Tíminn - 04.01.1984, Síða 4
MIÐVIKUDAGUR 4. JANÚAR 1984
4______________________________________itirom
á vettvangi dagsins
Ryðvarnarskálinn lengir
ryðvarnarábyrgðina upp í 6 ár:
Hafa ryðvarið frá upp-
hafi um 26 þúsund bíla
■ Ryðvarnarskálinn hefur ákveðið, að
fenginni reynslu, að lengjá ryðvarnar-
ábyrgð sína upp í 6 ár fyrir allar tegundir
nýrra bifreiða nú frá áramótum.
Ryðvörn bifreiða hjá Ryðvarnarskál-
anum hófst vorið 1977 og í september
það ár buðu þeir fram þá nýjung að veita
5 ára ryðvarnarábyrgð með þeim skilyrð-
um að koma með bílinn í þvott' og
endurryðvörn á 18 mánaða fresti. Sú
reynsla sem fengist hefur á þessum tíma
er góð og alls hafa verið ryðvarð.ir hjá
skálanum á þessum tíma tæplega 26
þúsund bifreiðar þar af um 19 þúsund
nýjar bifreiðar.
1 ryðvarnarábyrgð eru nú um 3300
bifreiðar, hjá Ryðvarnarskálanum.
-FRI
Midnæturs
sýningar á
Skvaldri
■ Ákveðið hefur verið að hafa
nokkrar miðnætursýningar á gaman-
leiknum Skvaldri í bjóðleikhúsinu,
auk hinna hefðbundnu sýninga, Er
þetta gert, að sögn forsvarsmanna
Pjöðleikhússins, til að koma til móts
við hina fjölmörgu nátthrafna sem
reynslan sýnir að vilja gjarnan fara í
leikhúsið og skemmta sér, þegar þeir
eiga að vera farnir að sofa fyrir löngu.
Skvaldur hcíur verið sýnt í Þjóð-
leikhúsinu í haust og segir í frétt frá
Þjóðleikhúsinu að lítið lát sé á aðsókn
enda gagnrýnendur og áhorfendur á
cinu máli um að hér sé farið að
kostum. Skvaldur, eða Noiscs Off, er
eftir breska rithöfundinn Michael Fra-
yn og var verkið valið besti gaman-
leikur á Bretlandi árið 1982.
Leikstjóri Skvaldurs er Jill Brook
Árnason, en leikéndur eru: Gunnar
Eyjólfsson, Þóra Friðriksdóttir, Sig-
ríður Þorvaldsdóttir, Bessi Bjarnason,
Rúrik Haraldsson, SigurðurSigurjóns-
son, Tinna Guðlaugsdóttir Lilja Guð-
rún Þorvaldsdóttír og Þórhallur Sig-
urðsson.
Fyrsta miðnætursýningin í l’jóð-
leikhúsinu á Skvaldri verður laugar-
dagskvöldið 7. janúar kl. 23.30.
- GSH.
Ellefu
fengu
riddara-
kross
■ Forseti Íslands sæmdi eftirtalda ell-
efu íslendinga riddarakrossi hinnar ís-
lensku fákaorðu nú um ármótin:
Finnboga G. Lárusson, bónda á Laug-
arbrekku í Breiðuvíkurhreppi, Frú, Fri-
ede Bricm, Reykjavík,Guðmund Inga
Kristjánsson, bónda á Kirkjubóli í Ön-
undarfirði, Jón Gunnarsson, fv. skrif-
stofustjóra í Reykjavík, Konráð Gísla-
son, sjómann í Bíludal, Frú Magneu
Þorkelsdóttur, biskupsfrú í Reykjavík,
Margeir Jónsson, útgerðarmann í Kefla-
vík, Frú Rósu Ingólfsdóttur, fv. utanrík-
isráðherrafrú í Reykjavík, sr. Sigurð
Guðmundsson, vígslubiskup á Gren-
jaðarstað í S.-Þing., Sigurð Óla Ólafs-
son, fv. alþingismann á Selfossi, og
Sigurkarl Ó. Stefánsson, fv. kennara í
Reykjavík.
Ennfremur hlutu stighækkun - stór-
riddarakross: Albert Guðmundsson,
ráðherra og Sigurður Helgason, forstjóri
Flugleiða.
■ Formaður dómnefndar, Guðni Pálsson, afhendir þeim Finni Björgvinssyni og Hilmari Þór Björnssyni 1. verðlaunin.
