Tíminn - 08.04.1986, Síða 10

Tíminn - 08.04.1986, Síða 10
10 Tíminn Stofnlánadeild landbúnaðarins Laugavegi 120,105 Reykjavík Umsóknir um lán vegna framkvæmda á árinu 1987 þurfa aö berast Stofnlánadeild landbúnaðarins fyrir 15. september næstkomandi. Umsókn skal fylgja teikning og nákvæm lýsing á framkvæmdinni, þar sem meðal annars er tilgreind stærð og byggingarefni. Ennfremur skal fylgja umsögn héraðsráðunautar, svo og veðbókarvottorð. Þá skal fylgja búrekstraráætlun til 5 ára og koma þarf fram hverjir væntanlegir fjármögnunarmöguleikar umsækjanda eru. Þeir sem hyggjast sækja um lán til dráttarvélakaupa á árinu 1987 þurfa að senda inn umsóknir fyrir 31. desember n.k. Eldri umsóknir falla úr gildi 15. september næstkom- andi. lBUNAÐARBANKI ISLANDS Stofnlánadeild landbúnaðarins. I I I I I l I I I II I F býður þér þjónustu sína við ný- byggingar eða endurbætur eldra húsnæðis Vlð sðgum I stelnsteypu fydr dyrum, gluggum, stigaopum, lógnum - bœði i vegg og gólf. Ennfremur kjarnaborum við fyrir lógnum i veggl oy gólf. Þvermál boranna 28 mm til 500 mm. Þá sógum við malbik og ef þú þarft að láta fjarlægja reykhafinn þá tókum vlð það að okkur. Hifir leitast við að leysa vanda þlnn fljótt og vel, hvar sem þu ert búsettur á landinu. Greiðsluskilmálar við alira hæfi Bílasími 002-2183 Fífuseli 12 109 Reykjavík sími91-73747 KRANALEIGA • STEINSTEYPUSÖGUN • KJARNABORUN Aðalfundur Sjúkraliðafélags íslands verður haldinn laugardaginn 26. apríl kl. 9.00 f.h. að Grettisgötu 89 þriðju hæð. Dagskrá: 1. Venjuleg aðalfundarstörf 2. Kosning stjórnar 3. Lagabreytingar 4. Önnur mál Stjórnin t Kveðjuathöfn um föður okkar, tengdaföður og afa Finn Þórleifsson, sem lést 29. mars, fer fram í Fossvogskirkju fimmtudaginn 10. apríl kl. 10.30. Jarðsett verður frá Staðarhólskirkju föstudaginn 11. apríl kl. 14.00. Vestfjarðaleið fer frá Umferðarmiðstöðinni kl. 8.00. Kristinn Finnsson Þórleifur Finnsson, Ásdís Arnfinnsdóttir og börn Guðrún Þorleifsdóttir Frá Svinhólum Engjaseli 86 sem lést 26. mars verður jarðsungin frá Fossvogskirkju fimmtudaginn 10. apríl kl. 13.30 Vandamenn Þriðjudagur 8. apríl 1986 lllllllilll MINNING Vigdís Andrésdóttir Fædd 3. septcmber 1891. Dáin 30. mars 1986. Hinn 7. apríl s.l. fór fram útför fóstru minnar.Vigdísar Andrésdótt- ur, frá Fossvogskapellu. Vigdís var á 95. ári þegar hún dó. Hún var fædd 3. septembcr 1891 á Efra-Vaðli á Barðaströnd. Foreldrar hennar voru hjónin Andrés Björns- son og Jóna Einarsdóttir búendur þar. Þau voru bæði af breiðfirskum ættum. Andrés dó í desember 1891 rösk- lega 44 úra gamall frá fimm ungum börnum. Það clsta, Ólína móðir mín var 12 ára eri Vigdís aðeins á fjórða mánuði. Að þeirra tíðar sið var heimilinu tvístrað og engin vettlingatök við höfð,skal sú saga ekki rakin hér. Til mikils láns fyrir fóstru mína lenti hún eftir nokkurn hrakning hjá því ágætis fólki séra Þorvaldi Jakobssyni presti í Sauðlauksdal og konu hans Magdatenu Jónasdóttur. 1 Sauðlauksdal ólst Vigdís upp í skjóli prestshjónanna og með börn- um þeirra. V'ar hún þar sem cin úr fjölskyldunni. Sú tryggð, samheldni og hjartahlýja, sem einkennt hefir þessa fjölskyldu cr sérstök og náði til allra þcirra. sem presthjónin og börn þcirra töldu á einhvern hátt sér viðkomandi. Hefi ég sem þessar línur skrifa notið margs góðs frá þcirri fjölskyldu vegna tcngsla fóstru minnar við Sauðlauksdaisfjöl- skylduna. Vigdís dvaldist í Sauðlauksdal allt þar til hún fór til náms í Ljósmæðra- skólanum í Reykjavík veturinn 1919-1920. Að námi loknu hélt hún vestur í Arnarfjörð til að gegna þar Ijósmóðurstarfi í Ketildalahreppi með búsetu í Austmannsdal. Við ljósmóðurstárfinu þar tók hún árið 1920 og stundaði það allt til ársins 1951. Auk þess tók hún á móti börnum víðar við