Tíminn - 06.06.1986, Qupperneq 2
2 Tíminn -
Föstudagur 6. júní 1986
Meðalland:
Hátíðarmessa
í Langholti
- kirkjan verður 200 ára á sunnudag
Hátíðarguðsþjónusta verður í
Langholtskirkju í Meðallandi næst-
komandi sunnudag, 8. júní, en þá
minnast Meðallendingar þess er séra
Jón Jónsson á Eystri Lyngum vígði
kirkjuna þann dag fyrir 200 árum.
Veturinn áður hafði Jón messað í
skemmu sem breytt var í kapellu á
Ytri Lyngum.
Kirkjan hafði verið flutt frá Skarði
vegna sandfoks að Hólmaseli og stóð
þar í 30 ár þar til Skaftáreldahraunið
rann fyrir kirkjuna 23. júní 1783.
Kirkju sveitarinnar var þá valinn
staður að Langholti.
Kirkjan sem nú stendur var byggð
úr timbri 1863 og er hún enn í dag
með sama sniði og smiðir hennar
gengu frá henni þá en hefur verið
endurbætt, síðast 1963.
Við guðsþjónustuna verða prestar
sýslunnar og prófastar en dr. Sigur-
björn Einarsson biskup prédikar.
Prestur sóknarinnar er séra Sighvat-
ur Birgir Emilsson í Ásum.
Guðsþjónustan hefst kl. 14.00.
Suðurland:
Kjartan Ragnarssun leikari tekur á móti bjartsýnisverðlaunum, bjartsýnn á svipinn.
Sérleyfi sameinast
Kjartan hlýtur verð-
laun fyrir bjartsýni
Fréttaritari Tímans á Selfossi,
Svcinn Helgason.
Sérleyfisbílar Selfoss og Ólafur
Ketilsson h/f hafa nú sameinað rekst-
ur sinn og einnig keypt fyrirtæki
Kristjáns Jónssonar sérleyfishafa.
Um helgina var formlega gengið frá
stofnun nýs fyrirtækis og nefnist það
S.B.S. h/f.
Fyrirtækið mun aka á flestum
leiðum í Árnessýslu og segja for-
ráðamenn þess að þjónusta í byggða-
laginu muni nú stóraukast. Alls eru
nú 18 bílar í bílaflota S.B.S., en
innan skamms bætast tveir nýir við
og mun þá sætafjöldi vera kominn
upp í 950. f sumar verða um 25
starfsmenn í fullu starfi hjá fyrirtæk-
inu og sagði framkvæmdarstjóri þess
Þórir Jónsson, að með sameining-
unni næðist betri nýting á starfsfólki
og bílakosti. Aðspurður um fjár-
hagsafkomu þeirra fyrirtækja sem
standa að S.B.S., sagði Þórir að hún
hefði ekki verið sérlega góð og
skýrir það að einhverjum hluta fyrr-
nefndar breytingar. Aðalstöðvar
S.B.S. verða á Selfossi og mun
afgreiðslustöð þar verða í hinu nýja
félagsheimili Selfossbúa, Ársölum.
Kjartan Ragnarsson leikari hlaut
sl. þriðjudag bjartsýnisverðlaun
Bröste fyrirtækisins. Það var
kennslumálaráðherra Dana Bertel
Haarder, sem afhenti verðlaunin
að viðstöddu fjölmenni úr dönsku
leikhúsh'fi. Jazz-hljómsveit ís-
lenskra námsmanna lék fyrir gesti.
Þetta var í sjötta skiptið sem
þessi bjartsýnisverðlaun eru veitt
til íslenskra listamanna, og tilgang-
ur þeirra að tengja ísland og Dan-
mörku traustari menningarbönd-
um. Verðlaunaupphæðin nemur
30.000,00 dönskum krónum. phh
ERTÞÚ
GÓÐUR?
