Tíminn - 23.04.1986, Blaðsíða 2
2 Tíminn
Miövikudagur 23. apríl 1986
Skýrsla Sverris um Lánasjóöinn:
Borgarstjórn:
Mun stjórna LIN Dagmömmur
með reglugerðum .heim
Ráðherra vili 3,5% vexti og hertar endurgreiöslur U£|| | Kll IIICI
Skýrsla menntamálaráðherra um
Lánasjóð íslenskra námsmanna var
afhent alþingismönnum í gær. Ráð-
herra hafði áður boðað að lagt yrði
fram frumvarp um sjóðinn fyrir
þinglok, en vegna ágreinings meðal
stjórnarliða um málið kemur skýrsl-
an í þess stað.
í inngangi að skýrslunni nefnir
Sverrir Hermannsson þennan
ágreining og segir m.a.: „Nú hafa
stjórnarflokkarnir gert með sér sam-
komulag um að nefna tvo menn hvor
í samstarfsnefnd um málið sem sam-
ræmi sjónarmiðin fyrir þing á hausti
komanda. Ég tek það fram að ég álít
að flokkana skilji ekki mjög mikið
að um afstöðu í máli þessu, enda
hefur hæstv. forsætisráðherra gefið
mér heimild til að stjórna breyttum
starfsháttum LÍN með reglugerðum
svo langt sem þær kunna að ná.“
Menntamálaráðherra segir í
skýrslunni að einstæð kjör náms-
lána, léleg endurheimta þeirra og
ófyrirséð fjölgun námsmanna hafi
valdið því að málefni Lánasjóðsins
hafi farið úr böndunum. Mikil ásókn
væri í rífleg lán, sem enga vexti bera
og lánþegar viti að verulegur hluti
lánanna verði að auki afskrifaður
vegna endurgreiðslureglna.
Ráðherra vill að skýrt verði af-
markað í lögum hverjir teljist vera í
aðstoðarhæfu námi, að ekki verði
tekið tillit til tekna námsmanna við
útreikning lána, að fjárhæð lána og
styrkja ákvarðist af heildarráðstöf-
unarfé sjóðsins, að skipan stjórnar
LÍN verði breytt, að tekið verði upp
lántöku- og innheimtugjald, að
stjórn LÍN verði að taka tillit til
fjárveitinga Alþingis hverju sinni,
að fyrsta árs nemum verði veitt
sérstakt skuldabréfalán til tveggja
ára, að Lánasjóðurinn veiti lánþeg-
Frjálsar eldspýtur
og vindlingapappír
Um þessar mundir streyma ný lög
frá Alþingi, eins og jafnan síðustu
dagana fyrir þinglok. Flest laganna
eiga rætur sínar að rekja til stjórnar-
frumvarpa sem stjórnarflokkarnir
hafa lagt áherslu á að afgreiða áður
en sumar gengur í garð og þingmenn
halda heimleiðis.
Meðal þeirra frumvarpa sem hafa
verið afgreidd sem lög undanfarið
má nefna frumvarp um söluskatt,
um Siglingamálastofnun, um Söfnun-
arsjóð íslands, um varnir gegn
mengun sjávar, um Þjónustu- og
endurhæfingarstöð sjónskertra, um
Atvinnuleysistryggingasjóð, um al-
mannatryggingar, og um verslun
ríkisins með áfengi. Síðasttalda
frumvarpið varðar í raun breytingu
á lögum um verslun ríkisins með
eldspýtur og vindlingapappír. Inn-
flutningur á þessum vörutegundum
er gefinn frjáls, en gert ráð fyrir að
ríkið nái inn væntanlegu tekjutapi
með sérsköttun.
Til viðbótar má nefna að frumvarp
um breytingar á lögum um happ-
drætti H.í. hefur verið samþykkt,
frumvarp um veitingu íslensks ríkis-
borgararéttar, um breytingu á út-
varpslögum, um breytingu á lögum
um húsaleigusamninga, um Utflutn-
ingsráð, um Innheimtustofnun sveit-
arfélaga, um þjóðarátak vegna Þjóð-
arbókhlöðu, og um lögverndun
starfsheitis kennara og skólastjóra.
-SS
-tillaga um rýmkun niðurgreiðsluákvæöa
um reglulega upplýsingar um heild-
arnámsskuld hverju sinni, að náms-
lán beri 3,5% vexti, að endur-
greiðslutími námslána verði styttur
úr 40 í 30 ár auk þess sem tekjuteng-
ing afborgana verði lögð af og lánin
endurgreiðist að fullu, og að teknir
verði upp sérstakir námsstyrkir.