fjörðinn. Allar þessar fæðingar lánuðust vel. Veit ég ekki um neitt óhapp, sem henti hana í starfi og lifðu bæði börn og mæður þær fæðingar, scm Vigdís var við. Á þessum árum var fátækt almenn þarna, sem víðar og hcimilisástæður oft crfiðar. Rcyndi þá oft á Ijósmóð- urina, þcgar skorti bæði fatnað og lín. Var þá stundum gripið til eigin efna. Stundum þurfti að sinna flcir- um cn sængurkonunni, þar sem eiginmenn voru að heiman í verum eða annarri atvinnu. Voru sjó- mennska og róðrar þá stór hluti af atvinnu fólks í hreppnum. í Ketildölum voru allar ár óbrúað- ar á fyrstu árum Vigdísar þar. Gátu þær stundum verið erfiðar yfirferð- ar. sérstaklega að vor og haustlagi. Varð ljósmóðirin þá að vaða árnar, ef farið var gangandi, sem iðulcga skeði í Ijósmóðurferðum. Sjálf var hún létt til göngu á þeim árum og kappsfull að komast sem fyrst til sængurkvennánna. Man ég sögur frá slíkum ferðum þar sem hún gekk af sér fylgdarmennina. sem þó voru yfirleitt vanir göngumenn á besta aldri. Ég minnist .einnig sjóferða, sem hún fór í starfi sínu í misjöfnu sjóveðri og myrkri, sem var þá einn niesti óvinur ferðafólks til sjós og lands. Sumarið 1922 tók Vigdís sér ferð á hendur vestur í Patreksfjörð. í Vatnsdal bjuggu þá foreldrar mínir með vaxandi ómegð. Þangað fór Vigdís og tók mig, sem þá var reifabarn, með sér í fóstur norður í Arnarfjörð. Fór faðir minn, ásamt traustum sjómanni. með okkur á trillubát frá Vatnsdal að Skeiði í Selárdal í Arnarfirði. Var það óvenjulangur áfangi á svo litlum báti. Frá Skeiði í Selárdal var svo haldið landveginn inn með Arnar- firði. Batt fóstra mín mig í fang sér svo að hún missti mig ekki, ef hesturinn. sem hún reið, hrasaði. Á hestunum var haldið inní Aust- mannsdal, en sú leið var þá frekar ógreiðfær eins og landleið með fjör- um var þá víða þar vestra. Þessi ferð sýnir nokkuð skaplyndi Vigdísar. Hún var ákveðin, fram- takssöm og kjarkmikil, en fór þó að öllu með gát. Þegar Vigdís kom í Austmannsdal hafði hún með sér orgcl, sem hún hafði lært að leika á strax í uppvexti sínum í Sauðlauks- dal enda þótti það sjálfsagður hiutur hjá prestshjónunum þar, að hljóm- list og söngur væri hluti af uppeldi og fræðslu barna þeirra og uppeldis- barna. Bjó Vigdís að þessari tónlist- arfræðslu og gat miðlað nýjunt svcit- ungum af þessari kunnáttusinni.sem hún gerði fyrstu árin sín í Aust- mannsdal. Hefi ég heyrt tónelska menn að vestan minnast meö þakk- læti þessa þáttar kynna sinna af Vigdísi frá þessum árum. Vigdís dvaldist í Austmannsdal næstu árin og kynntist þar manni sínum Einari Boga Gíslasyni, f. 3. sept. 1906. Þau giftu sig í maí 1928. Einkason sinn, Sigurjón, nú sóknar- prestur á Kirkjubæjarklaustri, eign- uðust þau í ágúst 1928. Einar, sem var búfræðingur að mennt, var af gömlum og þekktum ættum í Arnar- firði og stutt að rekja til Selár- dalspresta, sem kunnir eru úr sögum. Árið 1929 fluttust þau hjónin frá Austmannsdal og byrjuðu búskap. fyrst á Öskubrekku, en frá árinu 1934 á Fífustöðum. Bjuggu þar til ársins 1944, að þau fluttu að Bakka í sömu sveit. Þar bjuggu þau til ársins 1948, er þau hættu búskap og fluttu til Bildudals. Við búskapinn voru þau hjón samhent. sem endranær og búnaðist því betur sem þau bjuggu lengur. Á síðari árum búskaparins varð sjó- sókn stærri þáttur afkomu þeirra, enda Einar þaulvanur sjómaður. reyndar jafnvígur dugnaðarmaður livort heldur var til sjós eða lands. Ekki verður sambúð þeirra hjóna tíunduð hér að öðru leyti en því, að hún var með ágætum alla tíð, enda bæði skynsöm vel og mannkosta- manneskjur. Jafnframt því að hafa börn og unglinga af og til á heimili sínu ólu þau upp að mestu leyti tvær stúlkur: Rut Salómonsdóttir kom til þeirra kornabarn, f. 30. júií 1936, og dvaldi hjá þeim ásamt móður