Tíminn - 04.01.1984, Page 5
Lög um fatlaða tóku gildi um áramót:
TÖLF NYJAR STOFNANIR HEFJA REK$T-
UR SAMKVÆMT FJARLÖGUM KSSA ARS
— Framkvæmdum ekki haldið áfram við vidbyggingu Oskjuhlíðarskóla
og allt óráðið um framkvæmdir við Greiningarstöd ríkisins
■ Lög um fatlaða gengu í gildi þann 1. þessa mánaðar, en þessi lög gerðu m.a. ráð
fyrir eflingu Framkvæmdasjóðs fatlaðra, stórframkvæmdum við Greiningarstöð
ríkisins, og áframhald ýmissa annarra nýframkvæmda. Nú er ekki gert ráð fyrir
neinum framkvæmdum við Greiningarstöð ríkisins samkvæmt fjárlögum þessa árs,
og m.a. vegna þess snéri Tíminn sér til Alexanders Stefánssonar félagsmálaráðherra
og spurði hann hvort það væri ekki ljóst að lögin um fatlaða væru þverbrotin um land
allt, því á skorti fjármagn til þess að hrinda þeim í framkvæmd.
„Sem betur fer þá passar það ekki, en
hitt er annað mál að lögin náttúrlega
gerðu ráð fyrir mikilli eflingu Fram-
kvæmdasjóðs fatlaðra og í sambandi við
þau ákvæði laganna, þá er gert ráð fyrir
stórframkvæmd við Greiningarstöð
ríkisins, sem ekki er komin til fram-
kvæmda og kemur ekki til framkvæmda
á þessu ári, því samkvæmt ákvæðum
laganna þá er sérstök nefnd að endur-
skoða og gera tillögur um Greiningar-
stöð ríkisins. Þær tillögur munu svo,
þegar þær eru tilbúnar, verða lagðar
fyrir félagsmálanefnd og fjárveitinga-
nefnd á Alþingi til ákvörðunar um
hvernig og hvenær eigi að leggja í það
mannvirki að reisa Greiningarstöð ríkis-
ins. Með tilliti til þessa, og þess efnahags-
ástands sem var, þá var tekin sú ákvörð-
un við gerð fjárlaga að reikna ekki með.
þeirri framkvæmd í ár, en ég lagði hins
vegar áherslu á að þær nýframkvæmdir
sem þegar voru komnar af stað og voru
greinilega komnar á það framkvæmda-
stig að þær gætu hafið rekstur á árinu
1984 að þær kæmust inn á fjárlög. Þess
vegna voru 12 nýjar stofnanir settar inn
á fjárlög með rekstrarfé fyrir árið í ár og
að mínu mati var það mjög þýðingar-
mikill áfangi að fá það fram að þessar
nýju stofnanir geta hafið rekstur nú á
þessu ári, um leið og lögin taka gildi."
Aðspurður um hvaða stofnanir þetta
væru, sagði félagsmálaráðherra: „Þær
eru víðsvegar um landið, bæði heimili
fyrir fatlaða, verndaðir vinnustaðir og
fleira. Þetta er nýtt sambýli fyrir fatlaða
á Akranesi, þjónustumiðstöð á Isafirði,
sambýli á Siglufirði, sumardvöl og
skammtímavistun á Egilsá í Skagafirði,
verndaður vinnustaður í Vestmanna-
eyjum, sambýli í Víðihlíð í Reykjavík
skammtímavistun í Víðihlíð í Reykja-
vík, verndaður vinnustaður á Akureyri
verndaður vinnustaður í Kópavogi,
skammtímadagvistun í Keflavík og sam-
býli í Kópavogi. Þetta eru allt nýjar
stofnanir og auðvitað er þetta mikið
átak“.
Félagsmálaráðherra sagði að nýjar
framkvæmdir í ár yrðu ekki aðrar, eða
a.m.k. mjög takmarkaðar. Þaðmyndi svo
aftur bitna á stærstu framkvæmdinni
sem hefði verið hafin sl. haust, en það er
viðbygging við Öskuhlíðarskólann.
Sagðist ráðherra gera ráð fyrir því að
þeirri framkvæmd yrði að fresta í ár, til
þess að aðrar smærri framkvæmdir sem
strax kæmust í gagnið, fengju forgang".
Alexander sagðist vera að ganga frá
skipun stjórnarnefndar samkvæmt lög-
unum, sem fer með yfirstjórn málefna
fatlaðra. Þessi nefnd á meðal annars að
gera ráðstafanir varðandi þjónustu allra
opinberra aðila, að þær væru samræntdar
og þess háttar. Samtök fatlaðra, Land-
samband þroskahjálp og Öryrkjabanda-
lag Islands tilnefna fulltrúa í nefndina og
einnig menntamálaráðuneytið og heil-
brigðisráðuneytið. Formanninn tilnefnir
félagsmálaráðherra og verður hann Sig-
urfinnur Sigurðsson á Selfossi og vara-
formaður verður Theodór A. Jónsson
hjá Sjálfsbjörg.
- AB.
framhaldi mi
ræóur
heppni þin
Fyrir hundrað krónur á mánuði gerist þú þátttakandi í happdrætti
þar sem tæpar 56 milljónir króna verða greiddar í vinninga
— til yfir nítjánþúsund vinningshafa.
Verður þú einn hinna heppnu?
Vertu með frá byijtm - við drögum þann 10. janúar.
Happdrætti StBS ^