Tíminn - 25.02.1984, Page 4
4
LAUGARDAGUR 25. FEBRÚAR 1984
fréttir
■ Söngsextettinn Toneka, þau Skarphéðinn, Habbí, Sibbí, Debbí, Rúna og Þór.
(Ljósmynd Guðjón Einarsson)
Önnur jammsessjón Jassklúbbs Reykjavíkur:
Tvær nemendahljóm-
sveitir og söngsextett
■ Önnur jammsessjón Jassklúbbs
Reykjavíkur verður í Kvosinni í húsi
Nýja bíós kl. 15.00 á morgun. Þar koma
fram tvær hljómsveitir skipaðar nemend-
um í jassdeild Tónlistarskóla Félags
íslenskrá tónlistarmanna og nýstofnaður
söngsextett, Toneka.
Aðra nemendahljómsveitina skipa
Vilhjálmur Guðjónsson gítarleikari, Einar
Bragi sem leikur á altsaxófón, Davíð
Ólafsson trompettleikari, Össur Geirs-
son básúnuleikari, Gunnar Jónsson slag-
verksleikari, Þorsteinn Gunnarsson
trommuleikari og Skúli Sverrisson bassa-
lcikari.
Hin hljómsveitin er skipuð þeim
Helga Þór Ingvasyni píanóleikara, Ein-
ari Sigurðssyni bassaleikara, Gunnari
Jónssyni trommuleikara og gítarleikur-
unum Vilhjálmi Guðjónssyni, Leó Geir
Torfasyni, Davíð Guðmundssyniog Jó-
hannesi Snorrasyni.
Loks kemur fram sveiflusveit undir
stjórn Guðmundar R. Einarssonar
trommuleikara, en honum til fulltingis
verður Gunnar Egilsson klarinettieikari,
Árni Elvar á píanó, Jón Sigurðsson
bassaleikari og Trausti Thorberg sem
leikur á gítar.
Jasssöngur hefur ekki verið iðkaður
mikið á íslandi hvað þá sextettsöngur en
þau sem standa að þessu nýstárlega
framtaki eru þau Þór, Habbí, Rúna,
Sibbí, Dabbí og Skarphéðinn. Undirleik
fyrir sextettinn annast Carl Möller á
píanó, Árni Scheving bassaleikari og
Alfreð Alfreðsson trommuleikari.
-JGK
Hringur sýnir í Ásmundarsal og á Kjarvalsstöðum:
145 MYNMR AÐ MESTU
UNNAR SÍÐUSIU FJÖGUR ÁR
■ „Menn ráða því hvort þeir líta á
þetta sem eina sýningu eða tvær, en það
er orðið nokkuð langt síðan ég hélt
sýningu síðast eða fjögur ár og ég vildi
sýna það sem ég hef til að sýna í einu.
Myndirnar eru flestar unnar á þessu
tímabili." Eitthvað á þessa leið sagði
Hringur Jóhannessoh listmálari þegar
hann spjallaði við blaðamenn á Kjarvals-
stöðum í gær. Á laugardaginn kl. 14.00
verður opnuð sýning á verkum hans á
Kjarvalsstöðum og kl. 15.00 sama dag
önnur sýning í Ásmundarsal á Freyju-
götu, alls 145 myndir.
