Tíminn - 21.05.1986, Page 11
10 Tíminn'
Miðvikudagur 21. maí 1986
Miðvikudagur 21. maí 1986
Tíminn 11
ÍÞRÓTTIR
ÍÞRÓTTIR
B-keppni Evrópumótsins í körfuknattleik:
Ágæt frammistaða
Sigur á Tyrkjum kom skemmtilega á óvart - Hæðarvandræöi í liðinu
Guðni Guðnason og félagar í ís-
lenska körfulandsliðinu stóðu fyrir
sínu í Belgíu
Islenska landsliðið í körfuknatt-
leik tók um hvítasunnuhelgina þátt í
B-keppni Evrópumótsins í körfu-
knattleik í Belgíu. íslenska liðinu
gekk svona eins og við var búist og
reyndar ögn betur því góður sigur
vannst á Tyrkjum en aðrir leikir
töpuðust. íslcndingar verða þó
áfram B-þjóð í körfuknattleik. Það er
góður árangur miðað við það að
ísienska liðið vantar hæð sem er
ákaflega nauðsynlegt í körfuknatt-
leik.
Fyrsti leikur íslenska liðsins var
gegn Pólverjum. Var við ramman
reip að draga í þeim leik. Pólverjar
voru mun sterkari og unnu sigur
95-56 (46-25). Sigur þeirra var aldrei
í hættu. Pálmar skoraði 15 stig í
leiknum en Guðni gerði 12.
Þá var leikið gegn frændum vorum
Svíum. Aftur var tap uppá teningn-
um 65-83. Þó var staðan jöfn í
leiknum er um sex mínútur voru til
leiksloka. Þá sigu Svíar frammúr og
unnu full-stóran sigur. Pálmar gerði
22 stig en Valur var með 20.
Þriðja viðureignin var sú skemmti-
legasta enda vannst sigur á Tyrkjum
63-58. Vörn íslenska liðsins var frá-
bær og aliir strákarnir í miklu stuði.
Tyrkir áttu ekkert svar og urðu
áhorfendur er studdu þá oft mjög
illir. Pálmar skoraði 21, Guðni gerði
15 en Valur 12. Sætur sigur sem ekki
var reiknað með.
Fjórði leikurinn var við Ungverja
og fyrirfram var búist við sigri
íslandsmótið í knattspyrnu - 2. deild:
Selfoss byrjar vel
4-1 sigur á Sköllunum - KA í formi - Reykjavíkurjafntefli
Heil umferð var leikin í 2. deild
um hvítasunnuhelgina. Eftir hana
standa KA-tnenn og Selfyssingar
best að vígi. Þau voru einu liðin sem
náðu sigri. Öðrum leikjum lauk með
jafntcfli og urðu alls 17 miirk gerð í
fimm leikjum.
Selfoss-Skallagrímur.......4-1
Selfyssingar sýndu á sér nýtt andlit
í 2. dcildinni í þessum leik í orðsins
fyllstu merkingu. Liðið skartar nú
fimm fyrrurn I. deildarmönnum og
meðalhæð liðsins er nú hærri en oft
áður. Sigurður Halldórsson (ÍA),
Tómas Pálsson (ÍBV), Jón Gunnar
Bergs (UBK), Einar Jónsson (ÍBÍ)
og Daníel Gunnarsson (Haukum)
hafa allir 1. deildar reynslu á bakinu.
Mörkin í viðureigninni við Skallana,
sem flestir eru ungir að árum og lítt
sjóaðir, urðu 4 en hefðu getað orðið
mun fleiri. Staðan í hálfleik var 2-0.
Jón Gunnar Bergs skoraði þrennu í
leiknum og Tómas Pálsson eitt.
Mark Skallanna kom úr vítaspyrnu
rétt fyrir lok leiksins og skoraði það
Árni Gunnarsson.
