Tíminn - 17.02.1984, Qupperneq 3

Tíminn - 17.02.1984, Qupperneq 3
FÖSTUDAGUR 17. FEBRUAR 1984 fréttir Ríkissaksóknari höfðar opinbert mál gegn lögreglumönnunum f Skaftamálinu: ERU AKÆRHR FYRIR BROT f OPIN- BERU STARFI OG LÍKAMSMEHHNGAR ■ Ríkissaksóknari hefur ákveðið að höfða opinbert mál á hendur þremur lögreglumönnum í Revkjavík vegna handtöku Skafta Jónssonar blaðamanns í Þjóðleikhúskjallaranum aðfaramótt 27. nóvember s.l. í ákærunni er lögreglumönnunum gef- ið að sök að hafa sameiginlega staðið ólöglega að handtöku á Skafta og tveim- ur þeirra er ennfremur gefið að sök að hafa annarhvor eða báðir orðið valdir að þeim líkamsáverkum sem Skafti hlaut við flutning, í handjárnum, í lögreglu- bifreið frá Þjóðleikhúsi og að lögreglu- stöðinni við Hverfisgötu eins og þeim er lýst í áverkavottorði. Háttsemi lögreglumannanna er talin varða við tilgreind ákvæði almennra hegningarlaga um brot í opinberu starfi, auk ákvæða um líkamsmeiðingar. Ekki hefur enn verið tilgreint við hvaða greinar almennra hegningarlaga stuðst er við í ákærunni en þær sem helstar koma til álitaeru 131 gr., 138 gr., 217 gr. og 218 gr. í 131 grein almennra hegningarlaga, sem fellur undir kaflann, Brot í opinberu starfi segir svo: „Ef dómari eða annar opinber starfsmaður sem á að halda uppi refsivaldi ríkisins, beitir ólöglegri aðferð til þess að koma manni til játningar eða sagna, framkvæmir ólöglega handtöku, fangelsan eða rannsókn eða leggur að ólögum hald á skjöl eða aðra muni, þá varðar það sektum, varðhaldi eða fang- elsi allt að 3 árum". í 138 grein almennra hegningarlaga sem einnig fellur undir, Brot í opinberu starfi segir svo: „Nú hefur opinber starfsmaður gerzt sekur um refsilagabrot með verknaði sem telja verður misnotk- un á stöðu hans og við því broti er ekki lögð sérstök refsing sem broti í embætti eða sýslan, þá skal hann sæta þeirri refsingu sem við því broti liggur, en þó svo aukinni að bætt sé við hana allt að helmingi hennar“. 217 grein og 218 grein almennra hegningarlaga falla hinsvegar undir kaflann; Manndráp pg líkamsmeiðingar, og segir svo í 217 gr.: „Hver sem gerist sekur um líkamsárás enda sé hún ekki svo mikil sem í 218 gr. segir, skal sæta sektum eða varðhaldi en fangelsi allt að 1 ári ef háttsemin er sérstaklega víta- verð. Málsókn' er opinber út af broti sam- kvæmt 1. málsgr., og skal mál eigi höfðað nema almenningshagsmunir krefjist þess". í 218 gr. segir aftur á móti: „Hafi maður með vísvitandi líkamsárás valdið öðrum tjóni á líkama eða heilbrigði og þessar afleiðingar árásarinnar verða taldar honum til saka vegna ásetnings eða gáleysis þá varðar það varðhaldi eða fangelsi allt að 3 árum eða sektum ef sérstakar málsbætur eru. Ný hlýst stórfellt líkams-eða heilsu- tjón af árás eða brot er sérstaklega hættulegt vegna þeirrar aðferðar, þ.