Tíminn - 13.03.1984, Page 12

Tíminn - 13.03.1984, Page 12
16 ÞRIÐJUDAGUR 13. MARS 1984 Veröld samræmis og fegurðar ■ Þjóðleikhúsið: íslenski dansflokkur- inn, - Öskubuska Tónlist eftir Serge Prokofév. Frumsýning á nýrri gerð með leiksögu eftir Yelko Yurésha og er hann jafnframt dansahöfundur og stjórnundi, sá um leikmynd, búninga og lýsingu. Yfirumsjón með dönsum: Belinda Wright. Það var gaman í Þjóðleikhúsinu að kvöldi öskudags þegar Islenski dans- flokkurinn frumsýndi Öskubusku. Sýn- ingin var falleg, lipur og ásjáleg í hvívetna, og má þakka það hinum júgóslavneska stjórnanda, svo og því auðvitað að hér er nú að vaxa úr grasi sveit atvinnumanna í ballett, en íslenski dansflokkurinn minntist fyrir skömmu tíu ára afmælis síns. Ballett er fögur list, og Öskubuska hugtækt verkefni. Mikinn þátt í því á tónlist Prokofévs, svo létt og heillandi sem hún er. Ævintýrið um Öskubusku þekkjum við öll úr Grimmsævintýrun- um, en hér er byggt á gerð þess eftir Perrault sem mér er annars ekki kunnur. Rómantísk fegurð ævintýrisins birtist okkur hér í hinu sjónræna formi „hreyfi- listar“, í klassískum þokka sínum. „Prokofév hefur lýst því að ballettinn um Öskubusku hafi þrjú mcginstef eða þemu", segir í leikskránni, „fyrst sorgog í þegar við meðtökum söguna góðu um Öskubusku og hamingjudraum hennar- og hversu hann rættist. Látum okkur einu gilda þótt ævintýramórallinn eigi ekki lengur upp á pallborðið í okkar skáldskaparsnauða heimi. Hér veltur allt á því hvernig tekst að bregða upp heillegri mynd þar sem allt lúti einni heildarsýn: hreyfing, umgerð, tónlist, samspil dansaranna. Og ekki var annað að sjá en þetta tækist bærilega í Þjóð- leikhúsinu á miðvikudagskvöldið. Fjöldi dansara kemur fram í Ösku- busku, og verður ekki farið út í að telja þá alla hér. Nefna má þó nokkra sem mest mæddi á: Ólafía Bjarnleifsdóttir, Dísin góða; Auður Bjarnadóttir, Sumar- dísin og Birgitta Heide og Ingibjörg Pálsdóttir, stjúpsysturÖskubusku. Allar eru þær færir dansarar, að vísu misjafn- lega léttvígar. Á karldansarana reyndi mun minna og enda eru þeir færri, aðeins Örn Guðmundsson og Jóhannes Pálsson í sérgreindum hlutverkum. - Fjöldi fólks, börn og fullorðnir, koma auk þess við sögu og fannst mér hópsen- urnar yfirleitt vel og smekkvíslega á svið færðar. Eftir er að telja aðaldansarana. Ásdís Magnúsdóttir í hlutverki Öskubusku var stjarna kvöldsins, dansaði ísenn af létt- hrynjandi tónlistar og hreyfinga sem mvnda svo samræmda heild, hlýtur mað- ur að spvria siálfan sig: hvað er það sem dregur nútímafólk, börn hinnar sundr- uðu, æpandi og þverstæðufullu verald- undur er að fara með hiutverkaskipting- unni í lokin er ekki vel Ijóst, nema það sé til að undirstrika að kennarar og nemendur séu á sama báti. Enda er ein persónan skilgreind svo að hún sé „pæja sem þekkir varla kennara frá nemend- um.