Tíminn - 25.01.1984, Blaðsíða 13
,Vi fi W i ,'i? ■ 'if /
MIÐVIKUDAGUR 25. JANUAR 1983
heimilistíminn
■ Hann er fallegur í bakið þessi efnis-
mikli ballkjóll. Efnið er blátt taftsilki, og
er fínplísseruð pífa neðan á kjólnum og
í kringum hálsmálið, sem er flegið ofan
á bak.
. ■ 'ty' .
■ Hlýralaus „hafmeyjarkjóll“ með
rykktu stykki frá hnjám. Hægt væri að
breyta stuttum kvöldkjól með auka-
stykki neðan við kjólinn, svipað og sést
hér á þessum kjól.
NÚ ER TÍMI
ÁRSHÁTÍÐA OG
ÞORRABLOTA
— Síðir kvöldkjólar eru aftur í tísku
■ Nú er aðal-samkvæmistíminn. og hverja helgi víða um land. Sumar konur
auglýstar árshátíðar og þorrablót um eru duglegar að sauma, og geta saumað
Hafið þið
reyntað
búa til
„soufflé“?
Aðferðin við að
búa til gott „eggjafrauð
með skinku og aspas“
■ Það er glæsilcgt að bera á borð heitt
eggjafrauð (soufflé) beint úr ofninum, vel
bakað að ofan en létt og frauðkennt innan í.
í ensku blaði sáum við nýlega hvar húsmóðir
í Glasgow skrifaði til heimilissíðu blaðsins og
bað matreiðslusérfræðingana að gefa sér upp
góða og éinfalda aðferð við að búa til
„soufflé", sem bragðaðist vel og liti út eins
og á myndum í matreiðslubókum og í
auglýsingum. Hún fékk eftirfarandi leiðbein-
ingar, ásamt myndum:
Eggjafrauð (soufflé) er hægt að hafa sem
forrétt, og jafnvel fyrir aðalrétt (ef eitthvað
matarmikið er í því) og sætt eggjafrauð með
ávöxtum eða öðru góðgæti er fyrirtaks eftir-
réttur.
Svo kemur hér uppskrift að „skinku og
aspas-soufflé“, sem á að duga fyrir 5-6
manns.
3v“gg
30 g smjör
30 g hveiti
‘A I mjólk
1 Isk sinnep
salt og pipar,
120 g soðið, saxað svínakjöt (skinka)
1 dós (lítil) spergil-toppar (aspas) sundur-
skornir
riflnn ostur ofan á
Smyrjið soufflé-form (hátt með beinum
hliðum) vel, aðskiljið eggjahvítur frá rauðun-
um. Bræðið smjörið í góðum skaftpotti,
setjið hveitið út í hrærið og látið sjóða í eina
mínútu. Setjið mjólkina smám saman út í og
hrærið þar til jafningurinn verður mátulegur.
(sjá 1. mynd). Setjið sinnepið og kryddið út
í, látið sjóða svolítið og hrærið í á meðan,
þar til jafningurinn hefur þykknað. Takið nú
pottinn af plötunni og setjið út í bæði söxuðu
skinkuna og aspasinn (sjá mynd 2). Hrærið
nú eggjarauðurnar út í og látið bíða (en ekki
á heitri pönnunni). Þeytið nú eggjahvíturnar
þar til þær eru vel stífar og hrærið þær síðan
varlega út í jafninginn með skeið (sjá mynd
3). Síðan er jafningurinn settur með stórri
skeið í formið (skálina) og rifnum osti stráð
ofan á.
Bakað í 20(1 gráðu (C) heitum ofni í 30-35
mínútur. Reynið a standast freistinguna að
opna ofninn á meðan þetta er að bakast, því
þá getur frauðið fallið. Eftir hálftíma bakstur
ætti frauðið að vera vel bakað og hátt f
forminu. Formið ætti aldrei að setja meira en
y* fullt. Það þarf ekki „aukakraga" í kring
um brúnirnar til að halda frauðinu í forminu
þó það rísi aðeins upp fyrir brúnimar, því að
það ætti að vera það vel bakað að ofan. aö
yfirborðið sé aðeins fast fyrir, ef ýtt er með
fingri á það, en létt og frauðkennt undir. (sjá
mynd 4).
■ Mjólkin hrærð út í og síðan látið
sjóða þar til jafningurinn þykknar.
■ Eftir að eggjarauðurnar eru komn-
ar í jafninginn má hann ekki sjóða, en
hér er verið að hræra skinkuna og
aspasinn út í
■ Eggjahvítunum er síðast hrært var-
lega saman við
■ Eggjafrauðið komið úr ofninum.
■ Gull-„brókaði“
í kvöldklæðnað hef-
ur lengi þekkst og þótti það
finasta al'ölln linu. Þessi
ballkjóll er íburðarmikill með
víðu pilsi og pilum að ofan.
Mjóir hlýrar, og slaufa í mittið
sér síða kvöldkjóla eins og ekkert sé, en
aðrar verða að fara í kjólabúðirnar og
það getur kostað mikla peninga.
Hérna á Heimilistímasíðunni sýnum
við nú nokkrar hugmyndir að sniðum á
kvöldkjólum, fyrir þær, sem geta bjargað
sér sjálfar með saumaskapinn, og meira
að segja búið til sniðin sjálfar.
Annars kom það í hugann við að
skoða þessár tískumyndir. að best værí
að fara að leita í skápum og á háaloftum
að gömlum ballkjólunt, því aö svona
10-15 ára kvöldkjólar og þaðan af eldri
eru einmitt hámóðins núna.l
■ Glæsilegur hálfsíður svartur flauels-
kjóll, með hliðarstykkjum úr þunnu
svörtu el'ni, sem er perlusaumað og
myndar sums staðar perlurandir en síðan
er þunna efnið hálfgagnsætt. Þetta þótti
afar „djarfur“ kjóll á kjólasýningu
London.
Heimilisbókhald
Neytendasamtakanna
■ „Besta leiðin til þess að fylgjast
með daglegum innkaupum heimilisins
er að færa heimilisbókhald", segir í
kynningu á bæklingi, scm Neytenda-
samtökin gefa út, og cinnig fylgir
innkaupablokk fyrir heimilisbókhald-
ið.
Á miðopnu bókhaldsbæklingsins er
svo ársyfirlit, sem fært er þar. Þar eru
færðar tölur hvers mánaðar og sagt til
um hvcrnig best er að gera áætlun um
tekjur og útgjöld.
Þctta er mjög aðgengilcg bók, og á
áreiðanlega eftir að koma sér vel fyrir
þá, sem eru að reyna að hafa yfirsýn
yfir fjárhaginn og gera einhverjar áætl-
anir af viti fyrir framtíðina. Neytcnda-
samtökin benda á að við heimilisbók-
haldið er gott að hafa verðkannanir
Verðlagsstofnunar við höndina lil að
sjá hvort innkaup hafa verið eins
hagstæð til heimilisins og kosíur var á.
Verðkannanirnar er hægt að fá sendar
endurgjaldslaust nteð einu símtali við
Verðlagsstofnun, Borgartúni 7
Reykjavík eða skrifstofu Neytenda-
samtakanna.
Bókin Heimilisbókhald Neytenda-
samtakanna og innkaupablokkin kosta
130 krónur út úr búð.
II
Helmlllsbókhalci Neytendasamtakarma