Tíminn - 29.01.1984, Side 11
SUNNUDAGUR 29. JANUAR 1983
erlend hringekja
magn sprengiefna á Champs-Elysée í
París rétt áður en Carlos lét til skarar
skríða.
Allt ætlaði vitlaust að verða um
miðjan mars í innanríkisráðuneytinu,
þegar fjölmiðlar höfðu komist í málið,
en ráðherrann hafði ekki verið látinn
vita um efni bréfsins strax og það barst.
„Petta er allt of alvarlegt mál til að
þegja yfir því", sagði hann. „Samtök
Carlosar eru til og þetta er ekkert grín.
Carlos er potturinn og pannan í
starfsemi alþjóðlegra
hryðjuverkasamtaka og hann getur
gert okkur alvarlegar skráveifur",
sagði ráðherrann.
Lét hann verða af
hótuninni?
Ekki hefur tekist að færa sönnur á
samband milli þessa bréfs og sprengju
sem sprakk í lest rétt áður en hún kom
til Limoges í Frakklandi 29. mars eða
rétt um mánuði frá því að bréfið var
senttil Haag. .Fimm létu lífið í þessari
sprengingu og 26 særðust. Sem betur
fór hélst lestin á teinunum, þó að einn
vagninn færi nánast í spað; gera má ráð
fyrir að afleiðingarnar hefðu verið enn
hörmulegri ef lestin hefði farið af
sporinu.
Næst heyra ráðamenn í V-Evrópu
frá Carlosi 1. sept. síðastliðinn, en þá
barst innanríkisráðherra V-
Þýskalands bréf með undirskrift
sjakalans. Bréfið kom um sendiráð
Pýskalands í Jedda. Carlos tók í
bréfinu alla ábyrgð á sig vegna tilræðis
í Vestur-Berlín 25. ágúst, sem kostaði
einn mann lífið og særði tuttugu og tvo.
I bréfinu hótaði Carlos að láta til
skarar skríða gegn ráðherranum
Friedrich Zimmermann, ef
hryðjuverkakvinnan Gabriele
Kroecher-Tiedemann yrði ekki látin
laus innan skamms. Hún bíður nú
réttarhalda vegna fjölda ódæðisverka,
sem hún hefur tekið þátt í með v-
evrópskum hryðjuverkamönnum.
Ljóst er af ýmsu, sem tekist hefur að
grafa upp um Carlos á undanförnum
mánuðum, að hann styrkir um þessar
mundir mjög tengsl sín við íslamska
heittrúarmenn í íran, sem sjá honum
fyrir vopnum og vistum. Yfirvöld í
Iran gráta ekki hörmulega atburði í
Frakklandi vegna vopnasölu Frakka til
íraks og stöðu þeirra í Mið-
Austurlöndum við hlið Israela og
Bandaríkjamanna. Hins vegar virðist
sem uppalendur Carlosar í Austur
Evrópu hafi jafnvel snúið við honum
baki eða hann við þeim.
Feigðarmerki?
Margir fréttaskýrendur velta því
fyrir sér um þessar mundir, hvort
síðustu afrek Carlosar séu ekki einmitt
ákveðin feigðarmerki. Áðurfyrr réðst
hann til atlögu í vel skipulögðum
hryðj uverkum, náði stundum tilsettum
markmiðum og hafði um sig
harðsvíraða hirð alþjóðlegra
glæpamanna. Petta voru yfirleitt v-
evrópskir borgarskæruliðar, en nú
verður hann að sækja bandamenn sína
til öfgafullra klerka í Iran og Khadafys
í Líbíu, semglatað hefur öllu trausti á
alþjóðavettvangi.
Francois Caviglionc scgir t.a.m. í
síðasta hefti franska vikuritsins Lc
Nouvel Observateur. að síðustu
„frægðarverk Carlosar marki endalok
goðsögunnar". Þau minni helst á
suður-amerískan vestra, þar sem iagt
sé til atlögu með vopnum gegn litlu
ómerkilegu brautarstöðinni úti í
eyðimörkinni. „Hann drepur ennþá,
en hann hræðir ekki lengur. Kannski
er það til marks um það, að
fjáraflamennirnir að baki honum trúa
ekki á hann lengur. Og í alþjóðlegri
hryðjuverkastarfsemi er atvinnuleysi
sama og dauðinn", segir Caviglione.
Ekki er víst, að allir taki undir það
sjónarmið, að Carlos hræði ekki
lengur. Víst virðast þau ógnarverk,
sem hann hefur staðið fyrir á
undanförnum mánuðum nógu
hræðileg til aðfylla fólkskelfingu. Hins
vegar er Ijóst, að hann á ekki stuðning
t.d. kommúnista í A-Evrópu eins og
áður og fyrstu mistökin sem hann gerir
geta orðið honum dýrkeypt. Allt
eftirlit með hugsanlegum
hryðjuverkamönnum hefur verið mjög
eflt á meginlandinu og grannt er fylgst
með ferðum útsendara
klerkastjórnarinnar í Iran til
Frakklands, en þeir koma yfirleitt í
gegnum Iöndin fyrir botni
Miðjarðarhafs. Það er því ekki
ólíklegt, að til tíðinda dragi á næstu
mánuðum og sjakalinn verði kannski
dreginn fram í dagsljósið áðuren langt
um líður.
