Tíminn - 10.04.1984, Page 2

Tíminn - 10.04.1984, Page 2
ÞRIÐJUDAGUR 10. APRÍL 1984 Tvö frumvörp um áfengismál BJÓRINN LEYFÐUR 0G ÁFENGISSALA ALLT ÁRIÐ - í hótelum úti á landi ■ Tvcir þingmenn hafa lagt fram frum- varp til laga um að leyfður verði innflutn- ingur bruggun og sala á áfengu öli. Það eru þeir Jón Baldvin Hannibalsson og Jón Magnússon, sem lagt hafa frumvarp- ið fram og telja þeir með þessu framtaki að eðlilegt sé að Alþingi taki afstöðu til þessa umdeilda máls, en sem kunnugt er liggur fyrir þingsályktunartillaga um að greitt veröi þjóðaratkvæði um bjórinn. Tilganginn með þessu frumvarpi segja flutningsmenn vera, að draga úr hinni miklu neyslu sterkra drykkja. Að breyta Nýr far- prestur ■ Biskup íslands hefur skipað séra Guðmund Örn Kagnarsson á Raufar- höfn til þess að gegna öðru farprestsem- bætti þjóðkirkjunnar frá 1. maí n.k. Séra Guðmundur Örn er 37 ára, fæddur í Rcykjavík, sonur Ragnars Kjartanssonar myndhöggvara og Krist- ínar Guðmundsdóttur bankafulltrúa. Hann lauk prentnámi 1967, stúdents- prófi 1972 og guðfræðiprófi vorið 1978. Sama haust vígðist hann til Raufarhafn- arprestakalls og hefur gcgnt því síðan. Kona hans er Jónína Lára Einarsdóttir grafiklistamaður og eiga þau 3 börn. Þetta farprestsembætti er nýtt og varð tjl er annað prestsembættið í Vest- mannaeyjum var lagt niður sem slíkt en gert að embætti farprests. Fyrir er annað embætti farprests, sem séra Ingólfur Guðmundsson þjónar. Jafnframt hefurbiskup íslands auglýst Raufarhafnarprestakall laust til umsókn- ar. Umsóknarfrestur cr til 10. maí n.k. drykkjusiðum þjóðarinnar til hins betra. Að afla ríklssjóöi tekna.Að efla þann hluta íslensks iðnaðar sem annast fram- leiðslu á öli og gosdrykkjum. Aö sam- ræma áfengislöggjöfina. Máli sínu til stuðnings segja flutnings- menn m.a. svo í greinargerð: Aðstaðan er breytt í veigamiklum atriðum frá því sem hún var síðast þegar lagt var fyrir Alþingi frumvarp til laga um bruggun og sölu á áfengu öli. Þaðer ekki vandalaust fyrir Alþingi að horfa upp á þessa þróun án þess að móta löggjöf sem er í samræmi við tíðarandann og er til þess fallin að vinna gegn drykkjusýki. Mikil- bægast er að horfast í augu við stað- reyndir. Nú getur hver sem er orðinn eldri en 20 ára keypt öllíki sem er um eða yfir 5% af vínanda að rúmmáli. Veikustu áfengistegundir í ATVR eru um eða undir 9% vínanda að rúmmáli. Þessar staðreyndir tala sínu máli og sýna glögglega hversu ófullkomin áfeng- islöggjöfin er og hversu fráleitt það er að meina bruggun áfengs öls hér á landi. Miðað við þá þróun sem orðin er í áfengismálum, er það alveg Ijóst að spurning er ekki hvort innflutningur. bruggun og sala áfengs öls verður leyfð, heldur hvenær þessi síðasti angi bannlag- anna verður afnuminn. Annað frumvarp varðandi áfengismál hefur og verið lagt fram. Það er stutt og laggott og kvcður svo á uin að 4. málsgrein 12 greinar áfengislaganna verði numinn á brott, en hún er svona: Utan kaupstaða er einungis heimilað að veita vínveitingaleyfi á þeim árstíma sem heimsóknir erlendra ferðamanna eru að jafnaði mestar þ.e. frá 1. júní til 30. september. Sveitarstjórn Skútustaðahrepps álykt- aði um þetta mál og sveitarstjóri sendi þingflokkunum bréf þar sem skorað er á þá að fyrrgreind málsgrein verði felld úr lögunum. Stórfundur Búseta: VON A AÐSTOÐ FRA NORRÆNUM HÚSNÆÐIS- SAMVINNUFÉLÖGUM ■ Húsnæðissamvinnufélagiö Búseti héll stórfund sinn í Háskólabíói á sunnu- daginn var. A fundinn mættu um 700-800 manns, að sögn Reynis Ingi- bjartssonar, framkvæmdastjóra hús- næðissamvinnufélagsins. A fundinum var eftirfarandi ályktun samþykkt: „Stórfundur húsnæðissamvinnufélags- ins Búscta haldinn í Háskólabíói 8. apríl beinir eftirfarandi áskorun til Alþingis. 