaðagreina skrifaðar undir
öðru horni en þessi. Hér hefur þróun
mannfjölda og mannafla frá 1963 til 1981
verið skýrð, vonandi á skilmerkilegan
hátt, og það ætti að geta stutt menn í
umræðu eða ákvarðanatöku um þessi
mál.
MYND II Regressionlína fyrír heildarmannafla á Norðurlandi eystra 1963-1981.