Tíminn - 04.01.1986, Page 6

Tíminn - 04.01.1986, Page 6
6 Tíminn Tímnin MÁLSVARIFRJÁLSLYNDIS, SAMVINNU OG FÉLAGSHYGGJU Útgefandi: Framsóknarflokkurinnog Framsóknarfélögin í Reykjavík Framkvstj.: GuömundurKarlsson Ritstjóri: Helgi Pétursson Ritstjórnarfulltrúi: NíelsÁrni Lund Auglýsingastjóri: SteingrímurGíslason Innblaösstjóri: OddurÓlafsson Skrifstofur: Síðumúli 15, Reykjavík. Sími: 686300. Auglýsingasími: 18300. Kvöldsímar: Áskrift og dreifing 686300, ritstjórn 686392 og 686495, tæknideild 686538. Setning og umbrot: Tæknideild NT. Prentun: Blaöaprent h.f. Kvöldsímar: 686387 og 686306 Verð í lausasölu 45.- kr. og 50.- kr. um helgar. Áskrift 450.- Hækkun ferða- mannaskattsins ■ Hækkun ferðamannaskattsins er skammsýn ráð- stöfun. Það þarf ekki mikla spekinga til þess að sjá, að nær hefði verið að lækka skattinn eða afnema með öllu. Raunar hefði maður haldið, að það væri í anda stjórnmálaviðhorfa fjármálaráðherrans og formanns Sjálfstæðisflokksins, en hann virðist nú vera að tapa áttum í pólitíkinni. Hvers konar hömlur á ferðir ferðamanna hingað til lands, draga úr hugsanlegum tekjum, sem við gætum haft af komu þeirra. Nú eru óbeinir neysluskattar viðamestir liðir í tekjuöflun ríkisins, og því hefði átt að liggja beinast við að reyna að hvetja erlenda ferða- menn til þess að koma hingað til lands. Það er ekki gert með því að hækka flugvallarskatt, sem er greini- lega auðkenndur við sölu á farmiðum. Ferðaþjónusta er sú atvinnugrein, sem hefur verið í hvað mestum vexti hér á landi undanfarin ár og trú- lega sú atvinnugrein, sem getur tekið við flestu fólki í framtíðinni. Forystumenn í ferðamálum hafa unnið hörðum höndum að því að koma ráðamönnum í skilning um þetta, en ljóst er af síðustu gerðum fjár- málaráðherra, að menn virðast mismunandi upplýstir um gildi ferðaþjónustu hér á landi. í öllu tali um nýsköpun og átak í málefnum at- vinnulífsins virðist eins og ferðaþjónustan hafi orðið út undan. Ekkert kemst að nema fiskeldi sem er allra góðra gjalda vert, en fiskeldi mun ekki eitt og sér nægja til þess að leysa efnahagsvanda þjóðarinnar. Flest bendir hins vegar til þess, að ferðaþjónusta gæti verið miklu arðbærari atvinnugrein en hún er nú þeg- ar og munar þó mikið um hana og vaxandi með ári hverju. í stað þess að hækka flugvallarskatt, hefði fjármálaráðherra átt að lækka hann og jafnvel útvega ineira fé til öflugrar kynningar á landi og þjóð sem áfangastað fyrir ferðamenn. í stað þess að hækka skattinn hefði fjármálaráðherra átt að skila Ferða- málaráði þeim þrjátíu milljónum, sem gert er ráð fyr- ir að hafa af því í lánsfjárlögum. Á vegum Ferða- málaráðs hefur verið unnið stórvirki við erfiðar að- stæður og það má síst við því að missa hluta af tekjum sínum nú, þegar atvinnugreinin er í örum vexti og þarf á kynningu, skipulagningu og aðstoð að halda. Rétt er einnig að benda á, að með því að þrengja að vaxtamöguleikum ferðaþjónustu í landinu með þess- um hætti, torveldar fjármálaráðherra mikilsvert átak sveitarstjórna og einkaaðila í ferðaþjónustu um allt land, þar sem mikið hefur verið gert til þess að bæta þjónustu við ferðamenn og þannig hlúð að fjölbreytni atvinnulífs víða um land. Hækkun ferðamannaskattsins er hæpin skyndi- lausn sem getur stórlega skaðað ferðaþjónustu í land- inu. llllllllllllllllllHlB ■NHr.MTIMAToLUD Pétur keypti sér axlabönd með góðri teygju - á meðan Páll herti mittisólina inn að hryggjarliðum ■ Ársins 1985 verður að mörgu leyti minnst sem árs andstteðna hcr á landi. Annars vcgar varða minning- arnar vöxt og framfarir, en hins veg- ar samdrátt og afturhald. Það veltur allt á því hvort heldur er notast við sjónarhól Pcturs eða Páls. Þessir tveir sómakæru íslendingar eiga minna sameiginlegt nú. heldur en fyrir einu ári. Þjóðfélagspíramíðinn hefur hækkað Pað þarf ekki háan aldur og langminni til að geta vitnað til þeirr- ar tíðar er