Tíminn - 25.01.1984, Blaðsíða 5
MIÐVIKUDAGUR 25. JANÚAR 1983
Fyrirspurn svarað á Alþingi í tilefni Skaftamálsins:
AGALLAR A ÞVI AD LOGREGLAN
RANNSAKI SJÁLF KÆRUR Á SIG
■ Meðal fyrirspurna til dómsmálaráð-
herra var hve oft hafi farið fram rann-
sókn vegna kæra um harðræði lögreglu-
manna á s.l. 10 árum.
Hann svaraði að því miður væru ekki
til neinar starfsreglur um skráningu kæra
og kvartana, og því eru þær almennt
ekki skráðar.
Nær undantekningarlaust fer fram
rannsókn á öllum klögumálum og
kærum. Margar kærur eru þess eðlis, að
þegar fyrstu upplýsinga hefur verið
aflað, telst ekki tilefni til frekari rann-
sóknar.
Þá var spurt hverjir annist slíkar
rannsóknir, og svarið er: Lögreglan
annast almennt slíkar rannsóknir sem og
aðrar rannsóknir. Samkvæmt 2 mgr. 28.
gr. laga nr. 74, 1974 um meðferð opin-
berra mála, á maður sem telur sig sæta
ólöglegum hraðræðum af hendi lögreglu-
manns, rétt á því að koma fyrir yfirmann
lögreglumannsins svo fljótt sem kostur
er, og bera fram kvörtun fyrir honum.
Það eru því yfirmenn íögreglu sem
annast rannsóknir, gjarnan æðstu yfir-
menn hjá hlutaðeigandi lögreglustjóra
eða jafnvel hann sjálfur.
Hafa slíkar rannsóknir einhvern tíma
þótt gefa tilefni til aðgerða af hálfu
ákæruvaldsins?
Já, nokkrum sinnum hefur ríkis-
saksóknari gefið út ákæru á hendur
lögreglumönnum fyrir ónauðsynlega
valdbeitingu, en oftar hefur hann þó fellt
niður þau mál, þar sem lögreglumenn
hafa verið kærðir fyrir harðræði.
Hafa fallið dómar í slíkum málum sem
hér um ræðir?
Já. Á sl. 10 árum hefur fallið 1 dómur
í Hæstarétti og 1 dómur í héraði, þar
sem lögreglan var talin hafa farið út fyrir
mörk nauðsynlegrar valdbeitingu. Áuk
þess má greina frá öðrum hæstaréttar-
dómi, þar sem ríkissjóður var dæmdur
til greiðslu skaðabóta, er maður hand-
leggsbrotnaði í höndum lögreglu.
Hvaða ályktanir dregur dómsmálaráð-
herra af þeim upplýsingum, sem fyrir
liggja um þessi mál?
í áðurgreindri 38. gr. laga um meðferð
opinbera mála segir:
„Lögreglumenn skulu gæta þess í
störfum sínum, að mönnum verði ekki'
gert tjón, óhagræði eða miski framar en
óhjákvæmilegt er, eftir því sem á
stendur. Ekki mega þeir beita sakaðan
mann neins konar harðræði fram yfir
það, sem nauðsynlegt er til þess að vinna
bug á mótþróa hans gegn lögmætum
aðgerðum, né á annan hátt beita hann
ólögmætri þvingun í orði eða verki, svo
sem með hótunum o.s.frv."
í samskiptum við almenning þarf lög-
reglan óhjákvæmilega að beita valdi
sínu, og þá iðulega líkamlegu valdi, til
að halda uppi lögum og reglu. Hún skal
þó ávallt hafa ofangreinda lagagrein að
leiðarljósi. Lögreglan er tíðum í beinu
sambandi við borgarana, t.d. í umferð-
inni, svo dæmi sé tekið, og ríður á miklu
að almenningur beri traust til lögregl-
unnar. Traustið er ekki einungis í því
fólgið, að lögreglan geti haft uppi á
afbrotamönnum, heldur einnig að lög-
■ Jón Helgason, dómsmálaráðherra
Lögreglan í Reykjavík:
ÁTTA SINN'
Á TVQMUR ÁRUM
reglan geti í daglegum samskiptum við
borgarana sett niðurágreiningogjafnað
deilur auk þess sem hún framfylgi boðum
og bönnum, sem almenningur á að
hlýða. Mjög þýðingarmikið er, telji
maður sig beittan órétti eða óhagræði,
að hann eigi þess kost að bera fram
kvörtun, og að hann megi treysta því að
hún verði rannsökuð fljótt og af óhlut-
drægni.
Það eru vissulega ágallar á því að
lögreglan rannsaki sjálf kærur. Búast
má við að getsakir komi fram um, að
lögreglumenn kunni að hagræða eða
leyna sönnunargögnum eða um sam-
tryggingu milli lögreglumanna geti ver-
ið að ræða.