Tímamynd Árni Sæberg
Verðlaunum úthlutað í hugmyndasamkeppni
Húsnæðisstofnunnar:
„MIKIL VONBRIGÐIHVE
ÞÁTTTAKA VAR DRÆM“
- sagði Guðni Pálsson formaður dómnefndar. 1. verðlaun hlutu arkrtektarnir
Finnur Björgvinsson og Hilmar Pór Björnsson
■ Verðlaunum hefur verið úthlutað í
hugmyndasamkeppni Húsnæðisstofn-
unar ríkisins sem efnt var til á síðasta
ári í því markmiði að leita eftir nýjum
hugmyndum um vinnu og snyrtirými í
íbúðum. Fór úthlutunin fram f húsa-
kynnum Byggingarþjónustunnar að
Hallveigastíg en þar verður sýning á
tillögunum fram til 13. jan. n ,k.
Formaður dómnefndar gerði grein
fyrir samkeppninni og sagði hann að
alls hefðu borist 7 tillögur en hug-
myndasamkeppnin var opin öllum ís-
lendingum.
„Það urðu mikil vonbrigði fyrir dóm-
nefndina hve þátttaka var dræm, sér-
staklega vegna þess að samkeppnin
var opin öllum landsmönnum og hve
lítið var um feskar hugmyndir í þeim
tillögum sem bárust. Einnig olli það
vonbrigðum að engin tilllaga tók tillit
til fatlaðra", sagði Guðni Pálsson
arkitekt sem var formaður dómnefnd-
ar.
Guðni greindi síðan frá verðlauna-
höfum en 1. verðlaun hlutu arkitekt-
arnir Finnur Björgvinsson og Hilmar
Þór Björnssor. en þau námu 60 þúsund
krónum.
í umsögn dómnefndar um tillögu
þeirra Finns og Hilmars segir m.art-
„Öll framsetning tillögunnar er til
■ Þeir Hilmar og Finnur við tillögu sína sem hlaut 1. verðlaun.
fyrirmyndar, skýr og fagmannlega
unnin.
Innréttinguna má stækka og minnka
að vild. Innréttinguna má staðsetja
nánast hvar sem er þar sem hún krefst
engra veggja.
Tillaga höfundar að snyrtirými bygg-
ist á u-formuðum kjarna sem er mjög
skemmtileg hugmynd og gefur fleirum
kost á að nýta aðstöðuna samtímis án
árekstra.
Kjarni í þvottaaðstöðu er goður og
vinnuborð gott. Hinsvegar er staðsetn-
ing kjarna ósannfærandi þar sem
þvottarými nýtist mjög illa“...
Önnur verðlaun, 35 þúsund kr.,
hlaut Kjartan Á. Kjartansson hús-
gagnaarkitekt vegna skemmtilegra
hugmynda um uppdeilingu á eldhúsi
og snyrtirými.
Þriðju verðlaun, 20 þúsund kr.,
hlutu arkitektarnir Helga Gunnars-
dóttfr, Jón Þórisson og Ragnheiður
Ragnarsdóttir vegna vel hannaðs
rýmis.
-FRI
■ Philippe Moreau verslunarfulltrúi franska sendiráðsins afhendir Kára Elíassyni farseðilinn til Frakklands. Með
á myndinni er Guðjón Sigurðsson, deildarstjóri Búsáhaldadeild Sambandsins.
Skídadeild KR fékk boð frá
Búsáhaldadeild Sambandsins:
Skíðamanni boðið í
náms- og þjálfunar-
ferð til Frakklands
■ Fyrir skömmu barst skíðadeild KR
boð frá Búsáhaldadeild Sambandsins.
um að tilnefna þátttakanda í 4 vikna náms-
og þjálfunarferð til Frakklands í boði
franska viðskiptaráðuneytisins og fyrir-
tækisins Trappeur sem framleiðir skíða-
skó með sama nafn^en ástæður boðsins
eru stóraukin sala á Trappeur skíðaskóm
til íslands.
Ungurogefnilegurskíðaþjálfari, Kári
Elíasson var valinn til fararinnar og
heldur hann utan nú í ársbyrjun en
námskeiðið hefst þann 9. jan. í Chamon-
ix og þaðan verður svo haldið vítt og
breitt um frönsku Alpana.
Stjórn skíðadeildar KR vill þakka
aðstandendum þessa námskeiðs og sér-
staklega Búsáhaldadeild fyrir boðið og
bindur skíðadeildin miklar vonir við
starf Kára að þjálfunar og kennslumál-
um í framtíðinni.
-FRI