Tíminn - 25.02.1984, Síða 18
18
skák
Texti: Jón Guðni
9. umferð:
HELGI OG LOBRON TEFLDU
SKÁK KVÖLDSINS
XI.
REYKJAVIKUR
l/SKÁKMÓTIÐ\J
y
Þar sem Margeiri Péturssyni tókst
að vinna biðskák sína við de Firmian
frá 8. umferð kom það í hans hlut að
tefla við efsta mann mótsins, Jóhann
Hjartarson í 9. umferðinni í gærkvöldi.
Skák þeirra lauk með jafntefli eftir
stutta en snarpa viðureign.
Það var hins vegar skák Helga
Ólafssonar og þýska stórmeistarans
Lobrons, sem hélt hug áhorfenda
föngnum raeðan á allri 9. umferðinni í
gærkvöldi stóð. Helgi fórnaði snemma
peði, sem Lobron þáði, og fékk Helgi
í staðinn opna línu og peðið til baka.
Lobron svaraði sókn Helga á drottn-
ingarvæng með kóngssókn og lengi vel
virtust báðir ramba á einstig, skákin
varð afar tvíbent og smávægilegustu
mistök gátu þýtt liðstap, eða hreinlega
mát fyrir báða. Lobron tefldi skemmti-
lega í tímahrakinu, en skákin fór í bið
og voru menn sammála um að staða
Helga væri betri, en hvort hún er unnin
skal ósagt látið. Það var þó fullyrt í
skákskýringasalnum af valinkunnum
skákmönnum að svo væri. En staðan
er svona:
Hvítt Helgi
Þetta er gífurlega mikilvæg skák
fyrir Helga, bæði með tilliti til mögu-
leika hans til að berjast til sigurs eða
fyrir einhverju af toppsætunum í mót-
inu og einnig með hliðsjón af mögu-
leikum hans á að ná í stórmeistaraá-
fanga út úr mótinu, sem hann stefnir
auðvitað að. Lobron er stigahár stór-
meistari og vinni Helgi skákina hefur
hann unnið þrjá stórmeistara á mótinu
og áfanginn er í augsýn.
Gæfan hefur hins vegar ekki verið
jafn hliðholl Jóni L. Árnasyni sem
stendur í sömu baráttu og Helgi, hann
tefldi sína fyrstu skák við stórmeistara
á mótinu til þessa í gær og verður að
segjast að niðurröðun keppenda hefur
verið honum mjög í óhag. Jón tefldi
við Reshevsky í gærdag löngu áður en
9. umferðin hófst hjá öðrum keppend-
um, því að skákinni varð að vera lokið
áður en sabbatsdagur hins strangtrú-
aða gyðings gekk í garð. Hún endaði
með jafntefli og veit undirritaður ekki
hvernig hún gekk fyrir sig.
Guðmundur Sigurjónsson tefldi af
grimmd að þessu sinni og vann Meyer
snyrtilega, Meyer þessi hefur farið
hinar mestu hrakfarir fyrir íslending-
unum. Gæfan sneri ekki bakinu við
Karli Þorsteins, hann átti tapaða stöðu
gegn Zaltsman, en Zaltsman féll á
tíma áður hann gat innbyrt vinninginn
og Karl slapp með skrekkinn með
heilan vinning í pokahorninu. Um
1
önnur úrslit í gær geta menn lesið hér
á töflunni.
Jóhann Hjartarson er enn efstur
með 7 'h vinning, næstir koma Mar-
geir, Reshevsky og Schneider með
6 vinning, þá de Firmian, Helgi, Jón
L. Árnason, Geller, Karl Þorsteins og
Shamkovic.
10. og næstsíðasta umferðin hefst kl.
14.00 í dag á Hótel Loftleiðum.
Jóhann Hjartarson—Margeir Pétursson V2-l/i
Samuel Reshevsky—Jón L. Árnason 'h.-'-h.
