Tíminn - 23.04.1986, Blaðsíða 1

Tíminn - 23.04.1986, Blaðsíða 1
AFENGI og tóbak var hækkað í verði í gær um 10% að meðaltali. Mest var hækkunin á léttum vínum, eða allt upp í 17% en minnst á íslenskum brenndum vínum eða 4-5%. Sígarettur hækkuðu um 6-8%, reyktóbak um 7% og vindlar allt að 11%. Áfengi og tóbak hafa ekki hækkað í verði síðan í nóvember. í SKYNDISKOÐUN fiskiskipa sem Siglingamálastofnun framkvæmdi í fyrri viku voru nokkur skip stöðvuð þar sem þau höfðu ekki haffæri. Athugasemd- ir voru gerðar við ýmislegt í öðrum skipum, en alls var farjð í um 100 skip í þessari skoðunarlotu. Útbúinn hafði verið listi með nokkrum tugum atriða og átti að skoða nokkur atriði. af þessum lista í hverju skipi. Heildárniðurstöðu er að vænta á næstunni en alls voru yfir 2000 atriði skoðuð í skyndiskoðuninni. BANDARÍKJAMENN sprengdu kjarnorkusprengju í tilraunaskyni í Neva- daeyðimörkinni í gærdag. Þetta var þriðja tilraunasþrenging Bandaríkjamanna á þessu ári. Sovéska fréttastofan Tass gagnrýndi sprenginguna í gær og sagði hana hafa skemmt fyrir einstæðu tækifæri til að koma afvopnunarviðræðum á veru- legt skrið. HÚSEIGENDUR hafa skorað á Alþingi að gæta hagsmuna þeirra hús- byggjenda sem fengið hafa lán frá Bygg- inqasjóði, þar sem nýjar reglur um Byqq- ingasjóðinrj gætu frvst menn á neósta þrepi íbúðatröppunriar. INNTÖKUSKILYRÐI ’ sam vinnuskólans á Bifröst hafa nú verið aukin. Umsækjendur þurfa nú að hafa lokið tveggja vetra framhaldsskólanámi á viðskiptasviði eða a.m.k. námsgreinun- um: Bókfærslu, hagfræði og vélritun auk almennra kjarnagreina. Umsóknarfrestur ertil 10. júní og skulu umsóknir sendar til skólastjóra Sam- vinnuskólans á Bifröst. Eftir ástæðum verður efnt til sérstakra stöðuprófa og óskað eftir sérstökum vottorðum um undirbúning umsækjenda. Eftir tveggja vetra nám í Samvinnu- skólanum útskrifast nemendur með stúd- entspróf sem m.a. veitir rétt til háskóla- náms. „FLOTAST JÓRN Atlantshafs- bandalagsins hefur lýst áhuga á að kann- aður verði möguleiki á því að byggður verði varaflugvöllur fyrir Keflavíkurflug- völl.“ Svo hljóðar fyrsti liðurinn í svari utanríkisráðherra við fyrirspurn Karls Steinars Guðnasonar um alþjóðaflugvöll við Sauðárkrók sem lagt var fram á AlþíngL Tekið er fram í svarinu að engar formlegar viðræður hafa farið fram um málið, en jafnframt að flotastjórn Atlants- hafsbandalagsins hafi fyrir milligöngu varnarliðsins boðið íslenskum stjórnvöld- um að forathugun fari fram á því hvar heppileqast er að gera slíkan flugvöll. Þá segir ao flotastjórnin sé reiðubúin til að leggja fé til slíkrar athugunar. I síðasta lið svarsins er eftirfarandi tekið fram: „Viðræður munu leiða í Ijós hvaða skilyrði eru sett fyrir fjárveitingu í framkvæmd sem þessa af hálfu Atlants- nafsbandalagsins. Áhugi flotastjórnarinn- ar byggist á nauðsyn þess að hafa varaflugvöll fyrir flugvélar varnarlið.sins ef Keflavíkurflugvöllur er lokaður fyrir flugumferð vegna veðurs. Engar hug- myndir eru um varnarsveit eða gæslulið vio varaflugvöll. Ekkert liggur fyrir um sérstaka þörf á eldsneytisbirgðarými fyrir flugvélar Atlantshafsbandalagsins." KRUMMI Sinubrunatíminn stendur nú sem hæst eins og Reykvíkingar hafa orðið varir við undanfarna daga. Afmælisgjöf Rey kjavíkur frá menntamálaráðherra, Viðey, var öll svartflekkótt í gær eftir sinubruna. Tímamynd Róbcrt. Sinan ofsótt í Reykjavík Mikið var um sinubruna á höfuðborgarsvæðinu í gær og var slökkviliðið meðal annars kallað þrisvar út vegna þess að fólk var að snyrta garða hjá sér. Við lá að illa færi í Fífuhvammi, en þar hafði eldurinn nálgast þrjú hús og traktor. Slökkviliði, lögreglu og vegfarendum tókst að koma í veg fyrir að illa færi. Þá voru einnig nokkuð stór svæði undirlögð vegna sinuelda upp við Rauðavatn og Elliðavatn og var gróður þar í hættu. Slökkviliðið vill vara bæði börn og fullorðna við að kveikja í sinu, því gróður er mjög skrælnaður og um