á.m. tækja sent notuð eru svo og þegar sá er sætir líkamsárás hlýtur bana af atlögu og varðar brot þá fangelsi allt að 16 árum". Tíminn hafði samband við lögreglu- stjóraembættið vegna þessa máls og fengust þau svör að þeim hefði enn ekki borist gögn málsins í hendur og vildu þeir því ekki tjá sig um málið að svo stöddu. Baldur Möller ráðuneytisstjóri dóms- málaráðuneytisins sagði í samtali við Tímánn að þeir mundu ekki tjá sig um málið að svo stöddu. Hann taldi hinsveg- ar að umsögn dómsmálaráðuneytisins í þessu máli hefði ekki hindrað eða haft afgerandi áhrif til aðgerðanna. -FRI ASÍ og VSÍ kanna hvernig tryggingarnar geta bætt hlut láglaunafólksins: „Þeim frjálst að koma með tillög- ur og ábendingar" — segir forsætisráðherra ■ „Auðvitað ákveða aðilar vinnu- markaðarins ekki með hvaða hætti trygg- ingakerfið getur komið þeim lægst laun- uðu til aðstoðar, en þeim er að sjálfsögðu frjálst að koma fram með sínar tillögur og ábendingar, og þá vonast ég jafnframt til þess að fá fram ábendingar um hvar eigi að taka fjármunina til þess að auka greiðslur úr tryggingakerfinu," sagði- Steingrímur Hermannsson forsætisráð- herra í samtali við Tímann í gáer, er hann var spurður hver hans skoðun væri á því að aðilar vinnumarkaðarins könnuðu nú í viðræðum sínum, með hvaða hætti tryggingarnar gætu bætt hag þeirra lægst- launuðu, en Tíminn hefur heimildir fyrir að slíkt hafi mjög verið til umræðu á samningafundum aðila vinnumarkaðar- ins. Steingrímur var spurður hvort ekki væri eðlilegt að ríkisvaldið kæmi inn í slíkar viðræður, þar sem það væri hvort sem er Ijóst, að samþykki ríkisstjórnar eða Alþingis fyrir slíkum greiðslum þyrfti, áður en þær yrðu ákveðnar: „Við höfum sagt að við værum tilbúnir til þess að gera það þegar og þess er óskað, en við höfum alltaf sagt að þetta væru frjálsir samningar, og við það stöndum við að sjálfsögðu." -AB ■ Sigurvegarar beggja flokka talið frá vinstri: Alfreð Hjaltason, Guðbjörn Magnússon, Sigurjón Hannesson, Hreggviður Oskarsson. Vélsleðakeppni við Lækjarbotna Mótmæli foreldra ogkennara Vesturbæjarskólans: „EKKI EINI GRUNNSKÓL- INN SEM EKKI BÝR VIÐ FULiNÆGJANDI AÐSTÆÐUR” segir Markús Örn Antonsson, formaður fræðsluráðs ■ „Það er viðurkennt af öllum aðilum sem um þessi mál fjalla að þarna er ekki hægt að hafa skóla til allrar frambúðar. Þess vegna erum við að láta hanna nýtt skólahús og ákveða því stað. Þetta er hins vegar ekki eini grunnskólinn í borginni sem ekki býr við fullnægjandi aðstæður og það verður að raða fram- kvæmdum í vissa forgangsröð," sagði Markús Örn Antonsson, formaður fræðsluráðs Reykjavíkur, þegar hann var spurður hvort verjandi væri að reka skóla fyrir tæplega 300 börn í húsakynn- um gamla Stýrimannaskólans við Öldu- götu, en eins og fram kom í blaðinu telja foreldrar nemenda skólans og kennarar hans að öll aðstaða þar sé mjög ófull- komin og benda á að skólinn hafi til umráða 2 fermetra á barn meðan grunn- skólar í höfuðborginni hafi að meðaltali 6 fermetra á nemanda. - Nú hafa komið fram athugasemdir frá heilbrigðisyfirvöldum vegna ófull- nægjandi salernisaðstöðu í skólanum. Einnig er talað um að brunavörnum sé ábótavant? „Ég hef hvorki fengið kvartanir frá heilbrigðisyfirvöldum og né eldvarnaeft- irliti um aðstöðuna í húsinu. Þeir aðilar hafa þó venjulega verið ósparir á slíkar yfirlýsingar ef þeim hefur fundist pottur brotinn. Hins vegar hafa verið þarna ákveðnar ráðstafanir af hálfu eldvarna- eftirlitsins umfram það sem gerist í öðrum skólum í borginni eðli málsins samkvæmt vegna þess að húsið er svo gamalt." M arkús sagði að búið væri að ákveða að reisa nýjan Vesturbæjarskóla á horni Vesturvallagötu og Framnesvegar. Hann sagði að hins vegar væri vegna fjárhagsstöðu borgarinnar ekki hægt að timasetja hvenær hafist yrði handa við bygginguna. -Sjó ■ Vélhjólaíþróttaklúbburinn stóð fyrir vélsleðakeppni á sunnudaginn við Lækj- arbotna, rétt fyrir austan Reykjavík. 