Tíminn - 04.01.1986, Síða 24

Tíminn - 04.01.1986, Síða 24
Okurlánamálið svonefnda veröur væntanlega sent ríkissaksóknara seinni part mánaöarins. Hallvaröur Einvarðsson rannsókn- arlögreglustjóri sagöi í samtali við Tímann aö í mörg horn væri að líta í þessu umfangsmikla máli og því seinkaði rannsókn málsins. Ný aðveitustöð var tekin í notkun viö Suðurlínu áð Prestbakka á Síðu, sem mun bæta mjög ástand raforkumála í V -Skaftafells- sýslu austan Mýrdalssands. Einnig mun hún spara kostnað RARIK við keyrslu díselvéla á Kirkjubæjarklaustri á álagstímum. Gert er ráð fyrir að heildarkostnaður við aðveitustöðina verði um 13 milljónir króna sem er undir áætlun. Meðalaldur slökkviliðsbíla á Akureyri er nú tuttugu og fjögur ár. Yngsti bíllinn er módel 1984 og ertankbíll. Aldursforsetinn í flotanum er dælubifreið sem smíðuð var í seinni heimsstyrj- öldinni. I Tíminn Laugardagur 4. janúar 1986 Framkvæmdastjóri LÍN leystur frá störfum: Maður Sverris inn samdægurs Starfsfólk sjóösins hótar aðgeröum ■ Sverrir Hermannsson menntamálaráðherra ákvað í gær að víkja Sigurjóni Valdi- marssyni framkvæmdastjóra Lánasjóðs íslenskra náms- manna frá störlum og setti í hans stað Hrafn Sigurðsson. „Ég þarf að gera úttekt á sjóðnum og stöðu hans allri. Það er ýmislegt sem ég hef við starfsemi sjóðsins að athuga sem ég fer ekki nánar út í mcð- an að rannsókn og úttekt er að hefjast,“ sagði Sverrir Her- mannsson í viðtali við Tímann síðdegis í gær. Hann bætti því við að framkvæmdastjórinn fyrrverandi hefði einvörðungu verið leystur frá störfum vegna reksturs sjóðsins en ekki vegna framkvæmdar laga. „Ég hef sett Hrafn Sigurðs- son inn í starfið til bráðabirgða frá og með deginum í dag,“ sagði Sverrir. Menntamálaráð- herra bætti því við að í raun væri óþarft fyrir hann að rckja að- dragandann að uppsögninni fyrir blaðamann, „eins fallega og hefur verið skrifað um það í blaði sem reyndar er dautt". I ályktun sem starfsmenn LÍN sendu frá sér í gær er brott- vikningu Sigurjóns Valdimars- sonar harðlega mótmælt og þær sakir sem á hann eru bornar í brottvikningarbréfi sagðar óréttmætar. í lok ályktunarinn- ar segir síðan: „Þar sem svo fautalega er að þessu staðið áskiljum við okkur fullan rétt til aðgerða, svo framarlega sem ráðherrann dregur ákvörðun sína ekki til baka fyrir hádegi mánudaginn 6. janúar n.k.“ Flugslysið út af Reykjanesi: Var hann rænulaus? ■ Ferlikið að komast á sinn stað í Aðveitustöð Rafveitunnar við Hverfisgötu. Tímamynd:Róbert Jólapakkinn vó rúm 50 tonn Rafveita Hafnarfjarðar fær nýjan aðveituspenni ■ Það var handagangur í öskjunni hjá starfsmönnum Rafveitu Hafnarfjarðar þegar þeir tóku á móti nýj- um aðveituspenni sem nú er verið að koma fyrir á lóð Rafveitunnar við Öldugötu. Spennubreytirinn sem kemur frá Portúgal vegur rúm 50 tonn og það þurfti tvo krana af stærstu gerð til að ná honum upp úr Skeiðs- fossi sem flutti þennan jóla- pakka yfir hafið. Jón Gestur Hermannsson tæknifræðingur hjá Rafveit- unni segir að spennirinn komi til með að breyta því rafmagni sem veitan kaupir úr 33 kílóvoltum niður í 10 kílóvolt. Kaupverðið var á níundu milljón króna og lægsta til- boðið kom frá Portúgal það- an sem aðveituspennirinn var keyptur. ■ Ýmislegt þykir benda til þess að flugmaðurinn á F-15 or- ustuþotunni, sem fórst um 85 sjómílur suðvestur af Reykja- nesi, hafi misst meðvitund og því hafi vélin hrapað í sjóinn. Fjarskiptasamband flug- manna, bæði við aðra flug- menn og jarðstöðvar er mjög fullkomið. Ekki heyrðist til flugmannsins eins og ranglega hefur verið sagt frá. Flugmaðurinn sent talinn er af hét Steve Jessor Nelson 31 árs gamall og ógiftur. Engin leit fór fram á slys- staðnum í gær, en ráðgert er að leita að braki úr vélinni um leið og veður leyfir. ■ Steve J. Nelson. Sinfóníuhljómsveit æskunnar: Tónleikar á mánudag ■ Sinfóníuhljómsveit æsk- unnar mun halda tónleika í Menntaskólanum við Hamra- hlíð mánudagskvöldið 6. janú- ar og á efnisskránni er tónlist fyrir málmblásturshljóðfæri eftir Susato, Gabrieli og Grieg, tónlist fyrir tréblásturshljóð- færi