“ Ég verð að játa að „skólamála- umræða" vekur ekki mikinn áhuga hjá mér. En leikritið Aðiaðandi er veröldin ánægð þótti mér víða skemmtilegt og hnyttið, vel „spunnið" og frjótt viðfangs- efni hinum ungu leikendum. Hvernig væri að aðrir ungir höfundar vorir færu að dæmi Antons Helga og settu saman texta handa skólanemum, þreifuðu þannig á því hvaða lífsmagni textar þeirra eru gæddir? Sýningin við Sund bendir á leið sem gaman væri að prófa. Af amerískri sveitasælu Herranótt: OKLAHOMA Söngleikur eftir Rodgers og Hammerstein.Þýðandi: Óskar Ingimarsson. Leikstjóri: Kolbrún Halldórsdóttir. Leikmynd: Baltasar K. Samper. Á Herranótt hjá M.R. bregður annað við. í Tónabæ er sýnt amerískt músíkal víðfrægt, Oklahoma sem margir þekkja úr kvikmynd og Þjóðleikhúsið sýndi fyrir allmörgum árum. Ég fór loks á sunnudag í Tónabæ. Þetta er mannmörg sýning en leikhúsið slæmt. Sýningin fjörug sem skólasýninga er vandi. Eitthvað telur leikstjórinn sig þurfa að útskýra eða réttlæta valið: „Hvers vegna ætti saklaus skemmtun ekki að teljast leikhúsinu samboðin?" spyr hún í leik- skrá. „Er leikhúsið kannski eitthvert snobb apparat ætlað einhverri óskil- greindri menningar elítu?“ Sei, sei, nei. Hins vegar eru til leikrit sem bæði eru skemmtileg og áríðandi. Oklahoma upp- fyllir að mínum dómi rétt í meðallagi fyrri kröfuna en alls ekki þá seinni. En hvað um það: amerísk músíköl hafa gengið um allar jarðir og því þá ekki á skólasýningu í Reykjavík. Góða söngkrafta þarf í verkefni eins og Oklahoma, og fannst mér nokkuð Gunnar Stefánsson skrifar um leiklist niðurlægingu aðalpersónunnar, þá hreinleika hennar og dagdrauma og loks gleði hennar og ást.'Hann reyndi einnig að túlka aðalpersónurnar í tónlistinni „svo áhorfendum yrði ekki óviðkomandi mótlæti þeirra og gleði." Þá hefur hann sagt að það sem helst heillaði hann við efnið var ævintýrið í sögunni og kvikn- uöu t.d. af þessu Dísir árstíðanna og dansar þeirra, en þarna er líka að finna glens og grín eins og t.d. í stjúpsystrun- um.“ Bygging ballettsins er þannig afar föst og skipuleg, klassísk í formi í fyllsta mæli. Þessum anda verksins hefur stjórn- andinn verið trúr, leikmyndin öll úr þeirri ævintýraveröld sem við hrærumst æika, fimi og þokka, en hlutverkið krefst þess að leikið sé á marga strengi sem nærri má geta. Er ástæða til að fagna því hve glæsilegan dansara við höfum hér eignast. - Á móti henni í hlutverk prinsins var fenginn kunnur franskur dansari, Jean Yves Lormeau. Hann sveif um sviðið af mikilli kúnst, greini- lega þrautþjálfaður kunnáttumaður og samleikur þeirra Ásdísar víða einkar fallegur, ekki síst í lokaþættinum eins og vera bar. Áhorfendur tóku sýningunni með kostum og kynj um. Yelko Yurésha flutti að lokum stutt ávarp, lýsti ánægju sinni yfir árangri íslenska dansflokksins og brýndi menn til að sækja fram á þessu ■ Þeir, sem sótt hafa háskólatónleika í vctur, eru orðnir sterkir í blásaratónlist, því á 5 vikum hafa verið þrennir tónlcik- ar af þessu tagi: Tréblásarasextett I. febrúar, treblásararkvintett 15. febrúar, einleikur á klarinett með píanói 29. febrúar, og nú þann 7. marz kom brassblásarakvintett þeirra Lárusar Sveinssonar (tp), Jóns Sigurðssonar (tp), Þorkels