Tíminn - 23.04.1986, Síða 9
Tíminn 9
Miövikudagur 23. apríl 1986
ÍÞRÓTTIR
V-þýska knattspyrnan:
Víti í súginn
- hjá Bremen og jafntefli gefur Bayern aukna möguleika
Frá Guðmundi Karlssyni í Þýskalandi:
Pað var hrikaleg spenna í leikslok
í viðureign Werder Bremen og Ba-
yern Miinchen á heimavelli Brima-
borgara í gærkvöldi. Þjálfari Brem-
en hafði sent Rudi Völler inná er um
10 mínútur voru eftir og hann fékk
skemmtilegan stungubolta fram er
um þrjár mínútur voru eftir af leikn-
um. Völler ætlaði að vippa boltanum
framhjá Lerby en boltinn fór í höfuð
Danans. Öllum á óvart þá dæmdi
dómari leiksins vítaspyrnu og allt
varð brjálað. Meistaratitillinn var á
borðinu er Kutzop skaut á markið úr
vítinu. Boltinn hafnaði hinsvegar í
stöng og framhjá. Lokatölur urðu
því 0-0. Baráttan heldur því áfram
fram á laugardag er Bremen fer til
Stuttgart og Bayern fær „Gladbach"
í heimsókn.
Stuttgart tapaði fyrir Leverkusen
1-2 og verður að vinna Bremen til að
ná Evrópusæti. Uerdingen vann
„Gladbach" í gær 2-1 á útivelli og
eru nánast öruggir með Evrópusæti.
Uerdingen fór aðeins með þrjá fasta-
menn til leiks í „Gladbach" en það
dugði. Lárus skoraði annað mark
Uerdingen og átti mjög góðan leik
að sögn Atla Eðvaldssonar sem lék
aftasta varnarmann í leiknumi Mark
Lárusar var gott skot í bláhornið.
Eins og fyrr segir þá verður síðasta
umferðin í þýsku 1. deildinni á
laugardag og verður spennandi að
fylgjast með henni.
KR sigraði Fylki
Mörk frá Júlíusi Þorfinnssyni og
Steinari Ingimundarsyni í síðari hálf-
leik tryggðu KR sigur á Fylki í
Reykjavíkurmótinu í knattspyrnu í
gærkvöldi. ÓskarTheódórsson skor-
aði fyrir Fylki á lokamínútunni.
Lokatölur 2-1.
Fimleikafólká NM og EM
Fimleikasamband íslands hefur
valið keppendur sem fara eiga á NM
í fimleikum .1 Kaupmannahöfn um
næstu helgi svo og Evrópumeistara-
mótið í Þýskalandi í byrjun maí.
Keppendur í kvennaflokki á NM
verða:
Hanna Lóa Friðjónsdóttir, Gerplu.
Hlín Bjarnadóttir, Gerplu.
Fjóla Ólafsdóttir, Ármanni.
Linda S. Pétursdóttur, Björk.
í karlaflokki verða keppendur tveir.
Enska knattspyrnan
Einn leikur var í 1. deild í Eng-
landi í gær. WBA náði jafntefli á
heimavelli gegn Sheff. Wed. 1-1. Þá
voru nokkrir leikir í 2. deild og urðu
úrslit sem hér segir:
Fulham-Charlton.................... 0-3
Grimsby-Barnsley................... 1-2
Millwall-Crystal Pal............... 3-2
Sheff. United-Leeds................ 3-2
Stoke-Portsmouth .................. 2-0
PSG úr leik
Paris Saint-Germain tapaði
fyrir Bordeaux í bikarkeppninni
í frönsku knattspyrnunni í gær-
kvöldi 1-2 á útiveili og er þar með
úr leik. Bordeaux mætir hins
vegar Marseilles f úrslitaleik þann
30. apríl en Marseilles gerði jafn-
tefli 1-1 gegn Rennes og kemst
þannig ( úrslit þar sem fyrri
leikurinn vannst 1-0.
Bræðrasigur
Minningarmót um L.H. Múller í
skíðum var haldið á vegum Skíða-
félags Reykjavíkur um helgina.
Keppt var í flokkasvigi þar sem sveit
Ármanns sigraði og í göngu karla,
kvenna og unglinga. Bræðumir Eirík-
ur og Guðni Stefánssynir urðu
fyrstir og jafnir í 10 km göngu karla
en í öðlingaflokki sigraði Matthías
Sveinsson SR. Öðlingarnir gengu 5
km. Konur gengu einnig 5 km og þar
sigraði Lilja Þorleifsdóttir. Hjá ungl-
ingum sigraði Einar Guðmundsson
úr Skíðafélaginu.
íslandsmet írisar
íris Grönfeld setti um síðustu
helgi íslandsmet í spjótkasti á
móti í Florida í Bandaríkjunum.
Kastaði fris heila 59,12 metra og
nálgast hún nú óðum 60 m
markið. Má búast við því að hún
nái því síðar í sumar ef vel gengur.