„Það er svolítill munur á sýningunum
að því leyti að í Ásmundarsal sýni ég
eingöngu olíumyndir, en hér á Kjarvals-
stöðum er ég með myndir unnar með
ýmiskonar efnum og tækni, olíupastel,
krítarmyndir, bæði svartkrít og litkrít og
svo er ég með í afhólfuðu plássi á
ganginum nokkrar litlar myndir sem ég
teiknaði á Kanaríeyjum fyrir tveim
árum, nokkurs konar afleggjara. Ég var
þarna á sólarströnd í fyrsta sinn á ævinni
og það var vissulega reynsla út af fyrir
sig. Þarna var ekkert landslag, bara
hótel, sundlaugar og fólk og auðvelt að
sitja og teikna, það gerði enginn athuga-
semd við það, fólk var svo mikið út af
fyrir sig og skipti sér ekki af þótt maður
sæti og teiknaði það." •
Hringur sagði að myndir hans væru að
miklu leyti unnar eftir mótífum, ýmist
teiknaði hann upp mótífin eða Ijósmynd-
aði þau, eða hvort tveggja, til að festa
smáatriðin sem best í minni. Olíumynd-
irnar væru hins vegar að mestum hluta
náttúrustemmningar, unnar á staðnum.
Hringur er af þeirri kynslóð málara
sem fékkst einkum við afstrakt myndlist
á mótunarárunum, en hefur aldrei feng-
ist við hana sjálfur. „Afstrakt listin var
að halda innreið sína fyrir alvöru þegar
ég var að ljúka námi upp úr'50 og á sjötta
áratugnum voru þeir að mestu útskúfaðir
sem voru að bjástra með náttúruna. Ég
reyndi við afstraktmálverkið, en það
■ Hringur Jóhannesson hjá einu verkanna á sýningunni Tímamynd Róbert
Jón Óskar á Kjarvalsstöðum
■ Jón Óskar opnar í dag sýningu sína
að Kjarvalsstöðum, austursal, en þar
mun hann sýna 40 verk eftir sig, bæði
málverk og ljósmyndir.
Jón Óskar er nýkominn heim úr
þriggja ára námi við New York School
of Visual Arts en þar áður stundaði hann
nám við bæði Myndlistar- og Handíða-
skólann og Myndlistarskóla Reykjavík-
ur.
hentaði mér ekki svo að ég hætti.og ég
sýndi ekki fyrr en 1962 í Bogasalnum.
Þá voru menn að byrja að hverfa aftur
frá afstraktinu og fígúratífri myndlist fór
að vaxa fiskur um hrygg.sérstaklega um
og eftir 1970. Nú, hún er auðvitað.í sókn
núna, með nýja málverkinu svokallaða,
þessari endurvakningu á expressjónism-
anum sem nú er að eiga sér stað."
„Nei, það eru engar slórbreytingar
hjá mér frá því sem áður var," segir
Hringur og þegar maður gengur um
salinn sér maður að hann er enn að yrkja
sinn akur. Hringur er fæddur og uppal-
inn á Haga í Aðaldal og þar á hann
vinnustofu og dvelur flest sumur.
Þaðan eru líka flestar myndir hans
upprunnar þótt það sé e.t.v. erfitt að
greina, þær gætu verið úti í hvaða sveit
sem er. Þarna er mikill gróandi, en sífellt
eitthvað sem minnir á bjástur mannsins
og lífsbaráttu, skuggar af fólki í sóllýstu
grasi, skuggi af gömlum Farmal undir
hlöðuvegg, stórt kýrjúgur sem fyllir upp
myndflötinn með mjaltavélarkoppa
hangandi á spenunum. Oft er sjónum
skoðandans beint á óvæntan hátt að
örlitlu smáatriði, Iitlum hluta af verk-
færi, heysátu eða hundaþúfu, sýnt svo
skýrum dráttum að það er eins og maður
sjái allt í einu kunnuglega hluti í
spánnýju Ijósi í gegnum stækkunargler.
-JGK
í slandsmeistara-
keppni áhugamanna
í gömlu dönsunum
■ íslandsmeistarakeppni áhugamanna
í gömlu dönsunum verður haldin á
vegum Nýja Dansskólans og Þjóðdansa-
félags Reykjavíkur að Hótel Sögu n.k.
sunnudag, 26. febrúar. Öllum áhuga-
mönnum frá 16 ára aldri er heimil
þátttaka svo og börnum og unglingum
frá 6 ára aldri.