Helgi Ólafsson—E. Lobron bið
L. A. Scneider—N.De. Firmian 1-0
TomWedberg-E.Geller 0-1
LarryChristiansen-AxelOrnstein 1-0
HansRee—Y.Balashov V2-V2
LShamkovich-V. McCambridge 1-0
KarlÞorsteins—V.F.Zaltsman 1-0
P.Ostermeyer-R.Byrne 1-0
M. G. Chandler-M.Knezevic 1-0
D.King-FriðrikOlafsson bið
H. Schiissler—L. Gutman 1-0
L.AIburt-G.Taylor 1-0
H.Meyer-GuðmundurSigurjónsson 0-1
PiaCramling—J.M.Nykopp bið
JonnyHector-RóbertHarðarson 0-1
Carsten Höi—Ásgeir Þ. Árnason V2-V2
Benedikt Jónasson - Haukur Angantýsson 0-1
Elvar Guðmundsson - Hilmar Karlsson 0-1
K. Burger—Bragi Halldórsson bið
Sævar Bjarnason - Bragi Krist jánsson 0-1
K.Tielemann—Magnús Sólmundarson 1-0
Dan Hansson—Benóný Benediktsson bið
Guðmundur Halldórsson—Pálmi Pétursson bið
Halldór G. Einarsson—Lárus Jóhannesson bið
Ágúst Karlsson - Þröstur Bergmann xh-xh
Björgvin Jónsson - Andri Áss Grétarsson 1-0
Gylfi Þórhallsson - Haraldur Haraldsson bið
LeifurJósteinsson-ArnórBjörnsson 0-1
LAUGARDAGUR 25. FEBRUAR 1984
Kvikmyndir
Lásby mykjudreifarinn og haug
dælan eru ódýrustu tæki sinnar
markaðnum!
|Við hjá Glóbus völdum mykjudreifara og haugdælur frá danska fyrirtækinu Lásby eftir
að hafa aflað tilboða og upplýsinga frá yfir fjörutíu framleiðendum slíkra tækja.
Það sem réði úrslitum var þetta:
- Lásby-tækin eru mjög vel smíðuð og einföld að allri gerð.
- Lásby-mykjudreifarinn er á stórum dráttarvéladekkjum.
- Lásby-tækin eru á sérlega hagstæðu verði.
- Lásby-tækin hafa reynst frábærlega vel í Danmörku, - t.d. notar þriðji hver danskur
bóndi Lásby-mykjudreifara.
4000 lítra Lásby-mykjudreifarar eru nú fyrirliggjandi, stærri tanka útvegum við með
stuttum fyrirvara.
Verð kr. 83.300.-. Góðir greiðsluskilmálar.
Haugdæla sem afkastar 5-8000 lítrum á mínútu.
Verð kr. 56.000.-. Góðir greiðsluskilmálar.
Nýju tækin eru til sýnis í sýningarsalnum að Lágmúla 5.
G/obus■/
LÁGMÚLI 5. SÍMI 81555
Sími 78900
SALUR 1
Enginn jafnast á viö James Bond
007, sem er komínn aftur i heim-
sókn. Hér á hann i höggi við hinn
kolbrjálaða Goldfinger, sem sér
ekkert nema gull. Myndin er fram-
leidd af Broccoli og Saltzman.
JAMES BOND ER HÉR í TOPP
FORMI.Aðalhlutverk: Sean Conn-
ery, Gert Frobe, Honor
Blackman, Shirley Eaton, Bern-
ard Lee.
Byggð á sögu eftir lan Fleming.
Leikstjóri: Guy Hamilton
Sýnd kl. 2.50, 5, 7.05, 9.10 og
11.15
SALUR2
CUJO
Splunkuný og jafnframt stórkostleg
mynd gerð eftir sögu Stephen
King. Bókin um Cujo hefur verið
gefin út i milljónum eintaka viðs
vegar um heim og er mest selda-
bók Kings. Cujo er kjörin mynd fyrir
þá sem una góðum og vel gerðum
spennumyndum
Aðahlutverk: Dee Wallace,
Christopher Stone, Daniel
Hugh-Kelly, Danny Pinatauro
Leikstjóri: Lewis Teague
Bönnuft börnum innan 16 ára
Sýnd kl. 5,7,9.10,11.15
Hækkað verö
Skógarlíf
Sýnd kl. 3
SALUR3
Daginn eftir
(The Day After)
Heimsfræg og margumtöluð stór-
mynd sem sett hefur allt á annan
endann þar sem hún hefur verið ■
sýnd. Fáar myndir hafa fengið eins
mikla umfjöllun í fjölmiðlum, og
vakið eins mikla athygli eins og
THE DAYAFTE'R.
Aðalhlutverk: Jason Robards, Jo-
beth Williams, John Cullum,
John Llthgow.
Leikstjóri: Nicholas Meyer.
Sýnd kl. 5,7.30 og 10
Dvergarnir
Sýnd kl. 3
SALUR4
Segðu aldrei
aftur aldrei
' Hinn raunverulegi James Bond'
er mættur aftur tii leiks i hinni
splunkunýju mynd Never say nev-
er again. Spenna og grín í há-
marki.
Aðalhlutverk: Sean Connery,
Klaus Maria Brandauer, Barbara
Carrera, Max Von Sydow, Kim
Basinger, Edward Fox sem „M“.
Byggð á sögu: Kevin McClory,
lan Fleming. Framleiðandi: Jack
Schwartzman. Leikstjori: Irvln
, Kershner. Myndin er lekin í
Dolby Sterio.
Sýnd kl. 2.30,5,7.30 og 10