Tíminn - 23.04.1986, Side 7

Tíminn - 23.04.1986, Side 7
Miðvikudagur 23. apríl 1986 Tíminn 7 11111111 vettvangur ll!llllllll!l!ll!llllll!l!llll!llllllll!!!ll!llll !I!!II1!!I!I!I!II1!!!!II!!I11!!!!I!!!I!III!I!!!I1II!I1!II!!III11!I!I1I11 Þórður Ægir Óskarsson: Fyrri hluti Aldraðir og húsnæðismál Grein þessi birtist upphaflega í ritinu Skipulagsmál sem geflð er út af Skipulagsstofu höfuð- borgarsvæðisins. í síðasta tölu- blaði er fjallað um málefni aldraðra. Aldraðir á höfuðborgarsvæðinu Málefni aldraðra í víðum skiln- ingi eru um þessar mundir að fá sívaxandi hljómgrunn meðal ráðamanna í þjóðfélaginu. Enda fer raunverulegur og enn fremur hlutfallslegur fjöldi aldraðra ört vaxandi vegna aukins langlífis þjóðarinnar og minni frjósemi. Pau sveitarfélög, sem teljast til höfuð- borgarsvæðisins, munu ekki fara varhluta af þeirri þróun. Málefni aldraðra hafa einkum verið rædd á grundvelli aldurshóps- ins 65 ára og eldri. Þegar athuguð er aldursskipting mannfjöldans á höfuðborgarsvæðinu kemur líkleg þróun skýrt í ljós. Aldursskipting íbúa á höfuðborgarsvæðinu hefur tekið umtalsverðum breytingum á undanförnum árum. Þær eru helst- ar að börnum hefur fækkað hlut- fallslega en fólki á miðjum aldri og á ellilífeyrisaldri hefur fjölgað. Skipulagsstofa höfuðborgar- svæðisins framkvæmdi 3 fram- reikninga á mannfjöldaþróun svæðisins fram til ársins 2034 út frá mismunandi forsendum (tafla 1). Þessar forsendur voru eftirfar- andi: A. Hámarkskostur, þar sem gert er ráð fyrir að frjósemi verði óbreytt (2.05) út tímabilið; dánarlíkur lækki um 1% á ári og að aðfluttir til höfuðborgarsvæðisins verði 600 umfram brottflutta fram til 2005 og jöfnuður eftir það. B. Lágmarkskostur, sem gerir ráð fyrir að frjósemi fari dvínandi, niður í 1.4; dánarlíkur lækki um 1% á ári og jöfnuður sé í búferla- flutningum. C. Meðalkostur, sem gerir ráð fyr- ir að frjósemi minnki í 1.7; dánar- líkur lækki um 1% á ári og að aðfluttir verði árlega 300 umfram brottflutta fram til 2005, en jöfnuð- ur eftir það. Skipulagsstofan hefur talið C- kost raunhæfasta framreikninginn fyrir höfuðborgarsvæðið. Eins og tafla 1 sýnir Ijóslega þá verður hlutfail einstaklinga á aldrinum 65 ára og eldri orðið mjög hátt árið 2034. Meðalkosturinn gerir t.d. ráð fyrir að 2034 verði umræddur aldurshópur hartnær fjórðungur íbúa svæðisins eða 24%. Til skemmri tíma litið eða ársins 2005, þá verður hlutfall aldurs- hópsins 65 ára og eldri líkt því sem gerist nú annars staðar á Norður- löndunum, en trúlega verður hlut- fallið hærra hérlendis þegar fram í sækir því að lífslíkur eru hvað mestar á íslandi. Framreikningar til ársins 2005 samkvæmt meðalkosti fyrireinstök sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu (tafla 2) gefa einnig sterka vísbend- ingu um öra fjölgun aldraðra innan þeirra. Reykjavík hefur löngum haft hæst hlutfall aldraðra á svæð- inu á meðan flest nágrannasveitar- félögin hafa haft tiltölulega lágt hlutfall þessa aldurshóps eða rúm- lega helmingi lægra en í Reykjavík. Fyrirsjáanlegt er þó að í nær öllum sveitarfélögum nema í Reykjavík og Kjósarhreppi muni verða umtalsverð aukning í aldurshópn- um 65 ára og eldri á næstu tveim áratugum. og enn frekar ef litið er