Þeir eru:
Guðjón Guðmundsson, Ármanni.
Arnór Diego Hjálmarsson, Ármanni.
Þjálfarar fimleikafólksins eru Jónas
Tryggvason og Berglind Pétursdótt-
ir.
Á milli NM og EM verður dvalist
í æfingabúðum í Þýskalandi en síðan
verður keppt á EM. Þrjár stúlkur
keppa þar. Verður Hlín Bjarnadótt-
ir til vara. Guðjón Guðmundsson
mun keppa í karlaflokki.
Þetta er í fyrsta sinn sem ísland
sendir svo fjölmennt lið á EM en
einu sinni áður hefur ísland átt
þátttakanda á EM. Það var Kristín
Gísladóttir.
Þá fara á EM þrír dómarar frá
fslandi og fulltrúi Fimleikasam-
bandsins mun sitja þing Evrópu-
sambandsins í fimleikum en íslend-
ingar gerðust aðilar að því í janúar
síðastliðnum.
Kölníbanni
Knattspyrnusamband Evrópu hef-
ur ákveðið að Köln fái ekki að spila
heimaleik sinn í úrslitum UEFA-
keppninnar á heimavelli sínum. Var
þetta ákveðið sem refsing vegna
óláta sem áhangendur Kölnarliðsins
voru með í Belgíu er Köln lék gegn
Waregem í undanúrslitum keppn-
innar. Verður Köln að spila í að
minnsta kosti 350 km fjarlægð frá
heimavelli sínum. Forráðamenn
Kölnarliðsins hafa ákveðið að áfrýja
til æðsta dómstóls UEFA. Benda
forráðamenn félagsins á að Köln
hefur ekki lent í vandræðum með
áhangendur sína í 140 Evrópuleikj-
um sem félagið hefur tekið þátt í.
Þá hafði Köln ekkert með öryggis-
eftirlit í Belgíu að gera en telur að
það hafi ekki verið nógu gott.
NM í lyftingum:
Tvennsilfurverðlaun
íslenskir lyftingamenn komu heim
með tvenn silfurverðlaun frá
Norðurlandamótinu í lyftingum sem
fram fór í Noregi um helgina. Þor-
kell Þórisson varð annar í 60 kg
flokki og Óskar Kárason varð annar
í yfir 110 kg flokki. Þorkell lyfti 115
kg í jafnhöttun en 105 í snörun.
Óskar tók upp 165 í jafnhöttun en
135 ísnörun. Birgir ÞórBorgþórsson
og Guðmundur Sigurðsson kepptu
báðir í 100 kg flokki. Guðmundur
féll úr keppni en Birgir varð í fjórða
sæti. Hann lyfti 170 kg í jafnhöttun
og 130 kg í snörun. Varð hann
stigahæstur íslensku keppendanna
og fékk hrós fyrir.
Hann er einbeittur hann Ólafur Eiríksson er hann býr sig undir að senda
þessa kúlu rétta boðleið. Ólafur sigraði í einliðaleik í borðtennis í tveimur
flokkuill. Tímamynd: Pétur.
íslandsmót fatlaðra:
íslandsmeistaramót fatlaðra fór
fram um síðustu helgi. Keppt var í
Sundhöll Reykjavíkur og Selja-
skóla. Fjölmargir keppendur tóku
þátt í þessu íslandsmóti sem fór vel
fram. Úrslit í einstökum greinum
urðu sem hér segir:
Boccia-einliðaleikur:
Þroskaheftir:
ína Valsdóttir, ösp.
Sigrún Gudjónsdóttir, ösp.
Hreyfihamlaðir sitjandi:
Sigurður Björnsson, ÍFR.
Lárus Gudmundsson, ÍFR.
Hreyfihamladir, standandi:
Haukur Gunnarsson.
Sigurrós Karlsdóttir, ÍFA.
U-flokkur:
Helga Bergmann, ÍFR.
Stefán Thorarensen, ÍFA.
Boccia-s veitakeppni:
A-sveit Aspar.
A-sveit Eikar.
Hreyfihamlaðir:
A-sveit ÍFR.
B-sveit ÍFR.
U-flokkur:
A-sveit ÍFR.
B-sveit ÍFR.
Borðtennis-einliðal.:
Þroskaheftir karlar:
Jón G. Hafsteinsson, ösp.
Jósep Ólafsson, ösp.
Þroskaheftar konur:
Sonja Ágústsdóttir, ösp.
Marta Guðjónsdóttir, ösp.
Heyrnarlausir:
Olgeir Jóhannesson, IH.
Trausti Jóhannesson, ÍH.
Hreyf ihamlaðir-sitjandi:
Elsa Stefánsdóttir.
Jón H. Jónsson.
Hreyfihamlaðir-standandi:
Ólafur Eiríksson, ÍFR.
