Tíminn - 25.02.1984, Qupperneq 6
6 WíflÚWn LAUGARDAGUR 25. FEBRÚAR1984
í spegli tímans
Kvikmyndin Carmen nýtur gífurlegra
vinsælda í Þýskalandi:
NULÆRAALUR
ABMNSA
FIAMENOO!
■ Um þessar mundir er verið
að sýna í kvikmyndahúsum í
Þýskalandi myndina Carmen,
sem Carlos Saura gerði eftir
óeprunni samnefndu eftir Bi/et.
Með aðalhlutverk í myndini fer
sjálfur Placido Domingo. Er-
skemmst frá því að segja að
myndin hefur slegið algerlega í
gegn og nýtur fádæma vinsælda.
Eins og títt er, þegar kvikmyndir
ná svo gífurlegum vinsældum,
koma margs konar áhrif frá
henni fram víða í þjóðlifinu.
Ekki síst hefur hún vakið upp
alveg gífurlegan áhuga á flam-
encoiónlist og -dansi.
Adela Rabien, sem rekur
dansskóla í Berlín, hefur svo
sannarlega orðið vör við þennan
áhuga. Adela er fædd í Augs-
burg, en á spánska forfeður.
Hún hefur rekið dansskóla sinn
í 10 ár. Allan þann tíma hefur
flamencodans notið heldur lítils
álits nemenda hennar. Þeir hafa
litið svo á að það væri ekki farið
fram á annað en að spúa eldi og
smella með fótunum. En nú,
þegar fólk hefur séð hvílík kúnst
flamencodans er í kvikmyndinni
um Carmen, fyllist það skyndi-
lega löngun til að ná tökum á
þessari fögru og æsandi grein
danslistarinnar. Meðal nemenda
Adelu má flnna fulltrúa allra
stétta þjóðfélagsins, húsmæður,
virðulega embættismenn, versl-
unar- og skrifstofufólk, skóla-
nemendur. Er nú svo komið að
færri komast að en vilja og
íhugar Adela að bæta við tímum
til að anna eftirspurninni.
Því fer fjarri, að það sé auðvelt
að ná tökum á flamencodanslist-
inni. Þar þarf að samhæfa höf-
uðhreyfingar, líkamshreyfingar,
kastaníettur og síðast en ekki síst
þarf að kunna að sveifla pilsslóð-
anum í samræmi við danssporin,
enda segir Adela nemendur
þurfa að leggja hart að sér og
þjálfa sig vel, ef þeir eiga að gera
sér vonir um að ná cinhverjum
árangri. Og ekki dugir minna en
kennslustundir tvisvar í viku, ef
eitthvert gagn á að verða af
kennslunni.
Adela var spurð að því, hvort
hún mælti með að nemendur
færu í megrunarkúr samhliða
náminu. Ekki vildi hún meina,
að rétt væri að dreifa athyglinni
frá dansnáminu sjálfu með því
að vera líka að velta vöngum ýfir
mataræði á sama tíma. Það verði
að einbeita sér að því að skynja
tónfallið allt fram á fingurgóma.
Auðvitað þjálfist allur líkaminn
við þessar ströngu æfingar, en
þá ekki í einu vetfangi. Ekki
megi búast við að árangur komi
í Ijós yfir eina nótt.
Adela Rabien varð fyrst
kvenna til að opna sérstakan
skóla til að kenna flamencodans
í Þýskalandi. Hún hefur stefnt
að því alla ævi að verða dansari
og segir svo frá: Auðvitað byrj-
aði ég dansnámið með því að
sækja kennslu í ballett, rétt eins
og svo margar litlar telpur aðrar.
En ég fann fljótlega, að þessi
sígilda ballettkennsla var ekki
nógu fjörug fyrir minn smekk.
Eg sóttist eftir meiri tilfinninga-
semi, meiri hreyfingu, meiri
tjáningu. Amma mín, sem býr í
Brasilíu, hlýtur að hafa sett kast-
aníettumar í vögguna mína, ég
hef aldrei án þeirra verið. Og á
tíðum ferðum mínum til Spánar
hef ég kynnst og orðið altekin af
fegursta dansi veraldar - flam-
encodansinum.
■ Sem að líkum lætur á Adela Rabien marga flamenco-
kjóla. Þegar hún vill hafa sem mest við, dregur hún þennan
hvíta silkikjól fram og íklæðist honum. Hún hefur þegar
slitið fleiri dansskóm en hún hefur tölu á.
vidtal dagsins
Ráðstefnan „Fjölskyldan og fíkniefnin" í Norræna húsinu í dag:
ORNÖUUM SEMIÁTA
SK MÁIEFMÐ VAfflA
— rætt við Árna Reynisson
■ „Yfirskrift þessarar ráð-
stefnu er „Fjölskyldan og fíkni-
efnin,“ og til hennar boða Sam-
tök áhugamanna um áfeng-
isvandamálið í samvinnu við
landlæknisembættið og Afeng-
isvarnadeild Reykjavíkurborg-
ar,“ sagði Arni Reynisson í
spjalli við blaðið í gær. Ráðstefn-
an sem til umræðu er hefst í
Norræna húsinu í dag kl. 13.30.
An»' annacf 'mdirbún:a„
hcnnar.
„Við getum sagt að það séu
þrír hópar sem við viljum ná til
með ráðstefnunni. Þeirra sem
eiga um sárt að binda vegna
vímuefnaneyslu aðstandenda
sinna, eða fjölskyldumeðlima,
þeirra sem óttast að þetta vanda-
mál kunni að hitta einhvern fyrir
í fjölskyldunni eða vinahópi og
svo þeirra sem hafa áhuga á fíkni-
cfnavandamálinu og vilja vinna
að lausn þess. Ráðs'afnar. cr
ekki sérfræðileg, það e: etlast til
að hún geti orðið öllum til gagns
og fróðleiks.“
Er ráðstefnan til marks um
það að SÁÁ vilji færa út starfs-
svið sitt, vinna gegn neyslu allra
vímugjafa í stað einhliða baráttu
gegn ofnotkun áfengis?
„Ofnotkun vímugjafa almennt
er vandamál sem SÁÁ hefur
orðið að glíma við, vegna þess
að það er stór hópur þeirra sem
koma á mtðferðrirátofnanir
SÁÁ, sem hafa ánetjast öðrum
vímugjöfum en áfengi, oft mun
hættulegri og eru því oft verr
farnir af neyslu þessara vímu-
gjafa en áfengisins. Ráðstefnan
er til marks um það að SÁÁ vill
færa þetta starf út í þjóðfélagið,
koma á framfæri upplýsingum
og vinna fyrirbyggjandi starf,
einnig á þessu sviði.“
Hvernig verður ráðstefnan
uppbyggð?
Hún hefst með ávarpi heil-
B Ám: Reynissort