í lok skýrslunnar segir m.a.:
„Samkvæmt þessari niðurstöðu þarf
ríkisstjórn og Alþingi að sjá fyrir á
hausti komanda 258 milljónum
króna í fjárútvegun vegna LÍN og
hlýt ég nú, til að eyða allri óvissu, að
lýsa yfir að ég mun beita mér fyrir
að svo muni verða gert, enda hefi ég
samþykkt ríkisstjórnarinnar fyrir
þessari yfirlýsingu.“
-SS
Gerður Steinþórsdóttir (Fram-
sóknarfl.) lagði fram á borgar-
stjórnarfundi í fyrrakvöld tillögu
þess efnis að reglum um niður-
greiðslu daggjalda vegna dagvistar
á einkaheimilum yrði breytt.
Breytingin sem Gerður lagði til
felst í því að einstæðum foreldrum,
verði veittur sá kostur að fá niður-
greiðslu daggjalda ef þau kjósa að
fá dagmóður til að gæta barnsins á
eigin heimili. Þetta er ekki mögu-
legt skv. núgildandi reglum þar
sem barnið þarf að fara á heimili
dagmóðurinnar. Jafnframt lagði
Gerður til að niðurgreiðslur sem
þessar verði greiddar fyrr en nú er
gert og ekki síðar en 15. hvers
mánaðar. I tillögunni er gert ráð
fyrir að komi dagmæður á heimili
barnsins gildi sömu reglur um sam-
þykki barnaverndarnefndar og
eftirlit umsjónarfóstru með heimil-
inu eins og í gildi eru um dagmæður
nú.
í rökstuðningi sínum benti
Gerður á að þessi breyting gæti
haft í för með sér umtalsverða
hagræðingu fyrir einstæð foreldri,
einkum þar sem um fleiri en eitt
barn væri að ræða.
Tillagan hlaut góðar undirtektir
í borgarstjórn, en þó var ákveðið
að vísa henni til stjórnar dagvista.
“ -BG
.... —■ ...........
Flugleiðir selja Hátel Örk í Hveragerði bréf sín í Amarflugi:
Helgi Þór hlýtur að hafa
'lausn á vanda Amarflugs
4A
Einar Agústsson jarðsunginn
Útför Einars Ágústssonar sendiherra og fyrrverandi utanríkisráðherra fór
frain í Dómkirkjunni í gær. Séra Ólafur Skúlason dómprófastur jarðsöng
og organisti var Martin Hunger Friðriksson. Mikið fjölmcnni var við
útförina. Tímamynd: S\t'rrir
llllllll VEIÐIHORNIÐ llllllliUmsjón Eggert SkúlasonI
Veiðiráðstefna á Loftleiðum
- aðgangur ókeypis
Landssamband veiðifélaga
gengst fyrir veiðiráðstefnu laugar-
dag og sunnudag á Hótel Loftleið-
um. Veiðimenn sem flestir eru nú
farnir að smyrja hjólin og huga að
græjunum eru hvattir til þess að
mæta og ræða málin og hlýða á þau
erindi sem flutt verða. Til þess að
hita mannskapinn upp verður hald-
ið kastmót á Laugardalsvellinum,
þar sem menn geta kastað flugu
eða einhverju þyngra. Keppnin
hefst klukkan níu á laugardags-
morgun og eru öll tæki til staðar.
Það er völlurinn suður af sundlaug-
inni sem notaður verður. Verðlaun
verða veitt á ráðstefnunni.
Á laugardeginum flytja þeir er-
indi; Rafn Haffjörð en hann verð-
ur með myndasýningu og frásagmr
af ýmsum veiðistöðum, Vilhjálmur
Lúðvíksson og fjallar um veiði-
heimspeki, siðfræði veiðimannsins
og fleira, Jón Kristjánsson veltir
fyrir sér spurningunni af hverju
tekur hann? Takist Jóni að svara
þeirri spurningu gæti svo farið að
met-veiðiár væri í uppsiglingu. Að
sjálfsögðu verður það formaður
landssambandsins Gvlfi Pálsson
sem setur ráðstefnuna.
Á sunnudeginum flytur Hans
Nordeng erindi. Hannes Hafstein
frá Slysavarnafélaginu fjallar um
nauðsyn öryggis við ár og vötn.
Stefán Jónsson ræðir um veiðibók-
menntir og eðli veiðisagna. Loks
munu þeir Kolbeinn Grímsson og
Þorsteinn Þorsteinsson fjalla um
veiðitæki og notkun þeirra.
í hléum gefst mönnurn tækifæri
til þess að rifja upp veiðisögurnar
og krydda þær sem ekki eru nægi-
lega bragðbættar. Myndband verð-
ur í gangi og í anddyrinu liggja
frammi veiðiblöðin. Fluguhnýting-
armenn verða að störfum. Sem
sagt hægt að taka forskot á sæluna
fyrir sumarið með því að kanna
andrúmsloftið.