til næstu 50 ára. Það er þó vert að hafa í huga við þessar vangaveltur um þróun aldursdreifingar á höfuðborgar- Fyrirsjáanlegt er aö í nær öllum sveitarfélög- um nema í Reykjavík og Kjósarhreppi muni verða umtalsverð aukning á aldurshópn- um 65 ára og eldri á næstu tveim áratug- um, og enn frekar ef lit- ið er til næstu 50 ára. svæðinu, að mjög stórir aldurshóp- ar, sem fæddust á árunum 1959- 1968, eru óðum að bætast í hóp aldraðra um og upp úr 2034. Hin öra fjölgun aldraðra í ís- Iensku þjóðfélagi hefur hrundið af stað öflugri en þó oft ómarkvissri umræðu um þau atriði er snerta velferð aldraðra og er þar af nógu að taka. Hér verður fjallað um einn en afar mikilvægan þátt í málefnum aldraðra, en það eru húsnæðismálin. Einnig er vert fyrir skipulagshöfunda og sveitarfélög að vera þess minnug að aldr- aðir eru öðrum fremur háðir fyrra umhverfi, staðbundnum venjum og gömlum kunningja- hópi: Af því leiðir að þeir sækjast mest eftir húsnæði í sínu gamla hverfi. Húsnæðismál aldraðra Meginhluti aldraðra býr í venju- legu húsnæði og kemst vel af. Þó er nokkur fjöldi aldraðra sem hvorki getur né vill búa í slíku húsnæði, bæði vegna þess að það er nú of stórt og jafnframt of dýrt að reka það. Minnkandi tekjur og skert starfsorka verða því til þess að þörf þessa aldurshóps fyrir hent- ugt húsnæði, bæði með tilliti til stærðar og hönnunar, fer vaxandi eftir því sem æviárunum fjölgar. Allt fram á sjöunda áratuginn var vart í önnur hús að venda fyrir aldraða en dvalarheimilin. Aðrir kostir í húsnæði voru ekki fyrir hendi. Efasemdir um nauðsyn dvalarheimila og mikill rekstrar- kostnaður hafa átt sinn þátt í að hlutaðeigandi hafa farið í auknum mæli að hugsa málin upp á nýtt út frá þeirri meginforsendu að aldrað- ir eru alls ekki einlitur hópur, heldur fólk með mismunandi þarfir um húsnæði og þjónustu. Samfara þessu fer að verða vart stefnubreytingar í uppbyggingu öldrunarþjónustu í átt til vaxandi fjölbreytileika. Miðar þctta að því að gera öldruðum fært að vera lengur í eigin húsnæði, t.d. með aukinni heimilishjálp, dagvistun og matarsendingum. Fyrsta heildarlöggjöfin um mál- efni aldraðra, sem sett var 1983, gaf tóninn í þessum efnurn t.d. varðandi mikilvæg atriði eins og skipulag öldrunarþjónustu, Fram- kvæmdasjóð aldraðra og íbúðir og dvalarstofnanir aldraðra. I lögunum eru skilgreindar tvær tegundir sérhannaðs húsnæðis, auk dvalarstofnana, sem auðvelda mundu öldruðu fólki sjálfstætt heimilishald lengur en verið hafði. Annars vegar er um að ræða þjón- ustuíbúðir þar sem boðið er upp á húsvörslu og afnot af sameiginlegu rými. Hins vegar eru þar skil- greindar svonefndar verndaðar þjónustuíbúðir, þar sem veitt þjón- usta felur í sér húsvörslu, afnot af sameiginlegu rými, kallkerfi með vörslu allan sólarhringinn, máltíðir og ræstingu. Þessi lög og sú umræða, sem hefur skapast í kjölfar setningar þeirra, hafa verið drifkrafturinn í því að tiltölulega nýlega hefur verið kröftuglega hafist handa um að byggja íbúðir á vegum sveitar- félaga og hagsmunasamtaka, þar sem reynt cr að tengja íbúðaeining- arnar annarri félagslegri- og heil- brigðisþjónustu sem öldruðum er nauðsynleg. Á síðustu árum hafa mörg svcit- arfélög og hagsmunasamtök