Tíminn - 25.02.1984, Side 12

Tíminn - 25.02.1984, Side 12
■ Nýlega er komið á markaðinn frá Lýsi hf. fjölvítamín- blanda með ávaxta- bragði sem nefnd er FRISKAMÍN: í upp- lýsingum frá fram- leiðanda segir: „Dagleg notkun FRÍSKAMÍNS kem- ur í veg fyrir víta- mínskort, en það er nauðsynlegt á upp- vaxtarárunum fyrir börn og unglinga. En fólk á öllum aldri þarf einnig að gæta þess að uppfylla vítamínþörfina eink- um í skammdeg- inu.“ ■ Baldur Hjaltason efnafrxðingur hjá LÝSI h.f. hefur unnið að rannsóknum og undirbúningi að framleiðslu FRÍSKAMÍNS. (Timamynd Róbert) Baldur sagði dagskammt af þorskalýsi vera 1-2 teskeiðar á dag. Af ufsalýsi þarf ekki nema eina teskeið á dag, sagði hann, en þá er reiknað með að lýsið sé tekið reglulega. Lýsiskúrinn Blaðamaður Heimilistímans spurði Baldur Hjaltason hvað hann gæti sagt um hinn svokallaða lýsiskúr, sem margir tala um. En með lýsiskúr er átt við, að lýsi sé tekið hvern morgun á fastandi maga, og síðan ekkert nærst næstu tvo klukkutímana, og þá eigi líkamanum að notast betur af lýsinu. Hann svaraði, að ekki hefðu farið fram vísindalegar rannsóknir enn á þessu, - en dæmin sanna þetta sagði hann. Það hafa svo margir staðhæft við mig að hafa fengið bót á liðagigt og fleiri kvillum með slíkum lýsiskúr, að það er ekki hægt að mótmæla því. Lýsið virðist verka betur þegar það er tekið svona inn á fastandi maga, - áður en magasýrurnar fara í gang, þá nýtist fitan betur, brotnar ekki niður, og gefur þá einhverja sér- staka smureiginleika á liðamótin. Ég hef heyrt þetta frá það mörgum, sagði Baldur, að ég er sannfærður um að þetta er rétt, - en eins og er get ég ekki sannað þetta. Við höfum verið að tala við fólk um þetta, en ekki enn farið út í vísindalegar rannsóknir, en það verður kannski næsta skrefið. FRÍSKAMÍN — heppileg vítamíninntaka fyrir þá, sem þola illa fitu Heimilistíminn hafði samband við Baldur Hjaltason efnafræðing til þess að fræðast meir um þessa vítamínblöndu. Hann vísaði fyrst til upplýsinga á flösk- unni en þar segir, að í 10 ml (1 barnaskeið) séu eftirfarandi efni: A-víta- mín 2000 a.e. D Vítamín 400 a.e. C vítamín 60 mg, Þíamín (Bl) 1.1 mg. Ríbóflavín (B2) 1.1 mg, Níasín (B3) 16 mg. Pýridoxin (B6) 1.3 mg, Dexpanþen- ól 3 mg. Auk þess eru í blöndunni vatn, sorbitól, bragðefni, kalíumsorbat og beta-karotin (litarefni eins og í gul- rótum). Baldur Hjaltason efnafræðingur sagði, að í Frískamíni væri reiknaður hæfilegur dagskammtur af ABCD-vít- amínum, og væri þá áætlað að börn upp að eins árs fengju 1 tesk., börn að 10 ára aldri cina litla barnaskeið, en unglingar og fullorðnir eina matskeið. Baldur sagði, að lýsið stæði auðvitað alltaf fyrir sínu sem heilsugjafi, en úr lýsinu fást aðeins A og D vítamín. Þessi blanda væri ætluð fyrir þá sem ekki geta tekið inn lýsi, en vilja taka inn öll þessi nauðsynlegu vítamín. Frískamín ersvip- uð framleiðsla og Sanasol og aðrar vítamínblöndur, en það er engin fita í þessari blöndu, svo þetta er heppileg vítamín-inntaka fyrir þá, sem illa þola fitu. - Undirbúningur að framleiðslu Frísk- amíns hefur staðið í um það bil hálft ár, sagði Baldur. Þetta er hluti af vöruþró- un, sem þarf að fylgjast með um tíma áður en hægt er að byrja að framleiða vöruna. Næsta skrefið hjá okkur verður líklega að bjóða upp á Frískamín, sem yrði ekki með A og D vítamín, en aðeins B og C. Það er hugsað fyrir þá sem vilja heldur fá sitt A og D vítamín í lýsi, en hafa svo Frískamín til að fá hin nauðsynlegu