Jóelssonar (hn), Williams Gre- gory (bs) og Bjarna Guðmundssonar (tb). Þessi kvintett héfur leikið næstum árlega á háskólatónleikum síðan 1980, en það ár var hann stofnaður, þótt nokkur mannaskipti hafi orðið í básúnu og horni á þessum tíma. Brassblásarak- vintett er í heimi tónlistarinnar að sumu leyti líkur kraftlyftingum í heimi íþrótt- anna, hljóðfærin eru öll raddsterk og dómínerandi, en koma hér saman sem jafningjar í tónverkum sem oft eru af dálítið sérstöku tagi með gamansömu ívafi. í þetta sinn léku þeir félagar tvö verk eftir bandarísk tónskáld, Vaclav Nelhybel (f. 1919), Tékka sem fluttist til New York árið 1957, og Arthur Fracken- pohl (f. 1924). Báðir eru þó Evrópu- menntaðir að hluta til a.m.k., en hvergi á blikk-blásaratónlist líklega auðveldara uppdráttar en í Bandaríkjunum, því þar rís hljóðfæraleikur af þessu tagi hæst að því sagt er. Þetta voru bráðskemmtilegir tónleikar og tónlistin að auki bráðfalleg á köflum, enda finnast varla göfugri samhljómar en í blikkinu - sumir telja raunar að hinn æðsta megi finna hjá Wagner með sex básúnur í kór. Allir felagar kvintettsins leika með Sinfóníuhljómsveitinni, og spiluðu af mestu prýði svo sem vænta mátti. Tónleikarnir voru allvel sóttir. Sumir hafa kvartað yfir því að tíminn sé óheppilegur, í hádeginu á miðviku- • dögum. En fyrir aðra hefur sá tími mikla kosu, enda er svo komið, að helgarnar eru fullsetnar tónleikum af öllu tagi og um allan bæ og þarflaust að auka þar enn á. Þrennir tónleikar eru nú eftir í þessari röð: nú á miðvikudaginn leikur Anna Málfríður Sigurðardóttir verk cftir Beet- hoven og Chopin, 21. mars flytja Mic- hael Shelton og Helga lngólfsdóttirsón- ötur eftir Jóhann Sebastían Bach, og loks spilar Einar Markússon á píanó 28. mars. 11.3. Sig. St. Sigurður Steinþúrsson skrifar um tönlist listsviði, - „í mínum augum er það engin þjóð sem ekki hefur ballett,“ sagði hann. Og satt er það: hversu miklu fátækara yrði ekki listalíf okkar, og starfsemi Þjóðleikhússins svipminni ef ballettinn hyrfi þar af fjölum. Enda er hann nú kominn í fast form, og á traustan grundvöll að séð verður. Þegar maður horfir á klassískan ballett eins og Öskubusku, hina formföstu Leikur í skóla og um skóla Blásaratónleikar ■ Talía, leiklistarsvið M.S.: AÐLAÐ- ANDI ER VERÖLDIN ÁNÆGÐ. Farsi um misskilning í menntaskóla. Handrit: Anton Helgi Jónsson, Leik- stjóri: Hlín Agnarsdóttir. Svo mikið er aðgerast í leiklistarlífinu að einn gagnrýnandi kemst ekki yfir það allt. Skólalcikrit framhaldsskólanna hafa meðal annars setið á hakanum. En mér þótti fróðlegt að sjá hversu tekist hefði að sérsemja leikrit handa nemendum við Sund. - Ekki síst af því þarna er um að ræða skóla leikrit í fyllstu merkingu, og það eftir ungan höfund sem hefur vakið á sér athygli með Ijóðum og skáldsögu sem votta góða frumleiksgáfu. Svo ég dreif mig á frumsýningu í M.S. á fimmtudagskvöld. Leikurinn gerist í skóla og lýsir kennslu sem þar fer fram í framkomu og snyrtisérfræði. Inn í þetta fléttast orð- ræðui kennara um