Tíminn - 06.06.1986, Side 1

Tíminn - 06.06.1986, Side 1
KRISTJÁN JÓHANNSSON mun hlaupa í skarðið fyrir rússneska söngvarann Paata Burchuladze sem ekkl fékk leyfi til að syngja á Listahátíð. Kristján mun syngia ítalskar aríur með Sinfóníu- hljómsveitlslandsíHáskólabíói á föstudags- kvöldið. Kristján hætti við að fara til Bandarikj- anna þar sem hann átti að byrja æfingar á óperu. DAUFBLINDIR verðaefniráðstefnu sem haldin verður í dag í Harmahlíð 17, en daufblindur er sá sem haldinn er af samsett- um sjón- og heymarskaða í alvarlegum mæli. Á fundinn koma sérfræðingar frá Norðuriöndunum og halda erindi. AUKASÝNING verður á Fröken Júlíu eftir Strindberg í leikstjóm Ingmar Bergman í Þjóðleikhúsinu á sunnudag kl. 16.00 og er miðasala þegar hafin. Mikil aðsókn var á báðar sýningamar sem fyrir- hugaðar voru því verður aukasýningin. SKÓGARDAGUR verður á morg- un á vegum Skógræktarfélags íslands og er tilgangurinn sá að vekja athygli á málstað skógræktar hér á landi. Skógræktarfélögin sjá um að gróðursetja plöntur og fræða landsmenn um skóg- og trjárækt. VESTMANNAEYINGAR fengu nýjan bæjarstjómarmeirihluta á miö- vikudag og er hann myndaður af Alþýðu- flokki, Alþýðubandalagi og Framsóknarflokki. Rætt er um að Páll Zophoníasson fyrrum bæjarstjóri taki það starf að sér aftur. GRASKÖGGLAVERK- SMIÐJUR í eigu ríkisins verða boðnar til solu i haust og verður leitað til heima- manna um að þeir taki við rekstri þessara verksmiðja. Veri<smiðjumar sem um ræðir eru fjórar. MEIRIHLUTI var myndaður í Njarðvík af Alþýðu- og Framsóknarflokki: Sjálfstæðis- flokkur hafði áður hreinan meirihluta en missti hann í kosningunum. JÓN L. ÁRNASON á nú mögu- leika á stórmeistaraáfanga á alþjóðlegu skákmóti í Helsinki sem nú stendur yfir. Þegar átta umferðum var lokið af 11 var Jón efstur á mótinu ásamt Dananum Curt Hans- en með 61/é vinning. Jón þarf 8 vinninga til að fá stórmeistaraáfangann. KENNARASAMBANDIÐ hef ur sent frá sér ályktun þar sem, harmað er að fulltrúar í Fræðsluráði Reykjavíkur skuli vinna gegn ákvæðum laga um embættis- gengi kennara og skólastjóra með því að viðurkenna ekki tillit til umsagnar skólastjóra Melaskóla um umsækjendur um stöðu yfir- kennara við skólann. Fræðsluráð valdi ann- an umsækjanda en skólastjóri mælti með. 28 MANNA HÓPUR frá hár snyrtistofum víðs vegar af landinu sótti nýlega námskeið hjá'Wella-snyrtivörufyr- irtækinu í V-Þýskalandi. Kennsla fór fram í einu fullkomnasta hárstúdíói heims þar sem 22.000 gestir koma árlega og njóta tilsagnar og leiðbeininga færustu sér- fræöinga í meðferð á hári. Hópurinn fékk sýnikennslu um ýmsar nýjungar, svo sem permanent, litun, nýjar vinnuaðferðir og hagkvæm vinnubrögð, auk þess að fá þjálfun í notkun hársnyrti- efna frá Wella. KRUMMI Hörð gagnrýni á flugumferðarstjórn - „vísa skýrslunni á bug,“ segir Jón Árni Þórisson flugumferðarstjóri í skýrslu sem unnin var fyrir flugmálastjórnina á íslandi árið 1984 en ekki hefur verið birt fyrr en nú, kemur fram hörð gagnrýni á flugumferðarstjórnun á íslandi. Þar er meðal annars talað urn skort á aga og þjálfun flugumferðar- stjóra og því sé m.a. um að kenna ónákvæmni í flugumferðarstjórn- un á íslandi. Flestir varðstjórar séu ekki gjaldgengir sem flugurn- ferðarstjórar því þeir hafi hver sína starfsreglu og telji hana besta. Jón Árni Þórisson flugumferðar- stjóri vísaði þessari gagnrýni á bug í samtali við Tímann og sagði að t.d. væru allar aðskilnaðarreglur nákvæmlega eins, alveg sama hvar menn hefðu lært þær reglur. Jón Árni sagði ennfremur að íslenskir flugumferðarstjórar hefðu aldrei fengið að sjá upprunalegu skýrsl- una sem David Andersen fyrrum yfirmaður þjálfunar