Á hinn bóginn getur líka verið hætta
á að of hart sé gengið fram í rannsókn,
■ Stefán Benediktsson, alþingismaður
■ Jón Helgason dómsmálaráðherra
svaraði fyrirspurnum frá Stefáni Bene-
diktssyni um kvartanir vegna lögreglu á
þingi í gxr. Fyrirspurnirnar voru í
mörgum liðum. Hin fyrsta er um hve oft
það hafi gerst á sl. 10 árum, að lagðar
hafi verið fram kvartanir eða kærur
vegna meðferðar lögreglu á mönnum
sem hún hefur afskipti af. Hvort til væru
tölulegar upplýsingar um slík atvik og þá
um eðli þeirra og afdrif. '
Dómsmálaráðherra svaraði spurning-
unni á eftirfarandi hátt:
Ekki liggja fyrir tölulegar upplýsingar
um fjölda eða eðli þeirra tilvika, þegar
kvartað eða kært er út af framkomu
lögreglumanna gagnvart borgurum eða
við meðferð á mönnum sem hún hefur
afskipti af.
Mjög tímafrekt. yrði að safna saman
slíkum upplýsingum, og þær yrðu alls-
endis ófullnægjandi, þar sem skráning
kæra á sér ekki stað hjá lögreglu nema
varðandi alvarlegri kærur. Ráðuneytið
hefur fengið yfirlit um kærur á hendur
lögreglumönnum, sem borist hafa Rann-
sóknarlögreglu ríkisins frá stofnun
hennar, þ.e. frá miðju ári 1977.
Samkvæmt því yfirliti hafa á þessu
tímabili og til ársloka borist til Rann-
sóknarlögreglu ríkisins 17 kærur þessa
efnis. Hafa þær nær allar verið sendar til
ríkissaksóknara eftir rannsókn.
Þá fylgir ennfremur yfirlit um kærur á
hendur lögreglumönnum í Reykjavík
á sl. 2 árum. Hér eru einungis greind
tilvik, þegar kært er út af líkamlegu
harðræði. Hvorki eru talin með þau
tilvik þegar kært er útaf ókurteisi eða
móðgandi framkomu eða andlegu harð-
ræði. Ekki eru heldur talin tilvik, þegar
kært er út af ólögmætri handtöku. í
yfirliti Lögreglustjóraembættisins í
Reykjavík segir:
„Hjá embætti Lögreglustjórans í
Reykjavík liggja fyrir upplýsingar
um átta mál frá árunum 1982 og 1983 þar
sem kvartað er eða kært vegna harðræð-
is, sem menn telja sig hafa verið beitta
af lögreglunni við handtöku. Málin
varða átta manns, tvö þeirra sama manns-
ins og í einu máli koma tveir menn við
sögu.
í sjö þessara mála var um ölvunarat-
ferli eða óspektir að ræða, fjórum
slagsmál og í einu meinta ölvun við
akstur bifreiðar. í eitt sinn óskaði leigu-
bifreiðarstjóri aðstoðar en í fimm tilvik-
um var lögreglan kvödd að veitingahúsi.
Einn mannanna var handtekinn undir
stýri bifreiðar en hinir sjö voru í eða við
veitingahús.
Við handtöku voru fimm færðir í
handjárn og allir átta fluttir á lögreglu-
stöðina. í sex tilvikum voru menn settir
í fangageymslu og dvöldu þar frá einni
til tíu klukkustundir. Einn mannanna
var hafður í járnum í fangaklefa.
Sex mannanna lýstu meiðslum er þeir
töldu sig hafa orðið fyrir af völdum
lögreglunnar.
Telja verður Ijóst að þrír þeirra hafi
orðið fyrir meiðslum í vörslu lögreglunn-
ar en óljóst hvort svo hafi verið um hina
þrjá. Samkvæmt vottorðum lækna voru
meiðslin mar, rispur og eymsli, einkum
í útlimum, en einn mannanna er talinn
nefbrotinn og annar með brotið bátsbein
í hendi.
Tvö framangreindra mála voru send
Rannsóknarlögreglu ríkisins til með-
ferðar. Annað þeirra var fellt niður af
ríkissaksóknara. Kröfur um skaðabætur
komu fram. Einu málinu lauk með því
að lögreglustjóri áminnti tvo lögreglu-
þjóna og bað viðkomandi afsökunar.
Athugun tveggja mála er lokið og munu
þau send ríkissaksóknara til fyrirsagnar
innan skamms en þrjú mál eru til frekari
meðferðar hjá embættinu.
Athugun og rannsókn þessara mála er
í heild mjög umfangsmikil en fjöldi
manna hefur verið yfirheyrður. Er tæpast
unnt að fá glögga mynda af málavöxtum
áo þess að kynna sér rannsóknina í
Ireild. í því sambandi skal þá einnig bent
á, sem áður var að vikið, að rannsókn
nokkurra mála er enn ólokið.
