Tíminn - 08.04.1986, Blaðsíða 5
Þriðjudagur 8. apríl 1986
Tíminn 5
Filippseyingar losuðu sig við Ferdinand Martos. Nú vilja margir þeirra losna við Bandaríkjaher af eyjunum. Hvar
endar þetta?
Filippseyjar:
Weinberger fékk vondar
móttökur í Maniluborg
- Herstöövaandstæðingar á Filippseyjum færast allir í aukana
Manila-Reuter
Fjöldi fólks safnaðist saman fyrir
utan forsetahöllina á Filippseyjum í
gær til að mótmæla komu Caspars
Weinbergers varnarmálaráðherra
Bandaríkjanna þangað.
Fólkið kallaði „Farðu heim" og
„Við þörfnumst þín ekki hér“ og
reyndi að koma í veg íyrir að
Weinberger og fylgdarlið hans kæm-
ust frá höllinni eftir viðræður við
forsetann Corazon Aquino.
Weinberger cr nú á ferðalagi um
Asíulönd og voru viðræður hans við
Corazon Aquino einn þáttur þeirrar
ferðar. Á fundinum var efnahagsað-
stoð frá Bandarikjastjórn aðalum-
ræðuefnið.
Hinsvegar var ekki rætt um hcr-
stöðvar Bandaríkjamanna á eynni
en áframhaldandi bandarísk herseta
hcfur mætt vaxandi andstöðu Fil-
ippseyinga. Er Corazon Aquino
forseti nú undir þrýstingi frá vinstri
öflum í þjóðfélaginu um að slíta
herstöðvasamkomulaginu. Fað gild-
ir til ársins 1991 og hefur forsetinn
lýst yfir að hún hafi í hyggju að halda
samkomulagið þangað til en muni
þar eftir halda öllum möguleikum
opnum.
Herstöðvaandstæðingar á Filipps-
eyjum telja bandarísku herstöðvarn-
ar, sem eru stærstu stöðvar Banda-
ríkjamanna utan þeirra eigin ríkis,
verka sem segul fyrir kjarnorkuárás.
Weinbergcr cr fyrsti háttsetti
bandaríski embættismaðurinn sem
kcmur til Filippseyja eftir að bylting
var gerð gcgn Ferdinand Marcos og
hans hyski. George Shultz utanríkis-
ráðherra Bandaríkjanna er væntan-
legur til Manila í næsta mánuði.
Svíþjóð:
Carlsson fær meðbyr
Enginn sænskur stjómmálamaður hefur notið jafn mikils trausts
Stokkhólmur-Reutcr
Sainkvæmt niðurstööum
skoðanakönnunar einnar er
Sænska dagblaðið (Svenska
dagbladet) birti um helgina
ber meirihluti sænsku þjóð-
arinnar traust til hins nýja
forsætisráðherra, Ingvars
Carlssonar.
Alls sögðust 62% aðspurðra
bera mikið traust til nýja for-
Japan:
Allt hlerað
-og komið þannig
í veg fyrir svindl
Tokyo-Reuter
Sérhannaðir bílar með tækja-
búnaði til að nema allar hugsan-
legar útvarpsbylgjur kornu í góð-
ar þarfir í Japan í gær. Þá voru
nefnilega próf í gangi sem snerust
um heilsuvernd og hafði heyrst
að einhverjir hefðu í hyggju að
senda svörin til stúdentanna á
einhverri ákveðinni bylgjulengd.
Bílarnir áðurnefndu voru því
kallaðir út til að fylgjast með að
ekkert yrði um ólöglegar útvarps-
sendingar.
Rúmlega níu þúsund stúdentar
tóku þessi próf í Tokyo og víðar.
Ekkert ku hafa verið um svindl
þegar á reyndi.
sætisráðherrans og hefur eng-
inn sænskur stjórnmálamaður
áður fengið jafn víðtækan
stuðning. Tage Erlander fyrr-
um leiðtogi sænskra jafnað-
armanna og forsætisráðherra
fékk að vísu næstum því jafn
mikinn stuðningsbyr stuttu
áður en Palme heitinn tók við
af honum árið 1969. Pá lýstu
60% þátttakenda í skoðana-
könnun yfir fullum stuðningi
við Erlander og störl' hans.
Niðurstöður skoðanakönn-
unarinnar sem gerð var um
helgina koma heim og saman
við fyrri kannanir sem sýndu
aukið fylgi jafnaðarmanna-
flokksins sænska eftir morðið
á leiðtoga hans.
í annarri skoðanakönnun
kom fram að 44% íbúa Stokk-
hólms höfðu heimsótt morð-
staðinn í hjarta borgarinnar
og rúmlega helmingur lands-
manna sagðist ætla að fara á
þennan stað þar sem Olof
Palme var myrtur þann 28.
febrúar síðastliðinn til að
votta hinum látna virðingu
sína.