KA-Einherji..................4-0
Þrátt lyrir að mörkin hafi orðiö
fjögur á endanum þá reyndust Ein-
herjamenn óþægir í leiknum undir
stjórn fyrrum KA-mannsins Njáls
Eiðssonar. Fyrri hálfleikur var
markalaus en færin þó fyrir hendi.
Það munaði ckki tniklu að Vopnfirð-
ingar næðu forystu er Njáll komst í
dauðafæri í síðari hálfleik sem
heimameun voru ánægðir með að
bjarga. í upphafi síðari hálfleiks
tóku KA-menn betur við sér og er
um 10 mínútur voru liðnar af hálf-
leiknum varð skrattinn laus. Fjögur
mörk á einu bretti gerðu leikinn að
formsatriði þaö sem eftir var.
Tryggvi Gunnarsson skoraði tvö
markanna en Hinrik Þórhallsson og
Helgi Jóhannsson bættu við.
ÍBÍ-UMFN ....................3-3
Það varð sannkölluö markasúpá á
mölinni á ísafirði um helgina. Hún
hefði jafnvel getað orðið sterkari.
Hcimamenn vildu þó benda á að tvö
af mörkum Njarðvíkinga hefðu ver-
ið af ódýrari tcgundinni og varla efni
í góða súpu. Það var aðkomuliðið
sem náði að stinga ísfirðinga af að
því er virtist. Þeir komust í 3-1 er líða
tók á seinni hálfleik var staðan 1-2.
Ragnar Hermannsson, Rúnar Jóns-
son og Haukur Jóhannesson skor-
uðu fyrir Njarðvíkinga, sem undir
stjórn Árna Njálssonar eru til alls
líklegir. ísfirðingar náðu að jafna
leikinn áður en yfir lauk og hefðu
reyndar eins getað unnið hann. Jón
Oddsson, Guðmundur Jóhannsson
og Haukur Magnússon skoruðu
mörk ÍBÍ.
Þróttur R-Víkingur R.......1-1
Það var ekki veður til knattspyrnu
iðkana í Laugardalnum í gærkvöldi.
Rok og rigning á köflum settu sitt
mark á þessa viðureign liðanna sem
féllu úr 1. deild í fyrra. Víkingarnir
höfðu vindinn í bakið í lyrri hálflcik
og voru þá mun atkvæðameiri. Þeir
náðu líka forystunni strax eftir um
20 mínútna leik. Þá skallaði Björn
Bjartmars hornspyrnu Jóhanns Þor-
varðarsonar beint í nctið. Víkingar
áttu ekki neinn aragrúa af færum en
voru mjög hættulegir í horn- og
aukaspyrnum.
í síðari hálfleik snérist dæmið viö
og nú sóttu Þróttarar undan veðrinu.
Daði Harðarson skoraði gullfallegt
mark úr aukaspyrnu, bláhornið
niðri, strax á fimmtu mínútu síðari
hálfleiks og jafnaði 1-1. Eftirþað varð
leikurinn alltaf leiðinlegri og leiðin-
legri uns yfir lauk. Þessi lið verða þó
með í slagnum um sæti í I. deild að
ári og verða Víkingarnir að teljast
ógnvænlegri.
KS-Völsungur.................0-0
„Það hefði verið ósanngjarnt ef
annað liðið hefði unnið þennan leik.
Við björguðum að vísu cinu sinni á
línu en áttum okkar færi líka,“ sagði
Guðmundur Ólafsson þjálfari
Völsunga eftir hörkujafntefli á Sielu-
firði. Hvorugu liðinu tókst að setja
boltann í netið hjá andstæðingunum
á heiðarlegan hátt svo útkoman varð
jafntefli. Þetta var mikill baráttu-
leikur eins og gjarnan er þegar
norðanliðin mætast innbyrðis.
Björn Bjartmars skorar fyrsta mark Víkinga í 2. deild þetta árið er hann
flikkar boltanum yfír Guðinund í marki Þróttar.
Tímamynd: Pélur.
