Tíminn - 25.01.1984, Blaðsíða 1
íslendSngaþættir fylgja blaðinu í dag
FJÖLBREYTTARA
OG BEIRA BLAÐ!
Miðvikudagur 25. janúar 1984
21. tölubiað - 68. árgangur.
Sidumula 15—Postholf 370Reykjavik — Rrtstjorn8630C - 4>ugiysingar 18300- Afgreidsla og askrift 86300 - Kvoidsimar 86387 og 86306
MISSIR COUIWATER UMBOÐS-
SÖLU A FÆREYSKUM FISN?
■ „Við erum með samning við
Coldwater, sem selja allan okkar
þorsk í Bandaríkjunum,“ sagði
Olaf Nilsen sölustjóri Færeyska
fískasalan, er Tíminn spurði
hann í gxr hvort það væri rétt að
Færeyska fískasalan hygðist
hætta að láta Coldwater annast
sölu á þorskafurðum sínum í
Bandaríkjunum og láta við-
skiptin í hendur Þorsteins Gísla-
sonar, fráfarandi forstjóra Cold-
water, en grunsemdir þess efnis
hafa vaknað í hcrbúðum S.H.
manna, að Þorsteinn sxkist eftir
því að fá þessi viðskipti til sín
persónulega og styrktust þær
eftir að Þorsteinn var í Færeyjum
nú fyrir viku.
Olaf Nilsen sagði þessa skýr-
ingu vera sér ókunna ogerhann
var spurður hvort Færeyska fiska-
salan myndi í framtíðinni láta
Coldwater annast þessi viðskipti
fyrir sig, scm hingað til sagði
hann: „Tíminn er besti dómar-
inn. Það er nú í gildi samningur
á milli okkar og Coldwater, og
það þarf að segja þeim samningi
upp með fjögurra eða sex mán-
aða fyrirvara, og slíkt hefur ekki
verið gert.
Coldwater seldi fyrir Færeyska
fiskasalan á liðnu ári þorskafurð-
ir fyrir hátt í 45 milljónir dollara,
svo hér er um verulega hagsmuni
að ræða.
Tíminn snéri sér til Þorsteins
Gíslasonar, fráfarandi forstjóra
Coldwater í gær, og spurði hann
hvort hann sæktist eftir því að
ná til sín umboðssölu þeirri sem
Coldwater hefur annast fyrir
Færeyska fiskasalan: „Coldwat-
er hefur í fjölda mörg ár annast
umboðssölu fyrir Föreyja fiska-
sala, og ég veit ekki til að þar
verði nokkur breyting á.“
-AB
Ellert fær leyfi
frá þingstövfum
■ Þorvaldur Garðar Kristj-
ánsson forseti samcinaðs þings
las upp í byrjun þingfundar í
gær bréf frá Ellert B. Sehram
þar sem hann baðst leyfis frá
þingstörfum til loka þessa
þings. Ástæðan sem tilgreind
var er að hann er senn á förum
til útlanda til nokkurrar dvalar
og af persónulegum ástæðum.
Fíann verður sem fyrr án launa. «•
Geir Hallgrímsson á sctu á
Alþingi sem utanrtkisráðherra
og í fjarveru Ellerts sem þing-
maður.
-OÓ
Fastagjöld véla-
miðstöðvar Reykjavíkur
fyrir útleigda bíla:
LÆKKfl UM18%
—daggjöld hækka um 4%
Heildarlækkun uppá 8%
■ „Ég vil gjarna fara að sjá
hliðstæðar lækkanir verða hjá
hinu frjálsa verðmyndunar-
kerfi markaðarins, ég fullyrði
að flutningskostnaður er ekki
reiknaður rétt inn í vöruverðið
í dag,“ sagði Ögmundur Ein-
arsson forstjóri vélamiðstöðv-
ar Reykjavíkurborgar í samtali
við blaðið í gær, en á borgar-
ráðsfundi i gær gcrði hann
grein fyrir lækkun taxta útleigu
á bflum hjá vélamiðstöðinni.
Fastagjöld lækka um 18%,
en daggjöld hækka á móti um
4%. I heild þýðir þetta lækkun
tilkostnaðar hjá viðskiptavin-
um vélamiðstöðvarinnar um
8%. Vélamiðstöðin er sam-
eignarstofnun borgarsjóðs og
veitustofnana borgarinnar og
sér um leigu á bílum og vinnu-
vélum til annarra borgarstofn-
ana. „Lækkun á þessari þjón-
ustu hlýtur því að koma fram í
minnkandi kostnaði annarra
þjónustustofnana borgarinn-
ar,“ sagði ögmundur.
Hann minnti á að samkvæmt
upplýsingum skipafélaganna
nýverið hefði flutningskostn-
aður tii landsins lækkað, og
skipaféiögin hefðu í samræmi
við það lækkað gjaldskrár hvað
varðar stykkjavöru. Þessar
lækkanir hefðu á hinn bóginn
ekki komið fram í endanlegu
vöruverði fremur en lækkanir
á flutningskostnaði innan-
lands. Spurningin væri um það
hvort kaupcndur vöru og þjón-
ustu yrðu ekki að krefjast þess
að þessar lækkanir yrðu reikn-
aðar inn í endanleg verð.
-JGK
Svíi fékk
bókmennta-
verðlaunin
■ Sænski rithöfundurinn
Göran Tunström hlaut bók-
menntavcrðlaun Norðurlanda-
ráðs árið 1984 fyrir skáldsögu
sína Juloratorien. Tilkynnt var
um vcrðlaunin í Helsinki í gær
en þar kom dúmnefnd um
verðlaunin saman.
Göran Tunström er þekktur
rithöfundur í Svíþjóð. Hann er
46 ára að aldri og hcfur sent
frá sér 18 bækur.
Af Islands hálfu voru til-
nefndar til bókmenntaverð-
launanna Ijóðabókin Spjótalög
á spegil eftir Þorstein frá
Hamri, og smásagnasafnið
Gefið hvort ööru eftir Svövu
Jakobsdóttur.
-GSH
■ Og hver segir svo að snjórinn hafí ekki sínar björtu hliðar? Þessir krakkar gera sér grein fyrir óþrjótandi möguleikum sem snjórinn
býður upp á við mannvirkjagerð. Tímamynd Róbert
Óvenjulegt mál f rannsókn á Akureyri:
RÁKUST fl HLERUNARTÆKI ÞEG-
AR KJALLARINN VAR MÁIADUR
■ Lögreglan á Akureyri hefur
fengið óvenjulegt mál til rann-
sóknar en um síðustu helgi komst
upp að símahleranir hafa átt sér
stað í fjölbýlishúsi við Hjallaveg
á Akureyri
Samkvæmt heimildum Tímans
komst málið upp þegar íbúar
hússins voru að mála sameign í
kjallara hússins. Þar er símainn-
tak í sérstökum skáp og þurfti
fólkið að opna skápinn. Þá kom
í Ijós að segulbandstæki hafði
verið komið fyrir í skápnum og
vírar úr því tengdir við símalínu
í eina íbúð hússins, þannig að
segulbandið tók upp samtöl í
þeim síma.
Rannsóknarlögreglan á Akur-
eyri staðfesti í samtali við Tím-
ann í gær að henni hefði borist
kæra vegna þessa en málið væri
enn í rannsókn og ekki væri hægt
að gefa upplýsingar um það.
-GSH