Tíminn - 27.03.1984, Blaðsíða 4
ÞRIÐJUDAGUR 27. MARS 1984
4
fréttir
Forsætisráðherra um bankamálafrumvarpið:
„HEHH VIUAD GANGA LEHGRA
HVAfi VARBAR FÆKKIIN BANKANNA”
■ „Ég tel margt í framvarpi banka-
málanefndarinnar vera athyglisvert, en
á hinn bóginn hefði ég viljað sjá gengið
lengra, svo sem hvað varðar fækkun
banka, en það held ég að sé nauðsynlegt
til þess að koma á hagkvæmari rekstrar-
einingum, en í þessu frumvarpi er ekki
tekið á því sem skyldi," sagði Steingrím-
ur Hermannsson forsætisráðherra er
Tíminn spurði hann í gær hvert hans álit
væri í frumvarpi bankamálanefndar um
breytta skipan bankamála hér á landi.
Forsætisráðherra sagðist vera því
hlynntur að Útvegsbankinn og Búnaðar-
bankinn væru sameinaðir og bætti við í
því sambandi: „að vísu þyrftu að fylgja
slíkri sameiningu tilfærslur á milli ríkis-
bankanna, en ég tel nóg að hafa ríkis-
bankana tvo.“ Fosætisráðherra sagðist
vona að ákvæðið um hlutafélagabank-
ana yrði til þess að þeir ættu eftir að
sameinast eitthvað og verða þar með
öflugri og hagkvæmari rekstrareiningar.
Aðspurður um álit á tillögum nefndar-
innar hvað varðar Seðlabanka íslands,
sagði forsætisráðherra: „Mér finnst sjálf-
sagt að Seðlabankinn greiði ríkissjóði
50% af hreinum arði. Það er gert mjög
víða, og ég hef alltaf verið fylgjandi því.
Hins vegar held ég að sumar tillögur,
eins og þær um frjálsa vaxtaákvörðun
viðskiptabankanna séu þess eðlis, að til
þess að framkvæma þær, þurfi verulegt
og strangt aðhald, því ég er ekki viss um
að við séum komin niður á þann verð-
bólgulausa hugsunarhátt sem nauðsyn-
legur er í því skyni. Það þyrfti hugsan-
lega ákveðinn aðlögunartíma, áður en
slíkt ákvæði tæki gildi.“
Forsætisráðherra sagðist að öðru leyti
ekki geta tjáð sig um frumvarpið, því
hann væri enn að kynna sér það.
-AB
utanáliggjandi
og innfelldir
í hringlaga dósir.
Sími 19840
Sendum í
póstkröfu
um land allt
Þénið meira
og vinnið erlendis
t.d. U.S.A. Canada, Saudi Arabía,
Venezuela o.fl. er óska að ráða til
skemmri eða lengri tíma: Iðnaðar-
menn, verkamenn, tæknimenn
o.fl. Sendið 2 alþjóðleg svarmerki
og fáið nánari upplýsingar.
OVERSEAS, DEPT. 5032
701 Washington Street,
Buffalo, New York, 14205, U.S.A.
■ Mæting varð ekki eins góð á seinni Dagsbrónarfundinum eins og þeim fyrrí.
DAGSERÚN
SAMÞYKWR
■ Nýir Dagsbrúnarsamningar voru
samþykktir á almennum félagsfundi á
sunnudaginn með öllum þorra atkvæða
gegn 8. Helstu atriðin umfram ASI og
VSÍ samning eru niðurfelling sérstaks
unglingataxta og flokkahækkanir til
þeirra sem starfað hafa yfir 15 ár hjá
sama atvinnurekenda. Einnig telja Dags-
brúnarmenn mikilvægt samningsatriði
að fyrir 1. sept. n.k. skuli unnið að
endurskoðun launauppröðunar Dags-
brúnarmanna í launataxta. á vegum
samstarfsnefndar beggja samningsaðila.
