Tíminn - 04.01.1986, Side 1
ELDSUPPTOK í skemmtistaönum Ríó eru
enn ekki kunn þrátt fyrir rannsókn en ekkert bendir til
þess að um íkveikju hafi verið að ræða samkvæmt
upplýsingum frá Rannsóknarlögreglu ríkisins.
NEYTENDASAMTÖKIN hafaskoraðð
stjórn Landssambands bakarameistara að láta af
þeirri ákvörðun að vilja hætta framleiðslu vísitölu-
brauðanna þar sem þessi ákvörðun hafi leitt til allt að
70% hækkunar á þessum brauðum. Einnig hafa
Neytendasamtökin mótmælt vörugjaldi sem leggja á á
kökur.
BILVELTA varð á Hörgárbraut á Akureyri í
fyrrinótt. Bíllinn rakst utan ( snjóruðninga og við það
missti ökumaður, sem var einn í bílnum, vald á
honum. Ökumaðurinn slapp ómeiddur, en bíllinn er
mikið skemmdur.
GRUNDFIRÐiNGAR ætla að gera allt
sem í þeirra valdi stendur til að kaupa togarann Sig-
urfara II af Fiskveiðasjóði aftur. Milli 50 og 60 einstakl-
ingar og félög skráðu sig fyrir hlutafé í nýju útgerðarfé-
lagi - Siglunesi hf. -sem stofnað var í Grundarfirði 2.
janúar í þeim tilgangi að kaupa skipið. Hlutafé var á-
kveðið 30 milljónir króna. Með Sigurfara hvarf
þriðjungur þess afla sem gæti komið á land í Grundar-
firði þannig aðmiklu varðarfyriratvinnulífið hvorttekst
að kaupa hann þangað á ný.
BANDARÍKJAMENN íhuga nú marg-
háttaðar refsiaðgerðir, þar á meðal hernaðaraðgerðir,
gegn Líbýu sem talið er að standi á bak við morðárásir
hryðjuverkamanna á flugvöllum í Róm og Vín í sein-
ustu viku. Áður höfðu Israelsmenn lýst yfir að þeir
myndu hefna fyrir árásirnar sem beindust gegn flugfé-
lagi þeirra ELAL.
LÍBÝUMENN sendu aðalritara SÞ bréf í gær
þar sem þeir neita ábyrgð á blóðbaðinu á flugvöllun-
um í Róm og Vín þótt þeir hafi áður lýst yfir stuðningi
við aðgerðir hryðjuverkamanna þar. I bréfinu segir að
Bandaríkjamenn og ísraelsmenn muni nota flugvall-
arárásirnar sem átyllu til árásar á Líbýu sem muni
hafa „hættulegar afleiðingar fyrir alþjóðlegan frið og
öryggi."
HELGARBLAÐ Tímans kemur ekki út um
þessa helgi og vegna þrengsla varð Barna-Tíminn að
víkja. En laugardaginn 11. jan. mun sérstakt helgar-
blað fylgja Tímanum og yngri lesendur fá sinn Barna-
Tíma svikalaust.
Einnig er vakin athygli á að Tíminn kostar frá og
með 1. janúar 45 krónur í lausasölu og 50 krónur um
helgar. Áskriftarverð er 450 krónur á mánuði.
Eiga Garðbæingar í erfiðleikum, eða hvað?
Er áfengislög-
gjöfin brotin
á öllum börum?
■ Svo virðist sem lögbrot séu
tíðkuð í stórum stíl á öllum
börum og vínveitingahúsum og
hafi svo verið um þó nokkurt
skeið, eða allt frá því að krítar-
kortaviðskipti voru tekin upp á
stöðunum, því samkvæmt 13.
gr. áfengislaganna virðast slík
viðskipti óheimil: „Áfengis- og
tóbaksverslun ríkisins, útsölur
hennar og veitingeistaðir, sem
leyfi hafa til veitingar áfengra
drykkja, mega aðeins afhenda
áfengi gegn staðgreiðslu. “
Teljast krítarkortaviðskipti
staðgreiðsla? Þá spurningu lagði
Tíminn fyrir Björn Líndal,
deildarstjóra í viðskiptaráðu-
neytinu, en hann vinnur nú að
því að setja saman löggjöf um
krítarkortaviðskipti.
Björn sagði að krítarkorta-
viðskipti væru ótvírætt lánsvið-
skipti og' viðskipti með þau
gætu því ekki flokkast undir
staðgreiðsluviðskipti. Kort-
hafi er í lánsviðskiptum við
kortafyrirtækið og einnig er um
lánsviðskipti að ræða milli þess
sem selur þjónustuna og korta-
fyrirtækisins.
Sagði Björn, að þó kort þessi
nefndust greiðslukort þá væri
hér engu að síður um kredit-
kort að ræða en ekki debitkort,
þar sem korthafi er með inni-
stæðu hjá fyrirtækinu. Sagði
hann að t.d. í Danmörku væru
þessi viðskipti flokkuð undir
lánsviðskipti.
Einar Einarsson, fram-
kvæmdastjóri Visa Island, var
ekki samþykkur þessari skil-
greiningu, þegar Tíminn bar
þetta undir hann. Sagði hann
að mcð visagreiðslu væri gert
upp urn viðskiptin á staðnum
og því væri hér unt staðgreiðslu
að ræða, enda auglýstu sumar
verslanir að Visa væri tekið
sem staðgreiðsla. Sagði hann
að ef Visa teldist ekki stað-
greiðsla þá hlyti það sama að
gilda um ávísanir.
Hinsvegar sagðist Einar
samþykkur því að fólk undir
áhrifum áfengis ætti ekki að
nota kort við drykkju. Þær
væru oft skrautlegar undir-
skriftirnar, sem koma frá híf-
uðu fólki.
Nýuppgert einbýlishús
stórskemmt í eldi
■ Allt Slökkvilið Hafnar-
fjarðar var kallað út síðdegis í
gær, laust fyrir klukkan hálf
fimm. að Tjarnarbraut 15, en
eldur hafði komið þar upp í
gömlu, nýlega uppgerðui
timburhúsi. Húsið var mann-
laust er eldsins varð vart.
Þegar Tímamenn komu á
staðinn, var slökkviliðið að
rjúfa þakið. Eldurinn hafði
komið upp í eldhúsi á neðri
hæð, en komist inn á milli
þilja og upp í rjáfur. Mjög erf-
iðlega gekk að ráða niðurlög-
um hans, enda austan strekk-
ingur.
Húsið er meira og minna
skemmt að innan, það sem
ekki brann er illa farið af vatni
og reyk.
■ Slökkviliðsmenn rjúfa þakið og ráðast að eldinum.
Tímamynd Sverrir