eftir Mozart og Sæverud og tónlist fyrir blásarasveit eftir Bernard Wilkinson og Odd Björnsson. Sinfóníuhljómsveit æskunn- ar var stofnuð fyrir einu ári í til- efni af ári æskunnar og tónlist- arinnar. Hljómsveitin hefur efnt til námskeiða fyrir blásara og aðra hljóðfæraleikara og nú 28. desember sl. byrjaði eitt slíkt, að þessu sinni eingöngu fyrir blásara. Að sveitinni standa tónlistar- skólar landsins en hún hefur haft æfingaaðstöðu í Haga- skóla í Reykjavík og umsjónar- maður hennar er Rut Magnús- son. Hún sagði að yfirleitt end- uðu námskeiðin með tónleik- um og hefur sveitin bæði spilað í Reykjavík og út á landi, en í sveitinni spila milli 80 og 90 manns, en blásararnir sem tóku þátt í námskeiðinu voru 35. Rut taldi það ntjög góða æf- ingu fyrir spilara að spila með hljómsveit æskunnar, sérstak- lega ef þeir hugsa sér að spila með öðrum hljómsveitum seinna. Áðurnefndir tónleikar hefj- ast klukkan 20.30 og miðar á þá fást við innganginn og kostar hver miði kr. 100. Þingsályktunartillaga: Bifreiðafríðindi ráðherra og bankastjóra afnumin ■ Verða bifreiðafríðindi ráð- herra og bankastjóra ríkis- bankanna afnumin á árinu 1986? „Alþingi hefur þegar sýnt vilja sinn í þessu efni en sí- fellt hefur verið fundin ný leið til að viðhalda umræddum fríðindum. Það er fullur stuðn- ingur í Alþýðuflokknum við þá hugmynd að þessi sérréttindi verði felld niður og ég geri fast- lega ráð fyrir því að svo verði samþykkt á yfirstandandi Al- þingi," sagði Jóhanna Sigurð- ardóttir við Tímann, en hún lagði fyrir skömmu fram þings- ályktunartillögu á Alþingi þess efnis að bifreiðafríðindi ráð- herra verði felld úr gildi. f greinargerð að tillögunni segir m.a.: „Þó að ríkisstjórn- inni hafi verið Ijós vilji Alþingis í þessu efni var engu síður gefin út reglugerð 30. apríl. s.l. sem felur í sér að ráðherrar, ef þeir kjósa, geta fengið úr ríkissjóði nánast ígildi þeirra aðtlutnings- gjalda sem Alþingi og ríkis- stjórn lýstu yfir á síðasta lög- gjafarþingi að bæri að afnema. Ekki er hægt að draga aðra ályktun af þessu en að ríkis- stjórnin gangi í berhögg við vilja Alþingis í þessu efni. Hér er því farið bakdyramegin að hlutunum með því að fjármála- ráðherra gefur út reglugerð þar sem með annarri aðferð er fundin leið til að ráðherrar geti haldið ígildi fyrri bifreiðafríð- inda. Þetta minnir óneitanlega á umdeildan launaauka banka- ■ Fresturinn til að skila til- boðum í þrotabú Hafskips rann út á hádegi í gær. Ekkert nýtt tilboð barst í þrotabúið og er því tilboð Eimskipafélagsins, sem hljóðaði upp á tæpar 400 milljónir eina tilboðið. Markús Sigurbjörnsson, skiptaráðandi, sagði í samtali við Tímann að nú lægi beint við að ganga til samninga við Eim- skip en tilboð þeirra gildir til 5. janúar. stjóra sem átti að koma í stað fyrri bifreiðafríðinda sem þeir áður nutu“. „Verði þingsályktunartillag- an samþykkt hlýtur það að hafa í för með sér að bankastjórar ríkisbankanna missi einnig sín Enn er eftir að ganga frá ýmsum endum í tilboðinu. T.d. var gert ráð fyrir að Skaftáin yrði afhent nú í janúar, en allt bendir til að uppboð á henni fari ekki fram fyrr en í mars eða apríl, að sögn Markúsar. Því verður Skaftáin líkast til tekin út úr og mun því tilboðið lækka að sama skapi, hversu mikið vildi Markús hinsvegar ekki tjá sig um. Tilboð Eimskips var í fjögur fríðindi þar sem viðskiptaráð- herra hefur mælst til þess að bankaráðin hafi ofangreinda reglugerð til hliðsjónar er ákvarðanir verða teknar um bílamál bankastjóranna" sagði Jóhanna. skip þrotabúsins, auk ýmissa annarra eigna, eins og tækja og gátna. Enn er óljóst hvort til- boðið er bara í þá 553 gáma, sem Hafskip átti, eða hvort Eimskip mun ganga inn í kaupleigusamninga, sem Haf- skip hafði gert í gáma erlendis. Markús sagði að rannsókn á rekstri og viðskiptum Hafskips væri þegar hafin. Bjóst hann við að sú rannsókn tæki um þrjá til fimm mánuði. Tilboðsfrestur í Hafskip rann út í gær: Ekkert nýtt tilboð barst Rannsókn á viðskiptum Hafskips hafin

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.