Einnig kom í ljós að 90%
sænsku þjóðarinnar fylgdist
með jarðarför Palmes þann
15. mars síðastliðinn.
Ingvar Carlsson nýtur trausts meiri-
hluta sænsku þjóðarinnar.
Kína:
Leiði sækir að
sveitamönnum
Sumir þeirra orönir „andlega tómir“ glæpa
menn
Peking-Rauter.
Að sögn dugblaðs eins í Kína hafa
þarlendir dreifbýlismenn nú snúið sér
að glæpum í auknum mæli, einkum
nauðgunum. Eru glæpirnir svar
bændanna við leiða miklum sem að
þeim sækir.
Dagblaðið Tianjingfréttir sagði að
margir bændur sem nú þyrftu ekki
lengur að strita allan daginn til að
hafa í sig og á væru orðnir „andlega
tómir“ glæpamenn.
Bændur voru að verki í tæplega
helming af þeim 522 nauðgunará-
kærum sem bárust yfirvöldum í Ti-
anjinhéraði í norð-austanverðum
hluta landsins.
Blaðið gaf ekki upp neinar saman-
burðartölur en sagði að glæpasér-
fræðingar hefðu fundið að skortur á
spennu ellegar tilbreytni væri höfuð-
orsök ódæðisverka dreifbýlismann-
anna.
„Skáldsögur eru ekki nógu spenn-
andi og sjónvarpið býður ekki uppá
neina skemmtun," hafði blaðið eftir
ungum sveitamanni sem sat í fangelsi
fyrir þátttöku í kínverskum skrílslát-
um.
„Veðmál eru skemmtileg til að
byrja með en verða þreytandi til
lengdar og þá leitum við að ein-
hverju meira örvandi," sagði dreif-
býlismaðurinn ungi.
Skilnaðir
skeggræddir
á írlandi
Dyílinni-Reiiler
Garret Fitzgerald forsætisráð-
herra írlands átti fund í gær með
nefnd rómversk-kaþólskra biskupa
um tillögu þá er gerir ráð fyrir að
aflétt veröi banni því á hjóna-
skilnuðum sem ríkir í landinu.
Búist er við að þjóðaratkvæða-
greiðsla fari fram um málið síðar á
þessu ári en Fitzgerald og stjórn
hans lot'uðu einmitt frjálslyndari
löggjöf í þessu máli þegar þeir
komust til valda árið 1982.
Yfirvöld kaþólsku kirkjunnar
hafa harðlega mótmælt breytingum
í skilnaðarátt en skoðanakannanir
sýna þó að hjónaskilnaðartillagan
nýtur aukins stuðnings á írlandi
þrátt fyrir að flestir landsmenn séu
rammkaþólskir.
írland og Malta eru einu löndin
í Évrópu þar sem skilnaðir eru
bannaðir samkvæmt lögum.
Þingkosningar eru fyrirhugaðar
á írlandi á næsta ári og þykir víst
að Fitzgerald og stjórn lians vilji
setja málið sem fyrst undir dóm
þjóðarinnar til að konta í veg l'yrir
harðar og óvægar umræður um
málið en þar er víst að kaþölska
kirkjan, sem mikil ítök hefur með-
al landsmanna, mun bcita sér af
öllum mætti gegn skilnaðartillög-
unni.
Spánn:
Ferðamannamet
í uppsiglingu
manna að ræða. Á síðasta ári komu
alls um 43 milljónir ferðamanna til
Spánar.
Frömuðirnir bjuggust við miklum
fjölda fölleitra Breta til Spánar á
þessu ári en á síðasta ári féll fjöldi
þeirra niður um 16,5%.
Nú er hinsvegar öldin önnur, þökk
sé öflugara sterlingspundi og aukinni
öryggisgæslu á ströndunum við
Miðjarðarhaf og einar sex milljónir
Breta hafa heimsótt ellegar hafa í
hyggju að heimsækja Spánarstrend-
ur á þessu ári.
Yfirvöld á Spáni hyggjast ráða
eina átta þúsund lögreglumenn til að
halda uppi lögum og reglu á strönd-
unum og reyna að koma í veg fyrir
að aðskilnaðarsinnar Baska sprengi
upp friðsæla túrhesta.
Á síðasta ári komu skæruliðar
Baska fyrir einum 19 sprengjum á
sumarleyfisdvalarstöðum við Spán-
arstrendur. Ekkert manntjón varð
þó af þeirra völdum.
Madrid-Rcuter.
Túrhestafrömuðir á Spáni búast
við 45 milljónum ferðamanna til
landsins á þessu ári. Fari svo verður
um nýtt met í fjölda erlendra ferða-
Utlönd
Umsjón:
HEIMIR
BERGSSON