Tíminn - 23.04.1986, Síða 16
HRESSA
KÆTA
'erslið
meÓVISA
WERDER BREMEN ;
fékk gulliö tækifæri er mínúta var til
leiksloka í viðureign sinni viö Bayern
Munchen í þýsku knattspyrnunni í
gær. Þá var staðan 0-0 en Kutzop
brenndi af víti og lokaniðurstaðan
varð jafntefli. Stuttgart tapaði en
Uerdingen vann „Gladbach" og
gerði Lárus mark í leiknum.
Fasteignamarkaðurinn fjárhættuspil:
íbúðaverð lækkaði
um 20% á einu ári
Skuldugir húseigendur tapa hundruðum þúsunda á misgengi
fasteignaverðs og vísitölu
Harður árckstur varð á mótum Hafnarstrætis, Kaikofiwvefar, Hvcrfísgötu og Lækjargötu í gær. Fólksbifreið
ók í átt að Lækjargötu í veg fyrir strætisvagn sem hugðist aka upp Hverfisgötu. Svo virðist sem ökumaður
fólksbifreiðarinnar hafí ekki séð biðskyldumerki. Ökumaður og farþegi voru fluttir á slysadeild auk þess sem
einn farþegi úr strætisvagnmum hlaut mciðsl. Kalla varð til kranabifreið til að Ijarlægja fólksbifreiðina, sem hafði
kastast upp á umferðareyju. Tímainvnd: Sverrir.
Slæm aðstaða í
fóðurstöðvum:
Rangar
fjár-
festingar
orsökin
Fóðurstöðvar sem framleiða loð-
dýrafóður hafa í mörgum tilfellum
verið settar í allt of lítið húsnæði
Lofthæð er yfirleitt of lítil og mikil
þrengsli bæði inni í fóðurstöðvunum
og eins utan þeirra, þannig að litlir
eða engir stækkunarmöguleikar eru
fyrir hendi.
Að sögn Steinþórs Steingrímsson-
ar hjá sambandi fóðurframleiðenda,
er ástæðan fyrir þessum mistökum
aðallega sú, að farið var út í að reisa
fóðurstöðvar útum allt land (en þær
eru 14 talsins) án þess að vita hvað
þurfti til þess að reka fóðurstöð til
lengri tíma. Sem dæmi um þessi
mistök, nefndi Steinþór fóðurstöð-
ina á Selfossi, sem er önnur stærsta
fóðurstöð landsins. Hún var reist inn
í miðju iðnaðarhverfi þar sem engir
stækkunarmöguleikar eru fyrir
hendi, auk þess sem fóðurstöðvum
þessum fylgir fiskilykt sem nágrannar
verksmiðjunnar hrífast lítt af. Á
Selfossi voru einnig byggðir frysti-
klefar með of lítilli lofthæð. Önnur
stór fóðurstöð er á Dalvík og þar
voru reistir frystiklefar með gólfum
sem ekki þola að lyftari keyri inn á.
Allt þetta gerir rekstur fóður-
stöðvanna mjög óhagkvæman en
þar sem 30-40% af fóðuryerði til
loðdýraræktenda er fjármagns-
kostnaður, þá er þetta mjög alvar-
legt mál að svo ranglega sé fjárfest.
Þess má geta að fóðurstöð sem
framleiðir um 4.000 tonn af fóðri á
ári, kostar um 14 milljónir króna.
Að sögri Steinþórs munu þó ekki
fleiri fóðurstöðvar verða reistar
nema fylgst sé með því hvernig
rekstur geti orðið sem hagkvæmast-
ur. Samband fóðurframleiðenda var
stofnað í júlí í fyrra og það fékk til
liðs við sig Jón Lewi Hilmarsson hjá
verkfræðistofunni Meku til að sér-
hæfa sig í hönnun fóðurstöðva.
-ABS
Um 27 milljónir lítra af öli , gos- og öörum sykurdrykkjum:
Álíka upphæð í sykur
drykki og mjólkurkaup
Láta mun nærri að íslendingar
verji álíka upphæð til kaupa á öli,
gos- og öðrum sykurdrykkjum eins
og þeir verja til kaupa á mjólk.
Framleiðsla á þessum drykkjum var
tæplega 27 milljónir lítra árið 1984
og hafði þá aukist um 7% milli ára.
Mjólkursala í landinu er innan við
50 millj. lítra á ári og fer minnkandi,
en hver lítri af mjólk kostar nær
helmingi minna en hinna drykkjanna
að meðaltali.
Skiptum við framangreindum 27
millj. lítra jafnt niður á landsmenn
hafa um 113 lítrar komið í hlut hvers
og eins, þar af um 70 lítrar af
gosdrykkjum, urn 16 lítrar af öli,
rúmir 12 lítrar af Svala og öðrum
slíkum drykkjum, en aðeins unt 8
lítrar af hreinum ávaxtadrykkjum.
