Tíminn - 29.01.1984, Blaðsíða 10

Tíminn - 29.01.1984, Blaðsíða 10
ER BLOÐI DRIFINN FERILL SJAKAL- ANS Á ENDA? HRYDJUVERKAMAÐURINN CARLOS ER ORÐINN TÁKN FYRIR ALÞJÓÐLEGA GLÆPASTARFSEMI OG NÍÐINGSVERK GEGN SAKLAUSUM BORGURUM Á VESTURLÖNDUM. EN HVAD MÁ RÁÐA AF SÍÐUSTU „AFREKUM” HANS f EVROPU? BOÐA ÞAU FEIGBARMERKI SJAKALANS? ■ Farþegarnir, sem biðu á brautarstöðinni Saint-Charles í Marseille rétt fyrir áramótin áttu sér áreiðanlega einskis ills von. Rétt um það leyti, sem Mitterrand Frakklandsforseti var að flytja mönnum áramótaboðskapinn, sprakk sprengja á brautarstöðinni með þeim afleiðingum að fimm manns létu lífið og á sjötta tug manna slösuðust alvarlega þar af munu nokkrir aldrei komast til fullrar heilsu. Lögreglumenn og sjúkraliðsmenn áttu ekki orð til að lýsa þeim óhugnaði sem við blasti á brautarstöðinni eftir að sprengjan sprakk. Ljóst var þegar i stað, að eitthvað meira en skemmdarverk bjó að baki þessu hryðjuverki. Fljótlega láku út upplýsingar þess efnis, að hryðjuverkamaðurinn Carlos hefði komið þarna við sögu. Margir fréttaskýrendur telja nú líklegt, að hönd Carlosar hafi verið þarna að verki og henni sé nú ekki stýrt af sömu aðiljum og áður. Carlos hafi siðustu misseri tekið höndum saman við islamska heittrúarmenn, sem eigi sér sama markmið og sjakalinn: Að grafa undan vestrænum stjórnarháttum með þeim ráðum er duga, hvort sem það hafi i för með sér hryðjuverk á borð við það sem gerðist í Marseille eða eitthvað jaf nvel enn afdrifaríkara. FerillfjöldamorðingjansCarlosarcr að verða æði litríkur, af því sem raða má saman um ógnarverk hans á liðnum árum. Carlos heitir réttu nafni Ilitch Ramirez-Sanches og er ættaður frá Venezuela, en hlaut menntun sína á Kúbu og síðar í Lumumba- háskólanum í Moskvu. Hann lærði skæruliðafræði hjá IRA-mönnum á írlandi og tók síðan þátt í skæruhernaði Palestínumanna gegn ísrael. ídesembcr iy73særði hannilla einn af framámönnum gyðinga í Bretlandi. 1974 kemst Carlos aftur í fréttirnar, þegar hann tekur ásamt nokkrum samstarfsmönnum gísla í sendiráði Frakklands í Haag til þess að frelsa einn fyrirliða Rauðu herdeildanna í Japan. Þessu atviki fylgir fyrsta Ijóta sprengjutilræðið; tveir fallnirog 34 illa særðir eftir sprengjutilræði við verslun á Saint-Germain-des-Prés. Síðan slæst hann í hóp með skæruliðum Baader Meinhof, sem tekst að ná hópi gísla á Orly flugvelli við París í janúar 1975. Skammt var stórra högga á milli, því í desember sama ár ræna þeir félagar ráðherrum af fundi olíuframleiðsluríkja, sem héldu fund sinn í Vínarborg rétt fyrir áramótin. Þrír létu lífið í þeirri árás og átta særðust. Pegar hér var komið sögu hafði Carlos mjög sterk tengsl við araba, sem andvígastir voru ísrael og kemur því engum á óvart, að síðustu árin hefur hann að því er talið er, haldið sig að mestu í Líbíu undir verndarvæng Khadafys forseta. Carlos minnti á sig að nýju í febrúar árið 1982, þegar hann lét senda bréf til sendiráðs Frakka í Haag, þar sem hann hótaði innanríkisráðherra Frakklands, Gaston Deferre öllu illu, ef