Sigurður skoraði
- og Luzern er nú í þriðja sæti - Barcelona skellti Real
Sigurður Grétarsson skoraði
sigurmark Luzern í viðureigninni
við Lausanne á útivelli í svissnesku
I. deildinni í knattspyrnu um helg-
ina. Sigurður skoraði strax í upphafi
leiksins og reyndist það sigurmarkið.
ÓmarTorfason lék með allan leikinn
og stóð fyrir sínu. Luzern er komið
í þriðja sætið í Sviss með 36 stig er
þrjár umferðir eru eftir en Young
Boys er í öðru sæti með 40 stig og
Xamax er efst með 41 en á aðeins
tvo leiki eftir. Baden tapaði 0-4 fyrir
St. Gallen.
Barcelona sló út spænsku meistar-
ana Real Madrid í deildarbikar-
keppni þeirra Spánverja um helgina.
Lcikið var á heimavelli Real og
sigraði Barcelona 4-0. Þetta var
seinni leikurinn en sá fyrri endaði
2-2 í Barcelona. Leikmenn Barcel-
ona eru nú óðir í að vinna einhvern
bikar eftir keppnistímabilið. í öðr-
um leikjum voru það Valencia og
At. Madrid sem komust áfram á
kostnað Espanol og Real Valladolid.
Sion sigraði í bikarkeppninni í
svissnesku knattspyrnunni um helg-
ina er liðið sigraði meistarana sjálfa
Servette í úrslitaleik 3-1. Þetta er
fimmti bikarmeistaratitill Sion á 11
árurn. Kok skoraði fyrst fyrir Ser-
vette en tvö mörk frá Balet og eitt
frá Bonvin tryggði Sion bikarinn.
Borussia Dortmund tryggði sér
aukaleik við Fortuna Köln um sæti í
1. deildinni í þýsku knattspyrnunni
á næsta ári. Liðin léku tvo leiki og
vann Köln þann fyrri 2-0 en Dort-
mund þann seinni 3-1. Liðin eru þar
með jöfn með markatöluna 3-3 og
útimark gildir ekki. Liðin eigast við
að nýju á föstudaginn kemur.
PSV Eindhoven sigraði Feyen-
oord í hollensku knattspyrnunni 3-2
á útivelli í fyrradag þrátt fyrir að
vera búið að tryggja sér sigur í
deildarkeppninni í Hollandi fyrir
nokkru. Gullit skoraði tvívegis í
leiknum fyrir PSV. Þá sigraði Ajax
sinn leik gegn Twente 6-0 og skoraði
Maarco Van Basten eitt markanna.
Ajax hefur skorað 119 mörk í 33
leikjum í vetur og þar af hefur
Basten skorað 37 og hann er marka-
hæsti leikmaður Evrópu.
eftir góðan leik gegn Tyrkjum. Það
var hins vegar bara óskhyggja og
Ungverjar löbbuðu yfir okkar menn
75-55 (36-27). Dómgæslan var ekki
okkur í hag og nánast furðuleg á
köflum. Hreinn Þorkelsson var at-
kvæðamestur með 12 stig en Torfi
gerði 10 og Pálmar og Valur 7 hvor.
Hittnin var slök og fráköst í færra
lagi.
Að lokum var spilað gegn ísrael
og unnu þeir léttan sigur á íslending-
um eins og við var að búast þar sem
ísraelar voru með langbesta liðið í
keppninni. Lokatölur urðu 93-64
fyrir ísraelana. Páll Kolbeins. gerði
13 stig en allir leikmenn íslands
skoruðu.
Rockets unnu Lakers
Los Angeles Lakers, með Pétur
Guðmundsson innanborðs, virðast
vera að missa af lestinni í úrslitaleik
í NBA körfuknattleiksdeildarinnar í
Bandaríkjunum. Lakers eiga nú í
höggi við Houston Rockets og eftir
að hafa unnið fyrsta leikinn þá hafa
Rockets tekið völdin af Lakers.
