Tíminn - 21.05.1986, Side 3
Miövikudagur 21. maí 1986
Tíminn 3
Sætúnið lokað í allt sumar
Timamynd-S verrir.
Nú eru hafnar framkvæmdir við
að endurbæta holræsakerfi
Reykjavíkur. Fyrir neðan Sætúnið
á að byggja dælustöð og síðan að
leggja ræsi frá henni allt að Laug-
arnesræsinu. Síðan er stefnt að því
að framlengja það ræsi á haf út.
Þetta er einn áfanginn í því að
hreinsa fjörurnar í kringum
Reykjavík.
Sætúninu hefur verið lokað
vegna þessa og mun engin umferð
vera leyfð um það í allt sumar.
Svæðið sem nú hefur verið afgirt
verður athafnasvæði framkvæmd-
anna. Malbikið á götunni verður
ekki rifið 'upp, því allar fram-
kvæmdirnar fara fram við fjöru-
borðið.
Stofnmæling botnfiska viö Island:
Nýliðun með besta móti
Útreikningar úr „stofnmælingu
botnfiska á íslandsmiðum“, sem
Hafrannsóknarstofnunin stóð fyrir í
mars sl. liggja nú fyrir í aðalatriðum.
Helstu niðurstöður varðandi þyngd,
kynþroska og nýliðun hafa verið
greindar og eru þessar helstar.
Meðalþyngd einstakra aldurs-
flokka á svæðinu fyrir norðan og
austan land er talsvert meiri en fyrir
ári og er um 20% þyngdar-
aukningu að ræða hjá 2ja til 6 ára
fiski, og um 40% aukningu hjá 7 til
9 ára fiski. Fyrir sunnan ogsuðvestan
landið er um óverulega þyngdar-
aukningu að ræða og samdrátt í
þyngd 7 til 9 ára fisks.
Kynþroskahlutfall þorsks á suður-
svæðum hefur aukist hjá öllum
aldursflokkum, einkum 5 til 7 ára
þorsks, en á norðursvæðum hefur
hlutfall kynþroska fisks í stofninum
staðið í stað eða minnkað lítillega
hjá yngri kynslóðum en hlutfallið
hefur aukist hjá 7 til 9 ára fiski.
Nýliðun eins til fjögurra ára
þorsks virðist með betra móti. Ár-
gangurinn 1985 virðist í meðallagi
og árgangurinn 1984 f góðu meðal-
lagi. I greinargerð Hafrannsóknar-
stofnunarinnar er þó hafður sá
fyrirvari á þessu, að hér sé um
vísbendingar að ræða, sem þurfa
frekari staðfestingar við á næstu
árum. Árgangur 1983 er talinn sterkur
með um 300 milljónir einstaklinga.
Árgangurinn 1982 er hins vegar
talinn vera einn sá lélegasti sem
komið hefur í þrjátíu ár, og telur
ekki nema um 100 milljónir einstak-
linga.
1 rannsóknarverkefninu „stofn-
mælingar botnfiska" voru leigðir 5
togarar, auk þess sem rannsóknar-
skipið Bjarni Sæmundsson var f
leiðangri til rannsókna á þorskung-
viði fyrir norðan og austan land.
Togararnir tóku alls 587 togstöðvar
og var aflinn 290 tonn þar af 93 tonn
af þorski, 120 tonn karfi, 34 tonn af
ýsu. Samtais voru lengdarmældir 39
þúsund fiskar, átta tegundir voru
kyngreindar og safnað var kvörnum
til aldursgreiningar af 9 tegundum,
samtals 10.400 kvarnir. Hitastig
sjávar var mælt við botn og við
yfirborð. -BG
Póllinn tvítugur:
STOFNA NÝTT
FYRIRTÆKI
- í framleiöslu rafeindabúnaöar
Póllinn hf á ísafirði varð tvítugur
fyrir skömnui, en fyrirtækið hefur
einkum getið sér orðstír á undán-
förnum árum fyrir rafeindabúnað
sem fyrirtækið framleiðir fyrir sjá-
varútveg. Á tvítugsafmælinu var
fyrirtækinu skipt í tvennt og nýtt
fyrirtæki stofnað um rafeindadcild
þess. Nýja fyrirtækið heitir Póls hf..
en ýmis konar rafeindaþjónusta og
raftækjavcrslun vcrður áfram rekin
undir nafninu Póllinn hf.
