Tíminn - 25.02.1984, Síða 20
Opið virka daga
9-19.
Laugardaga 10-16
H
HEDD
Skemmuvegi 20 Kopavogi
Simar (91)7 75 51 & 7 80 30
Varahlutir
Mikiö úrval
Sendum um land allt
Ábyrgö á öllu
Kaupum nýlega
bíla til niðurrifs
5AMVINNU
TRYGGINGAR
&ANDVAKA
ARMULA3 SIMI 81411
Hitstiorn Bb.iOO- Auglysmgar 18300- Afgreiðsla og ssk-ift S6300 - Kvotdsimar 8638 7 og 86306
<6
t
w
abriel
HÖGGDEYFAR
riamarshöfða 1
u QJvarahlutir .STSE:
Laugardagur 25. febrúar 1984
■ Starfsmenn álversins í Straumsvík komu
undirritaðvarhjáríkissáttasemjara um morguninn.
starfsmannafundar kl. 13.30 í gær til að ræða samkomulagið sem
Tímamynd Árni Sæberg
Starfsmenn í ISAL samþykktu nýjan kjarasamning:
TUUÐRUNIBÓNUS-
■ ■
MALUM SMPT1SKOPUM
Loðnuverð
lækkar um 8%:
Kaupendur
sögðu því
upp strax
■ Þetta verð er langt frá því
sem við getum sætt okkur við
miðað við markaðsaðstæður.
Enda sögðum við því upp um
leið og búið var að ákveða
það,“ sagði Jón Reynir Magnús-
son, forstjóri SQdarverksmiðja
ríkisins og fulltrúi í yfimefnd
Verðlagsráðs sjávanítvegsins,
sem í gær ákvað nýtt loðnuverð
sem felur í sér 8% lækkun frá
fyrra verði.
Nýja verðið var ákveðið með
atkvæðum sjómanna, útvegs-
manna og oddamanns frá Þjúð-
hagsstofnun gegn atkvæðum
fulltrúa kaupenda. Gildir það
frá og með 11. febrúar síðast-
liðniun og er uppsegjanlegt frá
og með 2. mars næst komandi
með funm daga fyrirvara. Mun
því enn fundað um loðnuverð
næstu daga.
-Sjó.
■ Kjaradeilunni í álverinu í
Straumsvík lauk kl. 10.00 í
gærmorgun þegar fulltrúar hlut-
aðeigandi verkalýðsfélaga og
ISAL undirrituðu samning. Þá
hafði samningafundurinn staðið
frá kl. 13.00 daginn áður. Sam-
komulagið var undirritað með
venjulegum fyrirvörum en starfs-
menn álversins samþykktu sam-
komulagið á starfsmannafundi í
gær.
Helstu efnisatriði samningsins
eru þau að laun hækka um 5%
við undirritun, um 2,5% þann
13. apríl 1984, um 2,5% þann
14. september 1984 og lokst um
3% þann 1. janúar 1985. Samn-
ingurinn gildir til 31. mars 1985
og eru launaliðir samningsins
uppsegjanlegir miðað við 1. sept-
ember 1984 og 1. janúar 1985.
Auk launahækkana var gert
samkomulag unr nýtt framleiðni-
og framleiðsluhvetjandi kerfi,
Álhvata, svo og iagfæringar á
framleiðnihvetjandi kerfi sem
fyrir var. Einnig var samið um
hækkún starfsmanna í neðstu
flokkum launakerfisins.
Þegar samninganefndir komu
saman á fimmtudagskvöld var
ákveðið að setið yrði þangað til
samningar næðust enda var mik-
ið í húfi. Samkvæmt heimildum
Tímans fengu starfsmenn fram
breytingar á bónusmálunum frá
því sem áður hafði verið. Bónus-
greiðslur Álhvatans voru áður
miðaðar við 83.500 og 84000
tonna framleiðslu en eru nú
miðaðar við 85000 tonna fram-
leiðslu. Það hefur í för með sér
að laun geta með þessu hækkað
um 8,2% í stað 6,2% áður.
Lagfæringarnar á því framieiðni-
hvetjandi fyrirkomulagi sem
fyrir var felast í því að ársfjórð-
ungslegur kaupauki hækkar úr
7% í 8.3%.
