Tíminn - 03.01.1984, Blaðsíða 6

Tíminn - 03.01.1984, Blaðsíða 6
Leynifarþeg- inn ekki vin- sæll um borð! ■ Þegar skipstjóra nokkrum á frönskum togara var tilkynnt, að á skipinu hefði fundist leynifar- þegi, varð honuni um og ó. En hann ákvað að gera gott úr hlutunum, og til þess að þurfa ekki að snúa til hafnar sagði hann, að þeir skyldu reyna að láta leynifarþegann vinna fyrir sér í túrnuni. Kn þaö kom heldur betur flatt upp á skipstjórann, þegar honum var tilkynnt, - að leynifarþeginn segðist vera eiginkona hans!. Svo reyndist þó vera. I’arna var þá konan hans komin, en hún gaf upp þá ástæðu fyrir veru sinni á skipinu, að hún hefði viljaö ganga úr skugga um það, að bóndí hennar tæki ekki aðra konu með sér út á sjó. Þegar málið skýrðist varð skipstjóri bara glaður yfir því að vera búinn að fá konuna til sín, og þau hjónin lýstu því yfir, að þau ætluðu að gera veiöifcröina að nokkurs konar „seinni brúð- kaupsfcrð". - En innan 48 klukkustunda hafði skipshöfnin gert uppreisn. Skipsverjar sögðu að FrancoLsc skipstjórafrú væri svo frek, að hún skipti sér af öllu um borð. Hún væri hreint út sagt óþol- andi! Frúin var send hcim með fyrsta skipi, sem þeir mættu á heimleið til hafnar i Frakklandi. Skfnandi hugmynd ■ Vísindamenn í Japan hafa uppfundið aðferð við að „taka fingraför af dcmöntum“, cins og segir i fréttatilkynningu þeirru. Þá á hvcr einasti skínandi dem- antur að vera þekkjanlegur aftur, eftir að þessari aðferð hel'ur vcrið beitt. Aöferðin er fólgin í því, að teknar eru Ijósmyndir, sem sýna nákvæmlega Ijósbrot hvers deniants, en vísindamcnnirnir halda því frani, að engir tveir demantar - þótt þeir líti eins út - hafi nákvæmlega eins Ijósbrot. Með þessari aðferð er svo hægt að halda tölvuskýrslu um mikil- væga gimsteina, og sanna með henni að um réttan demant sé að ræöa, ef einhver slíkur skyldi glatast og linnast síöan al'tur. ■ Dick Cavett vekur trúnaðartraust ■ Það er alvcg sama hvað við höfum mikla sjálfsstjórn og leggjum hart að okkur við að virðast vera öðru vísi en við erum. Við getum ekki dulist, a.m.k. ekki þeim, sem kunna að lesa „varamálið“!. Bandarískur sérfræðingur, sem hefur vinnu af því að halda fyrirlestra við háskóla og einnig að kenna lög- mönnum að „lesa“ út úr fasi væntanlegra kviðdómenda hvern mann þeir hafa að geyma, hefur gert víðtæka úttekt á því hvaða persónueinkenni fylgja hverri varategund og þykist hafa komist að óyggjandi niðurstöðu. Hér eru nokkur dæmi: Miðlungsvarir: Ef varirnar eru hvorki þykkar né þunnar, benda þær til að viðkomandi sé í góðu jafnvægi og honum megi treysta. Dæmi: Larry Hagman, betur þekktur sem JR! Þykkar varir: Þær benda til þess að eigandinn sé gefinn fyrir alls kyns unaðssemdir, sem lífið hefur upp á að bjóða, stundum ■ Elvis Presley var fljótfær og framkvæmdi án þess að hugsa ■ Jane Fonda er feimin ■ Jerry Lewis er hjartahlýr VARIRNAR KOMA UPPIIM OKKUR! kannski eilítið um of, svo að liollt geti talist. John Travolta er nefndur sem dæmigerður. Þunnar varir: Þær gefa til kynna, að viðkomandi sé feim- inn og dulur, hugsi mikið, en sé lítið gefinn fyrir að trúa öðrum fyrir. Þetta á við um Jane Fonda. Misþykkar varir, skakkar, þegar munnurinn er lokaður: Þær tilheyra fólki, sem fram- kvæmir án þess að hugsa, fólki, sem lætur hverjum degi nægja sína þjáningu. Eins og Elvis Presley t.d. Varir, sem mynda beint, mjótt strik, þegar þær eru lokaðar: Sá, sem þær hefur, hefur tamið sér að leggja vel niður fyrir sér hvert atriði áður en hann hefst handa um nokkurn skapaðan hlut, er sem sagt vel skipulagður og afar