vítamínin. Verðið á Frískamíni út úr búð verður um 50 krónur fyrir 250 ml flösku. Fyrirtækið Lýsi hefur lengi selt lýsi til manneldis, og einnig svokallaðar „lýsis- perlur", en þær eru úr þorskalýsi, fljót- andi lýsi í glærri perlu úr matarlími. Lýsisperlur eru seldar út um allan heim, og hefur því verið um að ræða staðlaða framleiðslu á þorskalýsisperlum - en ekki úr ufsalýsi - því að ufsalýsi þekkist ekki erlendis. Ufsalýsi hefur örlítið sterkara vítamín, en hægt er að ná sömu áhrifum með því að taka aðeins meira af þorskalýsi. Þorskalýsi gott fyrir hjartað Baldur sagði að það hefði löngum verið vitað, að þorskalýsi lækkaði kól- esterólið í blóðinu. Það hefði verið staðfest. í rannsóknum í Bandaríkjun- um, sem reyndar hafa staðið í 10 ár, en nýlega hafa verið birtar niðurstöður hennar, er sannað, að hátt kólesterol í blóði eykur hættuna á hjartasjúkdóm- um. Því má segja að þorskalýsi sé sannarlega gott fyrir hjartað. Lýsi hf. selur lýsisperlur um allan heim, eins og áður er komið fram, en einnig til margra landa venjulegt lýsi og bragðbætt lýsi í neytendaumbúðum. Má nefna Norðurlöndin, Bandaríkin, - og meira að segja, sagði Baldur, er lýsi selt til Afríku, Tyrklands o.fl. landa. Hann sagði, að hjá fyrirtækinu væru mjög fullkomnar pökkunarsamstæður, sem gerðu það að verkum, að hægt væri að anna öllum erlendum pöntunum sem bærust. Hvað með ávaxta- og mintlýsið? Hvernig hefur því verið tekið? Það má segja að bragðbætta lýsið, hið svokallaða ávaxta- og mintlýsi, hafi kom- ið út sem viðbót við fyrri lýsissölu. Þarna var verið að höfða til fólks, sem vildi gjarnan taka lýsi, en hafði ekki treyst sér til að taka inn venjulegt lýsi. Margir komust upp á bragðið og héldu því áfram að taka ávaxta- eða mintlýsi, en þeir sem voru vanir ómenguðu lýsi sögðust ekki vilja skipta. Þeir vildu bara fá sitt lýsi eins og venjulega, en ekki neitt „bragðbætt sull“ eins og sumir kölluðu það. En auðvitað er það alveg sama lýsið, þó bragði sé bætt í það, sagði Baldur efnafræðingur að lokum. RÆKIU- 0G AV0CAD0 ■ Þetta Ijúffenga salat er líklega heldur af dýrari sortinni, því að í því eru rækjur, avocado-ávextir og iceberg- salat. o.fl. Rækjur fást frosnar í flestum matvöruverslunum, en aftur á móti getur verið tafsamara að fá avocado-ávexti og iceberg-salatið, en þó getur Heimilistím- inn upplýst, að í Blómavali við Sigtún er hvort tveggja til. í þessa uppskrift (fyrir 4) þarf: 1 stk iceberg-salat (1 höfuð) 450 g rækjur 1 stór avocado-ávöxtur 'A hluti af agúrku (niðursneidd) 8 stk radísur (má sleppa) 1 sítróna (niðursneidd) Aðferðin við að búa salatið: Rífðu ytri blöðin á salathöfðinu í smáræmur og fóðraðu innan djúpan disk eða skál sem salatið á að vera í. Skerið það sem eftir er af iceberg-salatinu í bita. Skerið avocado-ávöxtinn í bita (eins og sést á myndinni). Radísurnar sneiddar og rækjurnar settar í miðjuna á salatskálinni, en agúrkusneiðarnar í kring. SALATSOSA 2 'h dl mayonnaise og út í hana er bætt 2 matsk. af söxuðum ansjósum (eða sardínum í olíu), söxuð péturselja (parsley) sett út í, og eins og matskeið af graslauk (eða smásöxuðum venju- legum lauk), ein matskeið af borðediki (tarragon) og matskeið af sítrónusafa og 'h rif (kramið) af hvítlauk. Allt hrært vel saman og haft sér í sósuskál með salat- inu, eða hellt yfir það, ef vill. -SALAT ■ Þetta salat á að vera nóg í forrétt handa f jórum. Gott er að bera ristað brauð með.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.