Hafist var handa við að auka
straum til keranna í gær en hann
var lækkaður fyrir viku. Sam-
kvæmt heimildum Tímans mun
það framleiðslutap sem straum-
lækkunin hafði í för með sér vera
innan við 1000 tonn.
- GSH
BJÖRGUNARAÐGERÐUM VIÐ
SANDEYIIHALDIÐ ÁFRAM
■ „Við höldum áfram þangað
til skipinu verður komið á réttan
kjöl. Hvort það verður núna um
helgina eða yfirleitt hvenær það
verður er ómögulegt að segja,“
sagði Kristinn Guðbrandsson,
forstjóri Björgunar hf, þegar
Tíminn ræddi við hann um að-
gerðir til að ná Sandey II, sem
eins og kunnugt er liggur á hvolfi
við austanverða Engey, á réttan
kjöl.
Kristinn sagði að ómögulegt
væri að gera sér grein fyrir því
hvort borgaði sig að gera við
skipið eftir að það næðist á flot.
Hins vegar sagðist hann gera sér
nokkrar vonir um að eitthvað af
tækjabúnaði um borð væri heil-
legt , en þar er meðal annars um
að ræða sanddælubúnað sem eig-
endur Björgunar hafa þróað í
áranna rás og er nokkuð verð-
mætur. _ Sjó. •
dropar
Ósvikinn Hafna-
fjarðarbrandari
■ Ólyginn sagði Dropateljara,
að samningur hafi um þó nokk-
um tíma legið fyrir í álversdeil-
unni þar sem m.a. hafi veríð
samið um að taka skuli upp
fjögurra daga vinnuviku. Sam-
komulag hafi hins vegar alltaf
strandað á Hafnfirðingum. Þeir
hafi talið útilokað að missa þann-
ig 1 matartíma og 2 kafiitíma í
hverri viku.
Samgönguráð-
herra vann
■ Þeir vom margir hálfgrænir
á svipinn á kynningarkvöldi
þýskra daga á Hótel Loftleiðum
í fyrrakvöld, þegar dregið var í
happdrætti kvöldsins, en þar var
aðalvinningurinn að sjálfsögðu
Þýskalandsferð. Grænleiki and-
litsins var tilkominn af hinni
gamalkunnu, rótgrónu and-
styggðarkerlingu, öfund. Hverj-
um skyldi svo öfundin hafa beinst
gegn? Jú, engum öðmm en hon-
um Matthíasi Bjamasyni, sam-
gönguráðherra landsins, sem var
heiðursgestur kvöldsins ásamt
fleiri sjálfstæðisráðhermm og
mikilmennum. Öfundin var til-
komin vegna þess að Matthías
var svo Ijónhcppinn að hreppa
aðalvinning happdrættisins,
Þýskalandsferðina - og fannst
ýmsum sem þarna væri um stór-
skondna tilviljun að ræða, en
öðmm fannst sem samgönguráð-
herra gæti ekki verið þekktur
fyrír að þiggja vinninginn. Ráð-
herra þáði vinninginn með bros á
vör og Dropar segja bara: Góða
ferð Matthías.
Borgarstjóri ekki
jafn broshýr og
samgönguráð-
herra
■ Það vakti nokkra kátínu
þeirra sem fylgdust með þeim
hávirðulega atburði á áður-
nefndu Þýskalandskynningar-
kvöldi að borgarstjóri vor, Davíð
Oddsson, var meðal gesta, og var
fenginn til þess að sitja fyrir,
ásamt borgarstjóra Daun, smá-
borgar í Eifel í Þýskalandi. Það
að þeir sátu saman fyrir, var ekki
svo fyndið, heldur hitt, að þýski
Hæstiréttur dæmir konu á Ólaf sf irði
BÓTASKYLD FYR-
IR ÍKVEIKJU
í BÍLSKÚR NÁ-
GRANNA SÍNS
— hafði áður verið sýknuð í
sakadomi af ákæru vegna þessa
■ Hæstiréttur hefur dæmt
konu á Ólafsfiröi skaðabóta-
skylda vegna íkveikju sem hún
er talin hafa verið völd að í
böskúr nágranna síns. í fógeta-
rétti Ólafsfjarðar var konan
sýknuð af skaðabótakröfunni
þar sem ekki var talið fullsann-
að að hún hefði verið völd að
íkveikjunni. Skaðabótakrafan
hljóðaði upp á rúmlega 61.000
krónur auk vaxta frá 2. mars
1979.