hann léti ekki lausa tvo félaga „úr samtökum sínum“. „Ég gef þér mánuð til að láta þetta fólk laust“, sagði Carlos í bréfi sínu og átti þar við Svisslendinginn Bruno Bréguet og þýsku stúlkuna Magdalenu Kopp, sem skipulögðu tilræðið á Orly með Carlosi, en voru handtekin fyrir tilviljun með mikið ■ Þannig var aðkoman eftir að búið var að hreinsa upp eftir ódæðismennina á brautarstöðinni í Marseille. Mía Farrow og Woody Allen saman í kvikmynd: „Geri mér nn fyrsl grein fyrir hæfi- leikum Míu” ■ Á næstunni eiga kvikmyndahúsaunnendur í Bandaríkjunum kost á að sjá þau Míu Farrow og Woody Allen saman í kvikmynd, en það er í þriðja skipti, sem þessar stórstjörnur leiða saman hesta sína. Samstarf þeirra virðist hafa tekist hið besta ef marka má blaðaummæli. Þau hrósa einnig hvort öðru í hástert í viðtölum við blöð vestan hafs. Nýjasta myndin heitir „Broadway Danny Rose“ og var t'rumsýnd í New York og víðar í vikunni sem leið. Kvenhetja Woody í þessari mynd sker sig að vísu ekki mjög úr, þegar tekið er mið af öðrum sköpunarverkum hans - kvenkyns-á hvíta tjaldinu. Mía Farrow leikur aðalhlufvcrkið, Tinu Vitale, sem er innanhúsarkitekt með annarlegar hugmyndir um, hvernig hús eiga að líta út að innan. Herbergin eiga helst að minna á skógana í svörtustu Afríku. Tina er líka í vanda stödd. Hún er hjákona furðufuglsíns Lou Canova, sem er söngvari á litlum næturklúbb - með meiru. Það er Woody Allen sem leikur stórsöngvarann á litla næturklúbbnum með sóma eins og búast mátti við. Mía Farrow er sögð mjög breytt í þessu hlutverki frá því, sem við þekkjum úrfyrri myndum hennar. Hún er hvorki lík móðurinni í „Rósmary’s Baby" eða hinni breysku Daisy í „The Great Gatsby". 1 hlutverki Tinu er hún engu lík af því sem hún hefur áður lagt fyrir sig. Svo langt gengur hún jafnvel i tjáningu sinni á Tinu innanhúsarkitckt, að áhorfendur eiga sumir hverjir erfitt með að þekkja hana í nýja gervinu. Myndin sýnir vel heim skemmtikrafta á sjötta áratugnum, sem Woody Allen þekkir manna best. „Mía sagði mér einu ■ „Það hjálpaði mest að Woody treysti mér fullkomlega" segir Mía Farrow. sinni að hún hefði áhuga á að leika konu eins og Tínu. Ég tók hana á orðinu", segir Woody Allen. „Mér fannst einhvern veginn, að undir niðri, jafnvel án þess að hún vissi það sjálf, lægju þessir hæfileikar og hún gæti vel gert þetta“. bætir hann við. Hann heldur áfram: „Mía er í rauninni fjölhæf listakona, en eins og margar leikkonur hefur henni ekki boðist mjög fjölbreytt efni að moða úr. Menn hafa alltaf tekið hana sem brothættan lítinn hlut. Auðvitað getur hún leikið þannig hlutverk, en hún getur líka gert ýmislegt annað," segir hann. „Mérvar það mikil hjálp í upphafi að Woody treysti mér fullkomlega til að gera þetta. Við þetta óx sjálfstraust mitt og mér fannst ég fær um það. Hann veit kannski betur en ég hvað ég get og get ekki. Auðvitað vill maður ekki valda þeim vonbrigðum, sem maður vinnur með. Manni finnst sem maður verði að standa sig“, segir Mía.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.