á höfuðborgarsvæðinu byggt eða hafið undirbúning að sérstökum TAFLA 3 íbúðum fyrir aldraða. (sjá töflu 3). Er hér bæði um að ræða þjónustuí- búðir í eigu sveitarfélaganna og söluíbúðir. Fjármögnun íbúða fyrir aldraða er í megindráttum fjórþætt: í fyrsta lagi er um að ræða Framkvæmdasjóð aldraðra. Ákvæði um þennan sjóð er að finna í lögum um málel'ni aldraðra, sem fyrst voru sett 1983, en síðan breytt 1984. Samkvæmt þessum lögum ber Framkvæmdasjóð aldr- aðra að styrkja byggingu þjónustu- íbúða fyrir aldraða, verndaðra þjónustuíbúða fyrir aldraða, dval- arheimila fyrir aldraða og byggingu hjúkrunarrýmis fyrir aldraða á veg- um einkaaðila. Tekjur sjóðsins eru nú nefskattur sem lagður er á alla skattgreiðendur. í samstarfsnefnd um málefni aldraðra eiga sæti þrír aðilar til- nefndir þannig: einn frá Öldrunar- ráði íslands, einn frá félagsmála- ráðuneytinu, tilnefndur af Sam- bandi ísl. sveitarfélaga, og einn skipaður af heilbrigðis- og trygg- ingamálaráðherra án tilnefningar. Samstarfsnefndin gerir tillögur til ráðherra um styrkveitingar úr sjóðnum. Við tillögugerð um út- hlutanir tekur fulltrúi fjárveitinga- nefndar Alþingis sæti í nefndinni. Ráðherra ákvarðar svo endanlega úthlutun úr sjóðnum. Þcss má og geta að öllum er heimilt að sækja um styrki úr Framkvæmdasjóði Frá 1981 hafa um og yfir 60% úthlutunarfjár komið í hlut höfuð- borgarsvæðisins og hefur B-álma Borgarspítalans fengið mest af því fjármagni. Hins ýegar hefur Iítið sem ekkert fjármagn farið til bygg- inga þjónustuíbúða á svæðinu. í öðru lagi veitir Byggingasjóður ríkisins lán til bygginga leiguíbúða eða heimila fyrir aldraða. Skilyrði þessara lána eru að fyrir liggi niðurstöður könnunar, sem sýni þörf framkvæmda á þessu sviði í hlutaðeigandi sveitarfélagi og heil- brigðisráðuneytið mæli mcð fram- kvæmdinni. Er Fanað allt að 80% af byggingarkostnaði til 21 árs með 3,5% vöxtum. Þóröur Ægir Óskarsson cr stjórnmála- fræöingur og starfar hjá Skipulagsstofu höfuðborgarsvæðisins. I. SVEITARFÉLÖC r 9yggi\ar I f ramk v. A*tlaóar Reyk javík t> )ónust uibúói r Söluibúóir me<*> |ö3Ónustu 2 7 1 lö Hafnarf )öróur Vemdaóar hlónustuib. Söiuíbúðir meö t’icnustu 30 4 J So ’ t ) irnar Söiuíbúö.r rae 5 |>3Ónustu u 22 Mosfellssve1 t> jónust ubu N. i óski lor •ínt 6 1S-20 Kópavogur óskilgreinr 7‘) I I. HACSMUNASAMTÖKi Hrafnista Ha f na r f . , t ia róaba- Söluibúöir meö |)ónustu ZU 2H Samtök aldraöra Heykjavik Söluíbúöir raeö J>3cnusr u x 14 Ver slunarmannafé lag Rtyk)avíkur Sóluíbúóir meö |.)ónustu x 60 A1 ls 44 i 12S ca.125 TAF1.A 2 Aldraöir í einstökum svei tarfé] ögutj ■Mannf j. 31/ 12. '04 1004 Gb ára og eldtx Hlutfall Framreikn. mannf j. 2005 Moóalkostur 65 ára og eldri. Hlutfall K jósarhrei'púr 1B7 22 11.8 2 17 ,2 1 Kjalarneshreppur 366 17 4.6 4 35 36 0. 3 Mosfellssveit 3.627 123 3.4 4. .310 35 4 H. 2 Reykjavik ' 08.505 li.437 12.l) 105.364 1 3.2(>6 12.6 Seltjarnarnes 3.6-; 220 6.0 4. 349 560 1 2.1» Kópavogu r 14.563 904 6.2 17.335 140 12.3 Garóabær 5.800 213 3.6 7.02 1 956 1 U) Bessastaóahreppur 706 30 4.2 339 75 .0.0 Hafnarfjöróur 12.982 1.017 7.0 15.456 1.650 10.7 Alls '130.485 13.983 10.7 155.336 19.066 12.4

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.