Eldsvoðinn varð aðfaranótt
2. mars 1979 ki. 3.00. í dómn-
um cru málavextir raktir, m.a.
að greinileg sporslóð var frá
húsi stefndu að glugga á bíl-
skúrnum, sem sett hafði verið
fyrir einangrunarpiast.cn elds-
upptök voru talin vera innan
við þann glugga. Þá fannst
einnig eldfimt efni í brúsum á
heimili stefndu og peysa í
sorppoka sem angaði af bens-
íni.
Við yfirheyrslur kom í ljós
að mikil órcgla hafði verið á
stefndu og eigínmánni hennar
og þau voru bæði drukkin þeg-
ar þessi atburður átti sér stað.
Mikið ónæði var vegna drykkju-
láta hjónanna og því litlir kær-
leikar millí þeirra og nágranna.
Konan gat ekki gefið senni-
legar skýringar á sporslóðinni,
sem sannanlega var eftir
hana. Hún sagðist hafa gengið
að bíiskúrnum þegar hún sá
eldinn.en frásögn hennar um
að hún hafi farið aiveg að'
skúrnum eftir að eldurinn var
kominn á það stig sem hún vill
vera láta.er að mati Hæstarétt-
ar fjarstæðukennd. Þá hafa
skýringar hennar á peysunni
verið ósennilegar, en hú hélt
því fram að hún hafi strokið
yfir gólf með henni til að ná úr
blettum.
í dómi Hæstaréttar segir að
ekkert bendi til þess að eids-
voðinn hafi orðið út frá raf-
magni eða um sjálfsíkveikju
hafi verið að ræða. Allt hnígur
því að því að upptök eldsins-
haft verið af mannavöldum og
berast böndin að stefndu og
henni einni.
„Þegar framangreind atriði
eru virt í heild, þykir eigi
varhugavert að telja sannað að
stefnda hafi valdið eldsvoðan-
um. Berhenni því að bæta það
tjón sem af honum hlaust,“
segir orðrétt í dómnum)
Hæstaréttardómararnir
Magnús Þ. Torfason, Björn
Sveinbjörnsson, Guðmundur
Jónsson, Halldór Þorbjörns-
son og Magnús Thoroddsen
kváðu upp dóminn. Magnús
Thoroddsen skílaði sératkvæði
þar sem segir að þó ýmislegt
bendi til þess að eldsvoðinn
hafi hlotist af íkveikju af völd-
um stefndu sé orsök hans ekki
fylliiega sönnuð og stefnda
synjar fyrir að hafa verið þar
að verki. Því eigi að staðfesta
hinn áfrýjaða dóm.
Þess má gcta að konan hafði
áður verið sýknuð fyrir saka-
dómi á Ólafsfirði af ákæru ufn
að hafa kveikt í bíiskúmum.
-GSH
SKAFTAMÁLIÐ ÞINGFEST í L0K MARS
■ Sverrir Einarsson saka-
dómari mun dæma í svoköll-
uðu Skaftamáli fyrir Borgar-
dómi Reykjavíkur og sagði
hann í samtali við Tímann að
málið yrði þingfest þann 27.
mars n.k.
borgarstjórinn sem er fremur há-
vaxinn og grannur skyldi beina
þeim orðum til aðalhúmorista
landsins, borgarstjórans í
Reykjavík, að nú sætu tveir borg-
arstjórar fyrir, sem væru ólíkir að
gerð, - annar væri stór (hann
benti á Davíð, svona miðsvæðis)
en hinn væri lítill (og hann benti
á sjálfan sig). Davíð húmorista
fannst þetta hins vegar ails ekkert
fyndið, svo veslings kollegi hans
frá Þýskalandi fór í köku og
reyndi að snúa sig útúr annars
ágætum brandara og bætti við að
Davíð væri borgarstjóri 100 þús-
und manna en hann sjálfur bara
22 þúsunda.
Krummi ..
...heyrir að Albert ætli að kaupa
Rammagerðina...!