sinni, Guð- hjörgu Elíasdóttur, sem síðar fórst með m/s Þormóði í febrúar 1943. Eftir það ólst Rut upp hjá þcim Vigdísi og Einari þartil hún stofnaði sitt eigið heimili. Petrína Gunnarsdóttir kom til þeirra hjóna 5 ára gömul eftir að móðir hennar, Kristjana Krist- mundsdóttir dó snöggt og óvænt frá þrcmur ungum börnum. Kristjana hafði verið hjá þeitn Vigdísi og Einari frá fermingaraldri og þar til að hún giftist. Ólst nú Petrína upp hjá fósturforeldrum mínum á Bíldu- dal og síðar hér í Reykjavík. Voru þau hjónin þá komin á fullorðinsald- ur, svo að segja má, að uppeldi barna hafi verið snar þáttur í lífi fóstru minnar, þótt hún eignaðist ekki sjálf nema eitt barn. En ekki fer allt að óskum. Petrína dó t' blóma lífsins, snöggt og óvænt úr sama sjúkdómi og móðir hennar frá ung- um syni og eiginmanni. Á Bíldudal áttu þau hjónin heima til ársins 1956, en þá fluttu þau til Reykjavíkur. Þegar þau fluttu á Bíldudal keyptu þau sér íbúð í Glaumbæ, sögufrægu húsi, sem Pétur Thorsteinsson byggði á sinni tíð. Einar stundaði aðallega sjómennsku, ýmist á eigin bát eða með öðrum. Dvöl þeirra á Bíldudal var eins og hjá mörgum öðrum samsveitungum áfangi á leið- inni til Reykjavíkur. Eftir að þau komu tii Reykjavíkur fór Einar nær strax að vinna hjá Kassagerð Reykjavíkur og vann hann þar uns hann hætti störfum vegna aldurs. Þegar þau fluttu að vestan seldu þau jörðina sína Bakky og íbúðina á Bíldudal og dugði það rétt fyrir fokheldri íbúð í Reykjavík, sem þau byggðu í fjölbýlishúsi að Hvassaleiti 20. Þar bjuggu þau til ársins 1979, að þau fluttu að Hrafnistu í Reykjavík, þar sem Einar dvelur nú farinn að heilsu og kröftum. Vigdís fóstra mín var föst fyrir og ekki tilbúin að láta hlut sinn teldi hún sig hafa á réttu að standa. Hún gat verið orðhvöss ef hún átti orða- stað við hvatvíst fólk. sér í lagi ef það var mikið á lofti. En undir niðri hafði hún gaman af og rifjaði gjarnan upp atburðinn og brosti við. Ekki held ég samt að gamlir samferðamenn minnist hennar öðru- vísi en gestrisinnar, ræðinnar og hjálpsamrar.ef eitthvað á bjátaði. Og eitt var henni gefið umfram flesta aðra: það varstálminni. Undr- aðist ég oft hvað hún gat rifjað upp og munað - og þessari gáfu hélt hún til síðustu stundar. Nú að leiðarlokum þá veit ég, að margir samferðamenn hugsa hlýtt til fóstru minnar. Bæði gamlirsveitung- ar að vestan og eins fólk, sem hún og þau hjón, kynntust hér syðra á seinni árum. Hún var félagslynd, hafði gaman af að umgangast fólk, trygglynd og vinur sinna vina. Sjálfur vil ég þakka henni - og þeim hjónum báðum langa og góða samferð. Við. kona mín og börn. minnumst og þökkuni þeini báðum þau góðu kynni. Vorum við þar oftar þiggjendur en gefendur. Með þeirri ósk. fóstra mín, að þú megir hvíla í friði, tek ég mér leyfi að enda þessar línur á orðum hins forna höfundar Sólarljóða: Drottinn minn. gef þú dtínum ró. hinum líkn. sem lifa. Stefán Thóroddsen. Dagfari tímarit Samtaka herstöðvaandstæðinga Leiðari blaðsins er eftir Árna Hjartar- son og heitir Endurreisn hugleysisstefnu íslands! Hann segir þar m.a. „Harmi slegnir sjá friðarsinnar um heim allan nú á bak einum sínum besta liðsmanni. Olof Palme er fallinn fyrir byssukúlu óþekkts ofbeldismanns." Þá er Annáll 1985 eftir Á.H. Bomban sprakk á sviðinu heitir frásögn Sigrúnar Valbergsdóttur af al- þjóðlegri leiklistarhátíð í Japan. Tómas Jóhannesson jarðeðlisfræðingur skrifar: Stjörnustríð - Geimvarnakerfi munu auka hættuna á gereyðingu. ísland í kjarnorkuátökum eru ýmsar athuganir úr mörgum heimildum. samantekið efni af Guðmundi Georgssyni. Sóleyjarkvæði er sígilt verk með mynd af Háskólakórnum er í blaðinu og margt fleira efni. Ritstjóri er Magnús H. Skarphéðinsson.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.