Tíminn - 25.01.1984, Blaðsíða 4
Sögusagnir um gífurlegar bónustekjur kvenna í fiskvinnslu ýktar:
HAFA SAMBÆRIUGAR TEKJUR OG
KYNSYSTUR KIRRA HJA RÍKINU
■ Tölur um meðallaun kvenna í físk-
iðnaði vekja óneitanlega grun um
það að sögusagnir um gífurlegar bónus-
tekjur kvenna sem vinna í fiskiðnaði
„bónusdrottninganna“ svokölluðu séu
nokkuð ýktar, a.m.k. þegar á heildina er
litið.
Meðallaun kvenna á ársverk í fískiðnaði
árið 1982 reyndust 143 þús. kr. á sama
tíma og meðallaun karlanna sem unnu
með þeim í fiskinum voru 182 þús. kr.,
eða 27,3% hxrri að meðaltali. Þetta ár
skiluðu konur samtals um 4.300 ársverk-
um í fiskiðnaði, eða röskum tíunda hluta
af þeim rúmlega 42 þús. ársverkum sem
þær lögðu af mörkum í atvinnulífinu
þetta ár, samkvæmt upplýsingum í ritinu
„Vinnumarkaðurinn 1982“.
Raunar hækka konur ekki tekjur sínar
með því að komast í þægilegri stöður.
Tekjur kvenna fyrir þau 1.844 ársverk
sem þær unnu í bönkum landsins voru
nánast þær sömu og í fiskinum, eða 144
þús. að meðaltali. En meðaltekjur karl-
anna í þeim stofnunum voru 227 þús:,
þ.e. 57,6% hærri en kvennanna.
Langsamlega stærsti hópur starfandi
kvenna vinnur við opinbera þjónustu,
og enn eru meðallaunin nánast þau
sömu. Þar skila konur 11.700 ársverkum
þetta ár (um 28% af öllum starfandi
konum) af alls 17.670 ársverkum sem
unnin voru í opinberri þjónustu. Meðal-
laun á ársverk kvenna hjá því opinbera
voru 141 þús. meðan karlarnir höfðu 210
þús. eða um 49% hærri tekjur.
Annar stærsti hópur kvenna á vinnu-
markaðinum er í smásöluverslun, alls
4.7120 ársverk, sem eru um 63% allra'
ársverka í þeirri grein. Þar voru meðal-
laun kvenna á ársverk 122 þús. krónur
(tæplega 15% lægri en kvennanna í
fiskvinnslunni). Laun karla voru 180
þús. kr. að meðaltali eða um 48% hærri
en kveiinanna.
Meðallaun kvenna hjá heildverslun-
inni eru heldur hærri eða 134 þús. kr.,
þar sem þær skiluðu 1.540 ársverkum.
í þessum 5 greinum;opinberri þjón-
ustu, fiskiðnaði, bönkum, heildsölu- og
smásöluverslun voru rösklega 57% af
öllum ársverkum kvenna á vinnumark-
aðinum árið 1982. Aðrar stéttir þar sem
konur skiluðu yfir 1.000 ársverkum voru;
opinber stjórnsýsla, matvæla- og vefja-
iðnaður og veitinga- og hótelstörf, um
hálft annað þúsund ársverka í hverri
grein.
Lægstar tekjur af öllum konum (að
meðaltali) höfðu þær sem unnu í vefja-
iðnaði, 116 þús. krónur. Matvælaiðnað-
urinn skilaði þeim 123 þús. á ársverk og
veitingahúsin 128 þúsundum yfir árið.
1 einstaka starfsgreinum hafa ógiftar
konur á aidrinum 45 til 59 ára náð
tekjum sem eru eitthvað að marki um-
fram það sem að framan er getið. T.d.
22 konur með 186 þús. kr. tekjur á
ársverk að meðaltali í ál- og járn-
blendiiðnaði, 21 kona við byggingar og
viðgerðir mannvirkja 179 þús. að meðal-
tali og 10 konur við framkvæmdir opin-
berra aðila 204 þús. kr. að meðaltali.
Einnig náðu 10 rúmlega tvítugar valkyrj-
ur 184 þús. kr. tekjum á ársverk í
öskunni.
Þess má að lokum geta til samanburð-
ar að meðallaun á ársverk allra karla
þetta ár voru 199 þús. krónur.
- HEI
Viðskiptaráðherra skipar nefnd:
Endurskoðar
lög um félög
og stofnanir í
atvinnurekstri
■ Matthías Á. Mathiesen, viðskipta-
ráðherra hefur skipað nefnd til að endur-
skoða lög um félög og stofnanir í
atvinnurekstri eða með önnur fjárhags-
leg markmið. Formaður nefndarinnar er
Árni Vilhjálmsson prófessor, en auk
hans eru í nefndinni Baldur Guðlaugs-
son lögmaður, Gísli Ólafsson forstjóri,
Björn Líndal lögfræðingur og Guð-
mundur Skaftason lögmaður. Starfs-
maður nefndarinnar er Hreinn Loftsson
lögfræðingur.
Nefndinni er m.a. ætlað að endur-
skoða Iög um hlutafélög og koma með
tillögur um nauðsynlegar úrbætur, að
yfirfara og endurmeta fyrirliggjandi
frumvarp um samvinnufélög, að semja
lagafrumvarp um sameignarfélög, að
meta þörf fyrir löggjöf um önnur félags-
form í atvinnurekstri og að endurskoða
lög um firmu, verlsunarskrár og prókúru-
umboð.