leið og golar (eins og eftir hádegi í gær) ræður fólk ekki neitt við cldinn. . Skattsvik auðveld þar sem eftirlit er lítið: Milljóna tekjur tapast vegna vanmannaðs kerf is - segir skattstjóri Reykjaneskjördæmis „Við höfum margoft bent á, að ef við værum fleiri þá gætum við náð inn meiri tekjum 'sem liggja eiginlega á borðinu. Það er í ýmsu formi, sem kemur fram við vélræn- an samanburð, hjá embættinu. Bílastyrkir eru alltaf erfiður þáttur og frá okkar sjónarmiði vafasam- ur,“ sagði skattstjóri Reykjancs- kjördæmis Sveinn Þórðarson í samtali við Tímann í gær. Hann sagði að það væri erfitt að segja til um hversu háar upphæðirnar væru, en benti jafnframt á að sennilega væri um milljónir króna að ræða. „í skattinum er mjög fljótt að koma í milljónina," sagði Sveinn. „Það er mín skoðun að betur mannað skattakerfi gæti alveg framkvæmt skattalögin hér á landi svo að viðunandi yrði. Núna er þetta algerlega óviðunandi. Venj- an er sú að kenna um erfiðum skattalögum. Þau eru oftast nær eitthvað gölluð, en það er ekki það sem vantar. Það vantar fólk. Það kostar náttúrlega peninga, en það kemur líka í aðra hönd,“ sagði Sveinn. Um niðurstöður ncfndar sem Þorsteinn Pálsson fjármálaráð- herra skipaði til þess að kanna umfang skattsvika hérlendis sagði Sveinn. „Því miður leitaði nefndin ekki til okkar. Því miður scgi ég, því þetta voru menn scm ekki þekkja til verka skaltstofa. Það þótti ekki ástæða til þess að setja skattstjóra í nefndina, en við þekkjum nú til þessa og vitum að ég hcld meira um þetta á sutnum sviðum heldnr en þeir sem sátu í nefndinni. Það er óhjákvæmilegt. Ég gæti bcst trúað að þær niður- stöður scm nefndin komst að séu mjög varlega áætlaðar. Ég trúi því að þcir séu í neðri kantinum á þessu öllu saman. Það getur hver maður séð, scm lítur í skattskrána og ber hana saman við hvernig mcnn búa og lifa, að dæmiðgengur ekki upp. Maður sér að eignir hrannast upp hjá mönnum sem eru undir fátækramörkum í skatt- skránni,“ sagði Sveinn. Það er ekki skrýtið þó Sveinn kvarti yfir manneklu. Fyrir tæpum tveimur árum fékk skattstofan í Reykjaneskjördæmi leyfi til þess að bæta við fjórum stöðugildum. Ekki hefur tekist að ráða í nema eina þeirra. „Við einfaldlega get- um ekki boðið sömu laun og fyrir- tæki á vinnumarkaðnum, sem kcppa um hæft fólk,“ sagði Sveinn. Fyrir nokkrum árum gat skattstof- an í Reykjaneskjördæmi leyft sér að senda tvo menn út af örkinni til þess að kanna bókhald hjá fyrir- tækjum, en nú heyrir það fortíðinni til. Garðar Valdimarsson skattrann- sóknarstjóri var spurður að því hvort illa héldist á mannskap og hvort það veikti ekki kerfið að vitneskja læki út. „Jú að sjálfsögðu veikir það kerfið. Það segir sig sjálft. Við erunt ekki nægilega ánægðir með hve mannaskipti hafa verið ör í gegnum árin. Það hefur þó heldur skánað í seinni tíð. Það er þó staðreynd að við höfum misst marga góða menn, vegna launa, í skattakerfinu í heild,“ sagði Garðar. -ES Albert skrópaði! „Það er rétt Albert Guðmunds- son iðnaðarráðherra mætti ekki til ríkisstjórnarfundar í morgun. Ég veit ekki af hverju sú fjarvera stafaði. Ef til vill er hann eftir sig vegna langrar dvalar erlendis undanfarið. Ég geri fastlega ráð fyrir því að hann mæti í framtíð- inni, enda gerir stjórnarskráin ráð fyrir því að ríkisstjórnarfund- ir séu haldnir og þá um leið að ráðherrar sæki fundina," sagði Steingrímur Hermannsson for- sætisráðherra í samtali við Tím- ann í gær. Að venju fundaði ríkisstjórnin í gær, en vikulegir samráðsfundir ráðherra eru á þriðjudagsmorgn- um. Iðnaðarráðherrra stóð við fyrri yfirlýsingu sína um að mæta ekki til ríkisstjórnarfunda nema í sérstökum tilvikum og sat sem fastast í ráðuneytinu í gærmorg- un. Hann kom til landsins að lokinni tveggja vikna dvöl erlend- is síðastliðinn laugardag og því hefur ekki reynt á fyrirheit ráð- herrans fyrr en í gær. -SS

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.