Að lokum skal þess getið til fróðleiks
að á árinu 1982 gistu fangageymslur
lögreglunnar í Reykjavík 1919 einstakl-
ingar í 6357 skipti, 1700 karlar og 219
konur. Það sem af er þessu ári er
fjöldinn mjög svipaður. Að jafnaði gista
flestir fangageymslur lögreglunnar um
helgar en þá eru oft 25-30 manns í
fangageymslunni yfir sólarhringinn.“
Lögregl-
an á sér
fáa mál-
svara ut-
an eigin
rada
■ Stefán Benediktsson bcindi í gær
fyrirspurnum til dómsmálaráðherra
um kvartanir vegna lögreglu. Hann
sagði að þegar borgarar kvörtuðu
undan harðræði scm þeir yrðu fyrir
af hendi iögreglumanna, ætti lögregl-
an sér fáa máisvara utan eigin raða.
Hann lagði áherslu á að trúnaður yrði
að vera á milli lögreglu og aimcnn-
ings og það mætti ckki fara á ntilli
mála hvað væri lcyfilegt og hvað ckki
í samskiptum lögreglu og borgaranna
og ætti það bæði við um lögreglu og
almenning.
Stefán sagðist vera viss um að
umræðan um þetta mál væri ekki hin
síðasta á þessu þingi.
svo að því verði ekki haldið fram að
verið sé að hlífa félögunum.
Mjög oft á það sér stað, að afskipti
lögreglumanns og borgara gerist milli
þeirra tveggja, og þá stendur staðhæfing
gegn staðhæfingu án nokkurra vitna.
Samkvæmt réttarfarsreglum nýtur lög-
reglumaðurinn þess vafa, sem vera kann
í málinu. Á hinn bóginn verður að
tryggja lögreglumönnum vernd gegn
staðlausum kærum, af hálfu þeirra sem
þeir þurfa að hafa afskipti af.
I starfi sínu er lögreglumaðurinn oft í
aðstöðu, þar sem gerðar eru miklar
kröfur til staðfestu og þors. Þegar fram-
kvæmd starfs lögreglumanns er metin
eftir á, verður að veitanokkurt svigrúm.
Ekki eingöngu vegna lögreglumannsins
sjálfs, heldur má ætla, - eigi lögreglan
stöðugt yfir Itöfði sér harðvítuga gagn-
rýni vegna framkvæmdar starfa síns - að
hún freistist til að halda að sér höndum
og gæta óeðlilegrar varkárni, þar scm
nauðsynlegt er að beint frumkvæði komi
til. Ljóst er að slík þróun væri óæskileg.
Rétt þykir að geta hér lítillega meðferðar
í öðrum löndum, á þeim málefnum sem
hér eru til umræðu.
Rannsókn
verður að
vera hafin
yfir alla
gagnrýni
— segir dóms-
málaráðherra
■ Er dómsmálaráðherra hafði svarað
öllum liðum fyrirspurnar Stefáns Bene-
diktssonar sagði hann:
Ég vil loks taka fram að ég tel ekki
vafa á, að þeir sem rannsóknum stýra,
hafa fullan vilja til að leiða fram það sem
rétt er og að lögreglumönnum almennt
eru ljósar skyldur þeirra til að upplýsa
öll mál eftir bestu getu. Hinsvegar er
skráningu kæra af þessu tagi áfátt hjá
lögreglustjóraembættum landsins, og
munu verða settar reglur um það innan
skamms í ráðuneytinu, hvernig skrá
skuli kærnr borgaranna á hendur lög-
reglumönnum.
Annars vegar verða skráðar kærur á
hendur lögreglumönnum fyrir refsiverð-
ar athafnir, sem að lokinni rannsókn
verða sendar til ríkissaksóknara til fyrir-
sagnar.
Hinsvegar verða skráðar kærur um
ósæmilega framkomu lögreglumanna,
sem ekki er refsiverð, en getur sætt
starfslegum viðurlögum.
Þá er mikils vert að kærandi fái
upplýsingar um lyktir rannsóknar á kæru
hans hjá lögreglu.
Það er Ijóst að aldrei verður með öllu
hjá því komist, hér á landi frekar en
' annarsstaðar, að lögreglumenn hendi
mistök eða glappaskot sem aðra menn,
og rannsókn slíkra atvika verður að vera
hafin yfir gagnrýni.
Ráðuneytið mun áfram vinna að því,
í samráði við þau yfirvöld sem á hefur
verið bent, og að öðru leyti með hliðsjón
af þeim ábendingum, sem fram hafa
komið, að móta nánar þær starfsreglur,
sem um ræðir. Er ekki enn með öllu ljóst
hvort beinar lagabreytingar þurfa að
koma til.