Rockets hafa nú unnið þrjá leiki í
röð. Síðast um helgina 105-95 í
Houston. Það eru þeir Akeem „The
Drearn" og Olajuwon og Ralph
Sampson sem hafa verið mennirnir
á bakvið góða sigra Houston en þeir
eru gjarnan nefndir „Tvíburaturn-
arnir“. Akeem er 2,15 en Sampson
er yfir 2,20. Þá er í liði Houston
bakvörðurinn Steve Harris, sem er
nýliði í deildinni en einhverhittnasti
leikmaður sem undirritaður hefur
séð. Hann kemur frá Tulsa í Oklá"-
homa og skoraði hann að meðal-
tali 18,6 stig í leikjum sínum í
háskólanum í Tulsa.
Boston Celtics, með Larry Bird í
fararbroddi en hann spilaði í sömu
deild í háskóla og Harris hjá Houst-
on, hafa tryggt sér sæti í úrslitunum
með 4-0 sigri á Bucks.
íslandsmótið:
FH lagði Garðinn
Frá Frímanni Óiafssyni á Suðurncsjum:
Víðismenn tóku á móti FH-ing-
um á grasinu í Garðinum á laug-
ardaginn í fyrstu umferð 1. deild-
ar í knattspyrnu. Það var glamp-
andi sól og hægur andvari á
meðan á leiknum sfóð og áhorf-
endur voru um 300. Þeir voru þó
ekki allir ánægðir með úrslitin.
Leikurinn hafði ekki staðið
nema í tæpar fimm mínútur er
Pálmi Jónsson gaf fyrir mark
Víðismanna. Gísli markvörður
missti af boltanum og hver var
réttur maður á réttum stað nema
Ingi Björn Albertsson. Hann
skallaði knöttinn örugglega í net-
ið og staðan 0-1. Það tók Garðs-
búa ekki nema þrjár mínútur að
jafna leikinn. Helgi Bentsson tók
þá fyrirgjöf Guðmundar Knúts-
sonar og afgreiddi hana með
föstu skoti beint í netið. Eftir
þetta dofnaði yfir leiknum og
lítið markvert gerðist.
Síðari hálfleikur var mikill bar-
áttuhálfleikur en sem fyrr voru
færin af skornum skammti. Víðis-
menn sóttu meira en skyndsóknir
FH-inga voru hættulegar. Á 77.
mínútu gefur Ingi Björn fyrir
markið og Ólafur Danívaldsson
var fljótari að átta sig en frosin
vörn Vfðismanna og skoraði með
skoti úr teignum. Þegar lítið var
til leiksloka skoruðu Víðismenn
mark sem réttilega var dæmt af
vegna rangstöðu. FH-ingar tóku
aukaspyrnuna og óðu upp. Krist-
ján Gíslason skoraði og þar með
var leikurinn örugglega úti fyrir
Garðsbúa.
Liðin voru nokkuð áþekk en
hálfgerður vorbragur á knatt-
spyrnunni. Varla er hægt að tína
úr leikmenn sem stóðu uppúr
enda jafn mannskapur í þeim
báðum. Guðmundur Haraldsson
dæmdi Ieikinn mjög vel.
Tímamynd: Pétur
Víti. Stefán fellir hér Jón Þórir og Bragi dómari dæmdi víti. Jón Þórir skoraði örugglega úr því.
íslandsmótið í knattspyrnu, 1. deild:
Blikar lögðu Valsmenn
Baráttuglaðir Kópavogsbúarnir sigruðu Val með einu marki gegn engu
Baráttuglaðir Blikar sigruðu íslandsmeist-
ara Vals í 1. deildinni í knattspyrnu í
gærkvöldi. Já, það var fyrst og fremst
Ieikgleðin og leiksamvinnan sem tryggði
Kópavogsbúunum 1-0 sigur á Hlíðarenda.
Leikur heimamanna var hinsvegar hvorki
fugl né fískur, lítið um gott samspil og
hugmyndaríkan leik.
