Tíminn - 25.01.1984, Blaðsíða 20
Opið virka daga
9-19
Laugardaga 10-16
H
HEÐD
Skemmuvegi 20 Kopavogi
Simar [91)7 75 51 & 7 80 30
Varahlutir
Mikiö úrval
Sendum um land allt
Ábyrgö a öllu
Kaupum nýlega
bíla til niðurrifs
SAMVINNU
TRYGGINGAR
&ANDVAKA
ARMULA3 SIMI 81411
ú ^^Mabriel
HHÖGGDEYFAR
y GJvarahluti r Sími 36510.
Ritstjorn 8b300-Augfysingar 18300- Afgreiðsla og askrift 86300 - Kvoldsimar 86387 og 86306
Miðvikudagur 25. janúar 1984
TAKA FLUGLEIÐIR VID VW-
HALDI ARNARFUIGSVÉLANNA?
■ „Það eru í gangi viöræður
milli Arnarflugs og Flugleiða um
samvinnu varðandi viðhald á
millilandaflugvél Arnarflugs, og
innanlandsvélum,“ sagði Agnar
Friðriksson framkvæmdasljóri
Arnarflugs, er Tíminn spurði
hann í gær hvort Arnarflug hefði
óskað eftir því við Flugleiðir að
Flugleiðir tækju að sér viðhald á
vélum Arnarflugs.
„Við erum náttúrlega að fara
ofan í okkar afgreiðslumál á
ffugvellinum,“ sagði Agnar, „og
reyna að skera niður kostnað, og
einn af möguleikunum sem við
horfurn þar á, er að Flugleiðir
taki á nýjan leik við afgreiðslu á
innanlandsflugi Arnarflugs, eins
og var fram til miðs árs 1982.
Þetta er einn möguleikinn sem
við sjáum, en engan veginn er
hægt að segja að þetta sé komið
það langt, að þetta verði svona.
Við báðum Flugleiðir um að
gera tilboð í afgreiðslukostnað,
og þeir eru búnir að því. Við
erum hins vegar ekki búnir að
taka afstöðu til þessa tilboðs,
þ.ví við viljum skoða þetta í
stærra samhengi."
Leifur Magnússon fram-
kvæmdastjóri rekstrarsviðs Flug-
leiða sagði í samtali við Tímann
í gær, er hann spurði hvort
Flugleiðir hefðu hug á að taka að
sér viðhald á vélum fyrir Arnar-
flug: „Forstjóri Arnarflugs fór
þess á leit í síðustu viku, að það
yrði efnt til viðræðna um við-
haldsmálin, en þær hafa ekki
hafist ennþá, þannig að meira er
ekki að segja um þetta mál að
sinni.“
- AB
I mm
dropar
„...þennan höfum
við ekki heyrt áður
■ Þrír mcnn unnu við vita á
mjög afskekktum stað. Þeir
kunnu á milli sín samtals 35
brandara og var það þeirra
helsta skemmtun að segja þá á
löngum vetrarkvöldum en þar
sem þeir voru orðnir leiðir á
því að vera alitaf að endurtaka
brandarana höfðu þeir gefíö
þeim númer frá 1 og upp í 35.
Aðkomumann bar að garði í
vitann og um kvöldið hófu
þremenningarnir að nefna
tölur og fylgdi rosalegur hlátur
í kjölfar hverrar. Aðkomu-
maðurinn ákvað að reyna þetta
líka og sagði: „Sjö“. Þre-
menningarnir hlógu mikið.
Aftur kom: „Tuttugu og niu“.
Mikill hlátur fylgdi í kjölfarið.
Aðkomumanninum fannst
þetta skrýtið og ákvað að prófa
áfram: „Þrjátíu og níu“. Rosa-
hlátur, en svo sagði einn þre-
mcnninganna: „Strákar þenn-
an höfum við ekki heyrt áður“.
Efnismikið
Alþýðublað
■ Dyggir áskrifendur Alþýðu-
blaðsins urðu heldur betur
undrandi i gær þegar í Ijós kom
að blaðið var tvöfalt að vexti
miðað við það sem venjulega
tíökast, þ.e. átta síður í stað
hins hefðbundna fjórblöðungs.
Ekki minnkaði undrunin er
blaðinu var flett og uppvíst var
að hinarfjóru innsíður blaðsins
voru gersamlega auðar, þannig
að í reynd var efni Alþýðu-
blaðsins hið sama og venjulega
nema fjórum auðum síðum
hafði verið bætt inn í. Óvíst er
hvort þarna er verið að taka
upp nýja ritstjórnarstefnu eða
hvort aðrar ástæður liggja að
baki, en kunnugir voru sam-
mála um að Alþýðublaðið
hefði sjaldan verið betra og
áttu þá aðallega við innviði
blaðsins.