Athyglisverðar breytingar milli ár-
anna 1983 og 1984 eru þær að
framleiðsla á Svala og slíkum
drykkjum hefur u.þ.b. tvöfaldast
milli ára. Sömuleiðis hefur sala á
pilsner aukist um 27% eða um nær
hálfa milljón lítra, sem ekki er
ólíklegt að „bjórlíkið" hafi átt þar
góðan hlut að máli. Þá hefur fram-
leiðsla á áfengum bjór aukist úr um
5 þús. lítrum upp í 207 þús. lítra á
milli þessara ára (upp í um 4 flöskur
á uppkominn Islending).
Á hinn bóginn hefur sala á hrein-
um ávaxtasafa stórminnkað milli
þessara 2ja ára og enn meira frá
árinu 1982, eða úr um 11,6 lítrum
niður í um 8 lítra að meðaltali á
hvern mann.
í þessa drykkjarvöruframleiðslu
notuðu framleiðendurnir um 1.814
tonn af sykri árið 1984, en það
samsvarar um 7,6 kílóum af hreinum
sykri á mann að meðaltali fengnum
úr öli og sykurdrykkjum. Tölur
þessar eru úr skýrslum Hagstofunnar
um iðnaðarvöruframleiðslu árið
1984.
Ef við geíum okkur að lítraverð
þessara drykkjarvara sé nú um 60
kr. á lítrann að meðaltali (sem mun
vægt reiknað) er þarna í kringum
1.620 milljóna króna ársútgjöld að
ræða að meðaltali, eða álíka og
vegna allra nýmjólkurkaupa lands-
manna. Það þýðir um 14 þús. krónur
úr buddu hvers starfandi manns í
hvorn þessara útgjaldaliða.
-HEI
Fasteignaverð á höfuðborgar-
svæðinu lækkaði í raun um rúm-
lega 20% á einu ári, þ.e. frá
síðustu mánuðum ársins 1984 til
sama tíma 1985, að mati Fast-
eignamatsins. Á þessu tímabili
hækkaði verðið aðeins um tæp-
lega 10% á sama tíma og láns-
kjara- og byggingarvísitölur
hækkuðu um 38-39%.
Áhvílandi verðtryggðar
skuldir hafa að sjálfsögðu hækk-
að hlutfallslega eins og vísitölu-
rnar meðan söluverö íbúðanna
hefur nær staðið í stað. Þarna
hefur því gífurlegt .misgengi ‘
fasteignaverðs og lánskjara-
vísitölu átt sér stað og tekið við
af hinu margumrædda misgengi
launa og lánskjaravísitölu.
Til að átta sig betur á hvað
þetta þýðir má taka dæmi af
manni sem í byrjun tímabilsins
átti 2ja milljón króna íbúö. Segj-
um að hann hafi átt 1 millj. í
íbúðinni en skuldað aðra í verð-
tryggðum lánum. Uppreiknað
hefði sú skuld verið komin í
1.380 þús. eftir árið.
Á þessu ári hefði verð á íbúð
mannsins hins vegar aðeins
hækkað í 2.200 þús. og eignar-
hluti mannsins því farið niður í
820 þús. Ef íbúðareigandinn
hefði átt milljónina sína í ríkis-
skuldabréfi með 9% vöxtum
hefði hún vaxið í 1.505 þús. á
tímabilinu. Má því rökstyðja að
íbúðareigandinn í þessu dæmi
hafi tapað 685 þús. krónum á
þessari eign sinni á einu ári.
Það gæti þó að sjálfsögðu næstunni eins og ýmsir hafa
minnkað aftur ef fasteignaverð spáð að undanförnu.
mundi hækka umfram vísitölu á -HEI
Arnarflug:
Ríkisábyrgð á
elleftu stundu?
Ríkisstjórnin samþykkti á fundi
sínum í gær að veita Arnarflugi
ríkisábyrgð á 80-100 milljón króna
láni, svo framarlega sem fyrirtækið
gæfi viðunandi tryggingar og að
eiginfjárstaða þess yrði styrkt með
hlutafjár aukningu. Forsætis-, fjár-
mála- og samgönguráðherrum var
falið að sjá um framkvæmd þessa
máls fyrir hönd ríkisstjórnarinnar.
Ríkisábyrgðin þarf að hljóta sam-
þykki Álþingis sem slitið verður
um hádegisbilið í dag. Mikil tíma-
pressa er því komin á þá aðila sem
staðið hafa í samningaviðræðum,
formlegum og óformlegum, síð-
ustu daga um hlutafjáraukningu
Arnarflugs. Stjórn Arnarflugs
ræddi við níumenningana í gær um
samstarfsgrundvöll, en í gærkvöld
lá enn ekki fyrir fullnægjandi
niðurstaða um hvort eða með hvaða
hætti af hlutafjáraukningunni
yrði. -BG