þolanlegt jafnræði var með islendingum, enda héldu marg- ir því kinnroðalaust fram hér á árum áður að stéttaskipting væri ekki til á Islandi. Þá í þeim skilningi. fyrst og frcmst, að efnislegum gæðum þjóð- arinnar væri skipt þannig að engum var beinlínis misboðið. Ef hugurinn reikar fimm til tíu ár aftur í tímann. þá vakna spurningar um það hvort að þjóðfélagspíramíðinn hafi ekki hækkað og hliðar hans orðið bratt- ari. Þróun mála á síðastliðnu ári hef- ur svo sannarlega styrkt þá trú. Mestur hluti af íslensku launafólki þiggur laun samkvæmt umsömdum taxta. Það er eðlilegt og ákjósanlegt fyrirkomulag við venjulegar kring- umstæður. En kringumstæður hér- lendis hafa hvorki verið venjulegar eða eðlilegar undanfarin ár. Það er alkunna að svokallað launaskrið er afleiðing þessa og óþarft að fjölyrða um af hverju einstakir atvinnuvegir njóta þess fremur en aðrir. Það sem máli skiptir er að Pétur hefur sem framkvæmdastjóri í þjónustugeiran- um allt aðra aðstöðu til lífs og leiks heldur en Páll verkstjóri í fram- lciðslugeiranum. Það hefur verið vakinn upp gamall draugur misskipt- ingarsem flestir álitu orðinn máttfar- inn ef ekki máttvana. Sundurlyndisfjandinn mun plaga Hvaða ályktanir má svo draga af þessum óneitanlega raunverulcika? í fyrsta lagi að það eru þær stéttir sem eru fjötraðar við þá atvinnuvegi sem ekki hafa notið tilbúinnar þenslu sem hafa greitt niður verðbólguna. í öðru lagi, aðef svo heldur áfram sem horfir mun liinn títtnefndi sundur- lyndisfjandi plaga íslendinga mun meir á komandi árum en verið hefur. Pétur keypti sér axlabönd með góðri teygju. á meðan Páll herti mittisólina inn að hryggjarliðum og efnahags- stefna sem byggir á slíku óréttlæti sundrar lítilli þjóð. Það sem gerir illt verra er að á ár- inu 1985 var ekkert að gert til að ráð- ast til atlögu við þann fylgikvilla sem bætir gráu ofan á svart þar sem mis- réttið er annars vegar. Það veit nefnilega sá sem vita vill, að margir þeir sem hafa notið þessa launa- skriðs greiða tekjuskatt af einungis hluta heildartekna sinna. Ef ekki er beinlínis samið um ákveðinn launa- auka sem ekki er talinn fram til skatts. þá er oft um að ræða launaí- gildi sem viðkomandi fyrirtæki tek- ur á sig sem kostnað. Enn sannast það að tekjuskatturinn á íslandi er fyrst og fremst láglaunaskattur. Sult- arlaunin og sköttunin samtvinnast í erfiðleikum og biturð meirihluta landsmanna. Frækorn hættunnar Er menn velta vöngum um gang sögunnar, furða þeir sig oft á hugs- unarleysi þjóða, hópa, ætta eða ein- staklinga sem flutu sofandi að feigð- arósi þegar hættur blöstu hvarvetna við. Þá er venjan að draga upp hið gagnmerka „ef" og spá í það sem aldrei varð. Það jánka því vitaskuld allir að íslendinga bíður enginn feigðarós um þessar mundir, það væri of sterkt til orða tekið, en hins vegar virðast landsins leiðtogar ekki gera sér grein fyrir því að þeir hafa plægt jarðveginn og sáð frækornum hættunnar í plógförin. Það veit hvert ómálga barn að samhengi er á milli efnahagsstefnu núverandi ríkisstjórnar og þess ástands sem hér hefur verið lýst að framan. f veðhlaupi íslenskra lífs- kjara hefur meirihlutaknapannaver- ið gert að grípa fast í taumana, með- an öðrum hefur gefist kostur á að hleypa. Þessi mistök hafa orsakað neikvætt viðhorf flcstra launþega til fulltrúalýðræðisins, sem gæti jafn- vel orðið fjandsamlegt ef efnahags- ástandið versnar enn. Hafa fengist aðrar haldgóðar skýringar á viðhorfi almennings til stjórnmálamanna í frægri skoðanakönnun Hagvangs fyrir nokkru? Sú fyrrnefnda gæti alla vega átt við að hluta. Aðgerðir eða aðgerðarleysi íslenskra stjórnmála- manna gagnvart nýskiptingu þjóðar- kökunnar gæti valdið því að hluti hennar verði banabiti í hálsi íslensks lýðræðis. Er það svo fráleitt ef litið er til fyrri dæma um sinnuleysi? Sturla Sigurjónsson

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.