FJÁRÖFLUN
5. OG 6. JÚNÍ 1986
til tækjakaupa fyrir endurhæfingardeild
hjartasjúklinga að Reykjalundi
:||1§> LANDSSAMTÖK HJARTASJÚKUNGA j
Aflahorfur næsta áratug:
Botnfiskafli gæti
aukist verulega
- ýmsir stofnar ónýttir
í álitsgerðum um þróunarhorfur í
íslenskum sjávarútvegi sem lagðar
voru fram á ráðstefnu Rannsóknar-
ráðs ríkisins um „þróun sjávarút-
vegs“ í fyrri viku, kemur m.a. fram
að samkvæmt útreikningum Haf-
rannsóknarstofnunarinnar eru líkur á
að jafnstöðuafli botnfisks á næstu 10
árum geti verið um 700 þúsund tonn
á ári. Þar af er hlutur þorsks 380
þúsund lestir og hlutur annars botn-
fisks 320 þúsund tonn. Þorskstofninn
hefur verið í lágmarki síðan 1982,
enda hafði nýliðun verið með léleg-
asta móti síðan 1977. Það eru einmitt
árgangar frá þessu tímabili (1977-
1982) sem eru undirstaða þorsk-
stofnsins um þessar mundir og verð-
ur jafnstöðuafli við slík skilyrði varla
meiri en 250-300 þúsund tonn á ári
og botnfiska í heild um 550-600
þúsund tonn. Horfur eru því á
100-150 þúsund tonna aukningu í
jafnstöðuafla botnfisks á næstu tíu
árum, en þessi aukning verður enn
meiri ef farið verður að veiða ónýtt.a
botnlæga fiskstofna s.s. gulllax, lang-
hala, beinhákarl skrápflúra eða
stofna sem hafa verið vannýttir s.s.
hákarl, úthafskarfi og spærlingur.
60 konur á hvíldarviku:
Húsmæðravika í Bifröst
- á vegum Sambandsins og kaupfélaganna
í Bifröst í Borgarfirði er nú að Björn Th. Björnsson listfræðingur,
hefjast árleg húsmæðravika Sam- Jón Sigurðsson skólastjóri, Héðinn
bandsins og kaupfélaganna. Að Emilsson tryggingafulltrúi og ísólfur
þessu sinni sækja vikuna um 60' Gylfi Pálmason kennari að Bifröst.
konur, víðs vegar að af landinu, en Þá mun Dómhildur Sigfúsdóttir
á dagskrá eru fyrirlestrar, kvöldvök- húsmæðrakennari annast ostakynn-
ur, fræðsluefni og stutt ferðalög um ingu á vegum Osta- og smjörsölunn-
Borgarfjörð. ar. Húsmæðravikan stendur að
Meðal fyrirlesara verða Sigrún þessu sinni dagana 4.-11. júní.
Jóhannesdóttir kennari að Bifröst, -esig
Samkvæmt þeim hugmyndum sem
Hafrannsóknarstofnun hefur um
magn þessara stofna er jafnstöðuafli
þeirra á tímabilinu 50-150 þúsund
lestir.
Gert er ráð fyrir í að afli uppsjáv-
arfiska verði sveiflukenndur eins og
verið hefur, einkum loðnuaflinn.
Möguleikar virðast vera á aukningu
kolmunnaafla en síldaraflaaukning
er hins vegar háð óvissum göngum
frá öðrum hafssvæðum. Þá telur
Hafrannsókn að meðal botnlægra
hryggleysingja séu ýmsir mögulegir
vannýttir stofnar, s.sr kúfskel,
kræklingur, ýmsar krabbategundir
og ígulker. Hins vegar telur stofnun-
in ekki líklegt að aukning verði í afla
úthafsrækju og hörpudisks á næstu
árum, heldur muni veiðarnar finna
nýtt jafnvægi.
í forsendum Hafrannsóknarstofn-
unar fyrir þessum spám segir, að
stofnstærðir og afrakstur þeirra sé
mjög háður sveiflum í umhverfisað-
stæðum og gerði stofnunin ráð fyrir
að þessar sveiflur yrðu með sama
»«iiði og verið hefur síðan 1965.
-BG