Elvar Thorarensen, ÍFA.
Opinn fl. karla:
ólafur Eiríksson, ÍFR.
Jón G. Hafsteinsson, ösp.
Opinn fl. kvenna:
Elsa Stefánsdóttir, ÍFR.
Sigurrós Karlsdóttir, ÍFA.
Borðtennis-tviliðal.:
Hreyfihamlaðir:
Stefán og Elvar Thorarensen.
Þroskaheftir:
Jón Hafsteinsson og
Jósep Ólafsson.
Bogfimi:
Óskar Konráðsson, ÍFR (423 st)
Rúnar Björnsson, ÍFA (410 st)
Lyftingar:
Reynir Kristófersson, ÍFR.
Arnar Klemensson, Viljinn.
Sund:
í sundinu náði Jónas Óskarsson
bestum árangri í flokki hreyfihaml-
aðra. Hann fékk 353 stig fyrir að
synda 100 m baksund á 1:15,08.
f flokki blindra og sjónskertra
sigraði Halldór Guðbergsson. Hann
fékk 120 stig fyrir að fara 100 m
baksund á 1:50,94.
í flokki þroskaheftra fékk Sigrún
H. Hrafnsdóttir flest stig fyrir að
fara 100 m bringusund á 1:39,81.
Hún fékk 320 stig fyrir vikið.
M0LAR
B Japaninn Toshihiko Seko
sigraði í London-maraþoninu
sem háð var um helgina. Hann
kom í mark dálítið á undan
Bretanum Hugh Jones sem varð
annar. í kvennaflokki sigraði
norska stúlkan Grete Waitz
nokkuð örugglega. Þaö voru 20
þúsund keppendur sem hófu
hlaupið en Karl Bretaprins ræsti
keppendur.
B Trevor Francis, sem á að spila
með Englendingum gegn Skotum
í kvöld, gæti misst af leiknum.
Hann varð fyrir meiðslum í leik
Sampdoria og Napólí í ítölsku
deildinni um helgina. Hversu al-
varleg þau eru á eftir að koma í
Ijós. Francis er 32 ára.
| Knattspyrnusamband Evrópu
er búið að ákveða hvaða dómarar
komi til með að dæma úrslitaleik-
ina í Evrópukeppnunum þremur.
Frakkinn Michel Vautrot mun
dæma úrslitaleikinn í meistara-
keppninni, Austurríkismaðurinn
Franz Wöhrcr dæmir úrslitalcik-
inn í keppni bikarhafa og þeir
Keith Hackett frá Bretlandi og
Robert Valcntinc frá Skotlandi
dæma hvor sinn leikinn í UEFA
keppninni. Hackett dæmdi leik
Oxford og QPR í úrslitum Mjólk-
urbikarsins um helgina.
| Bæði Bryan Robson og Gary
Lineker verða fjarri góðu gamni
er Englendingar og Skotar mæt-
ast í landsleik í kvöld. Þeir eru
báðir meiddir.
H V-þýska 1. deildarliðiö í
knattspyrnu, Borussia Dortmund
licfur ákveðið að reka þjálfara
sinn Pal Csernai. Liðið tapaði
fyrir Stuttgart 0-4 um helgina og
er í 16. sæti í dcildinni. Fall blasir
við og þjálfarinn fær að taka
pokann sinn. Csernai er sjötti
þjálfarinn í 1. deild í Þýskalandi
sem er rekinn á þcssu kcppnis-
tímabili.
| Forseti Knattspyrnusam-
bands Evrópu (UEFA), Jacques
Georges, lét hafa það eftir sér í
fyrradag að hann tcldi ekki tíma-
bært að afturkalla bann UEFA á
ensk knattspyrnulið vegna at-
burðanna á Heysel-leikvangnum
í fyrra. UEFA dæmdi þá ensk lið
í bann frá þátttöku í Evrópu-
mótunum í knattspyrnu um
óákvcðinn tíma. „Það vcrður að
hafa sýnt sig að enskir geti haft
stjórn á áhangendum sínum áður
enbanninu verður allétt," sagði
Georges.
■ Við sögðum frá því um daginn
að ólympíumeistarinn í dýfing-
um, Greg Louganis, hefði unnið
til síns 36. meistaratitils á banda-
ríska meistaramótinu í dýfingum
í Indianapolis. Louganis gerði
enn beturnæstu tvo keppnisdaga.
Hann bætti þá viö verölaun sín
tveimur meistaratitlum í viðbót
með sigri á 3ja og 10 metra
pöllum í dýnngum.
Mexíkanar sigruðu eitt sterk-
asta félagslið Chile, University
Chile, 2-1 í æfingaleik um daginn.
Flores gerði bæði mörk Mexík-
ana en hann var síðan rekinn af
velli ásamt einum Chile-leik-
manni.
Spennandi forréttur t.d. með
graflax- eða piparrótarsósu og
ristuðu brauði!