Keppni barna og unglinga hefst kl. 14
á sunnudag. Börn 6-8 ára dansa: Polka,
Vals, Fingrapolka, Skósmíðapolka,
Klappende og Svensk Maskerade. Hóp-
ur 9-15 ára dansa: Polka, Vals, Skottís,
V ínarkrus, Marzúka og Skoska-dansinn.
Fullorðnir keppa í sömu dönsum og
unglingarnir, en keppni fullorðinna hefst
kl. 20 á sunnudag. Dómarar verða fjórir
og sýna þeir dóma sína strax og dansi
lýkur.
Skólabókaverðir funda með skólastjórum og fræðsluráði:
Ástandið gjörsamlega óviðunandi
■ Frá fundinum sem skólabókaverðir efndu til í gær í húsnæði bókasafns Langholtsskóla. Tímamynd Róbert.
■ „Gífurleg óánægja skólabóka-
varða með fjárveitingar til skólasafna
olli því að við sendum Fræðsluráði
Reykjavíkur bréf, þar sem við mót-
mælum þessu ástandi og fundurinn
núna er haldinn í framhaldi af þessu
bréfi. Við boðuðum á hann alla skóla-
stjóra í grunnskólunumi í Reykjavík,
meðiimi fræðsluráðs og fræðslustjóra.
Við bókaverðir og skólastjórarnir vor-
um sammála um það að ástandið væri
gersamlega óviðunandi," sagði Sigurð-
ur Helgason skólabókavörður við
Fellaskóla í samtali við blaðið, en
skólabókaverðir boðuðu til fundar
með ofangreindum aðilum um málefni
skólabókasafna í Reykjavík.
„Það lýsir ástandinu kannski best að
fjárveitingar til þessa málaflokks hafa
staðið í stað í krónutölu síðan 1980.
Það safn sem ég starfa við hefur t.d.
fengið 100 þúsund krónur á ári síðan
1980, það þýðir að raungildi fjárveit-
ingarinnar er ekki nema um 20% af
því sem var fyrir fjórum árum.
Þetta bitnar mjög harkalega á starfi
skólanna. Ef við tökum kennslu -í
íslandssögu og samfélagsfræðum sem
dæmi þar sem það er ofarlega á baugi
nú, þá hefur kennslan í þessum grein-
um í auknum mæli færst inn á söfnin,
þar sem nemendur fá þjálfun í notkun
handbóka og heimilda. Fjársveltið ger-
ir það að verkum að við getum ekki
gert þá hluti sem áhugi er á og
aðstæður að öðru leyti bjóða upp á.
Við verðum líka að gera okkur grein
fyrir því að það eru til börn sem þurfa
mjög á bókasöfnunum að halda til að
öðlast þjálfun í lestri, börn sem hafa
ekki mikinn aðgang að bókum heima
hjá sér. í því sambandi verður að geta
þess að þjónusta Borgarbókasafnsins
við Breiðholtið er fyrir neðan allar
hellur.“
Sigurður sagði að það safn sem hann
starfaði við hefði starfað í um 10 ár og
samkvæmt grunnskólalögunum hefði
átt að ná því markmiði á 10 árum að
skólabókasöfn ættu 10 eintök af
bókum á hvern nemanda.,,1 mínum
skóla vantar meira en helming á að það
takmark hafi náðst,“ sagði Sigurður.
„Það er auðvitað pólitískt mál að leysa
þetta, þetta er spurning um að verja fé
í eitt fremuren annað. Viljamenn t.d.
frekar kaupa hlutabréf í ísfilm en
bækur?"
Sigurður sagði formann fræðsluráðs
hafa tekið mjög vel í erindi fundarins
og lofað auknum fjárframlögum síðar
á árinu. „Við metum þessi viðbrögð
mikils og væntum þess að efndir verði
á, því að ekki kaupum við bækur fyrir
Ioforð.“ -JGK