Tíminn - 29.01.1984, Blaðsíða 18

Tíminn - 29.01.1984, Blaðsíða 18
18 nútíminn SUNNUDAGUR 29. JANÚAR 1983 ATKVÆÐA- SEÐILL Þrjár íslenskar hljómsveitir sem að þínu viti sköruðu fram úr á árinu 1983 1. 2. 3. Þrjár erlendar hljómsveitir sem að þínu mati sköruðu fram úr á árinu 1983 1. _________________________________________l 2. __________________________________________ 3. _____________________________________________ Þrjár íslenskar plötur sem að þínu mati sköruðu fram úr á árinu 1983 1. _________________________________________ 2. _________________________________________ 3. _________________________________________ Þrjár erlendar plötur sem að þínu mati sköruðu fram úr á árinu 1983 1. ________________________________________ 2. _________________________________________ 3. _________________________________________ Þrjú íslensk lög sem að þínu mati sköruðu fram úr á árinu 1983 1. _____________________________________ 2. ______________________________________ 3. ______________________________________ Þrjú erlend lög sem að þínu mati sköruðu fram úr á árinu 1983 ■ Gunnlaugur og Björk í KUKL. Villtir tónleikar KUKL á Ambulance Station í London: Lékn meðan slökkvi- liðið barðist við eldsvoða í salnnm! ■ Hljómsveitin KUKL dvaldist í Sout- hern Studios í London dagana 28.12 til 18.1 s.l. við upptökur á nýrri Ip plötu sinni. Þctta hljóðver er íslenskum tón- listarmönnum að góðu kunnugt því m.a. hafa bæði Purrkur Pillnik og Vonbrigði gert plötur þar. KUKL var í 6 skipti í upptökum, tók upp 6 lög og alls tóku upptökurnar 66 tíma... og Gunnlaugur bætir við: „Þar að auki var þetta sjötta utanlandsför mín...“ Upphaflcga átti aðeins að taka upp litla plötu en í Southern hitti KUKL mann sem heitir Penny auk annara, og mun sá vera nokkurs konar guðfaðir CRASS gcngisins sem mikið er viðloð- andi hljóðverið, og fyrir áhrif hans var ákveðið að gera þetta að Ip plötu. Southern var mjög stíft bókað á þessu tímabili sem KUKLvarþarviðupptökur og meðal þeirra sem þau áttu samskipti við þar ntá nefna Psychic TV, banda- rísku hljómsveitina Crucifix sem vænt- anleg er hingað í næsta mánuði og hljómsveitin Flux of pink indians en KUKL hélt tónleika með þeint síðast- nefndu í Ambulance Station í suður London, tónleika sem reyndust nokkuð sögulegir en gefum Gunnlaugi Ottósyni orðið: „Við komum fram með Flux...og einhverju lókal pönkbandi. Liðið sem sótti staðinn var allt frá berrössuðum „móhíkönum" og upp í háklassa „Susie" týpur en síðan komu einnig óvæntir gcstir í heimsókn... Óvæntir gestir? „Já slökkviliðið og lögréglan. Það kviknaði nefnilega í staðnum". Var það eitthvað alvarlegt? „Nei enginn slasaðist og þetta varð besta ljósa „sjów" sem maður hefur fengið á tónleikum, því þetta varð allmikið bál. Staðurinn var samt ekki rýmdur eða við stöðvuð þegar þetta kom upp heldur lékum við áfram meðan þeir börðust við eldsvoðann þarna inni". I máli Gulla kom einnig fram að staðurinn hafði verið troðfullur þegar þetta kom upp en hann tekur um 500 manns. Fleiri munu þó hafa komið á- tónleikana því staðurinn var opinn'og því stöðugur straumur fólks út og inn enda höfðu tónleikarnir fengið góða umfjöllun áður hjá John Peel einum þekktasta plötusnúð og kynni hjá BBC ...Þetta er svoldið merkilegt fyrirbrigði að við erum leikin í BBC enn ekki íslenska útvarpinu" segir Gulli. Eftir að komist hafði verið fyrir eldinn héldu tónleikarnir áfram en urðu nokk- uð villtir..." eftir fyrsta lagið hjá Flux of Pink Indians, eða raunar meðan á því stóð réðist liðið upp á sviðið og lagði það og kerfið í rúst, allt mölvað en Flux gengið sagði síðar að þetta hefðu verið bestu tónleikar sem þeir hefðu komið nálægt"... Eru slagsmál og læti þá algeng á svona tónleikum? „Maður verður að átta sig á því að þetta lið sem mætir þarna er að hluta til eiginlega orðið að dýrum, lífið er von- laust fyrir það vegna atvinnuleysis og ástandsins almennt og meðan maður stendur á sviðinu er maður í stöðugum flaum hvítvíns og bjórs sem skvett er yfir mann, einstaka „Susie" týpur eru með kampavín". Hinsvegar veit ég ekki til að svona tónleikar hafi áður leyst upp í álíka brjálæði". KUKL platan nýja verður gcfin út á CRASS merkinu og er hún jafnframt fyrsta lp platan sem gefin er út á því merki (vinsamlegast ekki rugla CRASS merkinu við Corpus Christi sem gefið hefur stóru plötur Crass út). Hún verður eingöngu gefin út á Bretlandseyjum og kannski flutt hingað til lands. CRASS hefur eigið dreifingarkerfi í Bretlandi, sem enginn virðist þekkja enda hefur stjórnvöldum gengið illa að leggja hald á upplagið þegar þau hafa viljað það eins og dæmið um „Falklandseyja-plötuna" sannar. KUKL ber CRASS genginu góða sögu, segir að það hafi verið alveg sé.rstök reynsla að umgangast það, Björg segir: „Þetta er hlutur sem maður getur ekki greint frá, þetta er hlutur sem maður skynjar. Maður hefur hvergi fundið hjá fólki, jafndjúpar tilfinningar milli þess og umhverfis þess". Það lifir í algjöru jafnvægi, veit það sem það vill og gerir það sem það vill". Hvaða plötuna sjálfa varðar þá er um nýjar upptökur að ræða að meginu til, utan eitt lag en það er lagið Singull sem var á fyrstu plötu þeirra, hér er það í annarri útgáfu. - - FRl. 1. 2. 3. Nafn:________ HeimilisfangL Atkvæðaseðillinn scndist merktur: Tíniinn Co/Nútíminn, Síðumúla 15 Vinsældakosningar Nútímans: Síðasti atkvæða- seðillinn birtur næsta mánuði. Utanáskriftin er Tíminn /Co Nútím- inn Síðumúla 15. Reykjavík. - FRI. ■ Nú eru síðustu forvöð að taka þátt í vinsældakosningum Nútímans því hér birtum við síðasta atkvæðaseðilinn í kosningunum. Af þeim sem þegar eru komnir inn virðast Baraflokkurinn og Mezzoforte berjast um fyrsta sætiö að þessu sinni en enn getur allt gerst. Úrslitin verða svo birt í miðjum J

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.