Tíminn - 25.02.1984, Blaðsíða 1
Fréttir af Reykjavíkurskákmótinu Sjá bis. 18
Blað Tvö
1 blöd
X í dag
Helgin 25.-26. febrúar 1984
48. tölublað - 68. árgangur
Sidumula 15-PosthoH370 Reykjavik-Ritstiom 86300-Auglysingar 18300- Afgreiðsla og askrift 86300 - Kvöldsimar 86387 og 86306
Lögreglan komin á sporið við lausn vopnaða ránsins?
KRAFIST ER 20 DAGA VARD-
HALDS YFIR ÞREMUR FEÐGUM
■ Lagðar hafa verið fram
kröfur um gæsluvarðhald í Saka-
dómi Reykjavíkur á hendur
þremur mönnum vegna hins
vopnaða ráns sem framið var við
útibú Landsbankans sl. föstu-
dag. Hljóða þær upp á gæsluvarð-
hald til 7. mars annarsvegar en
14. mars hinsvegar.
Pessar upplýsingar fékk Tím-
inn hjá Þóri Oddssyni vararann-
sóknarlögreglustjóra ríkisins
sem stjórnar rannsókn málsins.
Sagði hann að dómari hefði tekið
sér frest til að kanna málin og
yrðu þau tekin fyrir hjá embætt-
inu í dag.
Mennirnir þrír sem hér um
ræðir eru feðgar af erlendu bergi
brotnir. Voru mennirnir hand-
teknir síðdegis á fimmtudaginn.
Þórir sagði að hann gæti ekki
greint frekar frá málinu þar sem
það væri á viðkvæmu stigi nú.
- FRI
Tillaga um 300
þúsund tonn
næsta loðnu-
veiðitímabil:
NORÐMENN
EIGARÉTT
Á HELMINGI
KVÓTANS
— ef gengið er
út frá því að við
fyllum kvóta
yfirstandandi
vertíðar
■ „Þeir sættust á að við veidd-
um eins og við getum upp í þann
kvóta sem búið er að ákveða.
Síðan eiga þeir kröfu á að fá sinn
hlut, það er að segja 15% af
heildarveiðinni, bættan næsta
haust. Sem þýðir að hann bætist
við þeirra hlut þá,“ sagði Jón L.
Amalds, ráðuneytisstjóri og
formaður íslenska hópsins í
Norsk-íslensku fiskveiðinefnd-
inni, en viðræðum nefndarinnar
lauk í Reykjavík í gær og næsti
fundur hefur verið boðaður í
maí næstkomandi í Bergen í
Noregi.
Það kom fram á fundum
nefndarinnar að fiskifræðingar
hafa mælt með 300 þúsund tonna
loðnukvóta á næsta veiðitíma-
bili, frá ágúst á þessu ári fram
að lokum vetrarvertíðar 1985.
Af þeim kvóta geta Norðmenn
krafist 45 þúsund tonna og ef
gengið er út frá því, að f slending-
ar nái að fylla kvótann á yfir-
standandi vertíð, eiga Norð-
menn rétt á um 140 þúsund
tonnum af 300 þúsund tonna
kvóta á næsta veiðitímabili. Jón
sagði, að nokkuð Ijóst væri að
Norðmennirnir myndu fara af
stað næsta haust.
- Sjó
BaWHKtJMtBaa
RITVEIAFAR I
HAFNARFIRÐI!
— miklar deilur vegna
brottraáms ritvélar
af bókasaffni
Flensborgarskóla
■ „VIÐ VILJUM RITVÉL, VIÐ VIUUM RITVÉL,
VIÐ VIUUM BÆJARSTJÓRANN....“ þetta öskruðu
nemendur Flensborgarskólans fyrir utan bæjarskrifstofur
Hafnarfjarðar í gærdag er þeir gengu á fund bæjarstjóra til
að afhenda honum yfirlýsingu vegna brottnáms ritvélar af
bókasafni skólans.
Fjöldi nemenda var það mikill að öll umferð um
Strandgötuna stöðvaðist meðan á aðgerðum þeirra stóð.
Ritvél sú sem um ræðir var upphaflega keypt á bókasafn
skólans um áramótin og töldu forráðamenn skólans sig hafa
vilyrði Fræðsluráðs til kaupanna. Bæjarstjórinn aftur á
móti segir að engin heimild hafa verið til kaupa á ritvélinni
og lét hann því fjarlægja hana. - FRI
Sjá nánar á bls.5
■ Starfsmaður Gísla J. Johnsen íjarlægir ritvélina úr
Flensborgarskóla. Skólastjórinn Kristján Bersi fylgir
honum til dyra.
Nauðgunin
á Keflavíkur-
flugvelli:
REYNDIST
UPPSPUNI
KONUNNAR
■ Nauðgun sú sem tilkynnt
var af eiginkonu eins af með-
limum Varnarliðsins á Kefla-
víkurflugvelli og átti að. hafa
átt sér stað í hýbýlum hennar
af íslending átti sér ekki stoð í
raunveruieikanum.
Að sögn yfirmanna á Vellin-
um var nauðgunarákæran upp-
spuni konunnar frá rótum.
Konan sem ákærði dvelst nú á
sjúkrahúsi á Keflavíkurflug-
velli þar sem hún hlýtur geð-
rannsókn.
Yfirmenn Varnarliðsins lýsa
yfir ánægju sinni að þetta mál
skuli til lykta leitt en harma
jafnframt óþægindi þau sem
einstaklingar kunna að hafa
orðið fyrir við rannsókn
málsins. - FRI
BARÁTTUSAM-
TÖKIN OG VIN-
ÁTTUFÉLÖGIN
FENGU EKKI
KOMMÚNISTA-
ARFINN
— heldur lögerfingi
eiginkonunnar
■ Borgarfógetaembættið i
Reykjavík hefur kveðið upp
úrskurð í svokölluðu kommún-
istaarfsmáli. Úrskurðurinn féll
þannig að lögerfmgi Sólveigar
Jónsdóttur, eiginkonu Sigur-
jóns Jónssonar, væri einkaerf-
ingi að dánarbúi Sigurjóns.
Kröfum Baráttusamtaka fyrir
stofnun kommúnistaflokks og
vináttufélaga íslands við fjögnr
sósíalísk rtki, um arf eflir Síg-
urjón samkvæmt erfðaskrú,
var hafnað, á þeirri forsendu
að þessi samtök uppfylltu ekki
skilyrði erfðaskrárinnar.
Málið kom upp eftir að
erfðaskrá Sigurjóns, sem gerð
var árið 1961, fannst eftir lát
Sólveigar árið 1982. í írfða-
skránni var mælt fyrir að cign-
arhluti Sigurjóns í húseigninni
Bollagötu 12, skyldi verða
fræðslu- og menningarstofnun
á vegum Sameiningarflokks al-
þýðu, Sósíalistaflokksins og
starfi jafnan í anda sósfalism-
ans, eins og hann er túlkaður
af aðalhöfundum hans, Marx
Engels og Leníns.
- GSH
Sjá nánar á bls.2