nemendur og hlut- verk og stöðu hverra um sig. Lýkur svo að einn nemandinn er allt í einu orðinn kennari og reyndar ólétt eftir kennara sem reynst hefur lítill garpur þegar til alvörunnar kemur. En þetta er farsi eins og hér segir. Leikritið mun orðið upp úr „spuna“ undir stjórn Hlínar Agnarsdóttur, og Anton Helgi var fenginn til að semja brúklegan texta handa krökkunum. Þannig verður leiksýningin eðlilegur hluti náms og þjálfunar nemenda, ekki uppákoma sem til er stofnað til hátíða- brigða svo sem tíðast er um skólasýning- ar. Af þeirri ástæðu er þessi skólasýning við Sund eftirtektarverð, og ýmiss konar gaman mátti af henni hafa á fimmtudags- kvöldið. Það sem einkum var skemmtilegt var OPGL Opel er tákn vestur- þýskrar vandvirkni og kunnáttu. Tækni, sem þú getur treyst. BIFREIDADEILD SAMBANDSINS HÖFÐABAKKA 9 SÍMI 687300 GÆÐAEFTIRLIT MEÐ GÆÐAVORUM hversu skýrar og skemmtilegar týpur leikstjóra og handritshöfundi tókst að búa til. Kennslustundirnar í framkomu og snyrtisérfræði urðu einatt mjög lif- andi í meðförum leikenda. Brynja er kennarinn og hcfur þá kenningu, sem er auðvitað góð og gild, að allt lífið sé próf í framkomu og snyrtisérfræði. Þetta er stærsta hlutverk í leiknum og Soffía Gunnarsdóttir skilaði því skörulega og vel. Annars sé það fjarri mér að gefa leikendum einkunnir, þeir fá vísast nóg af slíku hvunndags. Aðeins skal frá því skýrt að allir skiluðu sínu af áhuga og góðum skilningi undir öruggri leikstjórn Hlínar sem nýtti í senn hina frumstæðu leikaðstöðu. áhuga og kraft leikendanna af útsjónarsemi. En ég var að nefna týpurnar. Þetta eru raunar stereótýpur sem sumar hverjar eru vinsæl skotmörk í seinni tíð: Sperr- ingur Framason sem ætlar sér auðvitað mikinn hlut í viðskiptalífinu. Friðþjófur Hermannsson stud. kúr sem ekki hugsar um annað en skyndipróf, Gæfa, vinstri sin n i, Vala kjarnorkuandstæðingur, Vera, félagi í raunkvennasamtökunum sem tekur flest sem árás á kvenfólk. Svo er Heimskringla Snorradóttir bókmenntahönnuður, Ósk Eilífs frá leitendasamtökunum, aðdáandi hinnar jákvæðu brosmildu lífsafstöðu. Allt verða þetta skýrar farsamanngerðir og textinn víða hnyttinn, liðlegur: Anton Helgi hefur ótvíræða kunnáttu, sem áður er fram komið, til að búa til skopgervinga. En hann vill gjarnan blanda mjöðinn og af því kemur líklega Sóley, hin ástfangna unga kona sem tekur flest til sín persónulega: það er hún sem að lokum gengur inn í hlutverk kennarans. Kennari: nemandi. Þetta er ósköp eðlilegt viðfangsefni í skólaleik, en ein- hvern veginn fannst mér kennararnir tveir sem sátu að tafli yfir höfðum leikendanna og áhorfendanna, dálítið utangátta. Annar er „frjálslyndur", hinn íhaldssamur og hefur áhyggjur af lægri standard í skólum. Þetta var heldur ófyndið, og ekki fannst mér sérlega vel heppnuð tengingin við persónuleg vandamál Kveiks kennara sem barnar nemanda (eða var það annar kennari), kveðst illa launaður og bendir stúlkunni á fóstureyðingu. Og hvað handritshöf-

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.