Heimildir: Le Nouvel Observateur
L’Express/ÞH
Framkvæmdastjóri
Stjórn Félagsstofnunar stúdenta óskar eftir að
ráða framkvæmdastjóra.
Umsækjendur þurfa að hafa háskólapróf eða
aðra þá menntun eða reynslu, sem æskileg er við
stjórnun og rekstur fyrirtækja.
Nánari upplýsingar um starfið gefur núverandi
framkvæmdastjóri í síma 15918 til 6.febrúar 1984.
Skrifleg umsókn - þar sem fram koma upplýsing-
ar um aldur, menntun og fyrri störf sendist til
skrifstofu Félagsstofnunar stúdenta P.O. Box 21,
121 Fteykjavík, fyrir 27. febrúar 1984 merkt
Framkvæmdastjóri.
Farið verður með allar umsóknir sem trúnaðar-
mál.
Félagsstofnun stúdenta hefur það hlutverk að
annast rekstur, bera ábyrgð á og beita sér fyrir
eflingu félagslegra fyrirtækja í þágu stúdenta við
Háskóla íslands.
Félagsstofnun stúdenta rekur eftirfarandi fyrir-
tæki:
Stúdentagarðana, Matstofu stúdenta, Kaffistofur
Háskólans, Háskólafjölritun, Bóksölu stúdenta,
Hótel Garð, Stúdentakjallarann, Ferðaskrifstofu
stúdenta og tvö barnaheimili.
Starfsmannafjöldinn er 55.
Meistarinn Fellini í viðtali við The New York Times:
Misskilningur að leikstjórar
séu yfirleitt gengnir af vitinu
■ Meistarinn Fellini fór á kostuni í
viðtali við blaðamann frá stórblaðinu
New York Times á dögunum, en í
síðustu viku var frumsýnd nýjasta mynd
hans: „Skipið siglir" Blaðamaður hitti
hann á veitingastað í Róm, þar sem
Fellini var að snæða hádegisverð. I
kring um meistarann var öll hirðin,
handritshöfundar, framleiðandi,
blaðainenn og aðrir samverkamenn úr
kvikmyndaverinu í Róm. Rétt í þann
mund sem snöfurmennið lauk við
máltíðina, leit annað stórmenni ítalskrar
kvikmyndalistar við, Marcello
Mastrioanni. „Ciao, Federico, ciao."
Þó að Fellini hafi nýlokið við að gera
stórmyndina „Skipið siglir," var hann
langt frá því að vera þreytulegur á svip.
Hann talaði um kvikmyndagerð við vini
sína af innlifun. Það eina, sem ekki mátti
spyrja hann um var, hvað væri næst á
döfinni hjá honum. Nýja myndin fjallar
um hóp manna, sem ersaman kontinn á
farþegaskipi til að heiðra minningu
stórstjörnu nokkurrar, hvcrrar hinsta
ósk var að láta dreifa líkamsleifum
sinum í öskuformi yfir hafflötinn á
ákveðnum stað í Adríahafinu. í ferðinni
eru listamenn af ýmsum toga, gamlir
aristókratar og aðarar fornminjar frá
liðinni tíð. EihspgoftáðurhotastFellini
við leikmenn í nokkrum hlutverkum,
alla frá Napóli að þessu sinni. En
aðalhlutverk leika þó Bretarnir, Freddie
Jones, Barbara Jefford og Janet
Suzman.
Fellini var í besta skapi yfir
hádegisverðinum í Róm. „Ég vinn að
kvikmyndagerð vegna þess, að þá fæ ég
greitt fyrirfram. Um leið og ég er búinn
að skrifa undir samning, fæ ég fyrirfram
og ég vil helst ekki skila peningunum
aftur. Því er ég tilncyddur að drífa
myndefnið af stað", segir hann, þegar
hann er spurður hvers vegna hann hafi
valið sér kvikmyndir sem viðfangsefni.
Hannerbeðinn um aðsvara íalvöru.
„Fyrir mig er þetta eins konar aðhald,
sálrænt séð. Ég má ekki til þess hugsa að
njóta algers frelsis. Það er eins konar
sjálfsmorð, Ef ekkert leitar á hugann,
þá er ég ráðvilltur. Þess vegna þarf ég
eitthvað utanaökomandi lil að halda mér
viðefnið". segir hann. „Mer virðist sem
ég sé í þessu til að hafa gaman af því og
líka til að láta grínast með mig. En
sannleikurinn er sá, að ég tek við
peningununt og vil fyrir enga muni láta
þá af hendi aftur. Það er heila málið.
Þcss vegna bý ég til kvikmyndir."
„Svo er líka hitt, að ég vil gjarnan vera
hluti af lífinu, taka þátt í að túlka það.
Mér finnst gaman að lifa og draumar
eiga vel við mig. Ég gæti ekki verið
málari eða rithöfundur því þá þyrfti ég
að fylgja efninu of þröngt. Of mikið
aðhaid. Lífið er uppistaðan í
kvikmyndunum. Þarþarfekkiannaðen
að þekkja lífið og vita hvernig á að túlka
það", sagði Fellini
FLATKOKUR
Ömmu flatkökur, eru
ómissandi á
ÞORRABLÓTI
Sendum hvert á land sem er
Bakarí
Friðriks Haraldssonar sf
Kársnesbraut 96, Kópavogi ® 413 01