Nefndinni er ætlað að ljúka störfum
fyrir 1. október n.k. -AB
Hugmyndasam-
keppm um hönn
un einingahúsa
■ Nýhús hf, eru þessa dagana að fara
af stað með hugmyndasamkeppni um
hönnun einingahúsa úr steinsteyptum
einingum. Tilgangur hugmyndasam-
keppninnar er að hanna hús sem byggð
eru úr einingum sem hægt er að fjölda-
framleiða og eiga á lager án þess að það
bitni á útlitsgæðum og fjölbreytni hús-
anna.
í frétt frá Nýhúsum segir að augljóst
sé að skili þessi samkeppni því af sér sem
af henni er vænst hafi það mikil áhrif á
rekstur þeirra 5 fyrirtækja sem standa að
Nýhúsum og raunar á allan byggingar-
iðnað á Islandi.vegna stóraukins hagræð-
is í rekstri einingarverksmiðjanna við að
geta jafnað framleiðslunni á allt árið og
einnig jafni það vinnuálag á starfsfólki
fyrirtækjanna. Einnig skili sú aukna
hagræðing, sem jöfnun framleiðslunnar
veldur, sér í lækkun verðs á þeirri vöru
sem verksmiðjurnar framleiða.
í fréttinni er einnig bent á möguleik-
ana í fjöldaframleiðslu á einingarhúsum
sem hingað til hafi skort í íslenskri
einingarhúsáframleiðslu og sú fjölda-
framleiðsla muni vega þungt til lækkunar
einingaverða.
Urslit í samkeppninni verða kynnt um
miðjan mars og stefna Nýhús hf. að því
að ráða einhvern verðlaunahafa til
áframhaldandi þróunar á tillögu sinni,
m.a. til að fjölga húsgerðunum sem í
boði verða og staðla e.t.v. fleiri hluta
húsanna.
Að Nýhúsum hf. standa: Húseininga-
verksmiðja Páls Friðrikssonar Kópa-
vogi, Loftorka s/f Borgarnesi, Strengja-
steypan hf, Akureyri, Húsiðn hf. Húsa-
vík og Brúnás hf. Egilsstöðum. - GSH
FLUGLEIÐIR
FJÖLGA FERÐ-
UM TIL EYJA
■ Flugleiðir hafa ákveðið að fjölga
ferðum milli Reykjavíkur og Vest-
mannaeyja úr 8 ferðum á viku í 12 frá
13. febrúar til 20. maí. Einnig verður
boðið upp á stutta skoðunarferð um
Vestmannaeyjar á laugardögum en þá
verður höfð viðdvöl í rúma klukkustund
í Eyjum fyrir þá farþega sem vilja
notfæra sér skoðunarferðina.
í frétt frá Flugleiðum kemur fram að
frá og með 13. febrúar verða farnar tvær
ferðir á flugleiðinni á virkum dögum og
er brottför frá Reykjavík kl. 8.30 á
morgnana og kl. 17.00 síðdegis. Á
laugardögum er farin ein ferð kl. 9.30 og
á sunnudögum ein ferð kl. 13.00
I fréttinni kemur einnig fram að
Flugleiðir bjóða helgarferðir til Eyja
með gistingu á sérlega hagstæðu verði og
sömuleiðis gefst Vestmannaeyingum
kostur á Reykjavíkurferð með Flug-
leiðum ásamt gistingu og bílaleigubíl á
sérstöku tilboðsverði fram til 14. mars.
- GSH
■ Æfingartæking í STJÁ eru margvísleg að gerð og mjög örugg að sögn forsvarsmanna Sjálfsbjargar.
Tímamyndir GE
SJÁLFSBJÖRG OPNAR
HEILSU RÆKT ARSTÖÐ
■ „Þetta er okkar viðleitni til að nýta
þá aðstöðu sem við höfum í þágu sem
flestra,“ sagði Eiríkur Ragnarsson skrif-
stofustjóri Sjálfsbjargar landssambands
fatlaðra, en í gær var opnuð heilsuræktin
STJÁ í húsakynnum endurhæfingar-
stöðvar Sjálfsbjargar í Hátúni 12.
Heilsuræktin verður opin fyrir almenn-
ing og gefst fólki þar kostur á að koma
og fá leiðbeiningar um alhliða þjálfun.
Leiðbeinendur eru allir löggiltir sjúkra-
þjálfarar er starfa hjá Sjálfsbjörg og
getur fólk fengið skoðun og leiðbeining-
ar um þjálfun samkvæmt niðurstöðu
hennar.
Heilsuræktin verður opin almenningi
á kvöldin og á laugardögum en á daginn
verða sérstakir æfingartímar fyrir fólk
með tilvísun frá læknum. Að sögn Jak-
obs Gunnarssonar sjúkraþjálfara eru
milli 5-600 manns á biðlista hjá Sjálfs-
björg um sjúkraþjálfun. Opnun Heilsu-
ræktarinnar kemur væntanlega til með
að grynnka á þessum biðlista því margir
á honum þurfa tiltölulega litla þjálfun og
tilsögn.
Æfingatækin í Heilsuræktinni eru
norsk og mjög örugg að sögn Eiríks
Ragnarssonar. Sjálfsbjörg hefur fengið
dyggilega aðstoð við að koma sér upp
þessum tækjum frá Lions og Kiwanis-
klúbbum, auk fyrirtækjaogeinstaklinga.
Opnunartímar STJÁ verða sem hér
segir: Mánudagar - fimmtud. 16.30-
22.00. föstudagar: 16.30-20.00; laugar-
dagar: 11.00-16.00. - GSH
■ Jakob Gunnarsson og Eiríkur Ragnarsson við æfingarbekk í Heilsuræktinni STJÁ