1. Alþingi tryggi að húsnæðisfrumvarp félagsmálaráðherra er nú bíður afgreiðslu þingsins verði að lögum á þessu þingi og að við afgreiðslu frumvarpsins verði tryggð réttindi húsnæðissamvinnufélaga til lána úr hinum félagslega byggingar- sjóði. 2. A yfirstandandi Alþingi verði bú- seturéttur viðurkenndur í lögum og ótvíræð ákvæði felld inn í húsnæðislög- gjöfina. 3. Bæði húsnæðissamvinnufélögin og verkamannabústaðakerfið eigi ótvíræð- an rétt á a.m.k. 90% lánum til a.m.k. 43 ára. 4. Tryggt verði aukið fjármagn til hins félagslega lánakerfis þannig að lán til húsnæðissamvinnufélaga vcrði ekki á kostnað þeirra félagslegu íbúðabygginga sem fyrir eru í landinu." Eins og sjá má af ályktuninni var fundurinn haldinn til að þrýsta á Alþingi um að samþykkja nýja húsnæðislaga- frumvarpið, þannig að opnaðir yrðu möguleikar á lánum fyrir Búseta. Reynir Ingibjartsson sagði að þrátt fyrir að vonast hefði verið eftir fleiri í Ijósi húsnæðisvandans í dag, hefði fund- urinn gengið mjög vel. Gestur fundarins var Invar O. Hansen, sem er fram- kvæmdastjóri sambands húsnæðissam- vinnufélagana í Noregi. Þingmönnum var öllum boðið, en aðeins 5% þeirra létu sjá sig. 550 mantis fengu félagsskír- teinið sitt afhent á fundinum og 6Q manns gerðust félagar. Alls eru nú um 2500 félagsmenn í Búseta, og nýverið hafa verið stofnuð félög á Akureyri og í Árnessýslu. Á Húsavík er verið að undirbúa stofnun félags, og stefnt er að stofnun Lands- sambands húsnæðissamvinnufélaga sem fyrst. í framhaldi af því verður sótt um inngöngu í samband norrænna húsnæðis- samvinnufélaga. Sú innganga verður mjög þýðingarmikil, því aö með því fá íslensku félögin aðgang að margvíslegri fyrirgreiðslu norrænufélagana. Þauhafa lýst yfir áhuga sínum til að styrkja Búseta með því að útvega lánsfjármagn. Nú eru í gangi viðræður við banka- stofnanir um sparilánakerfi þar sem félagsmenn geti farið að safna sér fyrir kaupum ábúseturétti. Þetta gjald verður væntanlega 5% af byggingarkostnaði íbúðanna, en í frumvarpinu er gert ráð fyrir að ríkið fjármagni 80% með lánum til 31 árs. Það 15% bil semeftirerverður reynt að brúa með lánum frá bönkum og sparisjóðum. Einnig er unnið að því að lífeyrissjóðirnir komi inn í þessa mynd. ■ Frá undanúrslitum Islandsmótsins i Blöndal og Georg Magnússon. bridge. Guðmundur Eiríksson og Guðmundur Pálsson spila við Kristján Tímamynd Árni Sæberg. Óvænt úrslit í íslandsmótinu í bridge: FERÐASKRIFSTOFU- SVEITIRNAR FÉLLU ■ I geysispcnnandi undanúrslita- keppni íslandsmótsins í sveitakeppni í bridge um helgina tókst hvorki sveitum Urvals né Samvinnuferöa-Landsýnar að vinna sér rétt til þátttöku í úrslitakeppn- inni sem fer fram um páskana. í þessum sveitum spila stigahæstu spilarar landsins og þær hafa skipst á að sigra í stærri bridgemótum í vetur. Mikil barátta var í öllum riðlum undanúrslitanna og fyrir síðustu umferð- ■ Reynir Ingibjartsson framkvæmda- stjóri Búseta. þar sem flestir félagsmanna eiga rétt á lífeyrissjóðsláni. Reynir sagði að ekkert hefði heyrst frá Alþingi um húsnæðisfrumvarpið, og sagði að ef frumvarpið kæmist ekki í gegn fyrir vorið væru félgsmenn Búseta illa settir hvað varðar alla sína starfsemi. Allt héngi á því að félagið kæmist inn í húsnæðiskerfið. -ÁDJ. ina höfðu aðeins tvær sveitir. Jón Hjalta- son og Þórarinn Sigþórsson, tryggt sér sæti í úrslitunum. 