Tíminn - 23.04.1986, Qupperneq 5
Miðvikudagur 23. apríl 1986 Tíminn 5
‘iiiiiini' útlönd ||I!I'!|;| .ll.llHl^lll|^ .iiiHiff;1: iMiiniir' ... ... .. ~
AUSTURRÍKI:
Haldlitlar sannanir
um stríðsglæpafortíð
- Kirchschláger forseti sagði ekkert mál vera gegn Waldheim
Vín-Reuter
Rudolf Kirchschláger forscti
Austurríkis sagði í sjónvarpsávarpi í
gær að hann sem lögfræðingur myndi
ekki detta í hug að ákæra Kurt
Waldheim, fyrrum aðalritara Sf> og
nú forsetaframbjóðanda í Austur-
ríki. um stríðsglæpi í þágu nasista í
síðari heimsstyrjöldinni. Kirchschl-
áger sagði þetta í ávarpi til þjóðar-
innar eftir að hafa rannsakað skjöl
um Waldheim og fortíð hans. *
Forsetinn sagði aftur á móti að
Waldheim hlyti að hafa vitað allt um
hegðun herja Hitlers á Balkan-
skaganum.
..Hvaða ályktanir þið dragið fyrir
forsetakosningarnar.... verða á ykk-
ar eigin ábyrgð sagði hinn aldni og
virti forseti í ávarpi sínu til þjóðar-
innar.
Kurt Waldheim býður sig fram til
forseta og fara kosningar fram þann
4. maí næstkomandi. Hann hefurþó
að undanförnu verið mest í fréttum
vegna ásakana um að hafa verið
viðriðinn stríðsglæpi nasista í síðari
heimsstyrjöldinni. Waldheim hefur
staðfastlega neitað þessum ásökun-
um.
Ávarpi Kirchschlágers hafði verið
beðið með eftirvæntingu í Austur-
ríki sem annars staðar. Dómur hins
virta forseta var talinn geta haft
úrslitaáhrif á útkomuna í væntanleg-
um forsetakosningum.
Fortíðin hcfur tengst forsetaframtíð
Kurts Waldheims að undanförnu.
Sannast þar að vond fortíð getur haft
áhrif á góða framtíð. Litlar sannanir
virðast þó liggja fyrir um stríðs-
glæpafortíð Waldheims, fyrrum
aðalritara Sameinuðu þjóðanna.
EVRÓPA:
Líbýumenn sendir
til síns heima
HAITI:
Duvalier virðist ekki
dauður úr öllum æðum
Forsetaframbjóðandi segir stuðningsmenn Duvaliers enn sitja í
mikilvægum valdastöðum
Port-Au-Prince-Reuter.
Helsti forsetaframbjóðandinn á
Haiti sagði í vikunni að ekki væri
Namphy hershöfðingi er æðsti mað-
ur bráðabirgðastjórnar þeirrar sem
nú fer með völd á Haiti. Helsti
forsetaframbjóðandinn í væntanleg-
um kosningum hefur nú varað
Namphy við Duvaliersinnum.
óhugsandi að stuðningsmenn Jean-
Claude Duvalier, fyrrum einræðis-
herra, reyndu að efna til nýrrar
stjórnarbyltingar á eynni.
„Landið er í hættu,“ sagði Pastor
Silvio Claude stofnandi Kristilega
lýðræðisflokksins (PDCH) í ræðu sem
hann hélt á fundi með þrjú þúsund
stuðningsmönnum sínum í höfuð-
borginni Port-Au-Prince.
Forsetaframbjóðandinn hvatti í
ræðu sinni Henry Namphy hershöfð-
ingja, sem er æðsti maður í stjórn
þeirri sem nú fer með völd í landinu,
til að hefjast handa hið snarasta og
reka alla stuðningsmenn Duvaliers
úr ábyrgðarstörfum. Ef ekkert yrði
að gert sagði Claude að svo gæti
farið að hópar úr hinni vel vopnuðu
fyrrum leyniþjónustu Duvaliers
/hinir svokölluðu Tonton Macoutes)
gerðu byltingu gegn Namphy og
stjórn hans.
Claude hvatti stuðningsmenn sína
til að flykkja sér um Namphy og
stjórn hans sem fer með völd þar til
almennar kosningar geta farið fram í
landinu.
„Við vitum að Namphy hershöfð-
ingi reynir að gera vel. Hann er þó
ekki öruggur í stöðu sinni og hefur
leyft nokkrum stuðningsmönnum
Duvaliers að sitja í valdastöðum,"
sagði Claude í samtali við frétta-
menn Reuters í vikunni.
Lundúnir-Rcuter.
Stjórnvöld í Bretlandi, V-Þýska-
landi og Danmörku hafa tekið upp
aðgerðir í anda samkomulags þess
sem ríki Evrópubandalagsins (EC)
gerðu með sér á dögunum um
minnkandi umsvif líbýskra sendi-
ráða í þessum löndum.