og hæfnis- deildar bandarísku flugmálastjórn- arinnar vann. Engu væri líkara, en flugmálastjóri hefði matað hann á þeim upplýsingum sem honum hentaði og sjá mætti orðalag flug- málastjóra í íslensku þýðingunni sem flugumferðarstjórar hafa feng- ið að sjá. „Eftir atvikið sem átti sér stað yfir Austfjörðum um daginn hefur flugmálastjóri gert það að aðalatriði að við skráum okkur ekki inn og úr stöðum þegar við erum að stjórna umferð, en ég vil vekja athygli á því að við tölum inn í segulband með klukku í hvert sinn sem við stjórnum umferð og það hlýtur að vera betra sönnun- argagn heldur en minnisblokkir," sagði Jón Árni. Jón Árni sagði einnig að eftir að skýrslan kom, hefði þremur varð- stjórum verið vikið úr starfi vegna þess að þeir voru ekki taldir hæfir, en nú vill svo ti! að tveir þeirra eru að koma aftur upp til starfa einmitt á háannatímanum. ABS Stuðmenn hressir og kátir eftir vel heppnaða Kínaför. Stuðmenn komnir heim frá Kína í gær stigu Stuðmenn aftur á föðurlandið eftir mánaðardvöl í Kína. Meðlimir hljómsveitarinnar voru hinir hressustu, þrátt fyrir strangt ferðalag og sögðust hafa fengið konunglegar móttökur hvert sem þau fóru. „Það hefur aldrei verið gert svona mikið með mann fyrr,“ sagði Jakob Magnús- son við komuna til landsins. Stuðmenn héldu 11 tónleika á 7 stöðum í Kína og áheyrendur voru yfirleitt á bilinu 1700 til 2500 manns á hverjum tónleikum. Eftir tón- leika biðu venjulega framámenn bæjarins og gáfu þeim blóm og vottuðu þeim virðingu sína á alla lund, að sögn Ragnhildar. Maturinn í Kína kvað hafa verið aldeilis frábær og sagðist Ragnhild- ur ekki vita hvernig hún færi að núna, þegar engan „alvöru" kín- verskan mat væri lengur að fá. Fyrsta kvöldið í Kína var Stuð- mönnum haldin mikil veisla þar sem borinn var fram rafvæddur grís með leiftrandi augu og tilheyr- andi og framhaldið eftir því. Unglingar í Kína kunnu vel að meta Stuðmannatónlistina, eða eins og; Ragnhildur sagði: „Ung- lingai í Kína hungrar alveg í svona tónlist því þar er lítið framboð af henni, þau sungu og skemmtu sér alveg frábærlega vel.“ í Peking var stemmningin orðin fjaðurmögnuð og unglingar drifu sig upp á svið og fóru að dansa en það hafði hins vegar þær afleiðingar að næsta kvöld var lögreglumönnum fjölgað, til þess að það endurtæki sig ekki. Aðspurðir, um væntanlega plötusölu í Kína í kjölfar heim- sóknarinnar sagði Jakob að plötu- fyrirtæki kínverska menningar- flokksins hefði gert samning um sölu á tvö hundruð plötum - og glotti. Egill kvaðst hafa haldið skallan- um við í Kína með því að heim- sækja frumstæðar rakarastofur þar sem rakarinn sinnti hinum ýmsu heimilisstörfum, t.d. að slátra hænsnum til kvöldverðar. Fagnaðarfundirhjá Agli Og Tinnu. / (Tímamyndir Gísli Kgill) lceland Seafood Corporation: Söluaukning fyrstu fimm mánuði ársins - eftirspurn meiri en framboð Iceland Seafood Corpora- tion seldi fiskafurðir fyrir rúm- lega 2,7 milljarða ísl. kr. fyrstu fimm mánuði ársins, þar af í maí fyrir 10.6 milljónir dollara þetta er 525 milljónum ísl. kr. meiri sala en fyrstu 5 ntánuði síðasta árs. Guðjón B. Ólafsson forstjóri sölufyrirtækisins segir að salan ( hefði getað orðið meiri en skortur á íslenskum fiskafurð- um hefði dregið úr sölutnögu- leikum fyrirtækisins, og erfitt væri að gera sér grein fyrir langtímaáhrifum þess að geta ekki annað eftirspurninni. Hann sagði að vöruskortur hefði verið mikill að undan- förnu, jafnvel hefði verið skortur á þorskflökum, en einnig hefði verið lítið af karfa og grálúðu. Einnig hefði verið hægt að selja meira af rækju ef hún hefði verið fáanleg. ABS ABS

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.