Tíminn - 23.04.1986, Blaðsíða 4

Tíminn - 23.04.1986, Blaðsíða 4
Sean Connery gefur föðurleg ráð - og Jason fer eftir þeim nyjum sjónvarpsþáítum „Þú skalt gera það sem þér þykir skemmtilegast að fást við. Annars verðurðu hara leiðindapúki!“ Þetta eru lífsreglurnar sem Sean Connery hefur lagt syni sínum Jason, sem nú er orðinn 23ja ára og hefur tekið föður sinn á orðjnu. Jason hefur komist að þeirri niðurstöðu að það sem honum þyki skemmtilegast aö fást við sé að leika, enda má segja að hann eigi ekki langt að sækja það. Móðir hans er leikkonan Diane Cilento sem nú er húsett í Ástralíu, en faðir hans hýr nú á Spáni. Jason átti sér annan framtíöardraum um tíma. Þegar hann stundaði nám við fínustuogdýrustuskóla Bretlands, þar sem hann var m.a. bekkjarbróðir Edwards prins, ól hann meðsér þann draum að verða atvinnumaður í sundi. Seani Connery lék Hróa höttíkvik- nrynd 1976. En hann komst fljótlegaað raun um þaðaðsundþjálfunin við þessa frægu skóla var rekin af slíku kappi að hann varð algerlega afhuga frekari kynnum af þessari göfugu íþrótt. „Við vorum látnir æfa 8 tíma á dag og hárið á mér varð grænt, puttarnir allir krypplaðir og neglurnar linar af öllu þessu sulli. Ég var búinn að fá nóg,“ segir Jason. Nú er það leiklistin sem á hug hans allan. Hann er farinn að leika í sjónvarpsþáttum sem nefnast Hrói í Skírisskógi oger nýfarið að sýna í Bretlandi. Ogeins og við var að búast er frammistaða hans dæmd í samanburði við föður hans, sem lék Hróa hött í kvikmynd fyrir lOárum. „Þeir segja að ég eigi ekki sömu töfrana og pabbi, en hann hefur 25 ára reynslu aðbaki. Égerréttað byrja,“ segirJason. Oghann stendur á því fastar en fótunum að hann eigi aldrei eftir að feta fullkomlega í fótspor pabbagamla, hann eigi t.d. aldrei eftir að taka að sér hlutverk James Bond. Hrói í Skírisskógi t'er engum silkihönsk- um um óvini sína. Jason lief'ur engan tíma haft til að leika sér stúlkuni, en í sjónvarps- þáttunum leikur Judi Trott Marian og það fer ágætlega á með þeim Miðvikudagur 23. apríl 1986 ;ll!!l!l!l!llll!l!lllllll!!l útlönd lilllllf LUNDÚNIR — Bresk stjórn- völd hafa látiö handtaka 21 Líbýumann og veröur þeim vísað úr landi af öryggisástæö- um. Heimildir innan ríkisstjórn- arinnar herma aö einn mann- anna sé þjálfaður flugmaöur sem rætt heföi um vilja sinn til aö fljúga sjálfsmorösflug bandarísk skotmörk. VESTUR-BERLIN - Pal- estínumaöurinn sem handtek- inn var vegna gruns um aö hafa átt aðild aö sprengitilræð- inu á skemmtistaönum í Vest- ur-Berlín er bróöir mannsins sem haldið er í Lundúnum. Sá reyndi að smygla sþrengju um borö í ísraelska flugvél og notaði til þess farangurstösku írskrar vinkonu sinnar. MOSKVA — Háttsettur starfsmaöur sovéska utanrík- isráöuneytisins sagöi stjórn- völd sín hafa sannanir fyrir því að Bandaríkjamenn hefðu misst fleiri flugvélar en þá einu sem stjórnvöld í Washington sögöust hafa misst. Starfs- maðurinn sagöi tæknilegar aö- feröir sýna aö fimm flugvélar heföu farist. TRÍPÓLÍ — Muammar Ka- dafy Líbýuleiðtogi líkti Reagan Bandaríkjaforseta viö „nýnas- ista“ í yfirlýsingu sem gefin var út í gær. Kadafy sagöi þjóö sína muna berjast gean heims- valdastefnu þar til friður ríkti á jörðinni. TOKYO — Líkur á batnandi stööu bandaríska dollarans voru ekki miklar í gær. Dollar- inn var þá seldur í Asíu lægra en nokkur sinni fyrr í saman- buröi viö japanska yenið og í Lundúnum hélt dollarinn áfram að falla. GENF — Sérfræöingar sögöu þá ákvöröun OPEC-ríkjanna aö setja aöeins hófleg fram- leiðslutakmörk ekki koma til meö aö hafa áhrif á heims- markaðsverð á olíu til að byrja meö. Hins vegar eru fram- leiðslutakmörkin aö sögn sér- fræöinganna hluti af langtíma- áætlun sem miðar aö því aö OPEC-ríkin nái aö nýju völdum yfir markaðinum. AMMAN — Skothríö braust út á skrifstofu Yasser Arafats, leiðtoga Frelsissamtaka Pal- estínuaraba (PLO), í Amman í gær. Aö sögn sjónarvotta særöust tveir menn en Arafat sjálfur var ekki á skrifstofunni. Hann er um þessar mundir í Bagdad. GENF — Sovéska sendi- nefndin sagöi á fundi fjörutíu þjóöa um afvopnunarmál aö stjórnvöld lands síns væru reiðubúin aö eyöileggja efna- vopnaverksmiðjur sínar i viöurvist erlendra eftirlits- manna. Yrði slík eyöilegging liður í tillögum Sovétmanna um alþjóðabann gegn notkun slíkra vopna. JAKARTA — Paul Wolfow- itz sendiherra Bandaríkjanna í Indónesíu sagöi stjórnvöld sín ekki ætla að stofna til viðskipta- og stjórnmálatengsla viö Víet- nam fyrr en herir þeirra yröu á brott frá Kambódíu. BONN — Heimildir innan vestur-þýsku ríkisstjórnarinnar hermdu í gær að fækkaö yröi mjög verulega i sendiráðsliði líbýska sendiráösins í V- Þýskalandi og einnig myndu vestur-þýsk yfirvöld kalla heim helming starfsliösins í sendi- ráöi sinu í Trípólí. Alls vinna rúmlega fjörutíu manns í sendiráöi Líbýumanna en vestur-þýsk stjórnvöld munu ætla sér aö fá þann fjölda niður fyrir fimmtán manns.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.