Breska ríkisstjórnin lét hand-
taka 21 líbýskan borgara í hinum
ýmsu hlutum landsins og verður
þeim vísað úr landi í nafni þjóðar-
öryggis.
í Vestur-Þýskalandi herrndu
heimildir innan ríkisstjórnarinnar
að fækkað yrði verulega í scndi-
, ráðsliði Líbýumanna í landinu en
það telur rúmlega fjörutíu manns.
Líklegt þykir að sendiráðsstarfs-
menn Ltbýumanna verði færri en
fimmtán eftir aðgerðir vestur-
þýsku stjórnarinnar.
Þá sagði Uffe Elleman-Jensen
utanríkisráðherra Danmerkur í
blaðaviðtali að stjórn sín myndi vísa
nokkrum af þeim sjö líbýsku sendi-
ráðsstarfsmönnum sem í Dan-
mörku eru á brott úr landi „eins
fljótt og kostur er á“.
Engin skothríð
í 335 ára stríði
UNGVERJALAND:
Hækkun á áfengi í
nafni heilsuverndar
Budapest-Reuter
Að sögn MTl, hinnar opinberu
fréttastofu í Ungverjalandi, hafa
þarlend yfirvöld ákveðið að hækka
verð á sterkum drykkjum um
14,1%. Ástæðan var sögð'snúast
um heilsuvernd.
Fréttastofan sagði íbúa landsins
eyða um 10% af tekjum sínum í
áfenga drykki. Þetta er sama hlut-
fall og þjóðin eyðir í kjöt, mjólk og
mjólkurafurðir.
„Hlutfall sterkra drykkja, sem
skaðlegastir eru heilsu manna, hef-
ur aukist mjög undanfarin ár og er
nú nærri helmingur af áfe tgi því
sem drukkið er,“ sagði í fréttinni.
' Ungversk yfirvöld komu á fót
unglingasamtökum í síðasta mán-
uði er berjast gegn áfengisdrykkju
og hvetja til heilsusamlegra at-
hafna. Nepazabadsag, blað ung-
verska kommúnistaflokksins, sagði
árið 1984 að um 3% Ungverja
væru áfengissjúklingar.
Utlönd
Hollendingar hafa loks samið frið við íbúa Scillyeyja
Umsjón:
HEIMIR
BERGSSON
Houston-Rcuter:
Mikið var um dýrðir í borgum Texas-
fylkis í Bandaríkjunum í fyrrakvöld.
Þá fóru fram miklar flugeldasýningar
í tíu helstu borgum fylkisins og stóð
dýrðin yfir í nákvæmlega 18 mínút-
ur.
Flugeldasýningarnar voru haldnar
í minningu þess að 150 ár eru liðin
síðan Texasbúar losuðu sig undan
stiórn Mexíkana og að sögn allra
sanpra Texasbúa var hér að sjálf-
sögðu um stærstu flugeldasýningar í
heimi að ræða.
Huge Town, Scillyeyjar-Reuter
Jonkheer Rein Huydecopersendi-
herra Hollands í Bretlandi hefur í
nafni stjórnar sinnar samið frið við
yfirvöld á Scillyeyjum.
Hollendingar og íbúar Scillyeyja,
En af hverju 18 mínútur? Jú,
sýningin stóð yfir nákvæmlega jafn-
lengi og hin óvænta árás uppreisnar-
herja Texasbúa gegn Antonio De
Santa Anna hershöfðingja og mönn-
um hans þann 21. apríl á því herrans
ári 1836.
Gary Caimano stjórnaði flugelda-
sýningunum og vann að undirbún-
ingi þeirra í heila sjö mánuði. Þessi
sami Gary stjórnaði einnig flugelda-
sýningunni miklu í lok Ólympíuleik-
anna í Los Angeles 1984.
sem alls telja 1450 manns, hafa
formlega átt í stríði síðan 1651 en þá
hljóp ólund í hollensk stjórnvöld
vegna sjóræningjastarfsemi eyja-
skeggja.
Scillyeyjar eru röð lítilla eyja er
tilheyra Bretlandi. Eyjarnar eru í
nokkurra kílómetra fjarlægð frá
ströndinni í Cornwall í Suð-vestur
Englandi.
Stríð þetta er ekki einungis þekkt
fyrir að hafa staðið í rnargar aldir
heldur einnig fyrir að hafa farið fram
án þess að einu einasta skoti hafi
verið hleypt af.
„Hollenskir ferðalangar reka upp
stór augu þegar þeir frétta að við
eigum í stríði við þá,“ sagði Roy
Duncan æðsti maður eyjanna sem
framgöngu hafði í að binda enda á
stríðið.
Sendiherra Hollendinga undirrit-
aði friðarskjalið á Scillyeyjum nú
nýlega og bað í leiðinni eyjaskeggja
afsökunar á að yfirvöld í Hollandi
hefðu svo lengi dregið að semja frið
við þá.
TEXAS:
Afmæli fagnað með f lugeldum