Það var rok á Hlíðarenda þegar leikurinn
fór fram og Kári var óvinur beggja liða.
Menn börðust þó um völlinn þveran og
endilangan og brutu ótt og títt af sér,
sérstaklega í fyrri hálfleik. Lítið var um
knattspyrnu en það litla sem sást kom frá
Blikunum.
Jón Þórir Jónsson var hættulegur frammi
íslandsmótið í knattspyrnu - 1. deild:
Þrenna hjá Valgeir
Frá Sigfúsi Guðmundssyni í Eyjum:
Valgeir Barðason skoraði þrennu er
Skagamenn gerðu þriggja stiga ferð til Eyja
í gærkvöldi í 1. deild knattspyrnunnar.
Vindurinn í þessum leik var síst minni en í
landi því í síðari hálfíeik munu sennilega
hafa mælst nálægt 10 vindstigum.
Eyjamenn voru atkvæðameiri í fyrri hálf-
leik nteð Kára í bakið og áttu sín færi.
Lúðvík og Þorsteinn Viktorsson áttu báðir
þokkaleg færi.
Skagamenn sóttu síðan í síðari hálfleik og
á 71. mín skallar Valgeir í netið eftir
fyrirgjöf. Hann var síðan með annan skalla
á 88. mínútu og aftur í netið. 0-2. Eyjamenn
tóku miðju og boltinn barst til Birkis í
Skagamarkinu. Hann bombaði fram og
Valgeir hljóp alla af sér og þrumaði í markið
neðst í hornið. Þrenna hjá þessum unga
strák sem sló í gegn móti Fram í fyrra. Þá
einnig með þrennu.
Valgeir var góður í liði Skagamanna en
hjá Eyjamönnum var Elías einna bestur.
Þetta var sannkallaður rokleikur og knatt-
spyrna sjaldséð.
Islandsmótið í 1. deild:
FH-ingar efstir
- eftir góðan sigur á ÍBK í rokleik á Kaplakrika
Hann Kári setti mikinn svip á viðureign
FHog ÍBK í Kaplakrika í gærkvöldi er liðin
áttust við í 2. umferð íslandsmótsins í
knattspyrnu - 1. deild. Kári Vindur var á
íslandsmótið í knattspyrnu - 1. deild:
Káriréð ríkjum
Frá Frífnunni Ólafssyni rrétlarítara Tímans á Suðurnesjum
Víðismenn og KR-ingar skildu jafnir í
Garðinum í gærkvöldi. Hvorugt liðið náði
að skora mark í leik þar sem vindurinn Kári
fór á kostum en leikmenn ekki.
Víðismenn áttu besta færið í fyrri hálf-
leiknum en þá léku þeir undan vindinum.
Klemens Sæmundsson, besti maður Víðis í
leiknum, átti þá gott skot að marki KR en
Stefán Jóhannsson var vel á verði og hand-
samaði knöttinn.
f síðari hálfleik bjuggust Garðsbúar við
að KR-ingar myndu sækja stíft en svo varð
ekki raunin. Víðismenn áttu í fullu tré við
Vesturbæingana þótt þeir hefðu áðurnefnd-
an Kára í liði sínu. Gunnar Gíslason átti að
vísu skalla að marki Garðsbúa en inn fór
knötturinn ekki.
Auk Klemensar var Daníel Einarsson
góður í liði Víðis, aðrir voru minna áber-
andi. Víðismenn geta þó verið ánægðir með
sitt fyrsta stig í deildinni, það áttu þeir
sannarlega skilið.
Ágúst Már Jónsson var bestur KR-inga,
afar sterkur varnarmaður. Þá átti Hálfdán
Örlygsson góða spretti. Þorvarður Björns-
son dæmdi og gerði það vel. Áhorfendur
voru um 400.