15 keppendur voru mættir í ágætisveðri og voru þeir ræstir með hálfrar mínútu millibili. Keppt var í tveimur flokkum á 5 kílómetra langri braut, annars vegar undir 60 hestöflum en hinsvegar yfir 60 hestöflum. Úrslitin urðu þau að í minni flokknum sigraði Sigurjón Hannesson á 11:05 mín. í öðru sæli varð Hreggviður Óskarsson á 11:10 mín og í þriðja sæti varð Baldur Davíðsson á 11:12 mín. I stærri flokknum sigraði Alfreð Hjaltalín á 11:20 mín. annar varð Guðbjörn Magnússon á 12:14 mín og þriðji varð Stefán Jónsson á 13:07 mínútum. Verð- launin voru veitt strax að lokinni keppni og hefur stjórn Vélhjólaíþróttaklúbbsins hafist handa við að undirbúa næstu keppni. Eru líkur á að um 40 vélsleðar mæti og verða þá væntanlega fleiri og fjölbreyttari brautir. - FRI Eldur í bílskúr að Kópavogsbraut 96: ELDTUNGURN- AR LAGÐIÚT UM BÍLSKÚRS- HURÐINA ■ Slökkviliðinu í Rcykjavík barst til- kynning umn eld í bílskúr að Kópavogs- braut 96, skömmu fyrir kl. 4 í gærdag. Er slökkviliðið kom á staðinn var tölu- verður reykur í skúrnum og eldtungurn- ar lagði út um bílskúrshurðina úr klæðn- ingu sem þar var fyrir innan. Tveir reykkafarar voru sendir inn og gekk þeim greiðlega að slökkva eldinn. 10 ára gamall Escort bíll var inni í skúrnum er eldsupptök urðu og skemmdist hann töluvert af eldinum auk þess sem töluverðar skemmdir urðu á skúrnum sjálfum og dóti sem þur var inni. Eldsupptök eru talin vera út frá rafmagnsofni en maður var að nota hann þar inni til að þurrka mottur úr bílnum. Slökkviliðið var einnig kallað út að Árnagarði í gærmorgun, skömmu fyrir kl.8 en þar var eldur laus í bifrcið. Mun vélarhús bílsins hafa skemmst töluvert. - FRI Góð sala í snjóblásurum ■ Um 20 aðilar hafa í fannferginu undanfarnar vikur keypt snjóblásara á dráttarvélar, sem Dráttarvélar hf. hafa á boðstólum fyrir 80-110 þús. kr. stykkið. 1 hópi kaupenda eru bæði bændur og sveitarfélög. Telja menh að þessi möguleiki til snjóruðninga geti lækkað kostnaðinn við moksturinn niður í allt að 1/5 af því sem snjómokstur kosti almennt með stærri tækjum, að því er haft er eftir Gunnari Gunnarssyni, fram- kvæmdastj. Dráttarvéla í Sambands- fréttum. Könnun á fundi hjá Fóstrufélagi íslands: Yfirgnæfandi meirihluti styður verkfallsaðgerðir " SSÍHSlSm *% því í voða. Þá er sagt að opinberir starfsmenn séu nú stærsti láglauna- hópurinn, enda þekkist vart yfirborganir innan þess hóps. Mótmælt er seinagangi ríkisvaldsins í samningaviðræðum og launafólk hvatt til órofa samstöðu. - JGK ■ Á fundi í Fóstrufélagi íslands á dögunum var gerð könnun á viðhorfum fundarmanna til kjaramála og aðgerða í því samhengi. Yfirgnæfandi meirihluti lýsti sig fylgjandi því að gripið yrði til verkfalls ef ekki næðist fram með öðru móti launahækkun umfram 4%. Sömu- leiðis voru nær allir fundarmenn á því að beinar launahækkanir væru betri kjara- bót en félagsmálapakkar eða bættur aðbúnaður. í ályktun fundarins segir m.a. að kaupmáttur launa sé nú minni en verið hafi um áratugi og afkoma fjölda heimila

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.