Framleiðslufyrirtækið Póls hf..
sem er í eigu Pólsins og hluthafa,
sem jafnframt eru eigendur Pólsins,
mun nú leita eftir hlutafjáraukningu
og einbeita sér að framlciðslu til
útflutnings og vöruþróun. Fram-
kvæmdastjóri hiníj nýja fyrirtækis er
Ásgeir Erling Gunnarsson og sagði
hann í samtali við Tímann að megin
markmiðiö með félaginu væri að
skapa öflugra útflutningsfyrirtæki.
sem héldi áfram á þeim grundvelli
sem Póllinn hf., var búinn að leggja
varðandi vörúþróun og framleiðslu.
Aðspurður um ástæður fyrir því að
farið var út í stofnun þessa nýja
fyrirtækis og hlutafjársöfnun í
tengslum við hana, sagði Ásgeir að
það hafi verið Ijóst að til þess að
takast á við útflutningsverkefnin af
Sunnlenskir
hestamenn:
Liðka hestana
fyrir sumarið
Sunnlenskir hestamenn eru
farnir að liðka hesta sína fyrir
mótin í sumar og fyrir skömmu
komu 170 sunnlenskir hcstamenn
saman í Félagslundi í Gaulverja-
bæjarhreppi en Sunnlendingar
hafa það fyrir sið að koma saman
á vorin í félagsheimilum hvers
héraðs. Aldursforseti hópsins er
Þorlákur í Eyjarhólum, sem sést
hér á myndinni, og hann sagðist
ekki ætla að láta sig vanta á
landsmótið á Hellu í sumar.
Tímamynd: stjas.
fullu afli hafi framleiðsludeild Póls-
ins ekki verið nægjanlega öflug, og
nýtt fé þurft að korna til. Ásgeir
sagði að leitað hafi verið til valinna
aðila um hlutafjáraukninguna, en
stefnt væri að því að hlutafé hins
nýja télags yrði um 30 milljónir.
Núvcrandi eigendur Póls hf munu
ekki gera það að skilyrði í hlutafjár-
aukningunni að þeir cigi meirihluta
í félaginu, ef það yrði til þess að
hlutaléð safnaðist og staða fyrir-
tækisins styrktist.
Höfuð markaður fyrir fram-
leiðsluvörur Póls er Noregur, og er
samkcppnin hörðust viö Marcl ann-
að íslenskt fyrirtæki sem framleiðir
rafeiridabúnað fyrir sjávarútveg.
-BG
Ungurmaður
lést í knatt-
spyrnuleik
Dánarorsök enn óljós
Tuttugu og tveggja ára maður
Þór Ragnarsson, lést eftir að
hann hafði fengið fótbolta í bring-
una á sparkvclli fyrir framan
Fellaskóla í Breiðholti seint á
sunnudagskvöldið. Ekki er enn
vitað um dánarorsök og niður-
stöður réttarkrufningar er ekki
að vænta fyrr en að tveimur
vikum liðnum.
Þór var í fótbolta ásamt nokkr-
um kunningjum sínum þegar
knettinum var sparkað frá mark-
inu og lenti liann á bringu Þórs
sem stóð í um fjögurra metra
fjarlægð frá markinu. Eftir það
riðaði Þór, kvartaði undan þvf að
hann ætti erfitt með andardrátt
og féll síðan. Kunningjar hans
hringdu á sjúkrabíl en Þór rcynd-
ist látinn þegar komið var með
hann á sjúkrahús. -gse.
Sigrun Magnusdottir. Álfreð Þorsteinsson. Þruöur Helgadottir. Hallur Magnusson. nemi Margeir Danielsson. Sveinn Gretar Jonsson. Helgi S. Guömundsson. Siguröur Ingolfsson.
kaupmaöur forstjori iönverkakona framkvæmdastjori verslunarmaöur markaösfulltrui deildarfulltrui
HVERSVEGNA
FRAMSÓKNARFLOKKINN?
Guörun Einarsdottir.
kennari
• Framsóknarflokkurinn vill efla heimilishjálp, en hlutverk hennar
verði jafnframt að rjúfa einangrun aldraðra og auka öryggi þeirra.
• Framsóknarflokkurinn vill efla fyrirtæki til nýsköpunar og uppbygg-
ingar á starfsemi sinni
• Framsóknarflokkurinn vill auka og bæta upplýsingastreymi milli
heimila og skóla
Dr. Þor Jakobsson.
veöurfræöingur
ÞAU SKIPA IO EFSTU SÆTIN Á B LISTANUM í REYKJAVÍK