RÍKIÐ FELL-
URFRÁUNG-
LINGATAXTA
■ Fjármálaráðherra tilkynnti
BSRB í gær, að lágmarkstekjur
fyrir fulla dagvinnu skuii vera
12.660 kr. á mánuði fyrir alla
starfsmenn 16 ára og eidri, frá 1.
mars að telja. Sérstakur taxti
fyrir 16-18 ára starfsmenn, sem
samið var um í kjarasamningi
þann 29. febr. s.l. er þar með
ekki lengur í gildi.
L0KAT0LUR
HIÁBSRB
■ Lokið er talningu í allsherjar-
atkvæðagreiðslu BSRB um aðal-
kjarasamning samtakanna og
ríkisins. 11.997 voru á kjörskrá en
9682 kusu sem er 80,7% kjörsókn.
Já sögðu 5596 eða 57,8%, nei
sögðu 3846 eða 39,7%. Auðir
seðlar og ógildir voru 240.
Kosningin stóð yfir s.l. mánudag
og þriðjudag en meginþorri at-
kvæða var talinn á miðvikudags-
kvöldið. 300 atkvæði voru geymd
þar til ljóst var að öll atkvæði sem
voru send utan af landi í pósti
höfðu borist.
GSH.
MatthíasÁ.Matthésen,bankamálaráðherra:
„Ég er að kynna
mér f rumvarpið"
■ „Ég er enn að kynna mér frumvarpið og mun taka mér eðlilegan tíma til þess að
kanna þaðáður en ég gef upp afstöðu mína til þess, eða einstakra liða þess,“ sagði
Matthías Á. Mathiesen bankamálaráðherra er Tíminn spurði hann í gær hver skoöun
hans væri á frumvarpi bankamálanefndar um nýja skipan bankamála, sem nefndin
skilaði ráðherra sl. föstudag.
Ráðherra var spurður hver hans
skoðun væri á því ákvæði sem gerði ráð
fyrir að fasteignir megi ekki nema meiru
en 65% af eigin fé bankanna: „Mér
finnst eðlilegt að setja einhverja viðmið-
un í sambandi við þessa hluti, en ég hef
ekki myndað mér skoðun á því hver
rétta talan er.“
Samkvæmt heimildum Tímans þá
munu það vera tveir bankar nú í dag sem
ekki uppfylla þetta ákvæði, Verslunar-
bankin og Samvinnubankinn. Tíminn
spurði Matthías hvort þeir bankar sem
ekki myndu uppfylla þau skilyrði sem
sett yrðu, hvort sem það yrði 65% eða
önnur prósentutala af eigin fé, myndu
þurfa að fækka útibúum sínum, eða
hvort þetta viðmiðunarákvæði myndi
einungis gilda fram í tímann: „Banka-
málaráðherra sagði: „Þá fá bankarnir að
sjálfsögðu einhvern frest til þess að
aðlaga sig nýjum kröfum sem settar
verða í slíkri löggjöf.“
-AB
Tímamynd: Ámi Sæberg.
UMRÆDUFUNDIR UM VEHN
OG FISKREKTARMÁL
■ Umræðufundir um veiði og fisk-
ræktarmál verða á næstunni haldnir á
vegum Landssambands stangaveiðifé-
laga á eftirtöldum stöðum: Borgarnesi
31. mars, Selfossi 14. apríl, Blönduósi
5. maí og Akurcyri 19. maí. Frum-
mælendur á fundinum verða frá: Veiði-
málastofnun, Líffræðifélagi íslands,
Landssambandi veiðifélaga, Lands-
' sambandi fiskeldis og hafbeitarstöðva
og Landssambandi stangaveiðifélaga.
Er þetta sagt í fyrsta sinn sem fulltrúar
allra þessara aðila koma saman og
reifa mál sín á opinberum fundum.
Landssamband stangaveiðifélaga
skorar á áhugamenn um veiði og
fiskræktarmál að korria á fundina og
blanda sér í umræður, enda komi
væntanlega fram á fundinum allar
helstu hugmyndir sem uppi eru varð-
andi veiði ogfiskræktarmál. Allirfund-
irnir vera á laugardögum og hefjast kl.
10 að morgnif
-HEI.