Tíminn - 13.03.1984, Blaðsíða 6

Tíminn - 13.03.1984, Blaðsíða 6
6 Wrmm ÞRIÐJUDAGUR ». MARS1984 ■ Hér gefsl okkur tækifæri til að sjá hvernig 2.713 bollar al' tei taka sig út. ■ Tony Murray fagnaði sigr- inum með tesopa. En hann segist ekkert vilja hafa saman við te að sælda í bráð, þó sé skárra að drekka það en laga það. búinn að fá nóg af tei um alla cilífö. „Aldrei framar skal ég laga te lýsti hinn nýbakaði meistari yfir, en hann er aðeins 8 ára. A hverjum morgni í hálfan mánuð kl. 5.30 var Tony búinn að taka sér stöðu á götuhorni í nánd við útimarkað, þar sem salan fer fram af hjólbörum. Þar stóð hann með teið sitt og veitti starfsmönnum markaðarins ó- keypis tesopa. þegar þeir voru á leið í vinnuna. Með þessu fram- taki sínu var Tony að taka þátt í tegerðarsamkcppni, sem enska „Teráðiö" efndi til. Að hálfum mánuði og 2.713 bollum liðnum þótti augljóst, að hann hafði borið sigur úr býtum í keppninni. ■ Hér sjáum við Eríku við blómasöluna á torgi í Bern Barbra Streisand og Pierre Trudeau í vangadansi. LENGIUFIR ÍGÖMLUM GUEÐUM ■ Það er langt síðan að fyrst heyrðist orðrómur um að Trude- au, forsætisráðherra í Kanada, og hin fræga leik- og söngkona Barbra Streisand væru hrifin hvort af öðru. Vinskapur þeirra hefur haldist í gegnum árin, þótt þau hafi ekki átt samleið í lífinu. Ljósmyndari, sem komst inn á fínan skemmtistað í New York til að ná myndum, þótti sem hnifur sinn hefði heldur betur komist í feitt, þegar hann sá þau Streisand og Trudeau í hátíðleg- asta kvöldklæðnaði dansandi vangadans eins og nýtrúlofuð. Hann var ekki lengi að beina myndavélinni að hinu fræga pari og náði mörgum góðum myndum, og hér sjáum við tvær þeirra. A myndunum sjáum við hina glæsilegu hárgreiðslu Streis- ands, sem vakti mikla athygli, því að fólk var að velta því fyrir sér hvort fyrrv. sambýlismaður hennar, Jon Peters hárgreiðslu- meistari, hefði greitt henni svona vel, eða hvort hún hefði fengið sér nýjan hárgreiðslumeistara. Nýlega var Barbra Streisand boðið að sjá um 90 mínútna' sjónvarpsþátt fyrir CBS-sjón- varpsstöðina, og átti hún að fá milljón dollara fyrir. Hún neitaði tilboðinu, og stjórnendur stöðv- arinnar sögðu, að í svarí hennar hefði verið tekið fram „að hún hefði ekki neinn áhuga á að vinna fyrir sjónvarpið - ekki fyrir nokkurn pening.“ „ALDREl FRAM- ARSKALÉG LAGATE“ ■ Eftir að hafa lagað 2.713 Tony Murray yfirlýstur meistari bolla af tei var enski skátinn á sínu sviði. En þá var hann líka viðtal dagsins ■ Jóhann Þórir Jónsson. Tímamynd Ella. LANDSBYGGDARSTEFNA Á RÉTTUM KIU — rætt vid Jóhann Þóri Jónsson um alþjóðleg skákmót ■ Fyrsta alþjóðlega skákmótinu sem haldið er á íslandi, utan Reykjavíkur er lokið og n.k. mánudag hefst það næsta, og verður það haldið á Neskaupstað. Það er Jóhann Þórir Jónsson sem er drifkrafturinn á bak við þessi mót, eins og ýmislegt fleira í skáklífi hérlendis og raunar erlendis líka. „Það er nokkurn veginn Ijóst hverjir verða með á Neskaupstað," sagði Jó- hann í spjalli við blaðið í gær. „Meðal þeirra eru Lombardy, Knezevic og McCambridge, Guðmundur Sigurjóns- son, Margeir Pétursson, Helgi Ólafsson, Jón L. Arnason, Jóhann Hjartarson, Elvar Guðmundsson, Dan Hansson, Benóný Benediktsson og auk þess erum við aö leita uppi Svía eða Dana með 2400-2500 skákstig. Þetta verður 12 manna mót og jafnsterkt og Búnaðar- bankamótið og Grindavíkurmótið."

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.