íslandsmótið í knattspyrnu - 1. deild:
Fjögurfallegmörk
- er KR-ingar unnu auðveldan sigur á ÍBV - Björn með tvö
„Eg er ánægður með mína inenn
sem skoruðu falleg mörk og léku af
skynsemi,“ sagði Gordon Lee þjálf-
ari KR-inga eftir stórsigur Vestur-
bæjarliðsins á slökum Eyjamönnum
síðastliðinn laugardag. Þegar upp
var staðið höfðu KR-ingar skorað
fjögur mörk en Eyjamenn ekkert -
sanngjörn úrslit sem lýsa nokkuð
gangi leiksins.
Það er erfitt að dæma KR-liðið af
þessum leik. þó cr Ijóst að það skipa
sterkir og vel samæfðir leikmenn
sem sjálfsagt vonast eftir að standa
með íslandsmeistarabikarinn í
höndunum þcgar móti lýkur.
Ásbjörn Björnsson skoraði fyrsta
markið í Vesturbænum um helgina
eftir góðan undirbúning Gunnars
Gíslasonar. Stuttu síðar skoraði Sæ-
björn Guðmundsson stórglæsilegt
mark, tók boltann á lofti af tuttugu
metra færi og sendi hann með hörku-
skoti í netið. Björn Rafnsson skoraði
hin tvö mörkin fyrir KR-inga, það
síðara í síðari hálfleik með ckki
síðra skoti cn þrurnu Sæbjarnar.
Eyjamenn voru slakir í þessum
leik, helst að „görnlu jaxlarnir", þeir
Ómar Jóhannsson og Kári Þorleifs-
son sýndu takta. Enginn skyldi þó
halda að Eyjamenn gefi auðveldlega
stigin cftir á sínurn heimavelli, með
vaxandi reynslu og styrk eiga þcir
eftir að sækja sig - annað er varla
hægt.
Allir KR-ingarnir léku vcl. Hin
þriggja manna vörn þeirra sem
samanstendur af Ágústi Má. Jóns-
syni, Lofti Ólafssyni og Jósteini
Einarssyni virkar sérlega óárennileg
fyrir andstæðingana.
íslandsmótiö í knattspyrnu - 1. deild:
„Engar skýjaborgir“
-sagði Jón Hermannsson eftir sigur nýliöa Breiöabliks
„Ég er mjög ánægður meö sigur-
inn í þessuni leik cn viö byggjum
okkur þó engar skýjaborgir vegna
hans. Við niunum reyna aö taka
hvern leik fyrir sig og gera okkar
besta,“ sagöi Jón Hermannsson,
þjálfari Breiðabliks, eftir sigur sinna
manna á Keflvíkingum í opnunar-
uinferöinni ■ 1. dcild knattspyrnunn-
íslandsmótiö í knattspyrnu - 1. deild:
Bjarni skorar fyrst
Hann geröi mark eftir rúmar tvær m ínútur gegn Val
Þórsarar byrjuöu 1. deildina í
knattspyrnu á sigri á sjálfum íslands-
meisturum Vals á heimavelli sínuin
og skapaði oft usla meðal varnarmanna
Vals. Guðmundur Guðmundsson og Guð-
mundur Valur Sigurðsson, Blikamenn
báðir, voru einnig ógnandi í hlutverkum
sínum á miðjunni.
Magni Pétursson lék nú að nýju með Val
en var greinilega ekki búinn að ná sér
fullkomlega af meiðslum sínum og lítil
kjölfesta var því í miðjuspili Valsmanna.
í síðari hálfleiknum lifnaði leikurinn
nokkuð við, Valsmenn sóttu mcira en
Breiðabliksmenn voru hættulegri. Á 15.
mínútu var síðan Jón Þórir felldur inní teig,
víti dæmt og áðurnefndur Jón skoraði örugg-
lega. Gott hjá þessum knáa leikmanni.
Gestirnir héldu eftir markið sínum hlut,
ekkert mál.
Jón Þórir var góður í þessum leik og
reyndar fá allir Blikar einkunn fyrir góða
baráttu. Valsmenn vilja líklega gleyma þess-
um leik sem allra fyrst.
