Tíminn - 13.03.1984, Blaðsíða 4
ÞRIÐJUDAGUR 13. MARS 1984
4______
fréttir
Guölaugur Friðþórsson á Hellisey VE-503
bjargaðist með ótrúlegum hætti:
■ Guðlaugur þurfti að klifra kletta úr fjörunni og ganga síðan drjúga stund í grýttu nýju apalhrauninu, berfættur. Tímamynd: Róbert.
JUBLdÐOGUR A FDIUM OG HðND-
UMOGVAR GRBNILEGA ðRMAGNA”
Frá Guðmundi Hermannssyni, frétta-
manni Tímans í Vestmannaeyjum:
■ Guðlaugur Friðþórsson, 22 ára sjó-
maður úr Vestmannaeyjum, bjargaðist
með ótrúlegum hætti eftir að bátur hans,
Hellisey VE S03, sökk um 3 sjómílur
austur af Heimaey seint í fyrrakvöld.
Fjögurra skipsfclaga hans, sem allir eru
ungir menn, er enn saknað þrátt fyrir
mikla leit.
Guðlaugi tókst að synd í land, rúmlega
Fimm kílómetra vegalengd og ganga
síðan um tveggja kflómetra vcgalcngd
að nokkru leyti yfir hraun á Heimaey
austanverðri og gat gert vart við sig rétt
fyrir klukkan 7 í gærmorgun.
Hellisey var á togveiðum á svokölluðu
Leddi, sem er um 3 sjómílur austur af
Heimaey. Þar er hraunbotn og mikil
hætta á festum og talið er að trollið hafi
festst í botni og skipið oltið og sokkið
fyrirvaralaust. Ekkert neyðarkall barst
frá skipverjum og hafði Tilkynninga-
skyldan engar spurnir af þeim klukkan
22 og 24 á sunnudagskvöldið. Öðru
hvoru var reynt að kalla skipið upp en
án árangurs og fréttist því ekkert af
skipinu fyrr en Guðlaugur náði byggð
um klukkan 7 í gærmorgun.
Óskiljanlegt þrekvirki
„Það er óskiljanlegt hvernig maðurinn
hefur farið að þessu,“ sagði Atli
Elíasson, Suðurgerði 2 í Vestmannaeyj-
um, en það var húsið sem Guðlaugur
kom að í gærmorgun eftir að hafa synt
þriggja mílna leið í land í köldum'sjó og
veðri. Hann k om í land nálægt Prestavík
í Nýja hrauninu á móts við það sem fyrir
gos voru kallaðar Flögur. Guðlaugur
þurfti að klifra upp kletta frá fjörunni og
ganga drjúgan spöl á nýju apalhrauni,
berfættur. Síðan tók við löng aflíðandi
— segir Atli Elíasson, sem fyrstur kom ad Gudlaugi
eftir að hann hafði unnid sitt einstaka þrekvirki
brekka á milli Helgafells og Eldfells og um tveggja kílómetra leið. var á dyrnar. Ég sendi son minn til dyra. dyrum. Þar stóð Guðlaugur. Mér að
loks hallar niður í byggð. Alls er þetta „Klukkan var að verða sjö þegar barið Hann kom fljótlega og sótti mig fram að sjálfsögðu brá ónotalega - hann var
■ Hér má sjá leiðina sem Guðlaugur gekk milli Helgafells og Eldfells og aflíðandi brekkuna niður að húsi Atla Elíassonar að Suðurgerði 2.
4