nákvæmur í öllum sínum gerðum. Varir Reagans forseta eiga heima í þessum flokki. Víðar og slappar varir: Þær gefa til kynna að viðkomandi sé hjartahlýr, örlátur og hlýlegur í framkomu, rétt eins og gaman- leikarinn Jerry Lewis. „Varalaus“ munnur: Varirnar eru innfallnar og líta út cins og skora inn í andlitið, þegar munnurinn er lokaður. Eigandi þessa munnsvips er mikill skipu- leggjandi og vinnusamur með afbrigðum, auk þess sem hann er ákaflega traustvekjandi og virð- ist ekki falla fyrir neinum freist- ingum. Dick Cavett, sem við höfum séð bregða fyrir í sjón- varpinu, er í þessum flokki. Orlítið framstæðar varir: Sú, eða sá, sem er þannig úr garði gerð(ur), er sífellt í leit að viður- kenningu og athygli, rétt eins og fullvaxið barn. Joan Collins ber þessi éinkenni. Hvad ætla mennirnir að gera við gluggann minn? Irmegard Freislabem, sem á heima nálægt Frankfurt í V- Þýskalandi, lét mála þessa skreytingu á húsvegg sinn. Þarna voru málaðir synir hcnnar tveir, og látið var líta út fyrir að þeir væru að taka gluggakarminn af veggnum. Þegar málarinn hafði lokið við myndirnaraf piltunum, þótti móðurinni sem ekki væri nógu gott að það liti út fyrir að þeir stæðu í lausu lofti, svo hún bað málarann að mála lítið sval- ahandrið á vegginn, og nú voru ungu mennirnir ekki lengur í neinni hættu því að nú stóðu þeir á ímynduðum svölum. ■ Það verður mörgum starsýnt á þessa veggskreytingu af sonum hennar frú Freislaben við stofu- gluggann hennar. ■ John Travolta er lífs- nautnamaður ■ Larry Hagman má treysta ■ Reagan forseti er nákvæmur og athugull viðtal dagsins Athyglisverðar breytingar á hjartanu við megrun: „HUÐSTŒDAR OG VERÐA Á HJARTANU VIÐ MIKIÐ STREÍTUÁLAG“ segir dr. Sigmundur Guðbjarnason, verðlaunahafi úr heiðursverðlauna- sjóði Ásu Wright ■ Dr. Sigmundur Guðbjarna- son, prófessor í lífcfnafærði við Háskóla íslands hlaut sl. föstu- dag verðlaun úr heiðursverð- launasjóði Ásu Wright fyrir brautryðjendastörf í rannsókn- um á síarfsemi hjartavóðvans og orsökum kransæðastífi, P-aut hann 60 þúsund krónur í verð- laun auk verðlaunapenings og heiöursskjals. „Það sem ég hef verið að glíma við undanfarin 20 ár er lífefnafræðilegur grundvöllur hjartasjúkdóma," sagði dr. Sig- mundur Guðbjarnason er Tím- inn spurði hann í hverju rann- sóknir hans væru helst fólgnar. „Við höfum glímt við og rann- sakað hjartaflutninga, ofstækk- un hjartans og ýmsar þær breyt- ingar sém eru samfara hjarta- stíflu og hjartaskemmdum, við kransæðastíflu," sagði dr. Sig- mundur. Dr. Sigmundur sagði jafnframt: „Það kemur margt við sögu, bæði hvað skeður þegar kransæðastíflan á sér stað, hvernig fer viðgerðin fram og hvernig er hægt að hafa áhrif á þessa viðgerð. Er t.d. hægt að örfa hana og eru ýmsar aðstæður sem geta tafið hana eða skaðað. Það hefur ýmislegt komið í Ijós í þessu sambandi sem gæti haft hagnýtt gildi.“ Dr. Sigmundur sagði að rann- sóknir hans og samstarfsmanna hans hefðu á síðari árum beinst mikið að því hvað gerðist í hjartavöðvanum sjálfum áður en til hjartaáfalls eða kransæða- stíflu kæmi, svo sem hvort ein- hverjar breytingar yrðu í hjarta- vöðva sem gerði það að verkum að sumir væru viðkvæmari fyrir áföllum en aðrir, jafnvel þótt kransæðaþrengslin væru svipuð. Hann sagði að áhrif ýmissa þátta á hjartavöðvann sjálfan hefðu verið hönnuð af þcim, svo sem eins og áhrif fæðufitu, aldurs og streitu. Þessar rannsóknir sagði hann að væru mikið gerðar á tilraunadýrum, en jafnframt hefðu hann og samstarfsmenn ■ Sigmundur Guðbjarnason. i

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.