á Akurcyri. Sigurinn varð 2-1 og má
segja að hann hafí verið í naumara
lagi. Valsmenn voru mikið með
boltann í leiknum en gekk illa að
skapa sér færi og vinna úr þeim fáu
sem gáfust. Þórsarar börðust vel og
uppskáru í samræmi við það.
Það var rok og leiðinda veður er
leikurinn fór fram. Þórsarar voru á
undan vindinum í fyrri hálfleik og
skoruðu þá tvívegis. Bjarni Svein-
björnsson skoraði strax eftir tveggja
mínútna leik. Fljótasta markið í
deildinni. Hann fékk boltann eftir
langt innkast sem Stefán markvörð-
ur missti af og pikkaði boltanum í
netið. Hlynur Birgisson kom síðan
Þórsurum í 2-0 fyrir hlé með fallegu
marki. Aftur var það langt innkast
sem var byrjunin á marki. Valsmenn
náðu að skalla frá en aðeins til Hlyns
sem þrumaði tuðrunni af afli í netið
2-t).
í síðari hálfleik komu Valsarar
meira inní leikinn enda með vindinn
í bakið. Þeir sóttu nokkuð og í einni
sóknaraðgerð þeirra hrökk knöttur-
inn í hendi leikmanns Þórs og víti
var dæmt. Hilmar Sighvatsson skor-
aði örugglega úr því. Þórsarar lögðu
kapp á að verjast en Valsmenn sóttu
nokkuö. Guðni Bergsson átti skot í
slá en síðan var leikurinn úti.
Þetta var slakur leikur knatl-
spyrnulega séð enda aðstæður ekki
hinar bcstu. Valsmenn voru meira
með boltann cn Þórsarar voru bar-
áttuglaðir og tapa ekki auðvcldlega
á heimavelli. Það er orðin hefð.
ar seni fram fór á laugardaginn.
Blikarnir unnu sigur á Keflvíkingum
1-0 í slökum leik knattspyrnuleg séð
en þukkalega spcnnandi.
Þaö sem skildi þessi lið að var að
sóknarlína og sóknaraðgerðir Kefl-
víkinga voru mjög máttlitlar. Ógnun
þeirra við rnark Blikanna var engin.
Þeir uppskáru að vísu vítaspyrnu
rétt fyrir leikhlé cn þaö var uppúr
engu og mjög klaufalegt af Blikanum
að fcllu Kjartan Einarsson við horn-
ið á vítateignum og cndalínu. Kjart-
an tók sjálfur vítiðen Örn Bjarnason
í rnarki Blikanna varði vel. Þetta var
nánast í eina skiptið sem Keflvíking-
ar ógnuðu marki Blikanna.
Blikarnir voru heldur hættulegri
þó þeir liafi veriö að eiga við bestu
menn ÍBK í vörninni. Þá Valþór
Sigþórsson og Frey Sverrisson. Blik-
arnir eru með leikmenn í framlínu
sem gcta haldið boltanum og bcðið
eftir stuðningi. Þeir náðu að skora
sigurmarkið strax á 18. mínútu. Jón
Þórir Jónsson, helsti skclfir Kefla-
víkurvarnarinnar, fékk þá fallega
sendingu frá Hákoni inní teiginn.
Hann hikaði ckki heldur þrumaði í
netið.
Blikarnir áttu besta manninn á
vcllinum, Guðmund Guðmundsson.
Ungur strákur með góða boltameð-
ferð, hraða og auga fyrir samspili og
góðunt sendingum. Áhorfendur
voru fjölmargir í ágætu veðri á
Kópavogsvelli. Magnús Jónatansson
dæmdi leikinn og var ágætur.
Islandsmótiö í knattspyrnu - 1. deild:
Markalaust á Skaganum
ferðinni allan tímann og áttu liðin i vandræð-
um vegna hans í mörgum tilvikum.