Krummi...
...trúir ekki öðru en kjósendur
taki sér næst frí frá því að kjósa
Ellert á þing.
Breytt skipulag á aöal-
skrifstofu Kópavogsbæjar:
GERT RÁÐ FYRIR
AD STOÐHGILDUM
FÆKKI UM 15%
■ Bæjarráð Kópavogs hefur
samþykkt breytt skipulag á
aðalskrifstofu bæjarins, sani-
kvæmt tillögum Hagvangs.
Samkvæmt hinu nýja skipulagi
er gert ráð fyrir að fækka megi
stöðugildum á skrifstofunni um
kringum 15%, eða um 3.5 af
alls um 22 eins og þau eru nú.
Jafnframt munu ýmsir þurfa
að skipta um starfssvið.
„Þó búast megi við einhverri
fækkun starfsmanna í þeim
störfum sem þeir eru í ,nú,
miðað við yíirlýsingar sem
bæjarstjórn hefur gefið, btða
þessa fólks önnurstörf í bæjar-
kerfinu", sagði Guðjón
Magnússon, form. Starfs-
mannafélags Kópavogsbæjar.
Guðjón var spurður hvernig
fólki litist á það að eiga fram-
vegis að skila sömu eða jafnvcl
meiri störfum með færra starfs-
liði og jafnframt í ýmsum til-
vikum að skipta um starf.
Hann kvað suma kannski ckki
mjög ánægða með það að
hverfa úr sínum núverandi
störfum, sérstaklega meðan
það þekkir ekki svo nákvæm-
lega þau störf sem þeir taka á
sig í staðinn. Varðandi hið
nýja skipulag sem slíkt hafi
enginn lýst sig andvígann því á
þeim fundi sem yfirmenn
bæjarins hafi haldið með starfs-
liðinu.
Hvað sjálft mannahaldið
varðar haft bæjarstjórn enn
ekki formlega gert tillögur
Hagvangs að sínum. Á þessum
fundi hafi komið fram nokkrar
efasemdir um ákvcðna álags-
punkta, þ.e. að færra fólk muni
anna starfinu. En skipulags-
breytingin muni einnig hafa í
för með sér að meira cigi
framvegis að vinna með
tölvum.
Guðjón sagði að væntanlega
verði fljótlega skipuð samráðs-
nefnd m.a. mcð fulltrúum
bæjarráðs og starfsmannafé-
lagsins, til að fjalla um þcssi
mál. Kvaðst hann frekar eiga
von á því að náðst geti sæmi-
legur friður um þessar breyt-
ingar. - HEI
dómT
RANNSOKN-
INNIERIDKH)
■ Dómsrannsókn í Skafta-
málinu er nú lokið, og er búist
við'því að útskrift rannsóknar-
innar verði send ríkissaksókn-
ara nú innan tíðar og þá verður
málið skoðað hjá ríkissaksókn-
ara, með það fyrir augum að
hægt verði að ákveða hvort
ákært verður eða ckki.
Jú, mér sýnist veðrið aðeins vera farið að skána.
Tímamynd Árni Sæberg
Tillaga um leik-
tækjasal við
Völvufell:
FÉKK EKKI
STUÐNING
BORGAR-
RÁÐS
■ „Afstaða mín byggðist á því
að fyrir liggja mótmæli fjöl-
margra íbúa hverfisins, skóla-
stjóra, foreldrasamtaka og eig-
enda fyrirtækja gegn því að
þarna verði leyfður ieiktækjasal-
ur, ekki það að ég sé endilega
hlynnt því að banna leiktækjasali
í íbúðahverfum sagði Ingibjörg
Rafnar borgarfulltrúi í samtali
við blaðið í gær. Ingibjörg sat
hjá ásamt fuiltrúum minnihlut-
ans í borgarráði við atkvæða-
grciðslu um leyfi til rekstrar leik-
tækjasalar við Völvufell í gær.
Tveir fulltrúar Sjálfstæðisflokks-
ins greiddu atkvæði með og hlaut
málið því ekki nægan stuðning.
Heilbrigðisráð Reykjavíkur
hafði áður fjallað um þá umsókn
sem lá fyrir borgarráði í gær og
samþykkt að mæla gegn
rekstri af þessu tagi í íbúðar-
hverfi og var því lýst yfir að sú
afstaða væri stefnumarkandi af
hálfu ráðsins. Borgarstjórn hefur
síðasta orðið um þetta mál.
„Það felst ekki í þessu neinn
ágreiningur minn við sjálf-
stæðismenn, við greiddum at-
kvæði um málið sem einstakling-
ar og ég hygg að borgarstjóri hafi
verið sömu skoðunar og ég,“
sagði Ingibjörg Rafnar.
- JGK