14 sveitir voru enn með í baráttunni um hin sætin 6. I A-riðli var staðan fyrir síðustu umferð sú að sveit Runólfs Pálssonar og sveit Sigurðar Vilhjálmssonar höfðu 60 og 53 stig og áttu að spila saman. Sveit Samvinnuferða var með 45 stig í þriðja sæti. Sigurðurvann síðan Runólf 12-8 og þó Samvinnuferðir ynnu sinn leik 20-0 og næðu þannig Sigurði að stigum varð sveitin að sætta sig við þriðja sætið því Sigurður hafði unnið innbyrðisleikinn. I B-riðli varsveit Þórarins Sigþórsson- ar örugg með sigur í riðlinum fyrir síðustu umferð en allar hinar sveitirnar fimm voru nær jafnar að stigum. Sveit Ármanns J. Lárussonar var síðan eina ■ Alþýðubandalag Alþýðuflokkur og Kvennalisti lögðust gegn afnámi laga um að skattur verði felldur niður afíerða- mannagjaldeyri. En stjórnarliðar og full- trúi Bandalags jafnaðarmanna eru fylgj- andi niðurfellingu skattsins. Þetta kom fram í umræðum í neðri deild er fjárhags og viðskiptanefnd deild- arinnar skilaði nefndaráliti. Er hér um að ræða staðfestingu á bráðabirgða- lögum frá því í fyrrasumar, en þar var gjaldið fellt niður. Þeir sem eru á móti niðurfellingu skattsins á ferðamanna- gjaldeyri telja að ríkissjóð veiti ekkert af þessum tekjustofni og að eðlilegt sé að sveitin af þeim semvann sinn Ieik og fór því upp, þrátt fyrir að sveitin ynni aðeins 2 leiki af 5. Fjórar sveitir börðust í C-riðlinum, sveit Ásgríms Sigurbjörnssonar frá Siglufirði vann sveit Gests Jónssonar í síðustu umferðinni 12-8, og tryggði sér með því úrslitasæti. Um hitt sætið börð- ust sveitir Sigfúsar Þórðarsonar og Stef- áns Pálssonar. Stefán þurfti að vinna leikinn 20-0, til að komast uppfyrir Sigfús. Afraksturinn varð síðan 18 stig og þá fór Sigfús upp. Sveit Jóns Hjaltasonar var örugg fyrir síðustu umferð í D-riðli en sveitir Úrvals og Guðbrands Sigurbergssonar spiluðu hreinan úrslitaleik um hitt úrslitasætið sem Guðbrandur vann, 16-4. nota hann til þjónustu við aldraða og öryrkja. Svavar Gestsson gerði harða hríð að fjármálaráðherra í umræðum um málið og krafði hann upplýsinga um hvenær vænta mætti frumvarps um ráðstafanir í ríkisfjármálum. Albert Guðmundsson sagði að vand- inn væri síst meiri nú en oft áður og minnti á að síðasta ári hafi aukafjárveit- ingar numið 25% af fjárlögum, en í ár gæti farið svo að aukafjárveitingar yrðu sem svarar 10% ef ekkert verður að gert. En ríkisstjórnin er að vinna að tillögu- gerð varðandi þennan vanda og sagði fjármálaráðherra að hann gæti ekki dagsett hvenær þær yrðu birtar. -GSH Mótstaða gegn afnámi ferðamannaskattsins ■ Á laugardaginn hélt Iðnskólinn Iðnskóladag- inn. Þar var sýnd vinna nemenda, sem og allar deildir skólans. Á mynd- inni má sjá fjóra Iðnskóla- sveina við maskínu eina mikla. Tímamynd KE. Kristjánsson

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.