FH spilaði á undan vindi í fyrri hálfleik og
voru eðlilega meira í sókn. Pálmi átti góðan
skalla strax í upphafí leiksins og á 15.mínútu
átti hann enn betri skalla eftir stórfallega
aukaspyrnu Viðars Halldórs. Sá skalli fór í
bláhornið og staðan var 1-0 fyrir heima-
menn. FH-ingar voru aðgangsharðari í fyrri
hálfleiknum og undir lok hans komst Ingi
Björn aleinn í gegnum vörn ÍBK og átti bara
eftir að leika á Þorstein í markinu. Honum
tókst það en missti við það jafnvægið og
skotið fór framhjá.
f upphafí síðari hálfleiks komst Ingi enn
einn í gegn og nú klikkaði hann ekki heldur
sendi tuðruna ■ netið 2-0. Keflvíkingar sóttu
látlaust eftir þetta og áttu sín færi. Þeim
tókst að minnka muninn en Kjartan Einars-
son þrumaði í slána úr aukaspyrnu og þaðan
barst knötturinn á höfuð Valþórs Sigþórs-
sonar sem sendi hann í netið. IBK sótti eftir
þetta en FH-ingar vörðust vel. Freyr Sverris-
son var góður hjá ÍBK en hjá FH voru Ingi
og Pálmi báðir hættulegir og vörnin stóð
fyrir sínu. Leikurinn varð aldrei rismikill
enda fauk hann oft út í veður og vind.
Einn af stóru leikjunum í fyrstu
umferð íslandsmótsins í knattspymu
var á Skaganum um helgina er
heimamenn tóku á móti Bikarmeist-
urum Fram. Frömurum hefur verið
spáð mjög góðu gengi á þessu ís-
landsmeistaramóti og Skagamcnn
eru jafnan mjög erfíðir heim aö
sækja. Leiknum lauk með marka-
lausu jafntefíi og geta bæði liðin
nokkuð vel við unað. Framarar áttu
hættulegri marktækifæri en í heild
var sanngjarnt að jafntefli skyldi
verða uppá teningnum.
Framarar byrjuðu betur enda
þurftu Skagamenn að breyta varnar-
leik sínum nokkuð þar sem Sigurður
Lárusson var í leikbanni. Guðjón
Þórðarson tók stöðu hans í vörninni
og skilaði henni mcð miklum sóma.
Þá spiluðu tveir nýliðar í öftustu
vörn Skagamanna cn þcir stóðu fyrir
sínu. Guðmundur Torfason var at-
kvæðamikill í liði Fram og fékk góð
færi strax í byrjun leiksins. Ekki
nýttust þau. Hinum megin gcrði
Friðrik markvörður vel að verja
þrumuskalla frá Guðbirni Tryggva-
sym.
Sama baráttan var uppá teningn-
um í síðari hálfleik og var í þeim
fyrri en mörkin létu á sér standa.
Reyndar fengu þeir 15000 áhorfend-
ur sem komu á leikinn að sjá alla
hliðar knattspyrnunnar nema rnörk.
Erfitt cr að taka leikmenn út og
hrósa. Þcssi lið eru jöfn og er það
helsti kostur þeirra. Guðmundur
Torfason var þó vel ógnandi og
Guðjón Þórðarson stóð sig mjög vel
í stöðu miðvarðar.
Sölutjöld 17. júní 1986 í
Reykjavík
Þeir sem óska eftir leyfi til sölu úr tjöldum á þjóðhátíðardaginn
17. júní 1986 vinsamlegast vitjið umsóknareyðublaöa
aö Fríkirkjuvegi 11, opið kl. 08.20-16.15.
Athygli söluhafa er vakin á því að þeir þurfa aö afla
viöurkenningar Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkursvæöis á
sölutjöldum og leyfi þess til sölu á viðkvæmum neysluvörum.
Umsóknum sé skilaö í síðasta lagi
þriöjudaginn 3. júní kl. 16.15.
IÞRÓTTA- OG
TÓMSTUNDARÁÐ